Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hörður Ágústs-son fæddist í Reykjavík 4. febr- úar 1922. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut að- faranótt 10. septem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ágúst Markússon veggfóðrarameist- ari, f. 1891, d. 1965, og kona hans, Guð- rún Guðmundsdótt- ir, f. 1893, d. 1947. Systkini Harðar eru: Kristín, húsfrú í Washington, f. 1923, d. 2001; Jóhann, fv. aðstoð- arbankastjóri, f. 1930, og Erla, fv. flugfreyja, f. 1932. Hörður kvæntist hinn 21. júní 1952 Sigríði Magnúsdóttur, menntaskólakennara, f. 23.11. 1924 í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru Magnús Skaftfjeld Hall- dórsson, f. 1893, d. 1976, og kona hans, Steinunn Kristjánsdóttir, f. 1893, d. 1984. Börn Harðar og Sig- ríðar eru: 1) Gunnar Ágúst, há- skólakennari, f. 1954, kvæntur Guðbjörgu E. Benjamínsdóttur, ráðgjafa, f. 1958; þeirra börn: Sig- ríður Vala, f. 1980, Katrín, f. 1986, unum 1949–1976. Tvívegis voru haldnar yfirlitssýningar á verkum hans, í Listasafni Íslands 1983 og Listasafni Reykjavíkur, Kjarvals- stöðum 2005. Hörður var einn af stofnendum og ritstjórum tíma- ritsins Birtings á árunum 1955–68, sat í stjórn Félags íslenskra mynd- listarmanna á árunum 1958–62 og Árbæjarsafns 1963–71. Hann var einn af frumkvöðlum húsafriðun- ar hér á landi, átti m.a. þátt í stofnun Húsafriðunarnefndar árið 1970 og sat í henni til ársins 1995. Hann sat einnig í stjórn Torfusam- takanna og safnráði Listasafns Ís- lands. Formaður Hins íslenska fornleifafélags var hann 1982– 2001. Hörður stundaði rannsóknir á sögu íslenskrar húsagerðar og íslenskum myndlistararfi frá því snemma á sjöunda áratugnum og ritaði fjölda greina og bóka um þau efni. Hann hlaut Íslensku bók- menntaverðlaunin í flokki fræði- bóka fyrir tvö verka sinna, Skál- holt. Kirkjur, 1990 og Íslenska byggingararfleifð I, 1998. Hörður hlaut m.a. verðlaun úr verðlauna- sjóði Ásu Wright 1989, var sæmd- ur heiðursdoktorsnafnbót frá Há- skóla Íslands 1991, útnefndur borgarlistamaður í Reykjavík 1997 og sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2001. Útför Harðar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Sólveig María, f. 1998. 2) Steinunn, líf- fræðingur, f. 1956, gift Magnúsi Ólafs- syni, hagfræðingi, f. 1954; þeirra börn: Fjóla Kristín, f. 1987, Hörður Páll, f. 1992. 3) Guðrún, sagnfræð- ingur, f. 1966, gift Árna Svani Daníels- syni, guðfræðingi; þeirra barn: Guðrún María, f. 2002. Hörður lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1941, stund- aði nám við verkfræðideild Háskóla Íslands á árunum 1941– 42, við Handíðaskólann 1941–43 og við konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn 1945–46. Hann stundaði myndlistarnám í París á árunum 1947–52, m.a. við Aca- démie de la Grande Chaumière. Hörður kenndi við Myndlista- skólann í Reykjavík 1953–59, við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands 1962–89 og var þar skóla- stjóri 1968–75. Hann var einn af helstu fulltrúum abstraktmál- verksins hér á landi og hélt fjölda myndlistarsýninga, einkum á ár- „Við þurfum að ræða saman um faðirvorið,“ sagði Hörður tengdafað- ir minn við mig einn eftirmiðdaginn fyrr á þessu ári. Eins og oft áður hafði hann blaðað í Biblíunni og staldrað við eitthvað sem vakti at- hygli og kallaði á nánari umræðu. Í þetta skiptið var það fleirtala í fað- irvorinu. „Faðir vor, þú sem ert á himnum.