Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 1
Ert þú viðbúinn
... eða eru dagar þínir taldir?
22. og 23. sept.
Upplýsingar og skráning á www.si.is
Bernskulok
í Reykjavík
Rithöfundurinn Siri Hustvedt
las og las við Hávallagötu | 45
Íþróttir í dag
Ólöf María Jónsdóttir reynslunni
ríkari Ronaldinho bestur
Fylkir hefur augastað á Leifi Sigfinni
ÞÆR Silja Sif Kristinsdóttir, Eyrún Anna Tryggva-
dóttir og Hafrún Hafliðadóttir eru aðeins fjórtán ára
gamlar en drýgðu engu að síður hetjudáð í síðustu viku
og björguðu lífi Þórhalls Ólafssonar. Hann hafði ætlað
að skipta um peru í eldhúsljósi en kúpull datt á hann
svo hann skarst illa á hendi og slagæð og taugar fóru í
sundur. Stúlkurnar voru að fara inn í lyftu í blokk í Ár-
bænum, þegar þær heyrðu hrópað á hjálp og í sömu
andrá hljóp maður upp úr kjallaranum, útataður í
blóði, og bað þær að hjálpa sér.
Aðkoma á slysstað var slæm en stúlkurnar hringdu í
Neyðarlínuna og fylgdu leiðbeiningum þar til sjúkra-
bíll kom á vettvang. Þær héldu hendi Þórhalls uppi og
þrýstu á sárið með handklæðum þar til hjálp barst.
„Þegar sjúkrabíllinn kom var hann alveg að missa með-
vitund,“ sagði Eyrún.
Stelpurnar segja það skrítna tilfinningu að hafa
bjargað mannslífi en leggja áherslu á að eftir uppá-
komuna finnist þeim læknisstarfið ekki heillandi. Þeim
finnst þó að kenna ætti skyndihjálp í skólum.
„Þær voru eins og hetjur og eiga allan heiður skil-
inn,“ segir Þórhallur. „Ef þær hefðu ekki verið þarna
einmitt á þessari stundu væri ég ekki á lífi.“ | 6
Fjórtán ára vinkonur
björguðu mannslífi
Morgunblaðið/Sverrir
Silja Sif Kristinsdóttir, Eyrún Anna Tryggvadóttir og Hafrún Hafliðadóttir komu Þórhalli til aðstoðar.
Slagæð fór í sundur í hendi Þórhalls Ólafssonar.
„Þær voru eins og hetjur,“
segir Þórhallur Ólafsson
Berlín. AP, AFP. | Angela Merkel,
leiðtogi kristilegra demókrata, og
Gerhard Schröder kanslari hófu í
gær að þreifa fyrir sér um myndun
nýrrar stjórnar en leiðtogar flokk-
anna keppast við að sverja fyrir
samstarf við hinn eða þennan þann-
ig að í raun virðist enginn möguleiki
vera fyrir hendi.
Hvorki kristilegir demókratar né
jafnaðarmenn fengu fylgi til að
mynda stjórn með fyrri samstarfs-
flokkum sínum og bæði gera þau
Merkel og Schröder tilkall til kansl-
araembættisins. Hafa þýskir hag-
fræðingar og frammámenn í at-
vinnulífinu þungar áhyggjur af
þráteflinu og óttast, að það geti
staðið lengi með slæmum afleiðing-
um fyrir efnahagslífið.
Stóra samsteypan
eini möguleikinn?
Merkel sagði í gær, að hún
stefndi að stjórnarmyndun „sem
fyrst“ og minnti á, að hún væri leið-
togi stærsta þingflokksins og
stjórnin væri fallin. Franz Münte-
fering, einn helsti frammámaður
jafnaðarmanna, sagði hins vegar, að
Schröder ætti að vera kanslari
áfram. „Niðurstaða kosninganna
var skýr: Þjóðverjar vilja ekki
Merkel sem kanslara,“ sagði hann.
Talsmaður Vinstriflokksins, fyrr-
verandi kommúnista og óánægðra
jafnaðarmanna, sagði í gær, að
flokkurinn myndi ekki styðja minni-
hlutastjórn jafnaðarmanna og
Græningja og talsmaður frjálsra
demókrata sagði, að flokkurinn
myndi hvorki taka þátt í stjórn með
jafnaðarmönnum og Græningjum
né með kristilegum demókrötum ef
Græningjar yrðu þar innanborðs.
Enginn ætlar að ræða við Vinstri-
flokkinn og þá er það „Stóra sam-
steypan“, samstarf kristilegra
demókrata og jafnaðarmanna. Líst
mörgum illa á hana og segja, að
landið þurfi samhenta stjórn, sem
geti tekið óvinsælar en óhjákvæmi-
legar ákvarðanir í efnahagsmálun-
um.
Fáir kostir
í stöðunni
Þýsku stjórnmálaflokkarnir keppast
við að hafna samstarfi hver við annan
Gerhard Schröder Angela Merkel
Staða Angelu | 14
„Á SÍÐUSTU 20 árum hefur Íslend-
ingum tekist að lokka til sín suma af
bestu rithöfundum í heimi og í eina
viku líkist Reykjavík helst útibúi frá
alþjóðlegum rithöfundasamtökum.
Hvers vegna getum við ekki gert það
sama hér?“
Þannig er spurt í grein í danska
blaðinu Politiken í fyrradag en þar
fjallar höfundurinn, Carsten And-
ersen, um sjöundu Bókmenntahátíð-
ina í Reykjavík. Segir hann, að um-
fang hennar sé í öfugu hlutfalli við
getu hennar til að laða að sér marga
af bestu rithöfundunum.
Andersen segir, að danska rithöf-
undinum Hanne-Vibeke Holst hafi
verið boðið á Bókmenntahátíðina.
„Þegar hún fékk dagskrána brá
henni heldur betur í brún. Þarna var
nafnið hennar við hliðina á nafni
Margaret Atwood, Annie Proulx, Siri
Hustvedt, DBC Pierre, Nick Hornby,
Antonio Tabucchi, Kari Hotakainen,
Lars Saabye Christensen, Thomas
Brussig og annarra. Vá.“
Andersen spyr hvort það sé hægt
að soga til sín rjómann af alþjóð-
legum og norrænum rithöfundum og
hylla bókmenntirnar í heila viku? Já,
segir hann. Það er hægt. Aftur og aft-
ur. Annað hvert ár.
Ekki króna í þóknun
Andersen kemur víða við. Nefnir
til marga aðra rithöfunda, segir frá
ferð til Þingvalla og Gullfoss, frá upp-
lestri í Norræna húsinu og segir, að
þessi upplifun sé umbunin, sem rit-
höfundarnir fái. Fyrir þá sé greidd
gisting, ferðir og matur en ekki króna
í þóknun.
Hátíðin sé síðan notuð til að kynna
og semja um útgáfu íslenskra bóka
erlendis og með þessu öllu sé vel
fylgst í íslenskum fjölmiðlum.
Andersen spyr hvort ekki sé unnt
að leika þetta eftir í Danmörku en er
dálítið efins um svarið. Nefnir til
bókasýningar þar sem alls konar
húllumhæ skyggi á sjálfar bókmennt-
irnar og þar sem jafnvel er selt inn
dýrum dómum. Á Íslandi séu það
ekki bara Reykjavíkurborg og Al-
þingi, sem styðji framtakið, heldur
líka einkafyrirtæki!
„Sigurvegararnir eru hinir bók-
elsku Íslendingar. Þeir fá hinn al-
þjóðlega bókmenntaheim í heimsókn
í sjö daga. Allt, sem þeir vilja. Allt
ókeypis. Nei, það kostar ekki krónu
að hitta Paul Auster, Annie Proulx
eða Nick Hornby.“ | 22
Eins og alþjóðlegt útibú
SANDRÆKJA hefur í sumar fundizt við strend-
ur landsins í fyrsta sinn. Rækjan er algeng við
strendur meginlands Evrópu og finnst allt frá
nyrztu ströndum Noregs og suður eftir, inn í
Miðjarðarhaf og Svartahaf. Rækjan er smá en
hefur verið veidd til manneldis í Norðursjó.
Talið er að hlýnun sjávar hafi skapað sand-
rækjunni lífsskilyrði við landið, en Björn Gunn-
arsson fiskifræðingur telur líklegt að hún hafi
borizt hingað til lands í kjölvatni skipa. Sand-
rækjan er einn helzti afræningi skarkolaseiða
og hafa fiskifræðingar merkt fylgni milli stofn-
stærðar sandrækju og skarkola.
Björn segir ljóst að rækjan sé búin að taka sér bólfestu hér því þeir hafi
fundið tvær kynslóðir hennar nú í sumar. Flest bendi til þess að hún geti
dreift sér allt umhverfis landið. | 12
Nýr „landnemi“ við Ísland
Sandrækjan er smá og
gráleit og étur helzt smá
skarkolaseiði.
STOFNAÐ 1913 254. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Satín, silki og taft áberandi
á Emmy-hátíðinni | 47
Hlýralausar
eiginkonur