Morgunblaðið - 17.09.2005, Page 40
Morgunblaðið/Ómar
Horft niður eftir Penny Lane í Liverpool.
Núpsstaðarskógar og
Höfðabrekkuafréttur
HELGINA 23.–25. september efnir
Hópferðamiðstöðin-Vestfjarðaleið til
helgarferðar í samvinnu við Ferða-
félag Íslands. Farið verður í Núps-
staðarskóga og á Höfðabrekkuafrétt
í Mýrdal.
Á laugardeginum verður farið um
Núpsstaðarskóga og nágrenni sem
eru með fegurstu stöðum á landinu
og haustlitirnir auka á þá fegurð. Ek-
ið er inn með Lómagnúp að austan
og inn undir brekkur Eystrafjalls. Þar
er falleg gönguleið
um skógana, hjá
Staðarhóli og hrika-
legum giljum inn að
Kálfsklifi. Upp það er
farið á járnkeðju og
blasir þá við Núps-
hylur, en í hann falla
tveir fossar, Núps-
árfoss og Hvítárfoss.
Höfðabrekkuafréttur
er minna þekkt náttúruperla undir
Mýrdalsjökli. Þangað verður farið
fyrrihluta sunnudags og ekið inn í
Þakgil sem nú er orðið aðgengilegt
ferðafólki. Verð 9.500 kr á mann
með rútu, gistingu í tvær nætur í
svefnpokaplássi á Hótel Lunda í Vík,
leiðsögn og grillveislu.
Hálft gjald fyrir börn yngri en 14 ára.
Aukagjald fyrir uppbúið rúm og
morgunverð. Fararstjóri er Kristján
M. Baldursson.
Flugstöðvarblaðið
Flugstöðvarblaðið – Airterminal &
travel magazine er nýtt tímarit Flug-
stöðvar Leifs Eiríks-
sonar sem er dreift
frítt til farþega sem
leið eiga um Flugstöð-
ina
Tímaritið, sem kemur
út einu sinni í mánuði,
er bæði á íslensku og
ensku. Fyrir íslenska
lesendur er boðið upp
uppá viðtöl og greinar,
kynningar á ferðamöguleikum frá Ís-
landi tengt hverjum árstíma, nytsam-
legar ferðaupplýsingar, kynningar á
erlendum borgum og erlendir ferða-
menn geta lesið um áhugaverða
staði, mat, afþreyingu og menningu á
Íslandi.
Það er Útgefandinn ehf. sem gefur
Flugstöðvarblaðið – Airterminal &
travel magazine út í samvinnu við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ritstjórn
er í höndum Snæfríðar Ingadóttur.
Ít-ferðir og
enski boltinn
Ít-ferðir bjóða að venju miða á leiki í
London, Manchester, Liverpool, New-
castle og á fleiri stöðum en hafa nú
gert nýja samninga við helstu félögin
og við gististaði.
Boðið er upp á leiguflug beint frá
Reykjavík til Liverpool, Manchester
og Newcastle.
Frekari upplýsingar um fótbolta-
ferðir til Bretlands:
ÍT ferðir
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal,
sími 588 9900
Nánari upplýsingar um ferð í
Núpsstaðarskóga:
Hópferðamiðstöðin-Vest-
fjarðaleið,
Hesthálsi 10,
110 Reykjavík, Símar: 562 9950
og 587 6000
Netfang: info@vesttravel.is
Heimasíða: www.vesttravel.is
Félagar úr GagnfræðaskólaKeflavíkur, sem kalla sigÁtthagafélagið ’58, genguum Víknaslóðir í lok júlí í
sumar. „Við höfum hist reglulega
allar götur síðan við útskrifuðumst,“
segir Gylfi Arnbjörnsson fram-
kvæmdastjóri ASÍ, sem tilheyrir
hópnum. „Við erum komin á þann
aldur að við viljum fara að hreyfa
okkur meira en áður og var fyrsta
ferðin farin á Hornstrandir í fyrra. Í
ár voru það Víknaslóðir og nú er
verið að skipuleggja gönguna næsta
sumar. Þetta eru svona fjögurra til
sex daga gönguferðir, sem við mið-
um við.“
Ferðaskrifstofa Austurlands
skipulagði ferðina og tók hún fimm
daga. Ferðin hófst með göngu um
Stórurð í Dyrfjöllum niður í Borg-
arfjörð eystri, þar sem gist var
fyrstu nóttina. Daginn eftir var lagt
upp frá Borgarfirði í Brúnavík og yf-
ir í Breiðuvík. Frá Breiðuvík var
gengið yfir í Húsavík og áfram í
Loðmundarfjörð um Stakkahlíð eða
öðru nafni Loðmundarskriður og
Kækjuskörð niður í Borgarfjörð og
þar lauk hringnum.
„Það má skipuleggja gönguna á
marga vegu og sumir sem fara þessa
leið kjósa að halda áfram yfir á
Seyðisfjörð,“ segir Gylfi. „Aðrir taka
Víkurnar í tveimur áföngun og er þá
fyrst farið það sem kallað er norð-
urvíkur. Frá Borgarfirði niður í
Brúnavík og Breiðuvík um margar
minni víkur sem þar eru.“ Gylfi seg-
ir þau hafa verið nokkuð heppin með
veður. Að vísu var þokan að stríða
þeim á köflum, sérstaklega í upphafi
ferðarinnar en alltaf náði að birta til
á réttum augnablikum. „Þegar við
lögðum í Stórurðina gengum við upp
úr þokunni og þegar við komum í
urðina náði hún að hreinsa sig,“ seg-
ir hann. „Þegar við stóðum á ásnum
fyrir ofan urðina og horfðum niður
þá skyggði þokan á útsýnið en þegar
við lögðum af stað niður eftir að hafa
aðeins hvílt okkur náði vindurinn að
blása þokunni frá og við okkur blasti
Stórurðin upp úr og niður úr. Þann-
ig að við fengum alltaf það útsýni,
sem við áttum heimtingu á og eins
var það með Dyrfjöllin. Þau voru
böðuð í skýjum en svo náði vind-
urinn alltaf að svipta frá hulunni
öðru hvoru og þá komu tindarnir og
Dyrnar í ljós. Það var óskaplega fal-
legt.“
Erfitt á köflum
Hópurinn var með leiðsögumann,
Arngrím Viðar Ásgeirsson, alla ferð-
ina og síðan bættist Árni Stefánsson
við síðustu daganna. „Margir fara
þessa ferð án leiðsögumanna og það
er sjálfsagt óhætt en þegar þokan
lætur á sér kræla þá er gott að vera
með leiðsögumann, svo ekki sé talað
um að fræðast um lifnaðarhætti
fólks hér áður fyrr,“ segir Gylfi.
„Gönguleiðin er ekki erfið, en
Stórurð er dálítið erfið á köflum,
sérstaklega undir lokin þar sem eru
grýttar fjallshlíðar. Þessi leið er
ekki mjög brött, yfirleitt farið í
svona 4-500 metra hæð nema í 740
metra í Kækjuskörðum. Hækkunin
er reyndar aflíðandi þar og ekki erf-
GÖNGUFERÐ | Gylfi Arnbjörnsson fór á Víknaslóðir í sumar
Átthagafélagið ’58
lagði land undir fót
Félagar úr Átthagafélagi ’58 úr Gagnfræðaskóla Keflavíkur við Hvítserk en þeir gengu um Víknaslóðir í sumar.
Í Loð-
mund-
arfirði
er grös-
ugt og
falleg
fjalla-
sýn.
40 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
www.floridafri.com
Hótel - íbúðir - siglingar
NÚ hefur gamalli sirkusbyggingu í
Kaupmannahöfn verið breytt í veit-
inga- og skemmtistað. Það er
sænska fyrirtækið Wallmans Nöjen
sem stendur fyrir nýja skemmti-
staðnum þar sem settir verða upp
söngleikir og sýningar.
Fjölleikahús var opnað í steyptri
byggingu við Jernbanegade í hjarta
Kaupmannahafnar árið 1886 og allt
til ársins 1914 voru þar fjöl-
leikasýningar en þá hrundi bygg-
ingin. Sirkusinn var endurbyggður
og margir Kaupmannahafnarbúar
hafa upplifað fjölleikasýningar í
húsinu í gegnum árin.
Wallmans Nöjen tók við bygging-
unni fyrir tveimur árum og stóð
fyrir endurnýjun á henni og hefur
áhersla verið lögð á að viðhalda
þeirri hefð að í húsinu skemmti fólk
sér. Gömlu hesthúsin eru t.d. orðin
að eldhúsi veitingastaðarins og hí-
býli fílanna að búningsklefum leik-
aranna.
Wallmans Nöjen hóf starfsemi í
Svíþjóð á 7. áratugnum og rekur nú
veitinga- og skemmtistaði í Svíþjóð,
Noregi, Danmörku og Bretlandi.
Fyrir fjögurra rétta kvöldverð
og skemmtun greiðir fólk 500 – 675
danskar krónur á mann, allt eftir
tímasetningu.
KAUPMANNAHÖFN
Gamla sirkusbyggingin
nú veitingastaður
www.wallmans.dk
FRÁ 19. september nk. mun SAS
setja þúsundir farmiða á uppboð
hjá netuppboðsfyrirtækinu Lauritz-
.com. Um er að ræða miða til tutt-
ugu áfangastaða SAS í Evrópu og
upphafsverð er 50 danskar krónur
eða rúmar 500 íslenskar krónur og
eru þá flugvallargjöld innifalin, að
því er fram kemur á fréttavef Berl-
ingske Tidende.
Í fyrstu atrennu verður boðið
upp á 5.000 farmiða sem boðnir
verða upp í tuttugu umferðum á
Netinu. Uppboðið byrjar t.d. á
mánudagsmorgni og hægt verður
að bjóða í miðana með 50 danskra
króna millibili fram á þriðjudags-
kvöld. Lauritz.com er uppboðsvefur
sem heimsóttur er af 300 þús-
undum manns á viku. Uppboðs-
húsið Lauritz var stofnað árið 1885
og var það fyrsta sem byrjaði einn-
ig á netuppboðum. Velta síðasta
árs nam yfir sem samsvarar 3,7
milljörðum íslenskra króna. Mette
Rode, framkvæmdastjóri Lauritz-
.com, segir að uppboð byggist á því
að markaðurinn ákveði verðið og
þannig verði það líka í tilviki SAS-
farmiðanna.
Þúsundir farmiða á 500 kall
UPPBOÐ