Morgunblaðið - 20.09.2005, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Heilsugæsla
hækkar um
fjórðung á
fjórum árum
KOSTNAÐUR vísitölufjölskyldunnar
vegna heilsugæslu hefur hækkað um rúm-
an fjórðung á síðustu fjórum árum frá því í
september 2001 til jafnlengdar í ár. Á sama
tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um
14% og helmingi minna eða 7% ef hækkun
fasteignaverðs á tímabilinu er undanskilin.
Nánar tiltekið nemur hækkun kostnaðar
vegna heilsugæslu 27% á ofangreindu tíma-
bili, ef marka má mælingar vísitölu neyslu-
verðs sem Hagstofa Íslands reiknar út. Þar
af er hækkun á lyfjum og lækningavörum
22%. Hækkun hjá heimilislæknum er tæp
27% og hækkun hjá sérfræðingum tæp 34%
og 65% ef litið er lengra aftur í tímann, eða
um eitt ár í viðbót til septembermánaðar
2000. Hækkun á liðnum önnur heilsugæsla
en að ofan greinir er 46%. Hækkun hjá
tannlæknum er hins vegar 14,5% á ofan-
greindu fjögurra ára tímabili, sem sam-
svarar nánast meðalhækkun vísitölu
neysluverðs á tímabilinu.
FLUGVÉLIN virðist afar smá-
gerð umlukt haustlitum fjöllum í
Jökulgili í Landmannalaugum,
en hún var í aðflugi að gilinu
þegar ljósmyndari Morgunblaðs-
ins var þar á ferð.
Jökulgil er um 30 km langt og
liggur í hálfhring frá Land-
mannalaugum suður og inn í há-
lendið með Barm, Hábarm,
Torfajökul og Kaldaklofsfjöll á
ytri væng.
Að sögn Veðurstofu Íslands
má búast við kólnandi veðri í
dag og næstu daga. Köld norð-
austan átt mun ráða ríkjum á
fimmtudag og föstudag og eru
líkur á snjókomu á Norðurlandi.
Hiti 0–8 stig.Morgunblaðið/RAX
Aðflug í
haustlituðu
Jökulgili
DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra átti í
gær fund með starfsbræðrum sínum á
Norðurlöndum, sem komnir eru til að sitja
allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New
York. Var hann m.a. spurður um framboð
Íslands til setu í ör-
yggisráðinu og seg-
ist Davíð í samtali
við Morgunblaðið
hafa sagt þeim að
ákvörðunin um
framboð myndi að
öllum líkindum
standa.
„Ég sagði þeim að
héðan af væri ólík-
legt að einhverjar
breytingar yrðu
gerðar á okkar
stefnu. Ég hafði haft
mínar efasemdir en aðrir voru annarrar
skoðunar og ég tel að ég eigi ekki að ráða
þessu,“ sagði Davíð.
Ennfremur sagðist hann ekkert hafa
haft við það að athuga þótt Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra upplýsti leið-
togafund Sameinuðu þjóðanna um fram-
boð Íslands í öryggisráðið.
Fregnuðu af umræðunni á Íslandi
Davíð sagði norrænu utanríkisráðherr-
ana greinilega hafa fengið spurnir af um-
ræðunni á Íslandi síðustu daga um örygg-
isráðið. Því hefði hann notað tækifærið og
skýrt stöðu mála.
„Ég greindi þeim frá því að afstaða okk-
ar væri óbreytt og líklega myndu menn
herðast í henni þegar ég væri farinn af
braut stjórnmálanna,“ sagði Davíð en hann
flytur ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í dag.
Spurður hvort hann myndi víkja að
framboði Íslands í þeirri ræðu sagðist
Davíð reikna með því og þá með svipuðum
hætti og forsætisráðherra gerði. Annað
væri óeðlilegt.
Á fundinn í gær vantaði reyndar tvo ut-
anríkisráðherra af fimm. Sá norski, Jan
Petersen, var á ferð með Noregskonungi
að afhjúpa minnismerki í Washington og
Erkki Tuomioja, utanríkisráðherra Finn-
lands, hafði orðið að yfirgefa fundarstað
vegna skyndilegra veikinda.
Sagði af-
stöðu til
framboðs
óbreytta
Davíð Oddsson
DAVÍÐ Oddsson utanríkis-
ráðherra mun í dag gefa forseta
allsherjarþings Sameinuðu þjóð-
anna nýjan fundarhamar. Ham-
arinn var skor-
inn haganlega
út af listakon-
unni Siggu á
Grund í Vill-
ingaholts-
hreppi, Sigríði
Kristjáns-
dóttur, og er
eftirlíking af
hamri sem Ás-
mundur
Sveinsson myndhöggvari gerði
upphaflega og var gjöf Íslend-
inga til Sameinuðu þjóðanna árið
1952, þegar ný bygging samtak-
anna var tekin í notkun.
