Morgunblaðið - 20.09.2005, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI KEFLAVÍK
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! ... I !
Með Cole Hauser úr
2 FAST 2 FURIOUS.
l
.
bönnuð innan 16 ára
Kalli og sælgætisgerðin
TOPP5.IS
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
H.J. / Mbl.
Ó.H.T. / RÁS 2
DV
LANG VINSÆLASTA MYNDIN Á
ÍSLANDI Í DAG
Búið ykkur undir bragðbestu
skemmtun ársins.
Sat tvær vikur á toppnum í USA.
JOHNNY DEEP
Charlie and the Chocolate .. kl. 5.40 - 8 og 10.20
The Cave kl. 6 - 8 og 10 b.i. 14
Strákarnir Okkar kl. 6 - 8 og 10 b.i. 14
The Dukes of Hazzard kl. 5.50 - 8 og 10.10
The Skeleton Key kl. 5.55 og 8 b.i. 16
The Island kl. 10 b.i. 16
CHARLIE AND THE CHOCOLATE
kl. 8 - 10.15
SKY HIGH kl. 8 - 10
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
kl. 6 - 8
THE CAVE kl. 10 B.i. 16 ára
SKY HIGH kl. 6 - 8
STRÁKARNIR OKKAR kl. 10 B.i. 14 ára
NÝ GAMANMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG
MAÐUR EINS OG ÉG
Það eru til staðir sem
manninum var aldrei ætlað
að fara á Eitthvað banvænt
hefur vaknað. Magnaður
spennutryllir út í gegn.
Þ.G. / Sirkus
HIÐ góða sigraði hið illa í kvik-
myndahúsum í Norður-Ameríku.
Rómantíska gamanmyndin Just
Like Heaven, með Reese With-
erspoon í aðalhlutverki, fór beint í
efsta sæti aðsóknarlistans og ýtti
hryllingsmyndinni The Exorcism of
Emily Rose niður í annað sæti. Has-
armyndin Lord of War, með Nicolas
Cage og Ethan Hawke í aðal-
hlutverkum, fór beint í 3. sætið.
Gamanmyndin The 40 Year-Old
Virgin nýtur enn vinsælda og var í
4. sæti. Í fimmta sæti fór ný spennu-
mynd, Cry Wolf.
Heimildarmyndin March of the
Penguins var í 9. sæti og hefur nú
verið í efstu sætum aðsóknarlistans
í 12 vikur. Tekjur af myndinni
nema nú 70,4 milljónum dala og
nálgast hún nú óðfluga Fahrenheit
9/11, sem er best sótta heimild-
armynd sögunnar.
Kvikmyndir | Just Like Heaven á
toppnum vestra
Hið góða sigraði hið illa
Reuters
Reese Witherspoon er á toppnum
vestanhafs þessa vikuna.
ÍRANSKI leikstjórinn Abbas
Kiarostami sem verður viðstaddur
Evrópufrumsýningu myndar sinn-
ar Vegirnir, á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Reykjavík mun
einnig halda námskeið þar sem
hann miðlar reynslu sinni af kvik-
myndagerð.
Kiarostami er af mörgum talinn
einn besti kvikmyndagerðarmaður
samtímans. Hann vann Gull-
pálmann í Cannes árið 1997 fyrir
myndina Keimur af kirsuberjum
og breska dagblaðið The Guardian
útnefndi Kiarostami sjötta besta
núlifandi kvikmyndagerðarmann
heimsins.
Ljósmyndasýning
Heimildarmynd Kiarostamis 10
on Ten frá árinu 2004 verður sýnd
í upphafi námskeiðsins og síðan
rædd. 10 on Ten fjallar um sögu
og gerð kvikmyndarinnar Tíu frá
árinu 2002.
Námskeiðið fer fram mánudag-
inn, 3. október í hátíðarsal Há-
skóla Íslands frá kl. 13–18. Skrán-
ingargjald er 5.000 krónur og
hefst skráning í dag á heimasíðu
hátíðarinnar: www.filmfest.is, með
tölvupósti: info@filmfest.is og
gegnum síma: 55 22 555. Þeir sem
hafa tryggt sér passa á hátíðina fá
1.000 kr. afslátt af skráning-
argjaldinu. Passar verða til sölu í
Iðu, Lækjargötu frá og með næsta
fimmtudegi.