“ Hvers vegna stendur ekki „himni“? Eru margir himnar? Hvaða hugsun býr að baki? Hefur guðfræð- ingurinn eitthvað um málið að segja? Við ræddum svo margt í gegnum ár- in, frá guðspjöllunum og persónu Jesú frá Nasaret til trúarlegrar myndlistar og trúarstefja í myndlist Harðar sjálfs. „Ég er nefnilega trúarlegur listamaður,“ sagði hann við okkur hjónin. Það kom á daginn þegar nánar var að gáð að trúarleg tákn hafði hann ofið inn í margar myndir sínar með mögnuðum hætti. Hörður kenndi mér að meta mynd- list og byggingarlist, hann upp- fræddi mig um mikilvægi réttra hlut- falla í húsum og á blaðsíðum. Húsvernd varð að kappsmáli eftir samræður við hann og mikilvægi góðrar hönnunar þurfti enginn að draga í efa. Öðru fremur myndi ég segja að hann hafi verið mér mikill innblástur. Ástríðan gagnvart fræð- unum var smitandi og lét engan ósnortinn, auðmýkt hans sem fræði- manns var ekki síður til eftirbreytni. Fróðleiksfýsnin var ótæmandi. Himnarnir voru okkur Herði hug- leiknir í samtölum okkar fyrr á árinu og þeir eru mér hugleiknir enn í dag. En tími samtala okkar er nú að baki, tími minninganna er runninn upp. Fyrir þær allar, fyrir samtöl, upp- fræðslu og góðar samverustundir, er ég óendanlega þakklátur tengdaföð- urnum sem var mér í raun sem annar faðir. Guð blessi minningu Harðar Ágústssonar. Árni Svanur Daníelsson. Það ólgaði og svall í skýjunum og var sem einhverjir hvítleitir vafur- logar og óvíst hvað þeir voru að verja, þar til kom rönd af óðfúsum mána sem braust í gegnum alla fyr- irstöðu og lýsti þetta átakasvæði í loftinu; fullt tungl. Þessi átök í loftinu komu eftir litaljóma haustsins, sem var í dag þegar ég var að hugsa um fornvin minn, Hörð Ágústsson; hvernig hæfði að kveðja orðum slík- an mann þegar af svo miklu er að taka. Liggur við manni finnist tregt tungu að hræra. Ég kynntist Herði fyrst þegar ég var nýkominn til Parísar. Þar sem manni þótti þá ungum heimalningi sem manni hefði verið varpað í miðju heimsins. Og geystu allt í kringum mann heimsveðrin og stundum fár erinda. Þá var ómældur styrkur að því að kynnast Herði og maður undr- aðist hvað þessi ungi listamaður væri hátt menntaður og vítt. Hann var sí- iðjandi og ég undraðist afköstin þeg- ar ég heimsótti hann vikulega og fékk að sjá það sem hann hafði unnið hverju sinni. Það var svo mikill and- legur styrkur í Herði sem jaðraði við ófreskt afl og hann var óðfús að benda mér leiðir að hinni hæstu list aldanna. Það kom að því að þau drógust saman Sigríður Magnúsdóttir og Hörður, glæsileg hjón og studdi hún eldhugann til allra dáða af hæversku og djúphygli og óbilandi tryggð; og eignuðust væn börn og vel gerð. Þau Hörður og Sigga voru mínir fyrstu áheyrendur og hvöttu mig óspart. Fáum mönnum á ég eins mikið að þakka eins og Herði sem hollráðum vini sem aldrei brást og var mestur þegar mest á reyndi. Aldrei brást hann æskuhugsjónum sínum og hvergi, jákvæður og góðviljaður öðr- um og fljótur að finna þroskaþrá með fólki og glæða. Hann var drengur góður. Það voru margir menn í Herði. Og hann var svo andlega styrkur að þessi ólíku öfl áttu frjósama sambúð innra með honum og í verki hans öllu. Listamaðurinn, fræðarinn, kenn- ingasmiður, lærimeistari og uppal- andi, réttsýnn og hugaður og verks- ígjarn, umfram líkamshreysti þegar hún þvarr. Þá var andinn óbugaður. Hann ruddi brautir í fræðum og opnaði svið íslenskrar hámenningar fyrri alda sem aðra óraði ekki fyrir, og má kalla opinberun. Hann var líka allra manna næmastur á nýgróður í myndlist út um veröldina. Ég veit frá fyrstu hendi að góðvild hans og strangar kröfur sem lærimeistari skiptu sköpum fyrir marga þá sem hlíttu aga Harðar. Það er eins og það væri nýskeð þegar við söfnuðumst í húsakynni Sigríðar og Harðar til þess að ráða okkar ráðum um Birting. Og Hörður kom barmafullur af fróðskap og vís- bendingum sem hann sótti sér um allt landið til að byggja fræði sín á og skemmti okkur með frásögnum um manneskjur sem hann skynjaði svo djúpt og kærlega, ákaflega næmur á skopleg tilbrigði. Hörður Ágústsson var stórmenni og skildi eftir sig á mörgum sviðum margra manna verk sem á eftir að verða mörgum drjúgt, náma, leiðar- ljós og fyrirmynd. Thor Vilhjálmsson. Það var gestkvæmt á heimili for- eldra okkar, Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar og Önnu Jónsdóttur, á Suður- götu 15. Fjölskylduvinirnir voru margir og litu sem betur fór ósjaldan inn, stundum um miðjan dag, oftar á kvöldin. Þótt nokkur aldursmunur sé á okkur bræðrum eru minningar okkar svo til eins, Jóns frá fimmta og sjötta áratuginum og Ólafs Jóhanns frá sjöunda og áttunda: kaffi og með- læti á borðum, vindlingareykur í lofti, talað og hlegið, þótt hin alvar- legri málefni líðandi stundar bæri auðvitað líka á góma. Fjölskylduvinirnir voru margir hverjir rithöfundar og listamenn og söng hver með sínu nefi og hafði frá mörgu fróðlegu og skemmtilegu að segja. Við hlustuðum og tókum minningarnar með okkur þegar við fórum að heiman; þetta fólk var hluti af heimsmyndinni sem við ólumst upp við, svipir þess og látbragð, orð og æði. Eins og nærri getur hefur heim- ilisvinunum fækkað eins og lögmálið segir fyrir um. Nú kveður einn þeirra, Hörður Ágústsson listmálari og fræðimaður. Og við bræðurnir stöldrum við, lítum um öxl, rifjum upp æskuárin og sjáum Hörð koma upp stigann á þriðju hæð í Suðurgöt- unni, brosandi með þessi orð á vörum: Jæja, lagsi, þorirðu í sjó- mann? Þeir voru fáir sem voru jafn alúðlegir við okkur strákana og Hörður. Upphaf sérhverrar heim- sóknar, hvort sem hann var einn eða með eiginkonu sinni, Sigríði Magn- úsdóttur, var alltaf eins: glens og gaman – sjómaður eða eitthvert tusk, klapp á kollinn. En svo settist hann inn í stofu og við jafnan á stól úti í horni að hlusta. Hörður lá aldrei á skoðunum sínum; í okkar minningu var hann ástríðufullur hugsjónamað- ur og hafði eindregnar skoðanir á listum og þjóðmálum. Það fór ekki framhjá ungviðinu að hugur fylgdi máli. Þegar við fengum að fara með for- eldrum okkar í heimsókn til Harðar og Siggu var einatt tekið á móti okk- ur opnum örmum. Þótt við værum lágir í loftinu var talað við okkur eins og fullorðna menn og við jafnvel spurðir álits. Þeim yngri okkar enn minnisstætt þegar Hörður leyfði honum að taka í stýri á moldarvegi við sumarbústað þeirra hjóna á Þing- völlum, steinsnar frá bústaði for- eldra okkar. Í minningunni er sól í heiði og vatnið slétt og Hörður upp- örvandi með eigin hönd auðvitað líka á stýrinu. Það voru margar myndir og mál- verk eftir Hörð í Suðurgötu. Þær voru hluti tilverunnar og sumar drógu að sér athyglina sí og æ. Vangi þjáðs frelsarans eða einkennilegt hús sem ber við logandi himin. Lítil pennateikning ber vitni um vináttu og ræktarsemi: „Til Ólafs og Önnu með þakklæti fyrir góðar móttökur. Hörður 1945.“ Okkur þótti vænt um þessar myndir í bernsku en það var auðvitað ekki fyrr en síðar sem við áttuðum okkur á því hversu mikill listamaður Hörður var. Þessar teikningar og myndir eru nú á heimilum okkar beggja auk margra annarra verka Harðar sem við höfum sjálfir fært heim okkur til heilsubótar. Það kem- ur ekki á óvart og gleður okkur að þessi verk Harðar hafa nú seitt til sín athygli næstu kynslóðar. Við erum ekki listfræðingar og ætlum ekki að reyna að gera list hans skil en víst er að verk Harðar Ágústssonar skipa sérstakan sess í okkar huga. Okkur grunar líka að þegar nýliðin öld verð- ur skoðuð úr fjarska tímans munu þær brautir sem hann ruddi koma berlega í ljós. Fjölskylduvinunum forðum fækk- ar en minningarnar lifa. Hörður er með pípuna í munnvikinu og segir: Jæja, lagsi, þorirðu í mig? Við heyr- um orðin bergmála frá liðinni tíð og erum þakklátir að hafa fengið að kynnast öðlingnum Herði Ágústs- syni. Sigríði ekkju hans og börnum vott- um við dýpstu samúð. Jón Ólafsson, Ólafur Jóhann Ólafsson. Hörður Ágústson var forvitinn maður. Eitt sinn á myndlistar- og málaraárunum, fór hann til Padúa til þess að stúdera freskur Giottós í dómkirkjunni. Þessar freskur eru svo hátt uppi, að þær sjást illa frá gólfi, nema í leikhúskíki og þá bjag- aðar. Viðgerðir voru í gangi og stillansar með öllum veggjum upp í rjáfur. Hörður bauð verkamönnum upp á rauðvín og þeir veittu honum fúslega leyfi til að fara upp, og upp fór hann lofthræddur maðurinn, eins og júng- maður á 200 ára gömlu seglskipi. Skoðun hans og mælingar eru hugs- anlega til einhvers staðar í gömlum kompum. Í sömu ferð kom hann við í Flórens og fékk hugljómun. Hann vildi kopíera heimsfræga mynd „Fæðing Venusar“ eftir Botticelli, en myndin er stór. Má vera að hann hafi hugsað um einhverja af hinum fátæklegu kirkjum á Íslandi. Hann fékk athvarf í vinnustofunni hjá Gerði og strengdi þar mátulegan striga. En hann hófst aldrei handa, sem betur fer, annars væri hann enn að. Hann hefur sett saman megadoðr- anta um margvísleg efni. Hann teiknaði upp Brynjólfskirkju í Skál- holti. Magnús Pálsson smíðaði af henni model og hefur það vonandi verið varðveitt. Vildi ég óska að Brynjólfskirkja hefði risið á Skólavörðuholti í stað þeirrar gervi gotíkur og stuðlabergs- steinsteypu sem nú trónir þar. Brynjólfur var biskup allra Íslend- inga, enn mætti reisa kirkju í nafni hans og skora ég á Norðlendinga og eða Austfirðinga að reisa hana á ein- hverjum sögulegum kirkjustað. Skömmu eftir að Hörður tók við af Kurt Zier í Myndlista- og handíða- skóla Íslands, réð hann mig til kennslu. Þar var fyrir Einar Há- konarson. Og nú var gósentíð mod- elteiknunar og hefðbundinnar mynd- byggingar, að grunni til árþúsunda gamalt. Við teiknuðum jafnvel verkfæri samhliða munúðarfullum formum konunnar. Gárungarnir gáfu okkur viður- nefnið Þvottaklemmurnar. Og svo í fyllingu tímans skall óveðrið á, pönk, fönk, konsept. Myndlista- og hand- íðaskóli Íslands var sleginn af og dysjaður, og veit nú senn enginn hvar hann var né hvað hann var. En forvitni Harðar var ekki fisjað saman. Hann vildi vita hvað var að gerast og eitt sinn sameinuðust gamlir pönk-pönkarar um að koma upp tveim sýningum á verkum Harð- ar samtímis – önnur expressíonmál- verkasýning og hin strangflatasýn- ing þar sem ekki skeikaði millimetra. Við Hörður vorum Kiljanistar en ég er viss um að hann trúði aldrei á hel- vítið hann Stalín. Enginn skyldi gráta gamlan mann, en ég mun sakna Harðar. Kjartan Guðjónsson. Í dag kveð ég með söknuði kæran vin, meistara og samstarfsmann til margra ára. Mér er í fersku minni er leiðir okkar Harðar Ágústssonar lágu fyrst saman snemma á sjöunda áratug síðustu aldar en þá hafði hann óbeðinn tekið að sér að leiðbeina nemendum í húsagerðarlist í vali á verkefnum sem lutu að uppmælingu og rannsóknum á íslenskum bygg- ingararfi. Fullur áhuga miðlaði hann fróðleik og vísaði jafnframt á mý- mörg athyglisverð hús, er lágu undir skemmdum og brýnt var að skjal- festa, að ekki færu í glatkistuna, þótt hyrfu. Þessa vinnu Harðar og nem- enda hans varðveita í dag skjalsöfn landsins. Fáum árum síðar vorum við Hörður ráðnir til þess að gera úttekt á gamla borgarhlutanum í Reykjavík og meta varðveislugildi einstakra húsa með vísan í sögu, list og yfir- bragð nánasta umhverfis. Húsa- könnun af þessu tagi var þá nýlunda og tók vinnan full þrjú ár. Með henni var lagður grundvöllur að vináttu sem varaði allt til hinsta dags. Um og eftir 1962 gerðist Hörður einn skeleggasti málsvari íslenskrar húsverndar. Það var því í rökréttu framhaldi af málflutningi hans og byggingarsögulegum rannsóknum að hann var skömmu síðar skipaður í nefnd ásamt þeim Kristjáni Eldjárn þjóðminjaverði og Þórði Eyjólfssyni hæstaréttardómara til að endur- skoða lög um fornminjar og byggða- söfn. Er skemmst frá því að segja að vinna þeirra þremenninga skilaði okkur endurbættum lögum með sér- stökum kafla um friðun húsa og ann- arra mannvirkja og nýju stjórnsýslu- tæki, Húsafriðunarnefnd ríkisins, til að standa vörð um íslenska bygging- ararfleifð. Átti Hörður sæti í nefnd- inni frá stofnun hennar 1970 til árs- ins 1995 og mótaði þar öðrum fremur opinbera húsverndarstefnu í landinu. Frá öndverðu voru tillögur um friðun húsa rökstuddar með tilvísun í sögu- legan fróðleik hans, listrænt mat og greiningu. Þótt áratugur sé liðinn frá því að Hörður átti sæti í nefndinni er enn stuðst við hugmyndir hans og óskir en árið 2000 birti hann á prenti skrá yfir hús sem æskilegt væri að friða og flokkaði þau ekki einasta landfræðilega heldur og eftir bygg- ingarefni og gerðum. Ég drep á þetta atriði sem dæmi um forsjálni Harðar og sjaldgæfa sýn hans á verkefni sem mörgum hættir til að líta á sem stundlegt en háð er sífelldri verð- andi, sé betur að gáð. Nokkru áður en Húsafriðunar- nefnd var sett á laggirnar var Hörð- ur byrjaður að fást við endurgerð gamalla bygginga, bæði kirkna og veraldlegra húsa, og er Norska húsið í Stykkishólmi eitt þekktasta verk hans á þessu sviði, unnið af fágætri nákvæmni og alúð. Kom reynsla hans í hönnun endurbygginga nefnd- inni að haldi þegar lagðar voru fram til umsagnar tillögur annarra að sambærilegum verkefnum. Stjórn- visku hafði hann til að bera í ríkum mæli, var af meðfæddu hyggjuviti naskur á tímasetningar og vissi hve- nær rétt var að sækja fram, doka við og sæta lagi eða jafnvel hopa, þótt sá kostur væri honum sjaldnast að skapi. Ritverk Harðar eru mikil að vöxt- um, eins og kunnugt er, og fjalla öll um íslenskan menningararf, þjóð- veldisbæinn og þróun íslenska torf- bæjarins, dómsdagsmynd á Hólum í Hjaltadal, horfnar dómkirkjur í Skálholti og íslenska byggingararf- leifð frá 1750 til 1940, svo að dæmi séu tekin. Hvert þessara verka hefði eitt sér nægt til að halda á lofti nafni höfundar og í þeim öllum á lesandinn auðvelt með að finna púðrið, kannski vegna þess að þau eru ekki samin í kyrrðinni, heldur við orustugný, þar sem þeir tókust á listamaðurinn og fræðimaðurinn, málarinn og húsa- meistarinn, ekki bara um tíma og stundir heldur öðru fremur um hug- myndir og inntak. Síðastnefnda ritið er afrakstur ævistarfs höfundar og þegar í flokki grundvallarrita um ís- lenska menningu. Hörður var í senn hrifnæmur og gagnrýninn, lá aldrei á skoðunum sínum, með afbrigðum vel máli far- inn og átti auðvelt með að hrífa hlust- endur þegar hann ræddi hugðarefni sín. Einn var sá þáttur í fari hans, sem jafnan fór hljótt en ástæðulaust HÖRÐUR ÁGÚSTSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.