Morgunblaðið - 20.09.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BOLLI Thoroddsen, formaður Heim-
dallar, hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem fram kemur að hann gefi kost
á sér annað kjörtímabil sem formað-
ur, á aðalfundi 27. september nk.
Í yfirlýsingu hans segir m.a.: „Á því
starfsári sem nú
er að ljúka hefur
megináhersla
stjórnar félagsins
verið að efla og
opna Heimdall
með því að fjölga
virkum fé-
lagsmönnum. Það
hefur tekist með
miklum fjölda vel-
sóttra málefna-
funda, auk skemmtana sem við höfum
staðið fyrir. Hægt er að fullyrða að
engin stjórnmálahreyfing ungs fólks
hér á landi hefur í dag á að skipa jafn-
mörgum virkum félagsmönnum.
Heimdallur er jafnframt fjölmenn-
asta ungliðafélag landsins og lykilat-
riði að gefa sem flestum tækifæri til
að starfa, finnast þeir velkomnir og
eiga heima í starfi félagsins.“
Bolli segir ennfremur að nái hann
kosningu muni hann beita sér fyrir
því að aðaláhersla Heimdallar á kom-
andi vetri verði að losa borgarbúa
undan valdaþreytu, eyðslu- og
skuldaáráttu vinstri manna, og
byggja hér upp borgarsamfélag heil-
brigðra stjórnarhátta sem treystir
borgurum fyrir ákvörðunum um eigin
málefni.
Gefur áfram
kost á sér sem
formaður
Heimdallar
Bolli Thoroddsen
DR. LAUREL
Anne Clyde, pró-
fessor við Bóka-
safns- og upplýs-
ingafræðiskor
Háskóla Íslands,
varð bráðkvödd í
Reykjavík 18. sept-
ember, 59 ára að
aldri.
Anne fæddist 7.
febrúar 1946 og var
ástralskur ríkis-
borgari.
Anne Clyde kom
fyrst til Íslands í
júlí 1987 á ráðstefnu
Alþjóðlegu skóla-
safnasamtakanna, IASL.
Hún var gistikennari við Há-
skóla Íslands 1990–1991, varð dós-
ent 1. janúar 1993 og var prófessor
frá 1. apríl 1996.
Anne lauk BA-prófi 1965, Dipl.
Ed.-prófi 1966 og MA-prófi 1973
frá University of Sydney og dokt-
orsprófi (Ph.D.) 1981 frá James
Cook University of North Queens-
land.
Hún var lektor
við Townsville Col-
lege of Advanced
Education í Ástralíu
1977–1978, lektor
við Charles Stuart
University, Wagga
Wagga í Ástralíu
1982–1984, dósent
við Edith Cowan
University í Perth,
Ástralíu 1984–1990
og dósent við Uni-
versity of British
Columbia í Kanada
1991–1993.
Anne Clyde lagði
mikið af mörkum til
kennslu í bókasafns- og upplýs-
ingafræði hér á landi.
Einnig tók Anne ríkan þátt í al-
þjóðlegu starfi á sviði bókasafns-
og upplýsingamála. Hún var m.a.
formaður fastanefndar IFLA um
skólasöfn og upplýsingamiðstöðvar
og vefstjóri alþjóðlegu skólasafna-
samtakanna, IASL.
Laurel Anne Clyde var ógift og
barnlaus.
Andlát
LAUREL ANNE
CLYDE
HÁSKÓLINN í Reykjavík fékk
lóðina við Öskjuhlíð endurgjalds-
laust frá Reykjavíkurborg líkt og
lóðir sem Háskóli Íslands hefur
fengið í Vatnsmýrinni. Dagur B.
Eggertsson, formaður skipulags-
nefndar borgarinnar, segir HR fá
lóðina á kostakjörum vegna þess að
skólinn geti laðað áhugaverð störf
og fyrirtæki að borginni.
Eina sem Háskólinn í Reykjavík
greiðir borginni fyrir lóðina eru
gatnagerðargjöld.
