Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 37
MADRÍD er staðurinn fyrir
óperuunnendur um þessar mundir.
Verkefninu Madrid Opera In
(MOI) er beint að óperuáhugafólki
sem vill komast á sýningar í el
Teatro Real í Madríd. Fjórar
spænskar ferðaskrifstofur taka
þátt í því ásamt ferðamála-
yfirvöldum í Madríd. Ferðalangar
geta keypt aðgang að verkefninu
og fá þá miða í óperuna og gist-
ingu á 3-5 stjarna hóteli ásamt
morgunverði og skoðunarferð.
Verðið er á bilinu 195-288 evrur á
Madríd er óperuborg
SPÁNN mann eða 14-21 þúsund íslenskar
krónur. Don Giovanni og La Bo-
héme eru meðal ópera sem verða
á fjölunum í Madríd í vetur.
www.esmadrid.com/monografi-
cos/OperaIn/es/_
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 37
FERÐALÖG
Ferðavefur um Austurland
Ferðamálasamtök Austurlands hafa
opnað nýjan ferðavef á slóðinni
www.east.is. Vefnum er ætlað að
hjálpa ferðafólki að finna það sem
máli skiptir varðandi ferðalög um
landshlutann, að því er fram kemur í
Fréttabréfi Ferðamálaráðs Íslands.
Auk almennra upplýsinga um Austur-
land, áhugaverða staði, einstök sveit-
arfélög o.fl. má á vefnum meðal ann-
ars finna myndasafn og
atburðadagatal. Þá er á vefnum
gagnagrunnur með upplýsingum um
ferðaþjónustuaðila í fjórðungnum,
svo sem gististaði, veitingastaði, af-
þreyingarfyrirtæki, söfn o.fl.
Kínaferð með Kínaklúbbi
Unnar
Í maí og september verður Kína-
klúbbur Unnar með 22 daga ferðir til
Kína.
Í vorferðinni verður farið til höf-
uðborgarinnar Beijing, Sjanghæ,
Hangzhou, Jingdezhen, Guangzhou
og til eyjunnar Putushan í Austur-
Kínahafi. Einnig verður siglt eftir
Keisaraskurðinum og farið á Kína-
múrinn. Heildarverð er 350.000
krónur og þá er allt innifalið.
Í haustferðinni verður farið á aðrar
slóðir.
Nú geta hópar og einstaklingar pant-
að svokölluð Kínakvöld hjá Kína-
klúbbnum. Þá er boðið upp á mynda-
sýningu, tesmökkun, danssýningu og
sýningu á Tai-Chi svo dæmi séu tek-
in.
Kínaklúbbur Unnar
Njálsgötu 33
Reykjavík
Sími 551 2596 og 868 2726
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
EF draumurinn er að synda inn-
an um hákarla, að vísu með gler
á milli, sjá Hollywood-stjörnur í
bikiníi eða gista á dýrasta hót-
elherbergi í heimi er The Atl-
antis Resort hótelið á Bahama-
eyjum í Karíbahafinu staðurinn.
Þennan draum hafa ýmsir olíu-
furstar, vel launaðir stór-
forstjórar, sjónvarpsstjörnur,
leikarar og tónlistarmenn látið
rætast samkvæmt grein sem birt-
ist nýlega í vefriti norska Dagbla-
det. Hann vitnar jafnframt í lýs-
ingu CNN á staðnum sem segir
hann vera ævintýraland með yf-
irgengilegum öfgum. Þar er að
finna heilsuböð, sundlaugagarða,
stærsta spilavíti í Karíbahafseyj-
unum, 35 veitingastaði, 11 lón, 40
manngerða fossa og höfn fyrir
skúturnar. Þetta er þó aðeins
brot af því sem boðið er upp á.
Hótelið hefur verið starfrækt í
tíu ár og kostaði milljarð dollara
í byggingu. Í sædýrasafni hótels-
ins eru um 50.000 dýr af 200 mis-
munandi tegundum. Á hverjum
sólarhring er dælt um 160 millj-
ónum lítrum af sjó í gegnum foss-
ana. Langi gestina að gera eitt-
hvað óvenjulegt er til dæmis
hægt að fara upp í eftirlíkingu á
Maya-hofi sem þar hefur verið
byggt og látið sig falla nánast í
fríu falli niður 20 metra langa
vantsrennibraut ofan í laug. Eða
fara í gegnsæ göng um lón þar
sem hákarlar synda fyrir ofan og
allt í kring.
Margs konar gistimöguleikar
eru í boði, en samkvæmt CNN er
þar að finna dýrasta hótelher-
bergi í heimi, svokallaða Bridge-
svítu, en litla 25.000 bandaríkja-
dali þarf að greiða fyrir að fá að
gista þar í eina nótt. Svítunni
fylgja meðal annars svalir upp á
244 fermetra, gluggarnir á svít-
unni eru 3,6 metra háir með út-
sýni yfir Karíbahafið, 10 herbergi
tilheyra henni, þar á meðal stofa
sem er 114 fermetrar að stærð og
eldhús með sérinngangi fyrir
þjónustufólk svítunnar sem telur
sjö manns.
Í svefnherberginu er auðvitað
sérstakt fataherbergi, handbród-
erað lín og marmari. Meðal
þeirra sem gist hafa í svítunni
eru Donald Trump, Michael Jack-
son, Bill Gates, Celine Dion og
Oprah Winfrey.
Utan háannatíma er þó hægt
að gista í mun ódýrari herbergi,
sem að vísu er þó nokkuð minna,
en nóttin kostar frá u.þ.b. tíu
þúsund krónum.
Áhugasamir ættu að skoða vef-
síðu
Dýrasta hótelherbergi í heimi
Á Bridge-svítunni eru 10 herbergi og þar á meðal stofa sem er 114 fer-
metrar að stærð og eldhús með sérinngangi fyrir þjónustufólk svítunnar
sem er sjö manns.
KARÍBAHAFIÐ
The Atlantis Resort. Slóðin er
http://www.atlantis.com.
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar