Morgunblaðið - 04.11.2005, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yf ir l i t
ENN VANTAR UPP Á
Enn vantar þó nokkuð upp á að
opinber markmið um þjónustu við
aldraða hafi náð fram að ganga að
því er fram kemur í stjórnsýslu-
úttekt Ríkisendurskoðunar. Þannig
búa 57% aldraðra hér á hjúkr-
unarheimilum í einbýli en 91% í
Noregi.
2.600 nýir félagar
Um 2.600 nýir félagar hafa gengið
í Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík frá
því á landsfundi hans sem lauk 16.
október síðastliðinn. Þar af hafa um
eitt þúsund bæst við frá því á þriðju-
dag, en prófkjör flokksins vegna
borgarstjórnarkosninganna í
Reykjavík fer fram í dag og á morg-
un, laugardag.
Innheimtan á Blönduós
Sett verður upp sérstök inn-
heimtumiðstöð á Blönduósi til þess
að innheimta sektir og sakarkostnað
alls staðar á landinu, en til þessa hef-
ur hvert lögregluembætti um sig séð
um innheimtuna.
Nefna Pólland og Rúmeníu
Vísbendingar eru um, að CIA,
bandaríska leyniþjónustan, hafi
komið upp leynilegum fangabúðum í
Póllandi og Rúmeníu auk annarra
ríkja. Lawrence Wilkerson, sem var
skrifstofustjóri Colin Powells, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær, að fyrirmæli,
sem leitt hefðu til þess, að banda-
rískir hermenn gerðust sekir um að
misþyrma og pynta fanga, hefðu
komið frá Dick Cheney varaforseta í
gegnum Donald Rumsfeld varnar-
málaráðherra.
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 36
Úr verinu 12 Viðhorf 38
Viðskipti 14 Minningar 45/54
Erlent 16/18 Dagbók 58
Höfuðborgin 22 Víkverji 58
Suðurnes 26 Velvakandi 59
Akureyri 24 Staður og stund 60
Austurland 26 Menning 62/69
Daglegt líf 28/29 Bíó 66/69
Listir 30/32 Ljósvakamiðlar 70
Umræðan 32/44 Veður 71
Bréf 44 Staksteinar 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
0
0
7
SJÓN:ARGÓARFLÍSIN
„ALVEG FANTASKEMMTILEG BÓK“
– Illugi Jökulsson, Talstöðinni
„ÞETTA ER LISTILEGA SKRIFUÐ SAGA“
– Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
NÝ BÓK EFTIR
NORÐURLANDA-
MEISTARANN
Í BÓKMENNTUM
kynning - Morgunblaðinu í dag fylgir
prófkjörsblað í Reykjavík. Frá Ragnari
Sæ Ragnarssyni.
SÉRHVER árstíð hefur sína töfra
og það er ekki ónýtt að geta
brugðið sér á skauta undir berum
himni þegar veður er til þess.
Þannig var þó ekki tíðarfarið í
október yfir höfuð, því Veður-
stofan segir að mánuðurinn hafi
verið fremur hráslagalegur og
illviðrasamur. Hlýtt var um miðj-
an mánuðinn, en annars var tíð-
arfar í kaldara lagi. Þannig var
meðalhitinn í mánuðinum 1,4
stigum undir meðallagi í Reykja-
vík og tveimur stigum undir með-
allagi á Akureyri og þarf að fara
tæp 25 ár aftur í tímann til að
finna kaldari október þar. Hiti
allra síðustu mánaða hefur verið
undir meðallagi, en þar á undan
var langt tímabil þar sem hitinn
var yfir meðallagi.
Morgunblaðið/Þorkell
Gott svell eftir kaldan október
ALLMARGAR ábendingar bárust
til Landspítala – háskólasjúkrahúss
í gær vegna tölvupósts sem ber
heitið „Þetta er því miður ekki
brandari“ og gengur nú hratt
manna á milli en pósturinn var
settur þannig upp að svo virtist
sem hann hefði upphaflega komið
frá starfsmanni spítalans. Í yfirlýs-
ingu sem spítalinn sendi frá sér
vegna málsins segir að pósturinn
sé ekki kominn frá viðkomandi
starfsmanni. Pósturinn hafi orðið
til fyrir um fjórum árum og þá hafi
verið tekið á þessu máli. Nú sé
sami tölvupóstur kominn í dreif-
ingu en hann sé spítalanum alger-
lega óviðkomandi og er fólk vin-
samlegast beðið um að eyða
honum.
Í póstinum er rakin saga af
manneskju sem stingur sig á HIV-
smitaðri nál í leikhúsi í París í
Frakklandi. Saga sem þessi kallast
„flökkusaga“ en hún er send í þeim
tilgangi einum að fá sem mesta
dreifingu. Þessi tiltekna saga hefur
verið á kreiki í mörg ár, með breyt-
ingum, og er uppspuni frá rótum.
Ef vafi leikur á hvort um flökku-
sögu eða falspóst sé að ræða er rétt
að benda á vefsíðuna http://
hoaxbusters.ciac.org en hún hefur
að geyma helstu flökkusögur og
annan falspóst sem dreifist víða.
Sagan í tölvu-
póstinum upp-
spuni frá rótum
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ís-
lenska ríkið til að greiða 13 ára
dreng tæpar 9,2 milljónir í bætur,
en drengurinn datt í hverinn
Kraflanda í landi jarðarinnar
Reykhóla þegar hann var þriggja
ára og slasaðist alvarlega. Í hér-
aðsdómi voru Orkubú Vestfjarða
og Þörungaverksmiðjan hf. á
Reykhólum einnig dæmd bóta-
skyld en Hæstiréttur sýknaði fyr-
irtækin og taldi að ríkið bæri eitt
bótaábyrgð.
Drengurinn féll í hverinn, sem
er í landi Reykhóla í Austur-
Barðastrandarsýslu, steinsnar ut-
an við þéttbýlið á staðnum. Vegna
áverka er hlutust af slysinu var
honum metinn 50% varanlegur
miski og 50% varanleg örorka.
Forráðamenn drengsins kröfðu
ríkið, Orkubú Vestfjarða og Þör-
ungaverksmiðjuna um bætur og
byggðu málsóknina á því að allir
þessir aðilar hefðu að nokkru
marki verið umráðamenn jarðhita-
réttinda á Reykhólum.
Hæstiréttur segir að umráða-
mönnum hversins hafi borið að
girða hann af. Hins vegar hafi rík-
ið, sem eigandi jarðarinnar, eitt
verið umráðamaður hversins, enda
yrði ekki lagður sá skilningur í
samning, sem gerður hafði verið
um nýtingu jarðhita á landinu, að
leigutakar samkvæmt honum teld-
ust umráðamenn hversins.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Hrafn Bragason og Ingibjörg
Benediktsdóttir. Bjarni Þór Ósk-
arsson hrl. flutti málið fyrir
drenginn. Fyrir Orkubú Vest-
fjarða hf. var Jónas A. Aðalsteins-
son hrl., íslenska ríkið Skarphéð-
inn Þórisson hrl. og Þörunga-
verksmiðjuna hf. Hanna Lára
Helgadóttir hrl.
Fær 9,2 milljónir vegna
brunaslyss í hver
ÖKUMENN á dísilbílum eru al-
mennt ekki að svindla á ríkinu með
því að dæla ódýrari vélaolíu, eða lit-
aðri dísilolíu á bíla sína, samkvæmt
upplýsingum frá umferðareftirliti
Vegagerðarinnar. Starfsmenn
Vegagerðarinnar hafa eftirlit með
notkun litaðrar og venjulegrar dís-
ilolíu og fer eftirlitið fram eins og
hefðbundið umferðareftirlit. Bílar
eru stöðvaðir og látnir fara út í veg-
kant á meðan tekið er sýni úr elds-
neytistanknum. Niðurstöður fást á
staðnum og í þeim tilvikum þar sem
lituð olía er á tanknum, sem er fá-
títt, er mönnum bent á að láta dæla
af bílnum og fylla hann með venju-
legri dísilolíu. Ökumenn hafa tekið
þessu eftirliti vel samkvæmt upp-
lýsingum Vegagerðarinnar, jafnvel
þótt þeir séu tafðir á ferðum sínum
eins og um lögreglueftirlit væri að
ræða.
Eitthvað mun vera um að öku-
menn dæli fyrir slysni litaðri olíu á
bílinn og hafa þeir þá látið Vega-
gerðina vita.
Verða ekki
varir við svindl
með vélaolíu
ÞÓRDÍS J. Sigurðardóttir, nýkjör-
in stjórnarformaður Dagsbrúnar,
sagði á hluthafafundi í félaginu að
hún trúði því ekki að haldið verði
áfram umræðu um að takmarka
eignarhald á fjölmiðlum og það
kæmi sér á óvart ef frjálsir fjöl-
miðlar kölluðu eftir að eignarhald
þeirra yrði takmarkað.
„Ég neita að trúa því að áfram
verði umræða um að takmarka
eignaraðild á fjölmiðlum eins og
verið hefur. Mig langar að minna á
að það eru 990 hluthafar í Dags-
brún, sem hafa trú á því fyrir-
komulagi að hafa félagið skráð á
hlutabréfamarkaði. Hvergi ríkir
eins lýðræðislegt og dreift eign-
arhald eins og í skráðu félagi á
markaði og undir þeim lögum og
reglum sem þar eru,“ sagði Þórdís
á fundinum.
Sagði Þórdís að það kæmi því á
óvart að aðrir frjálsir fjölmiðlar
kölluðu eftir löggjöf sem takmark-
aði eignarhald, fyrirtæki sem
mændu til ríkisins um hjálp í sam-
keppni. „Þetta eru fjölmiðlar sem
jafnvel hvílir leynd yfir hverjir eiga
og fjölmiðlar í eigu fárra einstak-
linga.“
Morgunblaðið spurði Þórdísi
hvaða fjölmiðla hún ætti við. Hún
sagðist eiga við Blaðið. „Ef við tak-
mörkum eignarhald á fjölmiðlum
getur það útilokað félög frá því að
vera skráð í Kauphöll. Ég held að
það sé ekki þessu félagi né öðru til
góðs að fara í gegnum þessa um-
ræðu aftur [um eignarhald á fjöl-
miðlum]. Það á frekar að beina at-
hyglinni að því sem við getum gert
vel og halda því áfram.“
Þórdís sagðist óska eftir vinnu-
frið fyrir félagið.
115% vöxtur milli ára
Jafnframt var tilgangi félagsins
samkvæmt samþykktum breytt til
að endurspegla hlutverk Dags-
brúnar sem eignarhalds- og fjár-
festingafélags. Félagið hét áður Og
fjarskipti, en nafninu var breytt á
fundinum í Dagsbrún. Þá var sam-
þykkt að veita stjórn félagsins
heimild til hækkunar hlutafjár.
Sagði Þórdís gríðarlega spennandi
tíma fram undan hjá félaginu enda
hygðist það stefna að frekari vexti,
jafnt innri sem ytri. Sagði hún
tekjur félagsins hafa aukist um
115% á síðasta ári og áfram yrði
haldið á sömu braut. „Við ætlum að
halda áfram að vaxa, við teljum að
félagið hafi mikla möguleika og
ekki síst erlendis.“
Nýkjörinn stjórnarformaður Dagsbrúnar
Trúi ekki að reynt verði
að takmarka eignarhald
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is