Morgunblaðið - 17.09.2005, Side 59
HREFNA Sigurjónsdóttir, stjórn-
arformaður Reykjanesfólkvangs,
vill að fólkvangurinn verði gerður
að þjóðgarði enda sé svæðið meira
en nógu merkilegt til þess. Fólk-
vangurinn hafi hins vegar verið
vanræktur og því miður þekki flest-
ir íbúar höfuðborgarsvæðisins að-
eins lítinn hluta af svæðinu.
Reykjanesfólkvangur var töluvert
í fréttum sumar og ekki alltaf af
góðu. Morgunblaðið flutti m.a.
fréttir af vaxandi utanvegaakstri á
torfærumótorhjólum og jeppum.
Reist var beitarhólf fyrir sauðfé
Grindvíkinga innan fólkvangsins
gegn andmælum fólkvangsstjórnar-
innar og Hafnarfjarðarbær gekk
sömuleiðis gegn áliti stjórnar þegar
leyfð var kvikmyndataka við Arn-
arfell.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Hrefna að Reykjanesfólkv-
angur væri því miður lítið í fréttum
nema þegar verið væri að skemma
hann. Þá hefði ítrekað verið gengið
gegn áliti stjórnarinnar fólkvangs-
ins og raunar væri nauðsynlegt að
ræða ítarlega stöðu hennar. Á
þessu ári eru 30 ár liðin frá því
Reykjanesfólkvangur var formlega
settur á laggirnar og var tilgang-
urinn sá, að sögn Hrefnu, að hann
yrði útivistarsvæði fyrir íbúa á suð-
vesturhorninu. Afar litlu fé hefði
hins vegar verið varið til uppbygg-
ingar þar og með núverandi fjár-
framlögum væri lítið hægt að gera
umfram að greiða laun eftirlits-
manns í sex mánuði á ári. Hún
gagnrýndi bæjaryfirvöld í Hafnar-
firði og Grindavík, sem eru helstu
landeigendur í fólkvanginum, fyrir
áhugaleysi. „Svæðið hefur ekki
komist nógu vel á kortið og höf-
uðborgarbúar vita voðalega lítið um
mestallan fólkvanginn,“ sagði hún.
Flestir þekki Kleifarvatn og nokkra
staði til viðbótar en að öðru leyti
viti menn voðalega lítið, t.d. hefðu
tiltölulega fáir komið á Vigdísarvelli
og að Djúpavatni. Þetta væri synd
því fólkvangurinn væri í örskots-
fjarlægð frá borgarniðnum og það
tæki varla meira en um 15 mínútur
að komast út úr borginni og á svæði
í fólkvanginum sem minntu helst á
hálendi Íslands. Umgengni um fólk-
vanginn hefði því miður versnað og
nefndi Hrefna sérstaklega fjölgun
torfærumótorhjóla í því samhengi.
Hrefna sagði mikilvægt að sveit-
arfélögin sem standa að fólkvang-
inum hugsuðu sinn gang og mótuðu
stefnu um framtíð hans, nú þegar
30 ár væru liðin frá stofnun hans.
Þá væri óskandi að málið yrði á
dagskrá í næstu sveitarstjórnar-
kosningum.
Þetta verður meðal þess sem
verður rætt á opnu málþingi um
stöðu fólkvangsins sem haldið verð-
ur á þriðjudaginn 20. september nk.
Hrefna Sigurjónsdóttir, stjórnarformaður Reykjanesfólkvangs
Vill að Reykjanesfólkvang-
urinn verði þjóðgarður
Morgunblaðið/ÞÖK
Myndin er af Arnarfelli í Reykjanesfólkvangi, ekki Suribachi-eldfjalli á
Iwo Jima.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 59
Nissan Sunny árg. '94
ekinn 168 þús., 4ra dyra. Skoðað-
ur '06. Verð 145 þús. Upplýsingar
í síma 690 1433 og 844 6609.
Toyota Carina E, árg '93.
Skoðaður '06 . Hiti í sætum, raf-
magn í rúðum, fallegur bíll. Verð
240.000. Uppl. í síma 660 2326.
Til sölu VW Passat station,
árg. '99, ekinn 123 þús., álfelgur,
nýjar bremsur, sk. '06. Góður bíl.
Verð 850 þús. Áhv. 720 þús.
Upplýsingar í síma 669 1195.
Subaru árg. '02, ek. 52 þús. km.
Til sölu Subaru Legacy Wagon,
sjálfsk., 2000cc, dráttarbeisli, álf-
elgur. Vel með farinn og góður
bíll. Verð 1.650.000.
Upplýsingar í síma 895 0988.
VW Golf Syncro 4WD '98. Ek.
114, 5 d., 5 g., ABS, góður bíll,
frábær í vondri færð. Verð 450 þ.
Uppl. jgj@simnet.is, s. 896 8989.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, nýr,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Fellihýsi
Fellihýsi, tjaldvagnar og fleira.
Geymum fellihýsi og tjaldvagna
í upphituðu rými í Borgarfirði. Að-
eisn 95 km frá Reykjavík. Sann-
gjarnt verð. Uppl. s. 577 4077.
Fellihýsi til sölu. Mjög vel með
farið Coleman Taos til sölu. Búið
er að breyta því. Uppl. 897 9448
eða 482 3533. Verð 500.000. Vilj-
um jafnvel skipta á stærra.
Coleman Ceyenne fellihýsi.
Coleman Ceyenne 10 fet. Upp-
hækkað, grjótgrind, burðarbogar,
extra þykk og mjúk dýna, heitt og
kalt vatn, miðstöð, pokahilla, 2
gaskútar, sjónvarpsloftnet,
hleðsla í bílinn, ísskápur. Upplýs-
ingar í síma 821 6386.
Mótorhjól
Til sölu flottasta skellinaðra
landsins. Til sölu er ein kraft-
mesta og flottasta skellinaðra
landsins, Rieju MRX 50 Racing
PRO árg. 2004, með nýju 70 cc
kitti. Verð 330.000 kr. staðgreitt.
Sími 696 0609.
Hreingerningar
Ræstivagn stór, 2 fötur, pressa.
Lítil fata með pressu og þvegli.
Bakryksuga (Nilfisk) selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 862 8272.
Fyrirtæki, stofnanir og heimili
Við hreinsum allar tegundir af
gardínum. Gerum tilboð.
Upplýsingar í síma 897 3634.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Smáauglýsingar
sími 569 1100
ÁRLEG dagsferð fyrrverandi starfs-
manna Alcan og maka þeirra var farin á
dögunum og tóku um 140 manns þátt í
henni. Þetta var í 17. skipti sem fyr-
irtækið bauð í ferð af þessu tagi og og
var þátttakan góð að vanda. Í ár var
ferðast um suðvesturhornið, en að vanda
hófst dagurinn með glæsilegu morg-
unverðarhlaðborði í Straumsvík. Ekið var
til Stokkseyrar, þar sem Draugasetrið
var skoðað, og eftir hádegisverð á Hótel
Selfossi var kirkjan á staðnum skoðuð
undir leiðsögn sr. Gunnars Björnssonar.
Þaðan var svo ekið til Þingvalla þar sem
Sigurður Líndal fræddi fólk um sögu
staðarins og kennileiti.
Alcan í Straumsvík er eitt fárra fyr-
irtækja á Íslandi sem býður fyrrverandi
starfsfólki sínu í dagsferðir af þessu tagi.
Að auki er fyrrverandi starfsmönnum
boðið til hádegisverðar fyrir jól, segir í
fréttatilkynningu.
Á myndinni er hluti hópsins ásamt for-
stjóra og öðru fylgdarliði frá Alcan.
Góð þátttaka
í ferð Alcan
Dagsferð fyrrverandi starfsmanna Alcan.
13.00 Sigríður Anna Þórð-
ardóttir umhverf-
isráðherra setur mál-
þingið
13.10 Sigrún Helgadóttir
fjallar um skýrslu sem
hún gerði í fyrra um
fólkvanginn
13.45 Umræður
14.00 Sjónarmið staðkunnugs
– Jónatan Garðarsson
14.20 Umræður
14.30 Kaffihlé
15.00 Sjónarmið göngugarps –
Steingrímur J. Sigfús-
son
15.20 Framtíðarsýn og opnun
heimasíðu – Hrefna Sig-
urjónsdóttir, formaður
stjórnar Reykjanesfólk-
vangs
15.40 Pallborðsumræður, á
palli verða fulltrúa
sveitarfélaganna
16.30 Málþingi slitið
Málþing um
stöðu
fólkvangsins
í Norræna
húsinu
BSRB hefur gefið út bæklinginn
„Opinber eða einkarekin heil-
brigðisþjónusta“ eftir sænska
prófessorinn Göran Dahlgren, að
því er fram kemur á vef samtak-
anna.
Bæklingurinn byggist á erindi
sem Göran Dahlgren hélt á veg-
um BSRB en er yfirfarið af hon-
um og lagað að prentun. Áhuga-
samir geta nálgast bæklinginn
ókeypis á skrifstofu BSRB, Grett-
isgötu 89, eða pantað hann með
því að senda póst á netfangið sa-
fi@bsrb.is.
Á vef samtakanna kemur fram
að Göran Dahlgren hafi síðan á
níunda áratugnum verið áhrifa-
maður á alþjóðavettvangi á sviði
heilbrigðis-, heilsugæslu- og lýð-
heilsumála. Hann fékk Norrænu
lýðheilsuverðlaunin árið 2003.
Bæklingur um
opinbera og
einkarekna heil-
brigðisþjónustu