Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 12
Síðastliðinn laugardag var svo gengið upp í Straumsel og skoðað allt það
sem selin hafa að bjóða. Göngurnar taka þrjár til fjórar klukkustundir.
ÁLFÉLAGIÐ Alcan í samstarfi við
útivistarfélagið Ferli hefur und-
anfarna tvo laugardaga boðið upp á
haustgöngur í nágrenni álversins í
Straumsvík en að sögn Hrannars
Péturssonar, upplýsingafulltrúa
Alcan, er þetta svæði sem kemur
skemmtilega á óvart. Næstkomandi
laugardag verður lagt upp í þriðju
og síðustu göngu haustsins en
Hrannar útilokar ekki að bætt
verði við göngu ef nægilegur áhugi
er fyrir hendi. Um tuttugu manns
mættu í fyrstu gönguna og setti
veðrið strik í reikninginn, helgina á
eftir hafði fjöldinn tvöfaldast og
vonast Hrannar til að enn fjölgi í
gönguhópnum á laugardaginn
kemur.
Ómar Smári Ármannsson sér um
leiðsögn fyrir hönd Ferlis og segir
nágrenni álversins hafa upp á fjöl-
margt að bjóða. „Flestir þeir sem
keyra Reykjanesbrautina sjá aðeins
eitt hús sem er Straumur en það er
aðeins minnisvarði um allt annað
sem svæðið hefur upp á bjóða. Þó
svo menn væru þarna dögum sam-
an að skoða myndi ekki vera tími til
að komast yfir allt sem áhugavert
er,“ segir Ómar Smári en hann fer
yfir sögu svæðisins, upphaf og endi
búsetu og byggðar og lífsskilyrði
og afkomu fólks.
Í fyrstu göngunni var gengið á
milli Hraunbæjanna en þar eru
minjar sem endurspegla bæði bú-
setu- og atvinnusögu kotbændanna,
nánast frá upphafi landnáms á Ís-
landi. Síðast liðinn laugardag var
svo gengið upp í Straumsel og skoð-
að allt það góða sem selin hafa að
bjóða.
Göngurnar taka þrjár til fjórar
klukkustundir og ræðst af veðri og
vindum, sem og fjölda göngufólks.
Alcan og Ferlir standa fyrir haustgöngum í umhverfi Straumsvíkur
Farið yfir sögu svæðisins
Ljósmynd/Ómar Smári
Ljósmynd/Ómar Smári
Straumur er einn þeirra staða sem skoða má á Straumsvíkursvæðinu.
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
Smábátaflotinn
á Íslandi sá
tæknivæddasti
í heimi
Úr verinu á morgun
SANDRÆKJA (Crangon crangon) greindist í
fyrsta sinn hér við land í vor. Tegundin
fannst við sýnatöku á skarkolaseiðum við
Álftanes, en Hafrannsóknastofnunin hóf
nýlega viðamiklar rannsóknir á líffræði
skarkolaungviðis. Við frekari rannsóknir
fannst tegundin víðar á Faxaflóasvæðinu,
m.a. við Löngufjörur á Snæfellsnesi.
Sandrækja er af hrossarækjuætt
(Crangonidae) og er hún algeng með allri
strönd meginlands Evrópu, meðfram strönd-
um Noregs og Bretlandseyja, að strönd Finn-
lands í Eystrasalti og inn í Miðjarðarhaf og
Svartahaf. Hún er botnlæg og búsvæði henn-
ar er aðallega á grunnsævi (0–50 m) með
sendnum eða leirkenndum botni. Hún er grá-
leit með svörtum eða dökkbrúnum þverrönd-
um en hún breytir auðveldlega um lit og
lagar sig að botngerðinni. Tegundin hefur
lengi verið veidd til manneldis og er nafnið
„hrossarækjuætt“ rakið til þess að hér áður
fyrr fóru veiðarnar fram þannig að hestum
var beitt fyrir trollið og það dregið í grunn-
um sjó þar sem ekki var hægt að koma við
báti.
Sandrækja er mikilvæg fæða fyrir ýmsar
tegundir þorskfiska og flatfiska auk margra
fuglategunda. Sjálf er rækjan mikilvirkur af-
ræningi og sækist aðallega eftir fisklirfum/
seiðum og hryggleysingjum. Því hefur sam-
spil hennar og bráðar mikið verið rannsakað
og sýna margar rannsóknir sterkt samband á
milli afráns sandrækju og nýliðunar á skar-
kolaseiðum. Ættingi sandrækjunnar, hrossa-
rækjan (Crangon allman), hefur fundist hér
við land en hún lifir á dýpra vatni (20–250 m).
Undanfarin ár hefur afli sandrækju aukist í
Norðursjó en minnkað að sama skapi sunnar,
eða við strendur Frakklands og Belgíu. Jafn-
framt veiðist sandrækjan nokkru dýpra en
áður og eru þessar breytingar raktar til
hærri sjávarhita. Síðastliðin 7–8 ár hafa orðið
töluverðar breytingar á hita og seltu í Atl-
antssjónum vestan við Ísland og hefur hita-
stig hækkað um tæplega eina gráðu. Á sama
tíma hefur orðið vart við breytingar á út-
breiðslu fisktegunda hér við land. Það er því
freistandi að draga þá ályktun að fundur
sandrækjunnar hér við land sé tengdur þess-
um breytingum í sjónum en nánari rann-
sókna er þörf á líffræði og útbreiðslu hennar
til að hægt sé að fullyrða um slíkt.
Fiskifræðingar Hafrannsóknastofnunar
hafa vaktað fjöruna við Álftanes frá því í vor
og kannað á hálfs mánaðar fresti hver gengd
rækjunnar er. Björn Gunnarsson og Þór Ás-
geirsson hafa brugðið sér á rækjuveiðar
reglulega. Björn segir að ljóst sé að rækjan
hafi numið hér „land“ því þeir hafi fundið
tvær kynslóðir og þéttleiki sé að aukast. Í
Norðursjó sé þéttleikinn á bilinu 500 til 1.000
rækjur á hverja hundrað fermetra, en við
Álftanesið hafi hann í gær verið um 250
rækjur, en að meðaltali um 120.
Björn segir að í vor hafi engin rækja fund-
izt í Breiðafirðinum en að áliðnu sumri hafi
þeir fundið nokkrar rækjur.
Sandrækjan er nýtt í Norðursjó og árið
2003 veiddust um 32.000 tonn. Björn útilokar
ekki að rækjuna mætti veiða hér við land, en
þá þurfi þéttleiki að vera mikill og aðstæður
góðar, eða miklir sandflákar í fjörunni. „Þetta
er mjög sérstakt tækifæri til að fylgjast með
landnámi rækjunnar og sambúð hennar við
skarkolann. Það er þó ekkert hægt að segja
til um það á þessu stigi hvaða áhrif hún kunni
að hafa á vöxt og viðgang skarkolastofnsins,
því það er margt annað sem hefur þar áhrif.
Svo virðist hins vegar að sandrækjan geti
dreift sér allt umhverfis landið því hún lifir
víða við svipaðar aðstæður,“ segir Björn.
Hann segir ennfremur að líklegast sé að
rækjan hafi borizt hingað til lands með kjöl-
vatni skipa.
Sandrækja finnst við
Ísland í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Ásdís
Landnám Fiskifræðingarnir Björn Gunn-
arsson og Þór Ásgeirsson drógu sand-
rækjutroll í fjörunni við Álftanes í gær.
Ljóst er að þessi landnemi hefur tekið sér
bólfestu hér við land.
HEIMIR Már Pétursson hefur verið
ráðinn fréttastjóri nýrrar Fréttavakt-
ar hjá 365 ljósvakamiðlum. Frétta-
vaktin mun sjá um fréttir á nýrri
fréttastöð auk þess að stórefla frétta-
flutning á vísir.is. Ráðning Heimis er
liður í endurskipulagningu á fréttum
365 ljósvakamiðla sem miðar að auk-
inni fréttaþjónustu við almenning.
Heimir Már lauk BA-prófi í stjórn-
málafræði og fjölmiðlafræði frá Há-
skóla Íslands 1989 og námi í Nordisk
Journalist Center í Árósum í Dan-
mörku 1995 og
hefur starfað á
fjölmörgum miðl-
um frá árinu 1988.
Hann var frétta-
maður á Stöð 2 og
Bylgjunni á árun-
um 1991 til 1996
og aftur árið 2000
áður en Landa-
fundanefnd réð
hann sem framkvæmdastjóra sigling-
ar víkingaskipsins Íslendings frá Ís-
landi til Ameríku það sama ár. Þá
hafði hann verið framkvæmdastjóri
Alþýðubandalagsins í þrjú ár. Heimir
hefur undanfarin ár verið upplýs-
ingafulltrúi Flugmálastjórnar Ís-
lands jafnframt því að sinna fram-
kvæmdastjórn Hinsegin daga frá
árinu 2000.
Heimir hefur störf nú þegar við
undirbúning og þjálfun Fréttavakt-
arinnar. Áætlað er að fréttastöðin
hefji útsendingar í lok næsta mán-
aðar.
Ráðinn fréttastjóri Fréttavaktar hjá 365 ljósvakamiðlum
Útsendingar hefjast í októberlok
Heimir Már
Pétursson