Morgunblaðið - 20.09.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Há tilboð í sérleyfi áReykjanesi hafavakið athygli,
jafnt Vegagerðarinnar,
sem er verkkaupi, og til-
boðsgjafa. Vegagerðin
reiknaði með að borga 1,3
milljónir króna með leyf-
inu til næstu þriggja ára
en veltir nú fyrir sér til-
boðum upp á 0 krónur frá
Þingvallaleið hf., 23 millj-
ónir króna frá Hópbíla-
leigunni ehf., 27 milljónir
frá Kynnisferðum ehf., 103
milljónir frá Iceland
Excursion og Allrahanda, 439
milljónir frá Bílum og fólki ehf. og
469 milljónir króna frá Hópferða-
miðstöðinni – Vestfjarðaleið.
Vegagerðin undrandi
„Ég verð að viðurkenna að ég
varð dálítið undrandi á þessu,“
sagði Gunnar Gunnarsson, aðstoð-
arvegamálastjóri, um tilboðin í
samtali við Morgunblaðið fyrir
helgi og aðrir hafa tekið í sama
streng.
Kynnisferðir hafa haft sérleyfi,
eða sérleyfisígildi, til áætlunarakst-
urs milli Reykjavíkur og Keflavík-
urflugvallar frá árinu 1979. Þráinn
Vigfússon, framkvæmdastjóri
Kynnisferða, segir að hægt sé að
reka flugrútuna og sérleyfi í Bláa
lónið með einhverjum hagnaði án
styrkja en til að dæmið gangi upp
varðandi allan pakkann þurfi að
hagræða miklu og nýta bílana sem
best. Flugrútan flytji um 225 þús-
und farþega á ári og fullt verð sé
1.150 krónur fyrir fullorðna. Frítt
sé fyrir börn og 50% afsláttur fyrir
unglinga. Ekki þurfi mikinn reikni-
meistara til að finna út að veltan sé
um 200 milljónir króna á ári eða um
600 milljónir á þremur árum. Að
bjóða 470 milljónir í pakkann bendi
greinilega til mikillar skekkju í út-
reikningum. 103 milljóna króna til-
boð sé líka óskiljanlegt. Kynnis-
ferðir treysti sér til að borga 27
milljónir á þremur árum með ýtr-
ustu aðhaldssemi. „Það yrði dauða-
dómur fyrir fyrirtækin sem buðu
hæst að fá sérleyfið,“ segir Þráinn
og botnar ekki í hvernig menn
halda að þeir geti hagnast um 150
til 170 milljónir króna á ári á þessu
sérleyfi. Hann áréttar að mánaðar-
lega þurfi að gefa upp farþega-
fjölda, ferðatíðni og annað til Vega-
gerðarinnar og því sé starfsemin
mjög gegnsæ.
Óraunhæf tilboð
„Ég get tekið undir það með
Vegagerðinni að þessi tilboð komu
á óvart,“ bætir Þráinn við. „Það er
alveg ljóst að miðað við núverandi
farþegafjölda og 1.144 króna há-
marksfargjald þá eru tvö hæstu
tilboðin, upp á tæpan hálfan millj-
arð króna, fullkomlega óraunhæf
og ég tel útilokað að Vegagerðin
taki mark á þeim.“
Leita að vitleysum
Reynir Jóhannsson, stjórnarfor-
maður Hópferðamiðstöðvarinnar –
Vestfjarðaleiðar, vill lítið tjá sig um
málið en segir að forráðamenn fyr-
irtækisins séu að fara yfir eigið til-
boð. „Við erum að fara yfir þetta og
vita hvort við höfum gert einhverja
vitleysu,“ segir hann. „Það er ekk-
ert hægt að segja fyrr en það er bú-
ið.“
Að hluta til eiga sömu eigendur
fyrirtækin sem eiga tvö hæstu til-
boðin. Þau skera sig úr og lítið ber
á milli en Reynir segist ekki hafa
haft neitt samráð við Bíla og fólk
við gerð tilboðsins.
Gunnar Gunnarsson segir að
málið sé ekki einfalt og verið sé að
skoða hvort þeir sem hafi boðið í
aksturinn uppfylli öll sett skilyrði.
„Við og samgönguráðuneytið vilj-
um tryggja það að allt flug fái
þjónustu,“ segir hann um ástæðu
sérleyfisins á flugrútunni og vísar
til þess að væri ekki sérleyfi væri
hætta á að næturflugi yrði ekki
sinnt.
Kærumál
Kynnisferðir fluttu reksturinn
frá Hótel Loftleiðum í Umferðar-
miðstöðina 1. apríl í fyrra, leigja
húsnæðið af Burðarási og sjá um
starfsemina þar.
Félag hópferðaleyfishafa telur
það ekki samrýmast eðlilegum
samkeppnisreglum að kröfur séu
um það í útboðslýsingu að keypt sé
aðstaða af Kynnisferðum í Um-
ferðarmiðstöðinni, og Kynnisferð-
ir sjái alfarið um afgreiðslu,
farmiðasölu, símsvörun o.fl. FH
hefur kært til kærunefndar út-
boðsmála meinta ólöglega útboðs-
skilmála í útboði Ríkiskaupa fyrir
hönd Vegagerðarinnar vegna
áætlunaraksturs á sérleyfisbílum
á Íslandi, og skólaaksturs á Suður-
landi, Snæfellsnesi og Suðurnesj-
um og krefst þess að útboðið verði
fellt niður og boðið út að nýju, eða
að útboðslýsingu verði ella breytt.
Niðurstöður eftir helgi
Vegagerðin tók við sérleyfis-
málum 2002 og segir Gunnar
Gunnarsson að þá hafi verið gerðir
þjónustusamningar við þáverandi
sérleyfishafa. Lögin frá 2001 hafi
hins vegar kveðið á um að leyfin
yrðu boðin út eigi síðar en 2005.
Hann gerir ráð fyrir að búið verði
að fara yfir tilboð í sérleyfisakstur
á Reykjanesi og þar með talið í
flugrútuna milli Leifsstöðvar og
Reykjavíkur í næstu eða þar
næstu viku.
Fréttaskýring | Þrjú hæstu tilboðin í flug-
rútuna vekja athygli
Hæsta tilboð
endurskoðað
Flugrútan til Leifsstöðvar er eftirsótt.
Vilja greiða allt að 470
milljónir fyrir sérleyfið
Hæsta tilboðið í sérleyfis-
akstur á Reykjanesi er nær 470
milljónir króna. Í pakkanum eru
fjórar leiðir eða akstur milli
Reykjavíkur og Leifsstöðvar,
milli Reykjavíkur og Reykjanes-
bæjar (upphringikerfi varðandi
Voga), milli Reykjanesbæjar,
Sandgerðis og Garðs og milli
Reykjavíkur, Bláa lónsins og
Grindavíkur. Tilboðsgjafar
þurftu einnig að bjóða samhliða í
akstur fyrir Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steg@mbl.is
Flugrútan flytur um 225 þúsund far-
þega á ári og veltir um 200 milljónum
SIÐANEFND Blaðamannafélags
Íslands hefur úrskurðað að Stöð 2
hafi ekki brotið siðareglur félagsins
þegar hún birti mynd með frétt um
slagsmál við Hverfisgötu 19. apríl sl.
Foreldrar unglingspilts kærðu birt-
ingu myndarinnar í fréttinni fyrir
hönd sonar síns, en í fréttinni var
greint frá átökum sem urðu fyrir ut-
an skemmtistað á Hverfisgötu.
Í úrskurði siðanefndar segir að
pilturinn sé í hópi 15–20 ungra
manna sem haldi úti bloggsíðu þar
sem m.a. megi finna myndir af fé-
lögum hópsins við mismunandi tæki-
færi.
Einn þeirra sem lenti í átökunum
við skemmtistaðinn á Hverfisgötu
fjallaði um þau á bloggsíðunni og
birti Stöð 2 mynd af síðunni með
frétt sinni af átökunum. Á umræddri
vefsíðu má sjá mynd af nokkrum fé-
lögum hópsins þar á meðal af syni
fólksins sem kærði myndbirtinguna
til siðanefndar BÍ.
Kom ekki nálægt átökunum
Í kærunni segir að pilturinn hafi
ekki verið nálægur þegar fyrrgreind
átök áttu sér stað og hann hafi því að
ósekju verið bendlaður við slagsmál-
in. Telja kærendur að með þessu hafi
mátt álykta að hann væri höfuðpaur í
ofbeldisklíku. Þetta hafi valdið hon-
um margvíslegum óþægindum og
verið meiðandi.
Kærendur leituðu strax til Stöðv-
ar 2, kvörtuðu yfir myndbirtingunni
og óskuðu eftir því að ef til frekari
umfjöllunar kæmi yrði sagt að þeir
sem voru á fyrrgreindri mynd tengd-
ust ekki málinu. Fréttin hafi þrátt
fyrir þetta verið áfram óbreytt á vis-
ir.is, að því er segir í úrskurði siða-
nefndar.
Þar segir að í svari Þórs Jónsson-
ar, f.h. fréttastofu Stöðvar 2, komi
fram að myndbirtingin hafi verið
óheppileg, beðist hafi verið afsökun-
ar á henni og því heitið að myndin
yrði ekki notuð.
Í úrskurði siðanefndar segir að
myndskeiðið sem sýni piltinn sé
mjög stutt, varla lengra en 2 sek-
úndur. Myndin sé tekin af heimasíðu
hópsins þar sem finna megi frásögn
eins úr hópnum um umrædd slags-
mál. Þessi heimasíða sé opinber og
geti kærandi átt von á því að þeir
sem skoði síðuna tengi saman texta
og myndir. „Siðanefnd er sammála
því mati Þórs Jónssonar að mynd-
birtingin hafi verið óheppileg þar
sem hún tengdist ekki þeim átökum
sem til umræðu voru. Þór segir að
beðist hafi verið afsökunar á mynd-
birtingunni og því heitið að hún yrði
ekki notuð aftur. Siðanefnd telur það
nægja,“ segir m.a. í úrskurðinum.
Stöð 2 braut ekki siðareglur
STANGVEIÐI
„HÉR er fínasta veiði, 1.060 laxar
hafa náðst á laxasvæðinu. Við höf-
um aldrei náð að fylla heila veiði-
bók hér áður og erum afar sáttir,“
sagði Pétur Pétursson, leigutaki
Vatnsdalsár, í gær en veitt er í ánni
til 26. þessa mánaðar. Hann segir
septemberveiðina samt hafa verið
heldur tregari að þessu sinni en síð-
ustu ár og kennir helst um sífelld-
um veðrabreytingum síðustu vikur.
„Hollin hafa þó verið að veiða frá
22 upp í 30 laxa, sem er rosalega
fínt, og menn hafa náð fiskum sem
eru 85 til 97 cm. Þá veiddist 14
punda lúsug hrygna fyrir nokkrum
dögum, það er afar gaman að svo
stór fiskur skuli vera að ganga á
þessum tíma.
Ég er afar ánægður með veiðina í
sumar, ég hafði vonast til að við
næðum svona 950 löxum og nú hafa
veiðst rúmlega 100 umfram það.“
Pétur segir að erlendir veiði-
menn eigi síðustu dagana. „Ég býð
þeim bara í snjókast ef það verður
óveiðandi, en spáin er skelfileg fyr-
ir lok vikunnar hér fyrir norðan –
þótt veðurspáin gangi ekki alltaf
eftir hér í dalnum.“
Metveiði í Breiðdalsá
Að sögn Þrastar Elliðasonar hafa
nú veiðst um 750 laxar í Breiðdalsá
en veitt er út mánuðinn. „Lúsugur
fiskur kom í land nú síðast í morg-
un. Laxinn er ennþá að ganga.“ Í
fyrra veiddust 700 laxar í ánni og
var það met, sem þegar hefur því
verið slegið. Þá sagði Þröstur um
500 laxa hafa veiðst í Hrútafjarð-
ará, sem er heldur minna en í fyrra
en þá endaði áin í 631 laxi. Þess ber
að geta að árið 2003 veiddust 164
laxar og 168 árið 2002.
Um 2.500 laxar hafa veiðst í Ytri-
Rangá og að sögn Stefáns Sigurðs-
sonar, sölustjóra hjá Lax-á, er veið-
in nokkuð jöfn. „Þá fór efra svæðið,
fyrir ofan Árbæjarfoss, að gefa
nokkuð af laxi þegar líða fór á sum-
arið. Menn fengu allt að sjö laxa á
dag.“ Vesturbakki Hólsár hefur
líka gefið talsvert af fiski í sumar,
einkum laxi. Líklega hafa um 200
fiskar veiðst þar, að sögn Stefáns.
Þá veiðist jafnt og þétt í Miðfjarð-
ará en veiðin er nú um 1.500 laxar.
„Hollin eru að fá 30 til 40 laxa.
Vesturáin er öflug, efsta svæðið, en
Austurá er líka góð og þá veiðist
einnig nokkuð í Núpsá, en síðustu
vikur hefur verið gott vatn. Upp á
síðkastið hefur verið frost svo að
segja á hverjum morgni og því gef-
ur helst þegar líður á daginn.“
Bleikjuveisla í Norðurá
Veiðimenn þekkja vel Norðurá í
Skagafirði, hafa eflaust horft á
hana þegar þeir aka þjóðveg númer
eitt, en færi hafa veitt í henni, þótt
sögur fari af góðri bleikjuveiði í
ánni. Stefán veiddi ásamt félögum
sínum í Norðurá á dögunum og var
hrifinn, enda fengu þeir hátt í 60
bleikjur og allt að tuttugu fiska úr
sama hylnum. „Þá eru ármótin við
Héraðsvötn krökk af laxi,“ sagði
Stefán. „Veiðimaður sem ætlaði að
veiða bleikju þar um daginn kastaði
Mýslu andstreymis og í þriðja kasti
setti hann í lax. Þá skipti hann í
laxaflugu, Black Brahan, og setti í
tvo í viðbót.“
Sögur halda áfram að berast af
hreint ágætri sjóbirtingsveiði á
Suðurlandi. Tvö holl í röð náðu 22
birtingum í Geirlandsá, fallegum
fiskum að sögn veiðimanna. Þá
hafa vænir fiskar veiðst í Eldvatn-
inu, og býsna góð veiði hefur verið í
Varmá og talsvert af sjóbirtingi að
ganga.
Að sögn Þórarins Kristinssonar,
eiganda Tungulækjar í Landbroti,
hefur fullt af birtingi gengið í læk-
inn. „Fyrir viku náði ég tíu punda
hæng, nýgengnum. Svo er mikið af
fiski á bilinu fimm til átta pund. Þá
sást til risa á Breiðunni, þeir eru
alltaf innan um.“
Ljósmynd/Gísli Ásgeirs
Veiðimaður glímir við lax í Kjarrá, en glæsilegt Íslandsmet var slegið þar í sumar er hátt í 4.100 laxar veiddust.
Laxveiðimönnum
boðið í snjókast
veidar@mbl.is