„Í raun borga báðir skólarnir
óbeint með því að laða að borginni
að þessu svæði blómleg fyrirtæki
og áhugaverð störf. Það má segja
að Háskólinn í Reykjavík verði
þriðja hjólið undir ásnum með Há-
skóla Íslands og Landspítalanum
en með þessu erum við í fyrsta
skipti komin með svæði af lág-
marksstærð til að keppa við öfl-
ugustu þekkingarsvæði heimsins.
Það má því segja að það sé hern-
aðarleg ákvörðun að láta HR hafa
þessa lóð á kostakjörum til þess að
ná samfélagslegum, en líka hagræn-
um markmiðum,“ sagði Dagur.
Dagur sagði að vinna við skipulag
lóðarinnar væri hafin og stefnt væri
að því að ljúka því næsta haust. Það
yrði unnið í samvinnu við fyrirtæki
sem vilja vera þarna í tengslum við
starfsemi háskólans. Einnig yrðu
nýttar niðurstöður úr þeirri alþjóð-
legu samkeppni um skipulag Vatns-
mýrarinnar sem ákveðið hefur verið
að ráðast í.
HR greiðir ekkert fyrir lóðina
Morgunblaðið/RAX
VALGERÐUR Sigurðardóttir, bæj-
arfulltrúi í Hafnarfirði, gefur kost á
sér í fyrsta sæti D-lista fyrir kom-
andi bæjarstjórnarkosningar í Hafn-
arfirði.
Hún hefur verið bæjarfulltrúi frá
1994 og hefur sl. tvö kjörtímabil
skipað annað sæti á lista sjálfstæð-
ismanna. Þar af var hún forseti bæj-
arstjórnar eitt kjörtímabil.
Aðspurð segir Valgerður að sér
þyki eðlilegt í ljósi þess að núverandi
oddviti, Magnús Gunnarsson, hafi
ákveðið að draga sig í hlé að hún gefi
kost á sér í fyrsta sætið.
Spurð um áherslur segist hún m.a.
vilja útrýma bið-
listum á leikskóla.
„Það skiptir svo
gríðarlega miklu
máli að fólk sé
öruggt með börn-
in sín á leikskóla-
plássi.“ Hún seg-
ist jafnframt vilja
þjónusta grunn-
skólabyggingar í
nýjum hverfum
með þeim hætti að þær séu tilbúnar
þegar börnin hefja nám við skólann
og þau þurfi því ekki að vera í bráða-
birgðahúsnæði til að byrja með.
„Ég var formaður Hafnastjórnar
um sjö ára skeið þannig að ég legg
auðvitað áherslu á hafnar- og at-
vinnumál, að aðstaðan sé sem best í
bænum til að hafnirnar séu fýsilegur
kostur fyrir fyrirtæki.“
Þá segist hún ekki síður leggja
áherslu á að ævikvöld eldri borgara
verði eins og best verður á kosið í
Hafnarfirði. T.a.m. með efldri
heimaþjónustu og vænlegri upp-
byggingu þjónustuíbúða.
Hún leggur jafnframt áherslu á
góða fjárhagslega stöðu bæjar-
félagsins og að það sé vel rekið fyr-
irtæki.
Valgerður gefur kost á sér í fyrsta sæti
Valgerður
Sigurðardóttir
MAGNÚS Gunnarsson, oddviti
sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, mun
ekki bjóða sig fram í komandi sveit-
arstjórnarkosningum.
„Þetta er orðið
gott,“ segir
Magnús spurður
út í ákvörðunina
en hann hefur
tekið þátt í bæjar-
stjórnmálum í
Hafnarfirði frá
1990 og verið
oddviti Sjálfstæð-
isflokksins frá
1994.
Magnús hefur
tekið þátt í velflestum nefndarstörf-
um innan bæjarfélagsins, verið bæj-
arstjóri og formaður bæjarráðs.
„Þegar ég lít yfir þennan tíma þá
er hann bæði búinn að vera
skemmtilegur og erilsamur og ég hef
kynnst mörgu góðu fólki. Nú taka við
önnur viðfangsefni sem ég horfi með
tilhlökkun til en að sjálfsögðu lýk ég
ekki störfum fyrr en að loknu kjör-
tímabili,“ segir Magnús.
Býður sig
ekki fram
í komandi
kosningum
Magnús
Gunnarsson
HARALDUR Þór Ólason, húsa-
smíðameistari og eigandi og fram-
kvæmdastjóri Furu ehf., gefur kost
á sér í fyrsta sæti D-lista fyrir kom-
andi bæjarstjórnarkosningar í Hafn-
arfirði.
Haraldur, sem hefur setið í þriðja
sæti listans, segir ákvörðunina um
að bjóða sig fram sem oddviti hafa
legið fyrir frá því í vor. Núverandi
kjörtímabil er hans fyrsta í bæjar-
stjórn en hann hafði setið áður sem
formaður fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Hafnarfirði.
Aðspurður seg-
ist Haraldur hafa
verið lengi viðloð-
andi starfið í
Sjálfstæðis-
flokknum og gaf
kost á sér sem
formaður full-
trúaráðsins árið
1998. Í framhaldi
af því hafi hann
gefið kost á sér
fyrir síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar. Hann hefur setið í ýmsum
nefndum og ráðum fyrir flokkinn.
Haraldur hefur starfað í fræðslu-
ráði og situr nú í skipulags- og bygg-
ingarráði. „Ég er búinn að flakka dá-
lítið í bæjarkerfinu til þess að
kynnast öllum nefndum, ráðum og
málaflokkum.“
Hann leggur aðaláherslu á rekst-
ur Hafnarfjarðarbæjar. „Það hefur
verið megináherslumál mitt, að
koma böndum á rekstur bæjar-
félagsins,“ og bætir því við að hann
leggi ekki síður áherslu á skipulags-
mál Hafnarfjarðarbæjar.
Haraldur Þór gefur kost á sér í fyrsta sæti
Haraldur Þór
Ólason
Þórshöfn | Réttað var á nokkrum
bæjum í Þistilfirði á laugardaginn í
blíðskaparveðri, sem verður að telj-
ast til tíðinda því haustið hefur bæði
verið rigningarsamt og kalt.
Margir nýttu sér því blíðuna til að
fara í réttirnar, svo fjölmennt var í
skilaréttinni á Gunnarsstöðum. Féð
var úr Hvamms- og Dalsheiði en þar
voru 3ja daga göngur í sæmilegu
veðri en slydda var þó einn daginn.
Það er ólíkt veðráttunni í göngunum
í fyrra en þá var fé mjög latrækt
vegna hita.
Meðalvigt fjárins var hærri en í
fyrra og segja bændur það einkum
vera vegna ástands heiðagróðurs en
langvarandi þurrkatíð í fyrrasumar
fór illa með gróður og vatnsbúskap
á heiðunum.
Ungir og aldnir skemmta sér jafn-
an í réttunum og jafnvel þeir yngstu
reyna að draga fé í dilka, með smá
aðstoð frá fullorðnum. Réttarkaffið
var svo drukkið úti í góða veðrinu en
húsfrúrnar á Gunnarsstöðum veittu
vel að sveitakvenna sið.
Fjörugur
réttar-
dagur
Morgunblaðið/Líney
Steingrímur J. Sigfússon og Vala, litla dóttir hans, hjálpast að í réttunum.
STEFÁN Aðalsteinsson viðskipta-
fræðingur hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Bandalags háskóla-
manna. Stefán lauk prófi í
viðskiptafræði frá HÍ og Cand. merc.
í Danmörku. Hann hefur síðan starf-
að hjá endurskoðunardeild Reykja-
víkurborgar, var fjármálastjóri
Rauða kross Íslands og nú síðustu
árin fjármálastjóri LÍN. Stefán hef-
ur gegnt embættum gjaldkera og
formanns Sambands íslenskra
námsmanna erlendis. Hann er nú
formaður Kjarafélags viðskipta- og
hagfræðinga.
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri BHM
♦♦♦