Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 29

Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 29 MINNINGAR Hann var mikill áhugamaður um tónlist og söng með kór aðventista- kirkjunnar í nokkur ár, líka hafði hann gaman af harmonikkutónlist og eignaðist tvær nikkur en fötlun hans kom í veg fyrir mikla iðkun á því sviði. En hann lagði ekki árar í bát heldur sneri sér að tónlistarupptökum á hljóðsnældur og síðar videóupptök- um úr sjónvarpi, stofan var hans studíó. Steingrímur var í félögum sem styrktu hann í veikindum hans, meðal annars Sjálfsbjörg, og var hann duglegur að ferðast bæði utan- lands og innan. Hinn 17. maí 1975 gerði Steingrím- ur sáttmála við Guð og var skírður niðurdýfingarskírn, sem er hin eina sanna skírn samkvæmt ritningunni. Athöfnina framkvæmdi góður vinur okkar, Steinþór Þórðarson, en Stein- grímur hefur tilheyrt Boðunarkirkj- unni nokkur síðustu árin. Þar var okkar síðasta samvera. Þá dreif hann mig með sér til heilagrar kveldmál- tíðar á skírdagskveldi 24. mars síðast- liðinn. Þar áttum við góða stund með Steinþóri og Lilju konu hans ásamt söfnuði þeirra. Ég sendi móður Stein- gríms, Guðbjörgu Jóhannesdóttur, systkinum hans og þeirra fjölskyld- um samúðarkveðjur. Steingrím kveð ég með opinberunarbókinni 3:14-22, sem þeir geta lesið er hafa aðgang að Biblíunni. Hann hvíli í friði til upp- risudagsins. Guðjón Finndal Finnbogason. Hetja er farin yfir móðuna miklu. Í mínum huga var Steingrímur Krist- jónsson mikil hetja. Hann barðist við dyntóttan sjúkdóm af slíkri hetjudáð að ekki fór framhjá neinum sem til hans þekkti – og gafst ekki upp þó á móti blési. Hann hjólaði á hjólinu sínu og bar út blöðin á sínum tíma í slíkri bjartsýni og trú að mig setti oft hljóða. Hann kenndi mér margar lex- íur. Steingrímur hringdi stundum til mín þegar hann fékk góðar hug- myndir og við bárum saman bækur okkar. Við áttum það sameiginlegt að leita á stundum óhefðbundinna leiða til betri heilsu og áttum saman trúna á Jesú Krist og endurkomu hans. Við munum sjást aftur þegar Krist- ur kemur, eins og hann lofaði þeim sem á hann trúa, þangað til séum við bæði Guði falin. Ég votta aðstandendum Stein- gríms innilega samúð mína og bið Guð að vera með þeim um alla tíma. Ég lifi í Jesú mafni, í Jesú nafni eg dey, þó heilsa og líf mér hafni hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí kraft eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt. (Hallgr. Pét.) Blessuð sé minningin um Stein- grím Kristjónsson. Hulda Jensdóttir. Ég kveð Steingrím Kristjónsson og þakka áratuga vinfengi. Hann var stefnufastur, trúaður, hjartahlýr og vildi öllum gott gera. Sjúkdóm sinn bar hann með karlmennsku og kvart- aði aldrei. Sem slíkur hefði hann reyndar átt að dvelja á stofnun, sem hefði annazt hann á viðhlítandi hátt, en það vildi Steingrímur ekki. Hann vildi öllum stöðum fremur vera heima. Þá ósk fékk hann uppfyllta með því að þar lézt hann 12. septem- ber síðastliðinn. Við hjónin sendum ástvinum hans hlýjar vina- og samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur öllum. Blessuð sé minning Steingríms. Sólveig og Jón Hjörleifur Jónsson. Þú fæddist veikur, mjúkur og meyr, en harður, stirður og hrjúfur deyr. Teinungar klökkir tánast úr jörð, en stóru trén falla stinn og hörð. Því dauðanum hentar hrjúfur máttur, en léttvæg mýktin er lífsins háttur. Svo klökkvi hins veika er vegsemd hærri en harka þess sem er sterkari stærri. (Lao Tse.) Rúna, Einar og börn. HINSTA KVEÐJA Okkar ástkæru MATTHILDUR VICTORÍA HARÐARDÓTTIR og FRIÐRIK ÁSGEIR HERMANNSSON, verða jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 23. september kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast þeirra, er bent á reikning 1175-05-411509 hjá Sparisjóði vélstjóra. Minningarsjóður verður stofnaður í þeirra nafni sem mun stuðla að auknu öryggi til sjós. Vigfús Daði Vigfússon, Arnar Freyr Vigfússon, María Jóhannsdóttir, Hörður G. Albertsson, Guðný, Auður og Erla Ruth Harðardætur. Hermann Stuart Crosbie, Agnes Helga Einarsdóttir, Halldóra Málfríður, Einar Már og Baldur Hermannsbörn, Halldóra Margrét Hermannsdóttir, Filippia Kristjánsdóttir og aðrir elskandi ástvinir. Maðurinn minn og bróðir, KRISTJÁN S. KRISTJÁNSSON frv. fjárhagsáætlunarfulltrúi, Efstaleiti 10, Reykjavík, sem lést laugardaginn 10. september verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. september kl. 13:00. Ólöf Steingrímsdóttir, Hulda Kristjánsdóttir. ✝ Sverrir Karls-son fæddist á Akranesi 4. septem- ber 1935. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 9. september síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Karl Auð- unsson, f. 13. sept. 1907, d. 3. febr. 1981, og Guðrún Sigurðardóttir, f. 6. september 1908, d. 20. nóv. 1973. Systkini Sverris eru: Kristín, f. 27. sept. 1932, d. 26. febr. 1989; tví- burar fæddir 17. febr. 1940, drengur dó sama dag, Unnur, d. 5. mars 1940; Sigurður, f. 14. febr. 1943; Birgir, f. 19. des 1945. Sambýliskona Sverris síðustu fimm ár Björg Her- mannsdóttir, f. 28. ágúst 1935. Dætur Bjargar eru Sigríð- ur Ragnhildur Valsdóttir og Ingi- björg Kristín Vals- dóttir. Sverrir starfaði hjá Vélasjóði ríkis- ins í 20 ár á skurð- gröfum og við við- gerðir. Hann starfaði við Sig- ölduvirkjun í fjögur ár og hjá Íslenskum aðalverktök- um til starfsloka. Útför Sverris verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku vinur hafðu þökk fyrir allt. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Björg. Örfá orð í minningu Sverris í þökk fyrir yndislega kynningu og þau góðu ár sem hann gaf systur minni Björgu. Sverrir var mikið ljúfmenni, hann hafði hlýlegt bros, leiftrandi augu og hátt enni. Sverrir var hávaxinn og auð- velt var að koma auga á hann í mann- fjölda þar sem hann gnæfði yfir flesta. Sverrir var stór að flestu leyti. Hafði stóran og mjúkan faðm, sem smáfólk- inu í fjölskyldunni þótti gott að skríða í, það var fljótt að taka í hönd hans við fyrstu kynni og hélt sig svo í námunda við hann eins og það hefði þekkt hann alla sína stuttu ævi. Sverrir var góður heim að sækja, tók á móti með breiðu brosi og út- breiddan faðminn. Gestum fannst þeir meira en velkomnir. Sverrir hafði yndi af bókmenntum og ljóðum, hann kunni flest ljóð Davíðs Stefánssonar, sem hann hafði sérstakt dálæti á. Sjálfur var Sverrir vel hag- mæltur. Það kennir ýmissa grasa þegar litið er yfir bókaskápana á heimilinu. Þar má sjá fagurbókmenntir, ljóðabækur, listaverkabækur, ferðabækur, orða- bækur og tæknibækur. Sverrir var góður ljósmyndari og hin síðari ár eignaðist hann videotöku- vél sem hann notaði óspart. Hann tók upp myndir af ferðalögum þeirra Bjargar, fjölskyldum og vinum og eru þeir ófáir sem hann hefur glatt með videoupptökum sínum. Sverrir hætti störfum þegar hann varð 67 ára og ákváðu þau Björg að njóta lífsins meðan þau gætu notið þess og ekki var eftir neinu að bíða. Og það má segja að þau hafi gert það. Þau ferðuðust mikið síðastliðin ár til nálægra og fjarlægra staða, síðasta stórferðalag þeirra var ferð til Argent- ínu, Chile og Bólivíu. En lífið er hverfult og enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Í lok júlí fór Sverrir til læknis og gekkst undir ít- arlegar rannsóknir sem leiddu í ljós að lífi hans væri að ljúka. Á 70. afmælisdegi Bjargar var Sverrir keyrður fárveikur með sjúkra- bíl til Reykjavíkur. Fimm dögum seinna var hann fluttur til Akraness og lést þar hinn 9. september. Genginn er góður maður. Guð blessi minningu hans. Elsa. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. (Tómas Guðm.) Góður vinur og samferðamaður, Sverrir Karlsson, hefur nú tekist á hendur sína hinstu ferð, allavega í þessari tilveru okkar á hótel jörð. Hann unni ferðalögum mjög og var reyndar nýkominn með vinum sínum úr ferð um Suður-Ameríku, lönd sem hann hafði lengi dreymt um að heim- sækja. Með honum í þeirri ferð eins og svo mörgum áður var sambýliskona hans og vinur til margra ára, Björg Her- mannsdóttir, ásamt systur hennar Elsu, sem var þar syðra við nám og setti hún ferðina saman fyrir hópinn. Þessi ferð var mikil upplifun fyrir Sverri og þau öll, og var farið að und- irbúa aðra ferð til Lanzarote á Kan- aríeyjum, þegar slæmar fréttir um ill- vígan sjúkdóm bárust. Allt bar nú brátt að, sjúkdómurinn hafði herjað nokkuð lengi, þó einkennin kæmu ekki í ljós fyrr en nú fyrir nokkrum vikum. Sverrir lést síðan á Sjúkrahúsi Akra- ness nokkrum dögum eftir 70 ára af- mæli sitt. Ég kynntist Sverri vini mínum upp úr 1960, en leiðir okkar á þeim árum lágu oftast saman þar sem græsku- laust gaman og gleði sátu við völd. Hann var margfróður og vel lesinn í bókmenntum, en mikla ánægju hafði hann af vel ortum ljóðum, og var Einar Ben. í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Fór hann oft með heilu bálkana með viðeigandi áherslum sem ekki gleym- ast. Hann var einnig prýðilega að sér um lönd og lýði, og las mikið um þá hluti sér til ánægju og fróðleiks. Það var unun að dvelja á Jaðarsbrautinni og hlusta á hann segja frá og fór hug- urinn á flug og í ferðalög yfir fjarlæg lönd og álfur. Einnig las hann mikið um tækni og vísindi og fylgdist vel með öllum framförum í þeim efnum. Hann var ávallt glaður og kátur; einnig var hann gæddur ágætis leikhæfileikum, en sem ekki var flíkað nema við sér- stakar kringumstæður, og fór hann þá á kostum. Allt var þetta græskulaust gaman, sem engan meiddi, enda var maðurinn einstaklega mikill mannvin- ur að eðlisfari. Hann átti sér stóran hóp vina og kunningja sem mátu mikils þessa kosti hans, og voru m.a. farnar margar skemmtiferðir í góðra vina hópi, þar sem hann bauð upp á farkost- inn, oftast eðalbíl af nýjustu gerð, ásamt magnaðri fararstjórn. Minnast margir óborganlegra skemmtiferða með honum vítt og breitt um landið. Sverrir starfaði í mörg ár á þunga- vinnuvélum og þá víða um land, m.a. við skurðgröft fyrir bændur. Þá vann hann við Sigölduvirkjun og síðustu ár- in á Keflavíkurflugvelli. Hann var eft- irsóttur starfskraftur, enda