Morgunblaðið - 20.09.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 49
KRINGLANÁLFABAKKI Sýningartímar sambíóunum
Kalli og sælgætisgerðin
bönnuð innan 16 ára
Með Cole Hauser úr
2 FAST 2 FURIOUS.
l
.
JOHNNY DEEP
S.V. / Mbl.
Frábær leikin ævintýramynd frá Disney hlaðin
ótrúlegum flottum tæknibrellum í anda “The
Incredibles”
DISNEY
LANG VINSÆLASTA MYNDIN Á
ÍSLANDI Í DAG
CHARLIE AND THE kl. 3.30 - 6 - 8.15 - 10.30
CHARLIE AND THE VIP kl. 3.30 - 6
STRÁKARNIR OKKAR kl. 6 - 8 - 10.10 B.i. 14 ára.
DUKES OF HAZZARD kl. 8.15 - 10.30
RACING STRIPES m/ensku.tali. kl. 6
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 4
THE CAVE kl. 6.15 - 8.20 - 10.30 B.i. 16 ára.
THE CAVE VIP kl. 8.20 - 10.30
SKY HIGH kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30
HERBIE FULLY LOADED kl. 3.50
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 4
CHARLIE AND THE kl. 5.45 - 8 - 10.15
SKY HIGH kl. 5.45 - 8 - 10.15
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8 - 10.15 B.i. 14 ára.
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 5.45
Með hinum eina sanna Johnny Depp (“Pirates of the
Caribbean”) og frá snillingnum Tim Burton kemur
súkkulaðiskemmtun ársins.
i i i
i illi i
l i i .
Það eru til staðir sem manninum var aldrei
ætlað að fara á Eitthvað banvænt hefur vaknað.
Magnaður spennutryllir út í gegn.
til t i i l i
tl f itt t f .
t lli t í .
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
I Í
I I
TOPP5.IS
KVIKMYNDIR.COM
Þ.G. / Sirkus
Búið ykkur undir bragðbestu
skemmtun ársins.
KVIKMYNDIR.IS
H.J. / Mbl.
Ó.H.T. / RÁS 2
DV
17.09. 2005
4
5 3 5 1 5
1 9 3 1 4
5 9 17 33
2
14.09. 2005
15 18 22 30 35 42
24 41 45
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4741-5200-0012-5404
4507-4500-0029-0459
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Hverjir skipa sveitina?
Björn Sigmundur Ólafsson (Bassi): Bassa-
tromma / sneril / tom 1 / tom 2 / floor 1 / floor 2 / hi
hat / diska Helgi Rúnar Gunnarsson: Söngur / gít-
ar / þríhorn. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir:
Hljómborð og synthi / gítar / söngur. Magnús
Árni Öder Kristinsson: Bassi / synthi / apaöskur.
Hver er heimspekin á bakvið hljómsveitina?
Ef þetta er ekki gaman þá er þetta búið.
Hvenær var hún stofnuð og hvernig atvikaðist það?
Magnús og Bassi voru búnir að vera lengi sam-
an í annarri hljómsveit og langaði að prufa eitt-
hvað annað. Þeir höfðu samband við Helga Rúnar
og gítarleikara sem heitir Magnús Guðmundsson
sem er einmitt í hljómsveitinni Hölt hóra. Fyrsta
æfingin var svo í október 2003. Þetta small nú
ekki saman alveg strax en fljótlega náðu allir
mjög vel saman og þá fóru fallegir tónar að svífa.
Fyrstu tónleikarnir voru síðan í febrúar 2004.
Rétt eftir það kom Lovísa inn í hljómsveitina og
þá fórum við út í þessar syntha-pælingar sem við
erum rosalega mikið í í dag. Magnús Guðmunds-
son hætti svo í Benny í júlí 2004 til að einbeita sér
betur að hinu bandinu sínu. Hljómsveitin er búin
að starfa í þessari mynd síðan þá. Samt er þetta
nú allt að miklu leyti Benny að þakka. Takk,
Benny!
Hvaða tónlistarmenn eru hetjur ykkar?
Helgi Rúnar: Tom Waits, The Mars Volta,
Radiohead, Ephel Duath, At the Drive-In, Sonic
Youth, Blonde Redhead, Nirvana, Pixies …
Lovísa: PJ Harvey, Nick Cave, Sonic Youth, The
Mars Volta, Blonde Redhead, Portishead, Radio-
head og Yeah Yeah Yeah’s til dæmis.
Bassi: a perfect circle, Jeff Buckley, Mars
Volta, Deftones, RHCP, Skunk Anansie, Jamiroquai, Incubus, Mánar, Trúbrot, Rage Against the
Machine og margir margir fleiri.
Magnús: The Mars Volta, QOTSA, Rage Against the Machine, Blonde Redhead, Pink Foyd, Uriah
Heep og og og og.
Eru einhverjir innlendir áhrifavaldar?
Auðvitað heill hellingur. Ensími, Kimono, Coral, Botnleðja, Trúbrot og auðvitað samborgarar okkar í
Skímó.
Hvað finnst ykkur um íslenska tónlist í dag?
Það er allaveg ótrúlega margt skemmtilegt að gerast í íslenskri tónlist í dag, m.a. má nefna: Mugison,
Coral, Hölt hóra, Pétur Þór, Telepathetics, Byltan, Tristian, Kimono, Isidor, Ókind, Bob, Lada Sport,
Big Kahuna og Mammút. Það er reyndar svo mikið af góðu efni að við gætum tekið margar blaðsíður í
að tala um það. Rokk.is er líka búin að gera rosalega mikið fyrir unga tónlistarmenn síðan heimasíðan
var sett upp. Þar geta hljómsveitir fengið fría kynningu, comment á lögin sín og auglýst tónleika. Einnig
hafa þeir í Tónlistarþróunarmiðstöðinni verið að gera góða hluti með sínu framtaki og svo náttúrulega
þetta sem þið eruð að lesa!
Er auðvelt að fá að spila á tónleikum?
Já, ef maður nennir að standa í því að skipuleggja það, en við erum öll svo löt þannig að … Oftast er
það þannig að einhver býður okkur að spila með sér en við erum alltof löt við að skipuleggja tónleika
sjálf og við biðjum hér með allar hljómsveitirnar sem við erum búin að segjast ætla að spila með fyr-
irgefningar á því og reynum að bæta úr því.
Er auðvelt að gefa út?
Það er auðvelt að taka upp sjálfur ef þú hefur kunnáttuna og átt búnaðinn. Síðan getur maður gefið
þetta út og dreift þessu sjálfur en það er rosalegur „prósess“ að fara í gegnum.
Segið eitthvað um lögin sem þið eruð með á Rokk.is?
Þetta eru tvö lög af demói sem við gerðum áður en við byrjuðum að taka upp plötuna sem við erum að
taka upp núna. Annað lagið heitir „Johnny’s got a baby“ og er hvorki um eiturlyfjaneyslu né barneignir.
Hitt lagið heitir „The Rising“ og er fyrsta lagið sem Benny samdi.
Hver er mesti gleðigosinn í sveitinni?
Benny, hann er alveg snarbrjálaður náungi.
Hvað er á döfinni hjá ykkur?
Erum að taka upp efni sem við vitum ekkert hvar endar. En vonandi endar það með útgáfu seinna á
þessu ári. Síðan væntanlega eitthvað af tónleikum, hafið endilega samband við okkur ef þið eruð með
eitthvað fyrir okkur að gera.
Eitthvað að lokum?
Zed’s dead baby, Zed’s dead.
HLJÓMSVEIT Fólksins þessa vikuna er Benny Crespo’s Gang en Morgunblaðið og mbl.is velja
Hljómsveit Fólksins á tveggja vikna fresti. Tilgangurinn er að kynna og styðja við grasrótina í ís-
lenskri tónlist, beina athyglinni að nokkrum af þeim fjölmörgu íslensku hljómsveitum sem gera
almenningi kleift að hlaða niður tónlist þeirra á netinu, án endurgjalds. Hljómsveit Fólksins er í
samstarfi við Rás 2 og Rokk.is, en hægt er að lesa viðtalið á Fólkinu á mbl.is. Þar eru einnig
tenglar á lög sveitarinnar sem geymd eru á Rokk.is. Lag með Benny Crespo’s Gang verður spilað
í dag í Popplandi á Rás 2, sem er á dagskrá kl. 12.45–16 virka daga.
Morgunblaðið/Golli
Benny Crespo’s Gang í æfingahúsnæði sveitarinnar.
Hljómsveit Fólksins | Benny Crespo’s Gang
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni