Morgunblaðið - 17.09.2005, Síða 76
BÆJARSTJÓRN Kópavogs hefur sam-
þykkt að ráðist verði í miklar breytingar á
sundlauginni í vesturbæ bæjarins. Á þessu
ári eru áætlaðar 100 milljónir í verkið.
Rífa á gömlu timburklefana við laugina
og byggja 25 m innilaug, nýja búnings-
klefa, útiklefa, eimbað og heita potta.
Gert er ráð fyrir að útboð fari fram á
næstunni.
Gunnar Birgisson bæjarstjóri segir að
áætlað hafi verið að verkið kostaði um 250
milljónir króna en hann yrði eitthvað
hærri. Í ljós hafi komið að 40 ára gamalt
laugakerfið þyrfti að taka í gegn með til-
heyrandi kostnaði. Sama gilti um klefana,
þeir séu orðnir gamlir og fúnir.
Sundlaug Kópa-
vogs breytt
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Rannsókn slyssins á Viðeyjarsundi leiðir í ljós grun um áfengisneyslu
Tveir skipbrotsmanna með
réttarstöðu sakborninga
!
(
)
"
"
#$
%
&&"'""
( ) #*+
+#&#
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
meira og minna næstu 35 mínúturn-
ar. Sambandið rofnaði síðan rúmum
30 mínútum áður en eftirlifendurnir
þrír og hin látna fundust kl. rúm-
lega 3 eftir miðnætti.
Var kyrr við skerið en síðan
siglt burt stórskemmdum
Upplýst er að báturinn hafi verið
kyrr á eða við Skarfasker um stund
en fyrstu 10 mínúturnar eftir
áreksturinn var ekkert hringt úr
bátnum. Miðað við áverka fólksins
segir Hörður ekki óvarlegt að ætla
að fólkið hafi vankast við höggið og
ekki hringt fyrr í land en það fór að
átta sig. Upplýst er að fólkinu tókst
síðan að sigla bátnum frá skerinu
þrátt fyrir að hann væri mikið lask-
aður og fólk mikið slasað um borð.
Bátnum var nú stefnt austur Við-
eyjarsund og nokkrum mínútum
síðar hætti GPS-tækið um borð að
virka og telur lögreglan að báturinn
hafi þá sokkið. Eins og kunnugt er
var tveimur þriggja eftirlifenda
bjargað af kili bátsins og þeim
þriðja úr sjónum við bátsflakið þeg-
ar slöngubátur lögreglunnar fann
bátsflakið á Viðeyjarsundi um 1 km
norðan Skarfaskers. Um 20 mínút-
um síðar sökk báturinn.
Markmið rannsóknar lögreglu
miðar nú að því að upplýsa hvernig
á því stóð að báturinn lenti í þeim
aðstæðum að það kostaði tvö
mannslíf, og hver beri ábyrgðina.
sem fyrsta hringing frá fólkinu um
borð barst Neyðarlínunni, skömmu
fyrir kl. 2 eftir miðnætti aðfaranótt
laugardags.
Hörður Jóhannesson yfirlög-
regluþjónn segir að hraði bátsins
við áreksturinn skýri þá áverka sem
fólkið hlaut. Þar var um að ræða
beinbrot meðal annars. Lögreglan
segir að um borð hafi verið a.m.k.
fjórir farsímar og að hringt hafi ver-
ið í Neyðarlínuna úr þremur þeirra.
Eftir fyrstu hringingu fólksins, sem
var neyðarkall og ósk um hjálp að
sögn Harðar, var símasamband
milli bátsins og Neyðarlínunnar
asta legg bátsins var hann kominn
vestur að Engeyjarrifi á leið inn í
gömlu höfnina en sneri þar við og
hélt til baka inn á Viðeyjarsund. Á
þeirri bakaleið fór báturinn af leið af
orsökum sem nú eru til rannsóknar.
Í stað þess að sigla á milli tveggja
siglingabauja á Viðeyjarsundi fór
hann sunnan við baujurnar og lenti
harkalega á Skarfaskeri og braut
stefnið. Samkvæmt rannsókn lög-
reglunnar var báturinn á talsvert
miklum hraða þegar áreksturinn
varð en ekki er upplýst hversu mik-
ill hraðinn var nákvæmlega. Það var
um 10 mínútum eftir áreksturinn
EIGANDI skemmtibátsins sem
fórst á Viðeyjarsundi fyrir einni
viku hefur réttarstöðu sakbornings
sem og eiginkona hans sem var með
honum í bátnum þegar hann fórst.
Tveir ferðafélagar þeirra létust en
ungur sonur hjónanna sem björg-
uðust komst lífs af með foreldrum
sínum.
Lögreglan í Reykjavík segir að
hjónin hafi réttarstöðu sakborninga
þar sem rökstuddur grunur sé um
að þau hafi neytt áfengis föstudags-
kvöldið áður en báturinn fórst.
Rannsókn lögreglunnar miðar nú að
því að upplýsa frekar tildrög þess að
báturinn lenti á Skarfaskeri og hver
hafi þá verið við stjórnvölinn.
Rannsókn lögreglunnar hefur
leitt í ljós að ferð bátsins hófst laust
eftir kl. 19 á föstudagskvöld úr
Snarfarahöfn við Naustavog. Í
bátnum var GPS-staðsetningartæki
og liggja fyrir upplýsingar um ferð-
ir hans um kvöldið og fram yfir mið-
nætti. GPS-tækið geymir upplýs-
ingar um stefnu, hraða, vegalengdir
og tímasetningar. Leið bátsins mun
hafa legið úr Snarfarahöfn meðfram
landi inn að gömlu höfninni í
Reykjavík og þaðan til baka inn á
Viðeyjarsund. Komið var við í Þern-
ey á Kollafirði, Snarfarahöfn og
bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Á síð-
„OKKUR fannst tilvalið að afhenda borg-
arstjóra litlu launablómin við þetta tilefni og
segja með því að borgin megi hlúa að fleiri
blómum en samgöngublómunum,“ sagði
Svanhildur Vilbergsdóttir, leikskólakennari
á Tjarnarborg í Reykjavík, en hún afhenti,
ásamt Bryndísi Christensen, Steinunni Val-
dísi Óskarsdóttur borgarstjóra, tvö blóm
gerð úr tólf launaseðlum starfsmanna á leik-
skólanum við afhendingu samgöngublómsins
í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Með
því vildu þær benda á lág laun starfsmanna
á leikskólum Reykjavíkur. „Við vonumst
bara til að borgarstjóri kíki á launaseðlana
og sjái hvernig málin eru í raunveruleik-
anum,“ bætti Svanhildur við en launaseðlana
er hægt að rýna í án þess að taka blómin í
sundur. | 6
Morgunblaðið/Þorkell
Litlu launablómin afhent borgarstjóra
HEILDARLAUN félagsmanna
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur hafa hækkað um tíu prósent frá
því í fyrra samkvæmt nýrri launa-
könnun félagsins. Félagsmenn VR
hafa að meðaltali 300 þúsund kr. í
heildarlaun á mánuði en í fyrra voru
launin að meðaltali 273 þúsund á
mánuði. Vinnuvikan er óbreytt milli
ára, þ.e. 45 klukkustundir að með-
altali.
Launakönnun VR var kynnt á
blaðamannafundi í gær. Samkvæmt
henni eru karlar með rúmlega 23%
hærri heildarlaun en konur. Kyn-
bundinn launamunur er 14%, en það
er sá munur sem er á launum
kynjanna þegar búið er að taka tillit
til menntunar, vinnutíma og ann-
arra þátta.
Til samanburðar var kynbundinn
launamunur 15% á síðasta ári, 16%
árið 2001 og 18% árið 2000. Gunnar
Páll Pálsson, formaður VR, sagði á
fundinum í gær að launamunur
kynjanna, hvort sem litið væri til
heildarlauna eða kynbundins launa-
munar, hefði því sem næst staðið í
stað síðustu árin. Það væri áhyggju-
efni. Því hefði stjórn VR ákveðið að
efna til auglýsingaherferðar til að
vinna gegn kynbundnum launamun.
Yfirskrift hennar er: „Láttu ekki út-
litið blekkja þig.“
Kynbundinn launamunur er 14%
Karlar eru með | 38
„HÉR er hættuástand,“ segir Grétar Ax-
elsson í Íslendingabænum Gimli í Kanada
en miklar ráðstafanir eru nú gerðar vegna
mikillar flóðahættu á vesturströnd Winni-
pegvatns.
Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba,
tilkynnti á dögunum að fylkisstjórnin
myndi verja átta milljónum dollara, um
425 milljónum íslenskra króna, í flóða-
varnir við suðurhluta Winnipegvatns á
næstu dögum og vikum og lýst hefur verið
yfir neyðarástandi í Gimli og fleiri stöðum
við vesturströnd vatnsins. | 60
Hættuástand
í Gimli
„ÞAÐ sem heillar mig við kvikmyndir er
það sama og heillar fólk við bókmenntir og
leikhús – sjálf sagan,“ segir Dimitri Eipi-
des, dagskrárstjóri tveggja flokka á Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík
sem hefst í lok mánaðarins.
Dimitri Eipides hefur starfað í kringum
kvikmyndir í hálfan fjórða áratug og frá
árinu 1987 hefur Eipides verið einn af al-
þjóðlegum dagskrárstjórum Kvik-
myndahátíðarinnar í Toronto. Eipides hef-
ur kennt kvikmyndafræði við háskóla og
setið í fjölda dómnefnda á kvikmyndahátíð-
um um heim allan.
Í viðtali við Morgunblaðið ræðir hann um
kvikmyndahátíðir almennt og mikilvægi
þeirra í markaðssamfélagi nútímans. | 68
Vitranir Eipides
KARLAR með ístru eiga frekar á hættu að
fá hjartaáfall en þeir sem hafa fituna
dreifða um líkamann. Meiri líkur eru á að
æðar safni inn á sig „vonda“ kólesterólinu
ef menn eru með kviðfitu. Þá hafa rann-
sóknir leitt í ljós að kviðfita er einn af stóru
áhættuþáttunum fyrir sykursýki og æða-
kölkun.
Þetta kemur fram hjá Vilborgu Þ. Sig-
urðardóttur hjartalækni sem ver í lok þessa
mánaðar doktorsritgerð sína á sviði for-
varna hjarta- og æðasjúkdóma við Gauta-
borgarháskóla í Svíþjóð.
Vilborg bendir á að hjartaáföll og heila-
blóðföll komi oft fyrirvaralaust og að æða-
sjúkdómurinn hafi verið þögull um árabil.
Áhættuþættina þarf að greina snemma svo
fólk nái að tileinka sér heilsusamlegan lífs-
stíl með bættu mataræði og hreyfingu.
Reglubundin hreyfing getur í vissum tilvik-
um útrýmt háþrýstingi, aldurstengdri syk-
ursýki og lækkað „vonda“ kólesterólið. | 36
Ístran er varasöm
♦♦♦
♦♦♦
♦♦♦