Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 29
MINNSTAÐUR
Selfoss | „Þetta var frábær upp-
lifun, að syngja á Íslendingadeg-
inum í Gimli. Þarna eru Íslendingar
þekktir að góðu einu og greinilegt
að þeir setja svip sinn á umhverfið.
Þessi ferð kórsins var ógleym-
anleg,“ segir Valdimar Bragason,
formaður Karlakórs Selfoss, en kór-
inn heldur upp á 40 ára afmæli sitt á
þessu ári og í tilefni þess fóru kór-
félagar í söngferðalag til Bandaríkj-
anna og Kanada. Í næstu viku kem-
ur síðan út hljómdiskur í tilefni af
afmæli kórsins. „Þetta er þriðji disk-
urinn sem kórinn gefur út og heitir
hann Allt er fertugum fært. Þarna
erum við með 17 lög sem sýna þver-
snið af þeirri söngskrá sem kórinn
hefur verið með á þessum 40 árum,“
segir Valdimar. Stjórnandi kórsins
er Loftur Erlingsson og undirleikari
Julian Edvard Isaacs.
Ógleymanlegur dagur
„Við byrjuðum að syngja í Mount-
ain í Bandaríkjunum og tókum þar
þátt í dagskrá þar sem Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra flutti
ávarp. Því næst fórum við til Winni-
peg þar sem við dvöldum 5 daga og
fórum þaðan dagsferðir til Íslend-
ingabyggðanna, meðal annars til
Árborgar í Geysisbyggð, sem var
gaman og sérkennilegt. Þar hittum
við Davíð Gíslason, mann um sjötugt
sem var okkar leiðsögumaður. Hann
hafði lært íslensku sjálfur og talaði
lýtalaust. Svo tókum við þátt í Ís-
lendingadeginum í Gimli, vorum
með í skrúðgöngu og stóðum á
skreyttum vagni sem ók í gegnum
bæinn. Við sungum auðvitað á vagn-
inum og tugþúsundir sátu meðfram
veginum sem við fórum. Skrúðgang-
an endaði í bæjargarðinum þar sem
við tókum þátt í dagskránni og
sungum við mjög góðar undirtektir.
Þessi dagur er frídagur hjá þeim
þarna úti alveg eins og frídagur
verslunarmanna er hér, ógleyman-
legur dagur. Svo sungum við líka
fyrir framan þinghúsið í Winnipeg
við styttuna af Jóni Sigurðssyni sem
er alveg eins og styttan á Aust-
urvelli. En það voru Vestur Íslend-
ingar sem söfnuðu fyrir þeirri styttu
á sínum tíma og svo vel safnaðist að
það var til fyrir tveimur styttum og
önnur þeirra er þarna fyrir framan
þinghúsið. Það urðu margir hissa
þegar þeir sáu þessa styttu þarna og
fararstjórarnir sögðu stoltir frá því
hvernig hún var til komin. Svo á
heimleiðinni beið okkar veisla í Min-
neapolis hjá hjónum frá Selfossi,
Guðrúnu Erlu Gísladóttur og Þóri S.
Þórissyni sem þar búa ásamt börn-
um,“ segir Valdimar og lætur þess
getið að þessi ferð hafi sannarlega
gefið þeim kraft inn í vetrarstarfið.
Einn liður í starfi kórsins um þess-
ar mundir er að taka þátt í kóramóti
í Hafnarfirði sem er núna um
helgina þar sem Karlakórinn Þrest-
ir er gestgjafi. Valdimar lofaði því
að mikið yrði sungið í Firðinum.
„Það er sannarlega gaman að
syngja í góðum félagsskap og það
sést best á því að ennþá eru í kórn-
um stofnfélagar og láta engan bil-
bug á sér finna. Söngur og kórastarf
er mjög umfangsmikið á Selfossi og
á öllu Suðurlandi og ég tek heils-
hugar undir það að nauðsynlegt sé
að efla þá hugsun að við eignumst
gott sönghús með góðum hljóm-
burði,“ segir Valdimar Bragason
formaður Karlakórs Selfoss en kór-
inn er einn margra kóra af Suður-
landi sem munu skreyta áramóta-
ávarp útvarpsstjóra með söng
sínum.
Karlakór Selfoss heldur upp á fjörutíu ára afmælið
Ógleymanlegur dagur
Kórinn Karlakór Selfoss syngur við styttuna af Jóni Sigurðsssyni fyrir framan þinghúsið í Winnipeg í Kanada.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Formaðurinn Valdimar Bragason með nýjan hljómdisk karlakórsins.
Eftir Sigurð Jónsson
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Fréttir á SMS
prófkjör sjálfstæðismanna í reykjavík fer fram dagana 4. og 5. nóvember www.gislimarteinn.is
Gísli Marteinn er sannarlega í hópi forystumanna okkar
kynslóðar. Hann er jákvæður og drífandi, með mikla
leiðtogahæfileika. Einmitt það sem höfuðborgin þarf á
að halda, eigi hún að ganga upprétt til móts við nýja tíma.
Jónmundur Guðmarsson
bæjarstjóri
!"#
#
!$# #
!" #! $ %& ' $ !" #! $ ((( & $ %