Morgunblaðið - 04.11.2005, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Yfir 30% munur var á hæstaog lægsta verði á tuttugutegundum lausasölulyfja íverðkönnun sem verðlags-
eftirlit ASÍ gerði í apótekum sl.
þriðjudag. Kannað var verð á 29 teg-
undum algengra lausasölulyfja.
Lyfjaver við Suðurlandsbraut
reyndist oftast vera með lægsta
verðið, eða í 23 tilvikum af 29. Lyf og
heilsa við Melhaga voru oftast með
hæsta verðið, eða í 18 tilvikum.
70% verðmunur á Paratabs
Mestur verðmunur í könnuninni
var á 30 töflum af Paratabs sem
kostuðu mest 332 kr. í Lyfju en
minnst 195 kr. í Lyfjaveri, sem er
rúmlega 70% verðmunur. Einnig var
mikill verðmunur á Otrivin un-
konserveret nefúða sem kostaði
mest 475 kr. í Lyfjum og heilsu og
Skipholtsapóteki en minnst 308 kr. í
Lyfjaveri, sem er tæplega 55% verð-
munur.
Mesta verðlækkunin
í Garðsapóteki
Henný Hinz, verkefnisstjóri hjá
verðlagseftirliti ASÍ, segir að í síð-
ustu verðkönnun verðlagseftirlitsins
á lausasölulyfjum í apríl sl. hafi verð
verið skoðað á 13 af þeim lyfjum sem
könnuð voru nú. Verð þeirra lyfja
hefur að meðaltali lækkað um 1,7%
milli kannana.
Mest lækkun hefur orðið í Garðs-
apóteki við Sogaveg þar sem með-
allækkunin er tæplega 12% frá því í
síðustu könnun. Mest hækkun hefur
hins vegar orðið hjá Lyfjum og
heilsu þar sem verð þessara lausa-
sölulyfja hefur hækkað um 1,7% að
meðaltali frá því í apríl.
Könnunin var gerð í eftirfarandi
apótekum: Apótekaranum í Þöngla-
bakka 1, Apótekinu í Hverafold 1–3,
Árbæjarapóteki í Hraunbæ 102b,
Garðsapóteki á Sogavegi 108, Lyfj-
um og heilsu í Melhaga 20, Lyfju á
Egilsstöðum, Lyfjavali í Þöngla-
bakka 6, Lyfjaveri á Suðurlands-
braut 22, Rimaapóteki í Langarima
21 og Skipholtsapóteki í Skipholti
50b. Eitt apótek neitaði þátttöku í
könnuninni, Laugarnesapótek við
Kirkjuteig.
Um beinan verðsamanburð er að
ræða en ekki er lagt mat á gæði eða
þjónustu söluaðila.
VERÐKÖNNUN | Verðlagseftirlit ASÍ kannar verð á lausasölulyfjum
Lyfjaver með lægsta verðið
Morgunblaðið/Arnaldur
Alls var 70% munur á hæsta og lægsta verði á 30 töflum af Paratabs.
Ásta S. Helgadóttir, lögfræðingur
og forstöðumaður Ráðgjafarstofu
um fjármál heimilanna, segir að
ákveðið hafi verið að fara af stað
með Netspjallið sem tilraunaverk-
efni til að auka þjónustuna við
landsmenn í þeirri von að fólk leiti
sér aðstoðar fyrr. Ásta bendir á að
Netspjallið sé einnig mikilvæg við-
bót við þjónustuna til landsbyggð-
arinnar, en skrifstofa Ráðgjafar-
stofu er í Reykjavík.
Um er að ræða tilraunaverkefni
sem ætlað er að auka og einfalda
aðgengi og bæta með því þjónustu
við almenning um land allt. Net-
spjallið hóf göngu sína 13. október
og því lítil sem engin reynsla komin
á það enn. Búist er við að Net-
spjallið minnki álag á símatímum og
auki aðgengið að þjónustu Ráðgjaf-
arstofunnar. Frá stofnun Ráðgjaf-
arstofunnar hafa um 6.000 fjöl-
skyldur á Íslandi fengið aðstoð við
að leysa úr fjárhagsvandræðum sín-
um. Auk þess hafa nokkur þúsund
manns fengið ráðgjöf símleiðis.
Á vef Ráðgjafarstofunnar er
einnig að finna allar upplýsingar um
Ráðgjafarstofuna, þjónustu hennar
og ýmsar almennar upplýsingar.
Þjónusta Ráðgjafarstofu er óháð
búsetu og endurgjaldslaus. Ráðgjaf-
arstofa um fjármál heimilanna var
upphaflega sett á laggirnar sem til-
raunaverkefni af félagsmálaráðu-
neyti árið 1996. Í febrúar á þessu
ári var undirritað nýtt samkomulag
um rekstur stofunnar með aðild
fjórtán samtaka, stofnana og banka,
m.a. Reykjavíkurborgar, Rauða
kross Íslands, BSRB, Íbúðalána-
sjóðs, ASÍ og Þjóðkirkjunnar.
„Hlutverk Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna er að veita fólki
RÁÐGJAFARSTOFA um fjármál
heimilanna hefur nú aukið þjónustu
við landsmenn með því að bjóða upp
á svokallað Netspjall. Með Net-
spjalli er unnt að komast í beint
netsamband við starfsmenn Ráð-
gjafarstofu en Netspjallið kemur til
viðbótar við símaráðgjöfina sem
boðið hefur verið upp á frá opnun
Ráðgjafarstofunnar árið 1996.
sem á í verulegum greiðsluerf-
iðleikum og komið er í þrot með
fjármál sín endurgjaldslausa ráð-
gjöf. Ráðgjafarstofan skal veita
fólki aðstoð við að fá yfirsýn yfir
stöðu mála, hjálpa því við að gera
greiðsluáætlanir, velja úrræði og
hafa milligöngu um samninga við
lánardrottna ef þess er þörf. Þá
skal Ráðgjafarstofan veita alhliða
ráðgjöf og fræðslu um fjármál
heimilanna með útgáfu sérstakra
bæklinga og fræðsluefnis,“ að því er
segir í upplýsingaefni um Ráðgjaf-
arstofuna.
NEYTENDUR
Netspjall um fjármál heimilanna
Netspjallið er með þeim hætti að
notendur fara inn á vef Ráðgjafar-
stofunnar, www.rad.is, eða inn á
www.fjolskylda.is og fá beint sam-
band við starfsmann stofunnar en
samskiptin minna á netsamskipti
um forritið MSN. Á afgreiðslutíma
Ráðgjafarstofunnar er alltaf
starfsmaður á vakt til að svara
fyrirspurnum sem berast með
þessum hætti. Afgreiðslutíminn er
9–12 og 13–15 alla virka daga. Einn-
ig er hægt að senda fyrirspurnir í
tölvupósti á netfangið rad@rad.is.
& "#
$()
%**+
"& 4
$
& # $
, 4
$
-% ) 4 $
, * 4
$
, ## -14$$C 4 $
, ## -14$$C 4 $
, * . 4RG 4=4 4
,& 4RG 4
/&) 4RG 4=4 4
0&1& G# 4 $44G# 4=4 4
2 & & & G# 4 $44G# 4=4 4
3 4 $ &$(( $ $C # -"() 4 $
5 &# 4 )" " %" 4$"$ $
0 6 &74 G44C 4=$ $
0 6 && G# 4=4
-&8 *& $ 4$" 4= 4
4
9 6 4 : 4RG 4
: 4$: 4
$
;& & &=4$:4 " !6O$$&# $
8 $:)6G( 4 $
< 6 $& (( 4 4
3 * # * & R 4 " )G#$6G- 4 4= = -"( 4=4 4
>&6 &=5! @$ 4 /%& ) ( C 4 3 &=!& $ -"( 4=4
4
, *& &=)5 G$ )5$5( 4=4 <&&#;& & !O #- " & 6$ - ) ( E 4
-,
.
# C O4
H
!
"
#
$
!
"
#
%
%
$
!
"
#
!
#
$
&
$
!
"
#
%