samvisku- samur og fær starfsmaður á flestum sviðum, ekki síður við viðhald og eftirlit þessara stóru verkfæra, heldur en vinnu á þeim við misjafnar aðstæður. Ávallt fékk maður góðar móttökur hjá foreldrum hans á Mánabrautinni, en þau voru Guðrún Sigurðardóttir frá Hjarðarbóli og Karl Auðunsson, véla- eftirlitsmaður frá Jaðri á Akranesi, bæði öndvegismanneskjur í hvívetna. Síðar byggði Karl hús með sonum sín- um Sverri, Sigurði og Birgi og var allt- af gott að heimsækja þá feðga á Jað- arsbrautinni. Sverrir var ókvæntur, en eins og áð- ur sagði bjó hann síðastliðin fimm ár með Björgu Hermannsdóttur. Þessi ár voru Sverri mikils virði og lét Björg marga drauma hans um ferðalög um heiminn rætast, en hún naut þess einn- ig að ferðast, og fóru þau víða. Það birti mikið í lífi Sverris við komu Bjargar, þau byggðu í raun hvort annað upp svo að úr varð slíkt samband að á betra varð ekki kosið. Missir Bjargar er því mikill við fráfall Sverris. Við Jónína sendum Björgu, bræðr- um Sverris, öðrum ættingjum og vin- um, okkar innilegustu samúðarkveðjur við andláts góðs vinar og félaga. Ásmundur Ólafsson. Fyrstu minningar mínar um Sverri frænda minn tengjast loðnum leik- fangahundi sem hann gaf mér þegar hann kom frá Sviss. Hann færði mér fleira fallegt frá útlöndum. Ég man eft- ir kápu sem var hægt að nota á bæði borð. Líka hatti og tösku sem var skreytt Baldursbrárblómum. Þegar ég rifja upp hve ung ég var, sé ég að hann hefur ekki verið nema rétt um tvítugt þegar hann var svona hugsunarsamur að kaupa gjafir í útlöndum handa lítilli systurdóttur sinni. En Sverrir var allt- af rausnarlegur. Jóla- og afmælisgjafir sem við systkinin fengum frá honum voru aldeilis ekki skornar við nögl. Ég man líka eftir bílunum hans. Alltaf flottir bílar. Alltaf hreinir og ný- bónaðir. Við stríddum honum stundum á því að hann bónaði bílana svo oft að lakkið nuddaðist af brúnum og horn- um. Hann hló bara að okkur og hélt áfram að bóna. Sverrir var dálítill tækjakarl. Hann átti góðar myndavélar og síðar vídeó- tökuvélar. Fannst það svo ekkert nema sjálfsagt að hlaupa í skarðið og taka upp brúðkaup þegar tökumað- urinn forfallaðist á síðustu stundu. Hann fékk sér líka snemma tölvu. Keypti sér svo bara bækur, enskar og íslenskar og lærði af þeim. Endurnýj- aði svo auðvitað tölvuna eftir þörfum og notaði mikið. Á árum áður teiknaði Sverrir og málaði heilmikið en hætti því svo alveg fyrir mörgum árum. Margar þessara mynda hafa glatast en nokkrar eru ennþá til. Við sérstök tækifæri skemmti hann okkur með eftirherm- um og tókst oftast ótrúlega vel upp. Hann kunni líka ógrynnin öll af vísum sem hann fór með þegar þannig stóð á. Mennirnir áætla en Guð ræður. Ferðin sem Sverrir og Björg ætluðu að fara til að fagna sjötugsafmælum sínum var aldrei farin. Þess í stað háði hann stutta en harða baráttu við krabbameinið sem uppgötvaðist fyrir fáum vikum. Blessuð sé minning Sverris frænda míns. Hans verður sárt saknað. Rúna. Elsku Sverrir. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri trega tárin stríð. Héðan skal halda, heimili sitt kveður heimilisprýði í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þökkum allar góðu samverustund- irnar. Hvíl í friði. Sigríður Valsdóttir og fjölskylda. SVERRIR KARLSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.