Auk þess að standa fyrir nám-
skeiðinu mun Alþjóðlega kvik-
myndahátíðin í Reykjavík opna
ljósmyndasýningu með verkum
Kiarostamis í húsakynnum Orku-
veitu Reykjavíkur 1. október en
sýningin mun standa fram yfir há-
tíðina.
Umdeildur
Kiarostami hefur verið mjög
umdeildur í Íran enda hafa um-
fjöllunarefni hans hafa verið bæði
róttæk og gagnrýnin á pólitískt
ástand í Íran. Þar að auki má
segja að hann hafi brúað bilið milli
íranskrar og vestrænnar kvik-
myndagerðar en hann átti þátt í
mótun nýbylgjunnar í íranskri
kvikmyndagerð á 7. og 8. áratugn-
um. Kiarostami hefur leikstýrt á
fjórða tug kvikmynda á sínum
ferli, en í mörgum mynda sinna
skrifar hann handrit, klippir og
annast kvikmyndatöku. Fyrsta
mynd Kiarostamis sem vakti at-
hygli var Gozaresh (Report, 1977)
en tuttugu árum síðar hlaut hann
Gullpálmann fyrir Tám e guilass
(Taste of Cherry, 1997). Meist-
araverkin Nema-ye Nazdik (Close-
Up, 1990) og hin ljóðræna Zendegi
va digar hich (Life and Nothing
More…, 1992) áttu stóran þátt í
að vekja athygli umheimsins á
Kiarostami.
Farandsýning
Kiarostami nam myndlist við
háskólann í Teheran og síðan þá
hefur hann reynt fyrir sér á ýms-
um sviðum. Ljósmyndun hefur
verið honum hugleikin og Kiar-
ostami hefur haldið ljósmyndasýn-
ingar víða um heim. Þar af hefur
ein slík sýning verið á ferðalagi
um heiminn í nokkurn tíma og
verður hún sett upp hér á landi í
tengslum við Alþjóðlega kvik-
myndahátíð í Reykjavík. Ljós-
myndirnar tilheyra Torino
Museum of Cinema. Sýning hefur
nýlega verið í the Albert Museum
í London og ferðast til San Paolo,
Vínar og víðar. Sýningin hefur
ekki verið sýnd á Norðurlöndum
til þessa en hún er bókuð í Ósló
snemma næsta ár. Auk ljósmynd-
anna, sem eru allar landslags-
myndir, fylgir myndbands-
innsetning.
Kvikmyndir | Abbas Kiarostami heldur
námskeið hér á landi
Einn besti leikstjóri
samtímans
www.filmfest.is
Reuters
Íranski leikstjórinn Abbas Kiar-
ostami verður gestur Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík.TÍU kvikmyndir frá Danmörku,
Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð
hafa verið tilnefndar til Kvikmynda-
verðlauna Norðurlandaráðs árið
2005. Verðlaunin verða nú veitt reglu-
lega og fer næsta afhending fram í
tengslum við þing Norðurlandaráðs í
Reykjavík miðvikudaginn 26. októ-
ber. Verðlaunahafinn verður hins
vegar tilkynntur á fréttamannafundi
hjá Dönsku kvikmyndastofnuninni í
Kaupmannahöfn miðvikudaginn 12.
október.
Verðlaununum fylgja 350.000
danskar krónur en sú upphæð skipt-
ist síðan á milli leikstjóra, handrita-
höfundar og framleiðanda. Kvik-
myndaverðlaun Norðurlandaráðs
hafa verið veitt einu sinni áður á
hálfrar aldar afmæli Norðurlanda-
ráðs í Helsinki 2002. Þá hlaut Aki
Kaurismäki verðlaunin fyrir kvik-
myndina Maður án fortíðar (Mies
vailla menneisyyttä), sem hann bæði
skrifaði, leikstýrði og framleiddi.
Tilnefning krefst þess meðal ann-
ars að kvikmyndirnar séu í fullri
lengd og hafi verið sýndar í heima-
landi sínu á tímabilinu 1. september
2004 til 31. ágúst 2005. Á meðal til-
nefndra mynda eru tvær heim-
ildamyndir og þrjár leiknar myndir
sem eru fyrstu verk leikstjóra.
Myndirnar eru:
Danmörk
Drabet (Morðið)
Leikstjórn: Per Fly. Handrit: Kim
Leona, Per Fly, Dorte Høgh og Mog-
ens Rukow. Framleiðandi: Ib Tardini
fyrir hönd Zentropa Entertainments.
Pusher II (Pusher II – með blóð á
höndunum)
Leikstjórn og handrit: Nicolas
Winding Refn. Framleiðandi: Henrik
Danstrup, NWR Productions.
Finnland
Melancholian 3 huonetta (Þrjú her-
bergi depurðar) heimildarmynd.
Leikstjórn og handrit: Pirjo
Honkasalo. Framleiðandi: Kristiina
Pervilä, Millennium Film.
Paha maa (Eyðilönd)
Leikstjórn: Aku Louhimies. Hand-
rit: Paavo Westerberg. Framleiðandi:
Markus Selin, Solar Films.
Ísland
Dís
Leikstjórn: Silja Hauksdóttir.
Handrit: Birna Anna Björnsdóttir,
Oddný Sturludóttir og Silja Hauks-
dóttir. Framleiðandi: Baltasar Kor-
mákur fyrir Blue eyes Productions.
Gargandi snilld (heimildamynd)
Leikstjórn og handrit: Ari Alex-
ander Ergis Magnússon. Framleið-
andi: Sigurjón Sighvatsson, Palomar
Pictures og Ari Alexander Ergis
Magnússon, Ergis Filmproductions,
Zik Zak Filmworks.
Noregur
Hawaii, Osló
Leikstjórn: Erik Poppe. Handrit:
Harald Rosenlöw-Eeg. Framleið-
endur: Finn Gjerdrum og Torleif
Hauge, Paradox Film
Vinterkyss (Vetrarkoss)
Leikstjórn: Sara Johnsen. Handrit:
Ståle Stein Berg og Sara Johnsen.
Framleiðendur: Christian Fredrik
Martin og Asle Vatn, Friland.
Svíþjóð
Ett Hål i mitt Hjärta (Gat í hjarta
mínu)
Leikstjórn og handrit: Lukas
Moodysson. Framleiðandi: Lars
Jönsson, Memfis Film.
Gitarrmongot (Gítarmongólinn)
Leikstjórn og handrit: Ruben Öst-
lund. Framleiðendur: Anna Sohl-
mann, Hinden og Kalle Boman,
Länna-Ateljéerna.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
Tónlistarmaðurinn Mugison í kvik-
myndinni Gargandi snilld.
Dís og Gargandi snilld tilnefndar
www.norden.org/nr/pris
Í DAG hefst miðasala á tónleika Ant-
ony and the Johnsons í Fríkirkjunni
í Reykjavík hinn 10. desember.
Miðasala fer fram á
midi.is og í versl-
unum Skífunnar um
allt land. Fríkirkj-
unni verður skipt
upp í þrjú verðsvæði
og fjögur miðasvæði. Neðri hæðin er
tvö svæði en eitt verðsvæði: 5.500 kr.
Þeir sem koma fyrstir fá miða næst
sviðinu. Uppi eru tvö svæði og tvö
verðsvæði: 4200 kr. og 4900 kr.
Grímur Atlason tónleikahaldari
segir að Antony og félagar séu um
þessar mundir að hefja síðari helm-
ing hljómleikaferðar sinnar í
tengslum við útkomu hljómplöt-
unnar I am a Bird Now sem hlaut
Mercury-tónlistarverðlaunin á dög-
unum og að hljómsveitin hafi bætt
við sig trommuleikara. Antony and
the Johnsons héldu tónleika á Nasa í
Reykjavík hinn 11. júlí síðastliðinn
og komust færri að en vildu.
Miðasala á
Antony hefst