Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 299. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Vængjaður
Volvo
Níu konur hönnuðu bíl sem hefur
hlotið mikla athygli | Daglegt líf
Bílar | Dísilknúin Jetta G4 Challenge Nýr Mitsu L 200 Jeep
Commander Íþróttir | Ríkharður með brjósklos Olga, Pálína og Hólm-
fríður til KR Lifun | Munaður á vetrarmánuðum Veisla fyrir bragðlauka
Frítt far í
fljúgandi
spilavítum
HUGSANLEGT er, að innan tíðar
geti fólk flogið frítt með írska lág-
gjaldaflugfélaginu Ryanair. Sá
böggull fylgir þó skammrifi, að þá
verður það að fallast á að taka þátt í
fjárhættuspili um borð. Fyrirtækið
er nefnilega með á prjónunum að
breyta flugvélunum í spilavíti.
Fyrirhugað er að byrja á þessu
eftir ár eða rúmlega það eða þegar
búið er að finna aðferð við að milli-
færa af greiðslukorti farþega áður
en vélin lendir. Kom þetta fram á
fréttavef breska dagblaðsins The
Independent í gær.
Í fjárhættuspilinu munu farþegar
nota sinn eigin síma eða tæki, sem
Ryanair útvegar, og fara fjar-
skiptin um stöð í flugvélinni sjálfri.
Þannig getur flugfélagið tekið til
sín hluta af þeim kostnaði auk
þóknunar fyrir sjálf viðskiptin.
Ekki eru allir hrifnir af því að
flugvélum verði breytt í spilavíti en
forsvarsmenn fyrirtækisins segjast
ekki hafa áhyggjur af því.
RÚSSNESKIR hermenn marséruðu
í gær um Rauða torgið í Moskvu en
það var æfing fyrir mikla hergöngu
á mánudag, 7. nóvember. Þá verða
64 ár liðin frá hersýningu á sama
stað 1941 eða á dögum síðari heims-
styrjaldar. Í baksýn er Vasílíjdóm-
kirkjan uppljómuð, eitt mesta afrek
rússneskrar byggingarlistar.
Reuters
Marsérað á Rauðu torgi
Enginn á
kassanum
VEGNA nýrrar tækni er ekki ólík-
legt, að afgreiðslufólk í stórversl-
unum heyri brátt sögunni til. Þá
munu neytendur einfaldlega af-
greiða sig sjálfir.
Þetta fyrirkomulag, sem er þeg-
ar komið í sumum verslunum, hefur
verið til umræðu í samtökum
danskra smásala að undanförnu og
sýnist sitt hverjum. Sérfræðingar í
málefnum verslunarinnar, til dæm-
is Henrik Knak hjá IBM Danmörku,
spá því hins vegar, að þessi háttur
og önnur ný tækni verði búin að ná
fótfestu í Danmörku eftir tvö ár og
verða almenn upp úr því. Kom
þetta fram á fréttavef Berlingske
Tidende í gær.
ENN vantar þó nokkuð upp á að op-
inber markmið um þjónustu við
aldraða hafi að öllu leyti náð fram að
ganga og að öldruðum sé í senn veitt
viðeigandi aðstoð til að búa sem
lengst á eigin heimili og tryggð að-
staða á öldrunarheimili þegar slíkt
er ekki lengur mögulegt. Þetta kem-
ur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkis-
endurskoðunar um þjónustu við
aldraða sem birt var í gær.
Í skýrslunni kemur fram að mark-
mið frá 2001 um hámark 90 daga bið
fyrir þá sem eru í brýnni þörf fyrir
hjúkrunarvist, hafi náðst. Árið 2003
var biðin 86 dagar ef miðað er við
tímann frá því að fólk er metið í
mjög brýnni þörf þar til það fær
vistun. Að meðaltali þurfti þessi hóp-
ur þó að bíða 213 daga frá gerð
fyrsta mats.
Í skýrslunni er leitt í ljós að mjög
misjafnlega sé búið að öldruðum á
heilbrigðisstofnunum og öldrunar-
heimilum þegar kemur að húsnæði.
Sums staðar hafa allir einstaklings-
rými með sérbaðherbergi en annars
staðar þarf fólk að deila persónulegu
rými með öðrum. Af öllum hjúkr-
unarrýmum í landinu er aðeins 57%
með einstaklingsrými og aðeins 29%
íbúanna hafa sér baðherbergi. Er
þetta mjög frábrugðið því sem er t.d.
í Noregi þar sem einbýli eru 91% af
heildarfjölda hjúkrunarrýma.
8–26 fermetrar á mann
Þegar skoðaðar eru tölur frá 2003
um hvað hver íbúi hefur mikið per-
sónulegt rými í hjúkrunar- og dval-
arrýmum öldrunarheimila vítt og
breitt um landið kemur í ljós gríð-
arlegur munur. Þannig hefur fólk
frá tæplega 8 fermetrum upp í 26
fermetra að meðaltali. Af 48 heim-
ilum sem talin eru upp í skýrslunni
hafa 9 þeirra einstaklingsrými fyrir
alla. En hlutfall einstaklingsrýma
fer niður í 20–35% á sex heimilum.
