Morgunblaðið - 04.11.2005, Page 34

Morgunblaðið - 04.11.2005, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í UMFJÖLLUN margra fjöl- miðla um hryðjuverk og ástæður þeirra, kemur gjarnan fram ákveðin samúð með málstað þeirra sem beita þeim. Hryðjuverk eru sögð vopn kúg- aðs og fátæks fólks og hersetinna þjóða undir grimmri herstjórn. Þetta væri nú gott og blessað ef satt væri, en svo er alls ekki að mínu mati. Gerendur hryðju- verkanna í New York árið 2001 komu nán- ast allir frá Sádi- Arabíu. Er Sádi- Arabía fátækt land og kúgað af Bandaríkj- unum? Hvorugt held ég. Eða hryðjuverkin í Írak. Er þar kúguð þjóð í uppreisn gegn grimmu hernámsliði? Ekki held ég það. Þar eru hryðju- verkamenn í stríði við sína eigin þjóð og gegn mannúðlegasta innrásarliði allra tíma, innrásarliði, sem gætti þess svo vandlega að hlífa óbreyttum borgurum, að risastórar flótta- mannabúðir sem Sameinuðu þjóðirnar og aðrir höfðu sett upp til að taka á móti flótta- mannastraumnum, sem búist var við úr borgum Íraks, stóðu nánast auðar. Eftir innrásina hefur þetta „grimma“ hernámslið mokað svo háum fjárhæðum til hjálpar- og uppbyggingarstarfa í landinu að sérstaka stærðfræðikunnáttu þarf til að gera sér einhverja grein fyr- ir þeim risaupphæðum. Hryðjuverk Palestínuaraba Eða hryðjuverk svokallaðra Pal- estínuaraba í Ísrael. Arabar þessir, eða eigum við að segja öfgasamtök þeirra, þó að margar skoðanakannanir sýni yf- irgnæfandi stuðning palestínu- arabísks almennings við hryðju- verk þeirra, hafa í áratugi beitt miskunnarlausum morðárásum gegn saklausu fólki í Ísrael undir því yfirskyni, að þeir væru að frelsa sína hernumdu Palestínu. Gott ef satt væri, en svo er alls ekki! Palestínuarabar hafa aldrei átt þjóðland eða sjálfstætt ríki í Pal- estínu! Aldrei! Viðvera þeirra á svæðinu gefur þeim að mínu mati ekki meiri rétt á sjálfstæðu ríki en Vestur- Íslendingar hafa á sjálfstæðu ríki í Kanada, eða Íslendingar í Dan- mörku hafa til stofnunar sjálf- stæðs ríkis í hluta Danmerkur (með hálfa Kaupmannahöfn sem höfuðborg!). Gyðingaríki í arabalöndum? Það minnir mig á eina milljón gyðinga, sem hraktir voru frá arabalöndunum eftir Sjálfstæð- isstríðið 1948. Þar höfðu þeir búið í gyðinga- samfélögum um hundruð ára. Eiga þeir ekki rétt á sjálf- stæðum ríkjum í hluta þessara landa? Þá geta til dæmis sýrlenskir gyðingar fengið hluta af Sýrlandi undir sýrlenskt gyðingaríki, með hálfa Damaskus sem höfuðborg! Það verður gaman að sjá svipinn á Assad ef við stingum upp á því! Nei, í alvöru talað, þá hafa Pal- estínuarabar aldrei átt sér sjálf- stætt ríki í Palestínu og eiga það ekki skilið vegna hræðilegra ógn- arverka sinna undanfarna áratugi, sem svo sannarlega hafa verið glæpir gegn mannkyni og verið fyrirmynd annarra múslímskra ógnarvalda víðsvegar um heiminn, til dæmis í Írak. Menn verða líka að gera sér ljóst, að barátta Palestínuaraba stefnir fyrst og fremst að því að eyða Ísraelsríki, ekki að stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis á Gaza og Vesturbakkanum. Slíkt ríki yrði aðeins áfangi að endanlegu markmiði þeirra, útrýmingu Ísraels. Hryðjuverk arab- anna eru ekki gerð vegna kúgunar Ísr- aela á þeim, enda er meðferð Ísraela á þeim góð miðað við aðstæður. Ísraelar hafa sinnt mannúðarskyldum sínum við þá ótrúlega vel. Margir muna eftir palestínskri konu sem handtekin var nýlega, er hún reyndi að sprengja sig í loft upp á sjúkrahúsi í Ísrael, þar sem hún hafði verið í meðferð við brunasárum sínum mánuðum saman. Fyrirmæli helgra bóka og afstaða páfans í Róm Sannleikurinn er sá að Palestína er gyðingaland, land gyðinga, og hefur svo verið um þúsundir ára. Þrátt fyrir hatur múslima og illa meðferð á gyðingum, þá hafa ein- stakir fræðimenn þeirra gerst svo djarfir að benda á kafla í Kór- aninum sem staðfesta eignarhald gyðinga á Ísraelslandi, sem nær yfir alla Palestínu. Hin helga bók gyðingdóms og kristni, sjálf Biblían, andlegur vegvísir vestrænnar menningar í tvö þúsund ár og lengur, staðfestir svo auðvitað fyrir fylgjendum sín- um óskoraðan og eilífan eignarrétt gyðinga á þessu landsvæði. Samt er það svo að hvað sem líður fyrirmælum helgra bóka, þá lét páfi kaþólskra í Róm, Ratz- inger, hjá líða að fordæma nýlega sjálfsmorðsárás Palestínuaraba á Ísrael á þeirri forsendu, að því er talsmaður hans sagði, að Ísraelar svöruðu svo harkalega fyrir sig og brytu á mannréttindum Palest- ínuarabanna! Þannig að æðsti yfirmaður kaþ- ólsku kirkjunnar í heiminum legg- ur í rauninni að jöfnu glæp og refsingu, ódæðisverk og við- brögðin við þeim. Þetta finnst mér afar skrítin siðfræði! En ef mönnum finnst þetta skrítið, þá skyldu þeir samt muna að páfinn í Róm á tímum síðari heimsstyrjaldar lyfti ekki fingri til varnar ofsóttum gyðingum. Hinn heilagi faðir í Róm, Ratz- inger á tímum ofsóknar- og ógn- arstríðs Palestínuaraba gegn Ísr- ael, lyftir heldur ekki fingri til varnar gyðingum. Þvert á móti skellir hann sök- inni á því ógnarstríði á gyðingana sjálfa. Það er óneitanlega ekki laust við að manni finnist hann vera að taka undir með Louis Farrakhan, hinum ofstækisfulla foringja þel- dökkra múslima í Bandaríkjunum, er sagði í ræðu fyrir nokkrum ár- um: „Menn eru að býsnast yfir því hvað Hitler gerði gyðingum, en menn spyrja ekki hvað gyðingar gerðu Hitler!“ Réttlæting ógnarverka Hreiðar Þór Sæmundsson fjallar um hryðjuverk og ástæður þeirra Hreiðar Þór Sæmundsson ’… Palestínaer gyðingaland, land gyðinga, og hefur svo verið um þús- undir ára.‘ Höfundur er kaupmaður í Reykjavík. PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í dag og á morgun er eitt hið mikilvægasta sem lengi hef- ur verið haldið. Líkur eru á að með sterkum lista takist Sjálfstæð- isflokknum að vinna sigur í næstu borg- arstjórnarkosningum. Það eru ótal tækifæri til að gera betur í Reykjavík og með sigri Sjálfstæðis- flokksins næsta vor verður loks hægt að nýta þau. Grasrótin velur lista Prófkjörið snýst um val og frelsi, sjálfstæðisfólk í Reykjavík velur þá frambjóðendur sem það telur líklegasta til að ná sem mestum árangri í kosningum. Þetta er lýðræði í sinni tærustu mynd. Grasrótin, þverskurður þjóð- félagsins, velur frambjóðendur eftir eigin sannfæringu. Sjálfstæðis- flokknum hefur oftast farnast best í kosningum eftir að hafa valið lista í prófkjöri. Í þeim hefur verið valinn sterkur listi hæfra frambjóðenda með fjölbreytta reynslu og víða skírskotun. Það hefur sýnt sig að slíkur listi er líklegur til sigurs. Tækifæri til breytinga Engum dylst að ekki hefur verið haldið nógu vel utan um málefni borgarinnar síðustu ár. Það er hins vegar svo að Reykjavík er sér- stök borg, í henni býr kraftur sem þarf að virkja og til þess þarf dug og áræðni. Það ber að stefna hátt enda er Reykjavík höfuðborg landsins. Það þarf að endurheimta forystu- hlutverk Reykjavíkur og gera hana leiðandi á öllum sviðum. Það á að tryggja nóg af lóðum og innleiða skapandi hugsun í skipulagsmálum. Það á að tryggja öldruðum og þeim sem á þurfa að halda öruggt skjól jafnframt því sem fólk á að hafa frelsi til að ákvarða um eigin mál. Í Reykjavík eiga að vera bestu skólar sem völ er á og rúm fyrir fjölbreyti- leika. Lifandi menning á að blómstra í Reykjavík og blómleg listsköpun að bera hróður borg- arinnar sem víðast. Einkarekstur er almennt farsælli en opinber rekstur og það á að nýta drifkraft einkafyr- irtækja til þess að annast þjón- ustuþætti borgarinnar. Tökum þátt og höfum áhrif Það er mikilvægt að sjálfstæð- isfólk fjölmenni og sýni styrk sinn í prófkjörinu. Þannig gefum við tón- inn fyrir komandi kosningavetur. Fjölmennum og stillum upp sig- urstranglegum lista frambjóðenda með fjölbreytta reynslu því nú blasa við ótal tækifæri og nýtt upphaf til að búa til betri borg. Prófkjör Sjálfstæðis- flokksins snýst um val, frelsi og tækifæri Eftir Júlíus Vífil Ingvarsson ’Fjölmennum og still-um upp sigurstrangleg- um lista frambjóðenda með fjölbreytta reynslu því nú blasa við ótal tækifæri og nýtt upphaf til að búa til betri borg.‘ Júlíus Vífill Ingvarsson Höfundur er lögfræðingur og býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík Í ÁR var endurvakin gömul hefð og Íslandsglíman haldin á sviði Borgarleikhússins. Áhorfendur höfðu góða yfirsýn yfir völlinn en keppendum reyndist gólfið stamt og ekki til þess fallið að gera glímuna liprari. Umfjöllun dagblaða um Ís- landsglímuna var fram úr hófi lít- ilfjörleg og að Morg- unblaðinu fráskildu eyddu þau ekki einum dálksentimetra í að segja frá henni. Svo ekki sé talað um gagn- rýni á glímulag manna, gott eða slæmt eftir atvikum eða önnur þau atriði sem máli skipta í þróun þjóðaríþrótt- arinnar. Því langar mig að biðja Morg- unblaðið fyrir þessa hugleiðingu. Þá fyrst úrslit mótsins: 1. Pétur Eyþórsson KR 6,5 vinn. 2. Ólafur Sigurðsson HSK 6 3. Stefán Geirsson HSK 5 4. Arngeir Friðriksson HSÞ 4 5. Jón B. Valsson KR 3,5 6.–7. Snær S. Þóroddsson UÍA 1,5 6.–7. Pétur Þ. Gunnarsson HSÞ 1,5 8. Jón Smári Eyþórsson HSÞ 0 Hér áttust við átta vaskir menn og allir gátu sigrað alla en hér fór sem fyrrum að reynslan var þung á metunum. Ungu mennirnir þrír sem voru neðstir að vinningum, Snær, Pétur og Jón Smári glímdu allir vasklega og meira af kappi en forsjá. Jón Smári sló í gegn sl. vetur þegar hann sigraði í öflugum flokki á Meistaramótinu og hefur eflaust ætlað sér stærri hlut en verma botnsætið. Allir þessir menn eru efnilegir og mín spá er sú að þeir muni feta í fótspor margra fyrri kappa sem byrjuðu neðarlega en enduðu á toppnum. Jón Birgir Valsson, formaður Glímusambandsins, klæddi sig úr jakkafötunum eftir mótssetningu og fór í glímugallann eftir sex ára hlé á keppni í Íslandsglímu. Jón hefur elst og þyngst síðan en glímdi þó betur en hann gerði þá. Nú beitti hann mest lágbrögðum í stað þess að sækja sama hábragðið allt mótið í gegn. Jón er ekki auðlagður og átti langar viðureignir við Arngeir og Stefán. Hinn lágvaxni og stælti Arngeir beitti risana hábrögðum og allir báru þeir verðskuldaða virðingu fyrir sóknhörku hans og reynslu. Sigra sína þrjá vann hann á þrenns konar brögðum en gerði tvö jafnglími. Glíma hans við nem- anda sinn, Pétur Gunn- arsson, var frískleg, sókndjörf og báðum til sóma. Þar sáust glæsi- leg sókn og vörn á báða bóga. Stefán Geirsson glímdi af sókndirfsku gegn flestum keppi- nautum sínum og upp- skar sigra með góðum hábrögðum. Lausa- mjöðm hans sem lagði Snæ að velli var glæsibragð. Stefán var einn af þremur sem líklegastir þóttu til að hreppa Grettisbeltið. Hinir voru Ólafur og Pétur Eyþórs- son. Glíma Stefáns við Ólaf var jöfn og lauk með sigri Ólafs á lausa- mjöðm, bragð sem hann sýnir sjald- an. Stefán var heillum horfinn er hann átti við Pétur Eyþórsson. Í stað sóknar fór hann í vörn sem Pétur nýtti sér og laumaði hælkrók hægri á vinstri á Stefán sem var of seinn að vinda sig úr bragðinu. Fag- mannlega gert hjá Pétri. Ólafur kom á óvart með því að beita hábrögðum meira en oftast áð- ur. Ólafur er yfirleitt fremur stífur í framgöngu á glímuvelli, bíður færis en gerir svo snarpar atlögur. Hann lagði Arngeir með geysilegum hæl- krók fyrir báða fætur að hætti Sig- urðar Greipssonar en lét fallast nið- ur á hönd áður en Arngeir féll og hefði ekki átt að fá dæmdan vinning fyrir það bragð. Þar gerðu dómarar mistök. Helsti löstur Ólafs, jafnvæg- isleysið eftir sóknarbragð, var þó minna áberandi en oftast áður. Pétur Eyþórsson átti glímu- kóngstitil að verja og það var auð- séð að ekki stóð til að láta hann af hendi. Pétur er svífandi fimur og léttur á fæti og hefur greinilega skoðað andstæðingana vel því hann beitti mismunandi brögðum eftir því hvern hann átti við en það er eitt af aðalsmerkjum góðra glímumanna. Snæ og nafna sinn lagði hann á hægri fótar klofbragði, Jón Birgi á vinstra leggjarbragði, Jón Smára og Stefán á hælkrók og gerði jafnglími við Arngeir. Síðasta glíma mótsins var hrein úrslitaglíma Péturs og Ólafs. Báðir biðu færis og fóru sér hægt. Ólaf brast þolinmæðin og lagði til atlögu með snarpan hæl- krók utanfótar vinstri, eitt af sínum skæðustu brögðum. Pétur var viðbúinn, tók bragðið af Ólafi og lagði hann á hælkrók hægri á vinstri hreinni byltu. Þetta gerði Pétur listavel og var vel að sigrinum kominn að allra dómi, einnig Ólafs. Glíman er einstök íþrótt að því leyti að það er ekki endilega það sama að vera sterkur glímumaður og góður glímumaður. Til hafa verið glímumenn sem ekki skeyta um hvernig þeir ná sigri bara ef þeir ná honum og mistækir dómarar hafa verið þeirra helstu bandamenn. Svo eru glímumenn sem hafa áttað sig á að glíman er listgrein sé hún rétt stunduð og glíma þannig. Þarna er lína sem mörgum veitist erfitt að fóta sig á. Núverandi glímukóngur er einn af þeim sem hefur tekist það vel. Á næsta ári verður Íslandsglíman hundrað ára. Vonandi verður um- fjöllun fjölmiðla þá vegleg og í réttu hlutfalli við þann mikla menningar- arf sem glíman er. Þá standa vonir til að hægt verði að gefa út bókina Þróun glímu í íslensku þjóðlífi sem Þorsteinn heitinn Einarsson íþróttafulltrúi vann að í fjóra ára- tugi og er nú á lokastigi. Íslandsglíman í 99 ár Jón M. Ívarsson fjallar um íslenska glímu ’Glíman er einstökíþrótt að því leyti að það er ekki endilega það sama að vera sterkur glímumaður og góður glímumaður.‘ Jón M. Ívarsson Höfundur er glímudómari og fyrrverandi formaður Glímusambands Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.