Thor Thors, þá sendiherra Ís-
lands, afhenti hamarinn, sem
löngum gekk undir nafninu
Þórshamar í virðingarskyni við
Thor. Á hamarinn var ritað
„Með lögum skal land byggja“,
bæði á íslensku og latínu. Ham-
arinn komst í heimsfréttirnar í
október árið 1960 þegar hann
brotnaði í reiðikasti þáverandi
forseta allsherjarþingsins,
Fredericks Bolands, sendiherra
Íra. Hafði Írinn hastað á Nikita
Krústsjov, aðalritara komm-
únistaflokks Sovétríkjanna, sem
hafði tekið af sér annan skóinn
og barið honum í borð í mót-
mælaskyni við ræðu sem honum
líkaði ekki á þinginu.
Ári síðar afhenti Thor Thors
forseta allsherjarþings Samein-
uðu þjóðanna nýjan fundar-
hamar frá Íslendingum. Var það
útskorin eftirlíking af hamri Ás-
mundar, gerð af Guðmundi
Benediktssyni, myndhöggvara og
húsgagnasmið. Nýlega uppgötv-
aðist að sá hamar hafði týnst,
þannig að íslensk stjórnvöld létu
gera nýjan hamar, sem Davíð af-
hendir í dag.
Langaði að
reyna á hamarinn
Sigga á Grund sagði við Morg-
unblaðið að verkefnið hefði verið
sérlega skemmtilegt, en hún hef-
ur um árabil fengist við útskurð
list- og skrautmuna. Hún fékk
þau skilaboð að hamarinn yrði
að vera sterklegur og því valdi
hún ævagamlan peruvið. Hafði
hún hamarinn nákvæmlega eins
og fyrirmyndina en fékk að
breyta undirlaginu.
Spurð hvort hamarinn myndi
þola þung högg frá forseta alls-
herjarþingsins sagðist Sigga
vera fullviss um það, en sig hefði
þó langað til að prófa styrkinn
með því að henda honum í gólf-
ið!
Davíð Oddsson afhendir forseta allsherjarþings SÞ nýjan fundarhamar
Eftirlíking af hamrinum sem
brotnaði undir ræðu Krústsjovs
Fundarhamarinn sem Ásmundur Sveinsson gerði upphaflega.
Sigga á Grund.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ALMANNAVARNANEFND
Bolungarvíkur kom saman til
fundar síðdegis í gær vegna
grjóthrunsins sem varð í Óshlíð-
inni um helgina. Einar Péturs-
son, bæjarstjóri í Bolungarvík,
segir að kynnt hafi verið sú
vinna sem hafi farið fram í mál-
inu og áformuð er á næstunni í
samráði við Vegagerðina og Veð-
urstofu Íslands.
Eitt af því sem skoða á betur
er hættan á jarðfalli úr Óshlíð
vegna stórrar sprungu sem er
ofarlega í hlíðinni. Að sögn Ein-
ars hafa sérfræðingar bent á að
hundruð þúsunda rúmmetra af
jarðvegi geti fallið úr hlíðinni í
sjó fram og kallað fram flóð-
bylgju sem geti skollið á Snæ-
fjallaströnd og jafnvel til baka
aftur, m.a. með hættu á flóði á
eyrinni á Ísafirði. Einar segir að
þetta verði að skoða betur, en
fyrst og fremst sé verið að hugsa
um aukið umferðaröryggi um
Óshlíðina.
„Krafa nefndarinnar og bæj-
aryfirvalda er einfaldlega sú að
við fáum öruggar samgöngur um
Óshlíð og því verði beint til
stjórnvalda. Í mínum huga kem-
ur ekkert annað til greina en
jarðgöng í gegnum hlíðina,“ seg-
ir Einar.
Hann telur jarðgöng úr Syðri-
dal að Vestfjarðagöngum ekki
raunhæfan kost og að fara skuli
stystu leið með göngum um Ós-
hlíð. Sprungan í hlíðinni eigi
ekki að hafa áhrif á þá jarð-
gangagerð, enda færu göngin
það innarlega í fjallið.
Almannavarnanefnd Bolungarvíkur krefst öruggra samgangna um Óshlíð
Jarðfall getur kallað
fram flóðbylgju
Safna | 4
Jarðgöng myndu
kosta milljarð
KOSTNAÐUR við að gera jarðgöng
milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur
gæti verið í kringum einn milljarð
króna. Kostnaður við að gera 500
metra langan vegskála á þessari
leið er áætlaður í kringum 500
milljónir króna.
Gísli Eiríksson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar á Ísafirði, segir
að nokkrar úttektir hafi verið gerð-
ir á því hvernig hægt sé að gera
veginn um Óshlíð, milli Ísafjarðar
og Bolungarvíkur, öruggari. Skv.
síðustu könnun frá 2002 hafi kostn-
aður við að byggja 500 metra lang-
an vegskála undir Óshlíð verið um
hálfur milljarður króna. Kostnaður
við að gera 1,2 km löng jarðgöng á
þessari leið hafi hins vegar verið
áætlaður um einn milljarður króna.
♦♦♦