Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 46
ALLIR elska Raymond var útnefnd besta gamanþáttaröðin og hafði þar bet-
ur en Aðþrengdar eiginkonur, sem vænst hafði verið að ynnu þann titil þegar
Emmy-verðlaunin voru afhent í Bandaríkjunum í fyrrinótt, að íslenskum
tíma. Þættirnir Lost voru valdir bestu dramatísku sjónvarpsþættirnir.
Þættirnir um Raymond eru ekki lengur framleiddir, en voru sýndir í níu ár
og hafa frá 1997 fengið alls 12 Emmyverðlaun. Núna hrepptu leikarar í auka-
hlutverkum í þættinum einnig verðlaun.
Aðþrengdar eiginkonur höfðu fengið 15 tilnefningar og Felicity Huffman
var útnefnd besta gamanleikkonan í aðalhlutverki. Patricia Arquette, sem
leikur miðil í þáttunum Medium, var valin besta leikkonan í dramaþáttum.
Spader vann annað árið í röð
Tony Shalhoub var valinn besti gamanleikarinn fyrir þættina Monk og
James Spader var valinn besti leikarinn í dramaþáttum fyr-
ir Boston Legal. Þetta var annað árið í röð sem hann hlaut
þessi verðlaun.
Brad Garrett og Doris Robert, sem leika í Every-
body Loves Raymond og William Shatner, sem leikur
í Boston Legal, fengu verðlaun fyrir bestan leik í
aukahlutverki. Blythe Danner fékk einnig verðlaun
fyrir leik í þáttunum Huff.
Geoffrey Rush fékk verðlaun fyrir leik í kvikmynd-
inni The Life and Death of Peter Sellers, og leikstjóri
og handritshöfundur þeirrar myndar fengu einnig
verðlaun. S. Epatha Merkerson var valin besta leikkonan í
þessum flokki fyrir Lackawanna Blues.
Paul Newman fékk verðlaun fyrir bestan leik í auka-
hlutverki í sjónvarpsmynd fyrir Empire Falls og Jane Alex-
ander fékk verðlaun fyrir Warm Springs.
HBO fékk flest verðlaun
Hugh Jackman fékk verðlaun fyrir bestu
frammistöðuna í tónlistar- eða skemmti-
þætti en hann var kynnir þegar Tony-
verðlaunin voru afhent. The Daily Show
With Jon Stewart var valinn besti skemmti-
þátturinn. Þá fengu þættirnir The Amazing
Race verðlaun í sínum flokki og höfðu þar
betur en m.a. The Apprentice.
Kapalstöðin HBO fékk flest Emmy-verðlaun þetta árið
eða 27 talsins. ABC fékk 16 og CBS 11. NBC og PBS fengu
10 hvor stöð og Fox fékk 6.
Sjónvarp | Emmy-verðlaunin afhent í 57. skiptið
Lost hrósaði sigri í dramaþáttaflokki: Emilie de Ravin, Dominic Monaghan, Maggie Grace,
Naveen Andrews og Josh Holloway.
REUTERS
William Shatner var með magn-
olíublóm í hnappagatinu til stuðn-
ings fórnarlömbum Katrínar, en
hann var valinn besti aukaleikarinn
í dramaþáttaröð fyrir frammistöðu
sína í Boston Legal.
Patricia Arquette var ánægð með
verðlaunin fyrir besta leik í aðal-
hlutverki, sem hún fékk fyrir
frammistöðu sína í Medium.
Felicity Huffman var valin besta
gamanleikkonan fyrir hlutverk sitt
sem aðþrengd eiginkona.
Blythe Danner hlaut Emmy-
verðlaunin sem besta leikkona í
aukahlutverki dramaþáttaraðar,
fyrir leik sinn í Huff.
Brad Garrett, himinlifandi með
verðlaunin fyrir besta gamanleik í
aukahlutverki, í þáttunum Every-
body Loves Raymond.
Tony Shalhoub var valinn besti að-
alleikari í gamanþáttaröð, fyrir leik
sinn í Monk.
James Spader
hlaut Emmy-
verðlaunin
annað árið í
röð, fyrir túlk-
un sína á frem-
ur vafasömum
lögfræðingi í
Boston Legal.
Raymond og Lost
hrósuðu sigri
Raymond Romano og félagar skákuðu Aðþrengdum eiginkonum og hlutu Emmy-verðlaunin í
flokki gamanþátta.
46 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
kl. 4 og 6 Í þrívíddkl. 3.45 B.i 10 ára
Sýnd kl. 8 og 10.20
Sýnd kl. 3.50 ísl tal
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Verðið á karlhórum hefur lækkað
töluvert fyrir evrópskar konur!
Sprenghlægileg gamanmynd!
Sýnd kl. 6 og 8 b.i. 14 ára
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
i t t i I !
ti r ti
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16 ára
Sími 564 0000
Miðasala opnar kl. 15.15
í i
i l l. .
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Harðasta löggan í
bænum er þann mund að
fá stórskrýtinn félaga!
FRÁBÆR GRÍN OG SPENNUMYND
Harðasta löggan í bænum er þann
mund að fá stórskrýtinn félaga!
Sýnd kl. 10 b.i. 16 ára
MEISTARI HROLLVEKJUNNAR SNÝR AFTUR
TIL AÐ HRÆÐA ÚR OKKUR LÍFTÓRUNA
Sýnd kl. 6, 8 og 10
FRÁBÆR GRÍN OG
SPENNUMYND
kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára