Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einar Már Guðmundsson
Riddarar hringstigans
Vængjasláttur í þakrennum
Eftirmáli regndropanna
Hinn vinsæli Reykjavíkurþríleikur Einars
Más um lífið í nýreistu og ómótuðu hverfi
í Reykjavík.
Þessar sögur, sem allar hafa komið út á
fjölmörgum tungumálum og hlotið góðar
viðtökur, mörkuðu tímamót í íslenskri
sagnagerð og eru nú loksins fáanlegar á
einni bók.
Reykjavíkurþríleikur
Einstakt verð
3.290 kr.
„Heillandi og öðruvísi, ný rödd úr óvæntri átt.“
Ian McEwan
STJÓRN Landssambands ís-
lenzkra verzlunarmanna (LÍV)
mun leggja fram
tillögu á lands-
þingi sambands-
ins síðar í mán-
uðinum að
kannaðir verði
möguleikar á
mun nánara
samstarfi versl-
unarmanna-
félaga landsins
en nú er.
Verslunar-
mannafélag Vestmannaeyja (VFV)
samþykkti með öllum greiddum at-
kvæðum á félagsfundi 1. nóvember
síðastliðinn að ganga til viðamikils
samstarfs við Verzlunarmanna-
félag Reykjavíkur (VR) og er
stefnt að sameiningu félaganna
eftir tveggja ára reynslutíma. Í
VFV eru 230 félagsmenn og full-
gildir félagsmenn VR eru tæplega
tuttugu þúsund talsins. Í LÍV eru
21 verslunarmannafélag og deildir
verslunarmanna víða um land með
um 26.000 fullgilda félagsmenn.
Von um víðtækara samstarf
Á heimasíðu VR segir að um-
ræða um sameiningu verslunar-
mannafélaga hafi átt sér stað í
langan tíma innan LÍV. „Það er
von VR og VFV að þessi samn-
ingur leiði til víðtækara samstarfs
verslunarmannafélaga í landinu og
öflugs, svæðaskipts stéttarfélags
verslunarmanna. Í samningi VR
og VFV er kveðið á um að fé-
lagsmenn VFV öðlist full réttindi
miðað við reglur VR frá gildistöku
samningsins þann 1. janúar 2006.
Þeir sem gerast aðilar að Versl-
unarmannafélagi Vestmannaeyja
eftir gildistöku samningsins ávinna
sér rétt í samræmi við reglur VR
um nýja félagsmenn. Í samningn-
um er kveðið á um fulla samein-
ingu félaganna eftir tvö ár frá
gildistöku hans, sé vilji fyrir því
hjá báðum aðilum,“ segir m.a. í
frétt VR. Einnig kemur fram að
félögin tvö verði rekin sem eitt fé-
lag á reynslutímanum, að undan-
skildum eignum félaganna. Komi
til sameiningar verða þær jafn-
framt sameinaðar.
Sömu réttindi og þjónusta
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
formaður LÍV, lýsti ánægju sinni
með samstarf VR og VFV. Hún
sagði að sameining Verslunar-
mannafélags Akraness og VR, sem
var samþykkt 2003, hafi tekist
mjög vel.
Ingibjörg sagði að stjórn LÍV
muni leggja fram tillögu á þingi
landsambandsins, sem haldið verð-
ur á Akureyri 11.–12. nóvember
næstkomandi, um að næstu tvö ár
verði kannaðir möguleika á nánara
samstarfi félaga verslunarmanna
um land allt. „Markmiðið er að
tryggja öllum félagsmönnum LÍV
sömu réttindi og bestu mögulega
þjónustu, hvar sem þeir búa á
landinu. Látið verði á það reyna
hvort aðildarfélögin séu tilbúin til
nánara samstarfs og kannaðar
mismunandi leiðir, allt frá samein-
ingu félaganna í deildaskipt lands-
samband eða landsfélag til nánari
samvinnu aðildarfélaganna eða
jafnvel einstakra sjóða þeirra, t.d.
sjúkrasjóða eða orlofssjóða,“ sagði
Ingibjörg. „Það hefur verið skoðun
mín í mörg ár að einingarnar séu
allt of litlar. Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur er mjög lítið stétt-
arfélag á erlendan mælikvarða.“
Ingibjörg segir að með auknu
samstarfi á landsvísu aukist getan
til að þjóna félagsmönnum. Hún
segir að í nágrannalöndum séu
víða starfandi deildaskipt lands-
félög verslunarmanna. Ingibjörg
kvaðst binda vonir við að tillagan
verði samþykkt.
Aukið samstarf félaga
Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Verslunarmannafélag Vestmannaeyja samþykkti að ganga til
viðamikils samstarfs við Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
LEIKARAR og annað starfsfólk
sýningarinnar Sölku Völku í Borg-
arleikhúsinu afhentu í gær
MND-félaginu 1.362 þúsund krón-
ur sem safnaðist þegar þau stóðu
fyrir sýningu til styrktar félaginu.
Rann allur aðgangseyrir óskiptur
til MND-félagsins, sem er félag
fólks með hreyfitaugahrörnun.
Edda Heiðrún Backman, leikstjóri
sýningarinnar, á við þennan
sjúkdóm að stríða. Halla Reyn-
isdóttir og Guðjón Reynisson, for-
maður MDN-félagsins, tóku við
peningunum. Morgunblaðið/Kristinn
Gáfu 1,3
milljónir
til styrkt-
ar MND
ENGINN liggur undir grun og
engar vísbendingar liggja fyrir um
ástæður sprengingarinnar sem varð
undir bíl sem stóð við húsnæði
Myllunnar í Skeifunni aðfaranótt
miðvikudags. Að sögn Harðar Jó-
hannessonar yfirlögregluþjóns er
búið að skoða vettvanginn vel og
leita allra vísbendinga og nú liggur
fyrir rannsókn á þeim efnum sem
þar fundust. Það hjálpar hins vegar
ekki til að upplýsa hver stóð að
baki sprengingunni en talið er að
um heimatilbúna sprengju hafi ver-
ið að ræða.
Hörður bendir á að ekki sé langt
síðan sprengt var í nágrenni Skeif-
unnar og var það seint um kvöld,
eða nótt. Þá hafi nágrannar látið
vita um talsverðan hávaða sem að
öllum líkindum hafi verið sprengja.
Því virðist ljóst að eitthvað sé um
að menn séu að fikta með sprengj-
ur. Spurður um hvort vettvangur
þeirrar sprengingar hafi verið
kannaður segir Hörður að útkallið
hafi verið vegna hávaða og ekki hafi
verið tilgreint nákvæmlega hvaðan
sá hávaði kom þannig að ekki hafi
verið um eiginlegan vettvang að
ræða.
Engar
leifar fundist
Hörður segir það vekja furðu að
lítið sem ekkert er um ummerki
sprengjunnar, duft eða ryk – sem
geti þess vegna verið hveiti – hafi
fundist og svo ræmur og tætlur af
venjulegum plastpokum.
Hörður segir engar leifar af
kveikibúnaði hafa fundist og renni
það stoðum undir að sprengjuvarg-
urinn hafi verið í nágrenninu þegar
sprengingin varð en á meðan ekk-
ert liggi fyrir í málinu séu þó allir
möguleikar opnir.
Rannsókn á sprenging-
unni í Skeifu ekki lokið
Skildi
eftir sig
lítil
merki
SAMKEPPNI virðist óvirk á raf-
orkumarkaði og vilji orkufyrirtækja
til að laða að sér nýja viðskiptavini er
ekki merkjanlegur. Iðnfyrirtæki sjá
ekki samkeppni, hvorki er varðar
verð eða þjónustu og það er áhyggju-
efni að um áramót mun orkusala til
fjölda smærri fyrirtækja einnig fær-
ast yfir í samkeppnisumhverfi.
„Veruleg verðhækkun varð á raf-
orkuverði til allmargra iðnfyrirtækja
í kjölfar markaðsvæðingar raforku-
sölu um síðustu áramót. Sú verð-
hækkun kom öllum að óvörum og var
skellt á iðnfyrirtækin af fullum
þunga án nokkurrar aðlögunar,“ seg-
ir í grein Bryndísar Skúladóttur,
efnaverkfræðings hjá Samtökum
iðnaðarins, á heimasíðu samtakanna
þar sem fjallað er um markaðsvæð-
ingu raforkukerfisins.
Í greininni segir að hækkun á raf-
orkuverði hafi einkum komið fram
hjá þeim fyrirtækjum sem höfðu ver-
ið með samninga um kaup á raforku á
öðrum taxta en hinum almenna,
þ.e.a.s. hjá þeim sem voru með samn-
inga um rofið rafmagn, ótryggða raf-
orku eða tímaháða taxta. Samtök iðn-
aðarins hafi leitað eftir skýringum á
þessu hjá Orkustofnun en svör þar að
lútandi séu ófullnægjandi. Stofnunin
sjái heldur ekkert athugavert við
verðlagninguna þó hækkun sé veru-
leg á flutningshluta orkuverðsins og
stofnunin virðist telja að verð á
ótryggðri raforku hafi verið óeðlilega
lágt fyrir breytingu.
„Það er mikilvægt að losa um verð-
lagningu þannig að samkeppni kom-
ist á skrið. Núverandi gjaldskrár eru
bundnar að miklu leyti og lítill sveigj-
anleiki er til að lækka verð til stórra
viðskiptavina. Verðlagningin er fjór-
skipt; orka, flutningur, dreifing og
sala. Flutningur og dreifing eru ekki
í samkeppni og raunin er sú að lítil
sem engin samkeppni er heldur í
orkusölu því að Landsvirkjun er eini
aðilinn sem selur orku í heildsölu og
stýrir því verðlagningu. Þannig er
einungis söluþátturinn í samkeppni
og því ekki eftir miklu að slægjast og
svigrúm til verðsamkeppni lítil,“ seg-
ir einnig í grein Bryndísar.
Þarf sveigjanleika
Hún segir jafnframt að það skjóti
skökku við að markaðsvæðingin skuli
bitna mest á stórum notendum.
„Gefa þarf rými fyrir sveigjanleika í
gjaldskrám flutnings og dreifikostn-
aðar til stórra notenda í stað þess að
hafa fast verð til allra notenda. Í
eldra kerfi var sá þáttur gjarnan
verðlagður lágt í sértöxtum enda
byggjast þeir á að orka sé nýtt þegar
eftirspurnin er lítil. Um helmingur
orkuverðs liggur í flutningi og dreif-
ingu og brýnt er að ná þeim kostnaði
niður með aðhaldi við Landsnet og
dreifiveitur.“
Óvirk samkeppni
á raforkumarkaði