Eins er mikill munur á umönn-
unartíma en þar er miðað við hjúkr-
unarklukkustund sem er mælieining
sem gefur til kynna hversu mikla
umönnun í klst. hver íbúi fær að
meðaltali á sólarhring. Hver íbúi
öldrunarheimilis naut umönnunar
4,8 klst. að meðaltali á landinu árið
2003. Í leiðbeiningarstuðli Land-
læknisembættisins er mælt með 4,8–
5,5 hjúkrunarklukkustundum á sól-
arhring. Þrátt fyrir þetta eru 55
dvalarheimili af 75 sem talin eru upp
í skýrslunni undir neðri mörkunum
á þessum skala og nærri 40 heimili
undir 3,5 hjúkrunarklukkustundum.
Ný stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um þjónustu við aldraða
Enn vantar upp á
Um 57% aldraðra á hjúkrunarheimili búa í einbýli, en 91% í Noregi
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
VÍSBENDINGAR eru um, að stjórnvöld í Pól-
landi og Rúmeníu hafi leyft bandarísku leyniþjón-
ustunni, CIA, að koma þar upp leynilegum fanga-
búðum. Hefur framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, ESB, ákveðið að kanna málið og einnig
Rauði krossinn og ýmis mannréttindasamtök.
Tom Malinowski, yfirmaður Mannréttindavakt-
arinnar eða Human Rights Watch í Washington,
sagði í gær, að lendingar flugvéla og aðrar vís-
bendingar bentu til, að CIA hefði fengið að koma
upp leynilegum fangabúðum í Póllandi og Rúmen-
íu. Í síðarnefnda landinu er því þó neitað og í Pól-
landi segist enginn vita neitt.
Roscam Abbing, talsmaður ESB, sagði, að rík-
isstjórnir í öllum aðildarríkjunum 25 yrðu spurðar
um þetta mál en leynilegar fangabúðir, þar sem
fangar eru jafnvel pyntaðir, brjóta gegn Mann-
réttindasáttmála Evrópu. Þá ætlar Alþjóða Rauði
krossinn að krefjast þess að fá að vitja fanga í
leynilegum búðum og Evrópuráðið mun efna til
eigin rannsóknar.
CIA og Bandaríkjastjórn neita að svara spurn-
ingum um tilvist leynilegra fangabúða en Law-
rence Wilkerson, sem var skrifstofustjóri Colin
Powells, fyrrverandi utanríkisráðherra, sagði í
gær, að þær fyrirskipanir, að vísu ekki mjög ljós-
lega orðaðar, sem borist hefðu frá Dick Cheney
varaforseta í gegnum Donald Rumsfeld varnar-
málaráðherra, hefðu leitt til þess ofbeldis og pynt-
inga, sem bandarískir hermenn hefðu gerst sekir
um. Sagði Wilkerson, að Powell hefði falið sér að
rannsaka þessi mál eftir að þau komust í hámæli.
Wilkerson sagði einnig, að Cheney væri með sitt
eigið „þjóðaröryggisráð“, sem njósnaði um og
græfi undan hinu eiginlega þjóðaröryggisráði.
Fyrir nokkrum dögum sagði hann, að „kapall“
þeirra Rumsfelds og Cheneys hefði gengið upp og
nú væru þeir með stefnu Bandaríkjanna í utan-
ríkis- og hermálum í gíslingu.
Fangabúðirnar eru sagðar
vera í Póllandi og Rúmeníu
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
♦♦♦
Prófkjör hefst í dag
hjá Sjálfstæðisflokki
2.600 nýir
bæst við á
18 dögum
UM 2.600 manns hafa gengið í Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík frá því
landsfundi lauk 16. október sl. og þar
til síðdegis í gær. Þar af hafa um
1.000 manns bæst
við frá því á
þriðjudag. Vænt-
anlega mun fé-
lögum enn fjölga í
dag og á morgun
þegar prófkjör
flokksins vegna
borgarstjórnar-
kosninganna 2006
fer fram.
Um 800 manns
höfðu greitt at-
kvæði utankjörfundar sem er meira
en í síðustu prófkjörum.
Tólf manns eru í borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna nú og sex
þeirra taka ekki þátt í prófkjörinu,
þrír borgarfulltrúar og þrír vara-
borgarfulltrúar Alls eru 24 manns í
kjöri, þar af fimm konur.
Úrslit gætu ráðist á smölun
Fylgi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar
og Gísla Marteins Baldurssonar,
sem báðir sækjast eftir fyrsta sætinu
á lista sjálfstæðismanna, hefur verið
afar svipað þegar skoðaðar eru
kannanir á fylgi meðal sjálfstæðis-
manna. Í nýjustu könnuninni sem
birt var á miðvikudag mældist Vil-
hjálmur með 52% fylgi en Gísli Mar-
teinn með 48%.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor og
deildarforseti við Háskóla Íslands,
segir að þessi litli munur á fylgi
keppinautanna um fyrsta sætið þýði
að úrslitum geti ráðið hvernig fram-
bjóðendum takist að smala sínum
fylgismönnum á kjörstað. Því stefni í
harðan slag fram á síðustu stundu
hjá frambjóðendum.
Eftir Brján Jónasson
og Rúnar Pálmason
Fréttaskýring | Miðopna
Bílar, Íþróttir og Lifun í dag