Morgunblaðið - 04.11.2005, Síða 36

Morgunblaðið - 04.11.2005, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. LIFANDI UNGLIST Unglist nefnist listahátíð, sem hefst ídag og stendur út næstu viku. Ung- list hefur verið haldin árlega frá árinu 1992 að frumkvæði Hins hússins. Dag- skrá þessarar hátíðar er fjölbreytt og verður hægt að njóta afraksturs hennar víða um Reykjavík. Haldið verður mynd- listarmaraþon, sýndur fjölþjóðlegur leik- húsgjörningur og boðið upp á útlán á manneskjum úr Lifandi bókasafni. Það er mikilvægt að virkja ungt fólk og gefa því kost á að gefa sköpunarkraftin- um lausan tauminn. Viðburðir á borð við Unglist efla frumkvæði og sjálfstraust og enginn vafi á því að það afraksturinn af þeim skilar sér síðar á lífsleiðinni hjá þeim krökkum, sem þátt taka. Umræða um unglinga vill oft einskorðast við vandamál, sem eiga ekki við um nema fáa einstaklinga. Í starfi Hins hússins er hins vegar lögð áhersla á að draga fram það já- kvæða og er sennilega mikilvægast að starf þess fer fram á jafningjagrundvelli þar sem allir njóta virðingar. „ÉG GEF kost á mér í annað sæti listans og vona að þar með verði forystan og fram- boðslistinn sigurstranglegri,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem sækist eftir öðru sætinu á lista Sjálfstæð- isflokks í borgarstjórn- arkosningunum. „Ég vonast til þess að fólk meti mig af mínum verkum á liðnu kjör- tímabili. Mig langar að breyta áherslum hér í Reykjavík þannig að við getum búið til heimsins bestu höfuðborg, og ég tel að við getum gert það með því að leggja áherslu á aukið val, lægri skatta og framúrskarandi lífs- gæði,“ segir Hanna Birna. Hún segir það stærsta verkefni sveitarfé- laganna að auka val á öllum sviðum, t.d. á þjónustu fyrir börn. Borgin eigi ekki að gera upp á milli þess hvort foreldrar kjósi dagforeldra, einkarekna leikskóla eða al- menna leikskóla, né hvort þeir velji grunn- skóla í sínu hverfi, öðru hverfi eða einka- rekinn grunnskóla, greiðslur borgarinnar eigi að vera þær sömu sama hvað er valið. Að sama skapi segir Hanna Birna að borgin stýri of mikið þeim kostum sem íbú- ar hafi varðandi samgöngur og skipulag. Fólkið verði að fá að velja, og velji það einkabílinn þurfi samgöngumannvirkin að taka mið af því. Sama gildi um húsnæði, fólk verði að geta valið ólíkt húsnæði í sam- ræmi við eigin óskir og þarfir. Einnig þurfi að auka val eldri borgara og gefa þeim kost á að velja sér stuðning og þjónustu við hæfi. Flugvöllur í eða við borgina Hanna Birna segir að hugmyndir sjálfstæð- ismanna um eyjabyggð og byggð á landfyll- ingum geti farið vel saman við uppbyggingu í Vatnsmýrinni, eitt útiloki ekki annað, þó uppbygging í Vatnsmýrinni geti haft áhrif á hversu hratt eyjabyggðin muni byggjast upp. Flugvellinum segist hún vilja halda í Reykjavík eða nágrenni, en í því sambandi sé Vatnsmýrin ekki eini kosturinn og skoða beri vandlega alla kosti sem til greina koma. Kostnaður Hönnu Birnu vegna framboðs- ins verður um eða yfir 3 milljónir króna, en endanleg tala liggur ekki fyrir. Baráttan sé einkum fjármögnuð með stuðningi ein- staklinga og fyrirtækja. Hún segir fram- boðið ekki hafa tekið afstöðu til þess hvort uppgjörið verði gert opinbert. Hanna Birna Kristjánsdóttir „Ég vil val á öllum sviðum“ Hanna Birna Kristjánsdóttir „REK fjölbre á fram samke anfari sem h tímab Rey ystuhl sem d ir land borga sveita borgin „Ég þeirri sanng Júl „B Júlíus V Ingvar VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn, og Gísli Marteinn Baldursson varaborgarfulltrúi hafa háð harða baráttu um efsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórn- arkosningarnar næsta vor, og hefur lítill munur mælst á fylgi sjálfstæðismanna við þá. Því gæti smölun fram- bjóðenda ráðið úrslitum í prófkjörinu. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor og deildarforseti við Háskóla Íslands, segir að til að fá niðurstöður úr könn- unum sem gefi hvað besta vísbendingu um hvor fram- bjóðendanna verði ofan á þurfi að skoða skoðanir þeirra sem styðja flokkinn, og helst þeirra sem telja líklegt að þeir muni taka þátt í prófkjörinu. Á þessu tvennu hafi þó mælst lítill munur þegar það hafi verið kannað sérstaklega. Vilhjálmur hefur frá upphafi mælst með meira fylgi í skoðanakönnunum þar sem allir eru spurðir, en þeg- ar fylgismenn Sjálfstæðisflokks eru teknir út úr var Gísli Marteinn með 52% fylgi í könnun IMG Gallup um miðjan september en Vilhjálmur með 48%. Síðan hef- ur þó staðan snúist við, og í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir Vilhjálm og birtar voru á mið- vikudag mældist Vilhjálmur með 52% fylgi en Gísli Marteinn með 48%. Þetta bendir til þess að Vilhjálmur sé með heldur betri stöðu í dag, en vegna lítils munar á frambjóðend- unum tveimur meðal sjálfstæðismanna segir Ólafur að miklu skipti fyrir úrslit prófkjörsins hversu vel fram- bjóðendum takist að fá sína stuðningsmenn á kjörstað, eða smala. Því stefnir í harðan slag fram á síðustu stundu hjá frambjóðendum. Fylgi flokksins á uppleið Fylgi Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í Reykjavík mælist hátt í síðustu könnunum, og hefur farið hækkandi undanfarið. Ekki er þó víst að flokkurinn muni njóta alls þessa aukna fylgis í kosn- ingum, enda reynslan frekar verið á þann veg að flokk- urinn mælist með hærra fylgi fyrir kosningar en raun- in verður við kjörborðið. Í kosningunum árið 2002 fékk listi Sjálfstæðisflokks um 40% greiddra atkvæða, og sex borgarfulltrúa, sem voru verstu úrslit flokksins úr borgarstjórnarkosn- ingum frá upphafi. Í könnunum sem IMG Gallup hefur gert undanfarið hefur leiðin hins vegar legið upp á við. Flokkurinn mældist með 48% fylgi í júlí í Þjóðarpúlsi Gallup, 56% í september og var svo kominn í 57% fylgi í lok október. Miðað við nýjustu tölur myndi því Sjálfstæðis- flokkur ná meirihluta í borgarstjórn í næstu kosn- ingum, og bæta við sig þremur borgarfulltrúum o vera með níu samtals. Ólafur setur þó ákveðinn fyrirvara við þessar n urstöður Gallup, og bendir á niðurstöður könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunbla lok ágúst þar sem flokkurinn var með 47,7% atkv og átta borgarfulltrúa. Of snemmt að draga ályktanir Hann segir að munurinn á niðurstöðum þessara k ana geti m.a. komið til vegna þess hvernig er spur könnun Gallup var spurt hvaða flokk viðkomandi myndi kjósa, og ef ekki fékkst svar var spurt aftu hvaða flokk væri líklegt að viðkomandi myndi kjó könnun Félagsvísindastofnunar hafi hins vegar v bætt við spurningunni hvort líklegra væri að viðk andi myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða aðra flo Ólafur segir þá spurningu yfirleitt skila sér í minn fylgi við Sjálfstæðisflokkinn þar sem margir vær ákveðnir í að kjósa ekki þann flokk, en væru ekki að gera upp hug sinn milli annarra flokka. „Það er allt of snemmt að draga miklar ályktan niðurstöður kosninga út frá þessu. Þetta er að vís mjög fín staða fyrir Sjálfstæðisflokkinn í augnabl Hins vegar hefur hann oft áður mælst töluvert há ir kosningar en farið niður í kosningunum,“ segir ur. „En þetta eru mjög fínar tölur fyrir Sjálfstæð isflokkinn, það er engin ástæða til að draga úr þv Ólafur segir nokkrar mögulegar skýringar á g gengi flokksins í könnunum. Sjálfstæðismennirni sjálfir segi að sjálfsögðu að þarna sé góð vinna þe að skila sér, en annað komi einnig til. Óvissa og ta verð upplausn hafi verið hjá flokkum Reykjavíku ans, og eftir að sjá hvort þeir nái vopnum sínum f kosningar eða ekki. Einnig hafi mikil umfjöllun u prófkjör Sjálfstæðisflokksins einhver áhrif. Geta fengið meirihluta með undir 50% fylgi Sjálfstæðismenn gætu náð meirihluta í borginni þ fylgi þeirra færi undir 50%, og munar þar um að f arnir sem mynda Reykjavíkurlistann í dag bjóða sitt í hvoru lagi í kosningunum nú, og því nýtast a kvæði þeirra þeim ekki jafn vel og ella. Ef fimm f ar bjóða fram gætu sjálfstæðismenn því fengið al ur í 42,5% og samt fengið átta borgarfulltrúa af fimmtán, þó sú staða sé afar ólíkleg. Ekki er þó ó legt að 47–48% fylgi myndi skila átta borgarfulltr og þar með meirihluta, segir Ólafur. Smölun gæti ráðið úrslitum milli Gísla og Vilhjálms /'.   ) 0$( ,  1. ) #  , 1   ( 1  233    (%**+ > $%  ? > $%   9 3 & / *    1) %**+ )  &    &*     )  &      5%  +   > $%  ? > $%   9 3 & / *  011) %**+ > $%  ? > $%   9 3 & / *              UPPSÖGN KJARASAMNINGA? Það er auðvitað ekkert vit í uppsögnkjarasamninga um þessar mund-ir. Forystumenn ASÍ hafa gefið til kynna, að þeim sé alvara með að kjarasamningum verði sagt upp, ef ekki næst samkomulag á milli aðila vinnu- markaðarins um frávik frá forsendum samninganna. Lífskjör á Íslandi eru góð. Kaupmátt- ur hefur sennilega aldrei verið meiri. Langflestir Íslendingar geta með sanni sagt, að þeir hafi aldrei haft það betra. Efnahagskerfið er spennt til hins ýtr- asta. Atvinnulífið gengur ekki nema með verulegum innflutningi vinnuafls. Við eigum ekki að rugga þessum bát með uppsögn kjarasamninga. Hins vegar er ástæða til að staldra við vissa þætti á vinnumarkaðnum og í allri þeirri velmegun, sem hér ríkir. Deilur um það hvort staðið sé við kjarasamn- inga við erlent verkafólk eru okkur Ís- lendingum til skammar. Framkoma við þetta fólk er á stundum okkur til skammar. Hvernig stendur á því, að svo- kallaðar starfsmannaleigur afhenda starfsfólki sínu launaseðla ekki refja- laust? Hvernig stendur á því að það er stöðugt stríð á milli verkalýðsfélaga og þessa nýja fyrirbæris, starfsmanna- leigna. Forráðamenn starfsmannaleign- anna verða að gæta að sér. Halda ein- hverjir þeirra, sem við sögu koma í þessum deilum, að við séum komin hundrað ár aftur í tímann í framkomu við verkafólk? Það er mikill misskilning- ur að halda að svo sé. Verkalýðsfélögin á Íslandi eiga þakkir skildar fyrir að hafa tekið jafnfast á þessum málum og þau hafa gert. Erlent vinnuafl á að njóta allra sömu réttinda hér og innlent vinnu- afl. Íslendingar eiga ekki að koma fram við erlent verkafólk eins og það sé ein- hvers konar annars flokks fólk. Stjórn- völd þurfa að taka fast í taumana og koma í veg fyrir að þeir sem ráða þetta erlenda fólk hingað til starfa sýni því ekki fulla virðingu. Annað er okkur ekki sæmandi sem þjóð. Það búa ekki allir Íslendingar við beztu kjör. Og hið alvarlega er, að þeir sem búa við bágan hag eru orðnir svo lít- ill hluti þjóðarinnar að það liggur við að þeir eigi sér engan málsvara. Þeir sem hafa dregizt aftur úr öðrum í lífskjörum eru gamalt fólk og öryrkjar. Það á að vera forgangsverkefni að bæta hag þessa fólks. Auðvitað hlýtur Alþýðusamband Íslands að halda bæði vinnuveitendum og ríkisstjórn við gerða kjarasamninga en eigi að taka upp baráttu fyrir bættum hag einhverra þjóðfélagshópa eru það þeir, sem hér hafa verið nefndir. Í eina tíð voru það verkalýðsfélög og vinstri sinnaðir stjórnmálamenn, sem héldu þeirri baráttu uppi. Það fer lítið fyrir því nú orðið á vinstri kanti stjórnmálanna og þessi barátta er ekki áberandi í starfi verkalýðssamtakanna. En auðvitað á ekki að líta svo á að það sé sérstakt hlutverk vinstri flokkanna að standa vörð um hag aldraðra og öryrkja. Auðvitað eiga núverandi stjórnarflokkar að sinna því hlutverki umfram aðra vegna þess, að þeir fara með völdin í landinu í umboði þjóðarinnar. Það er mikil óánægja meðal eldra fólks og sömuleiðis í hópi öryrkja. Það eru tæp tvö ár til alþingiskosninga. Ein af ástæðunum fyrir því að Viðreisnar- flokkarnir töpuðu þingmeirihluta sínum sumarið 1971 var íhaldssemi í sambandi við almannatryggingar. Reynsla þáver- andi stjórnarflokka ætti að vera núver- andi stjórnarflokkum nokkurt umhugs- unarefni. TÆKIFÆRI TIL UPPBYGGINGAR Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðfyrir fólk, sem greinst hefur með krabbamein, og aðstandendur þess hef- ur verið opnuð í gamla safnaðarheimili Neskirkju. Miðstöðin ber nafnið Ljósið og veitir þjónustu, sem fyrir er á sjúkra- húsunum, en þau anna vart. Að henni standa fagfólk, einstaklingar, sem hafa greinst með krabbamein, og aðstand- endur þeirra. Erna Magnúsdóttir iðju- þjálfi, sem vinnur við Ljósið í sjálfboða- vinnu, sagði í samtali í Morgunblaðinu í gær að mikil þörf væri fyrir svona starf- semi: „Margir vilja fá að komast út í þjóðfélagið og fá sína endurhæfingu þar, eftir að hafa gengið í gegnum lyfja- og eða geislameðferðir á sjúkrahúsum.“ Hún lýsir starfsemi miðstöðvarinnar sem „sál-félagslegum stuðningi“ þar sem saman fari hugur og hönd: „Það verður mikil breyting í lífi margra við veikindin, sumir hafa ekkert við að vera. Margir missa allt frumkvæði og sjálfs- traustið vill einnig dala. Þá er gott að eiga athvarf þar sem fólk fær tækifæri til að byggja sig upp í gegnum heilsuefl- andi verkefni, hlýtt faðmlag og kaffi- sopa.“ Greining krabbameins er mikið áfall og sjúklingurinn getur þurft mikið þrek til að komast í gegnum erfiða krabba- meinsmeðferð og þurft á öllum þeim stuðningi að halda, sem hann getur feng- ið. Ljósið er réttnefni á miðstöðina, sem nú hefur verið opnuð í gamla safnaðar- heimili Neskirkju. Starfsemi hennar verður margþætt og mun hjálpa fólki, sem greinst hefur með krabbamein, á ýmsum sviðum. Starf af þessu tagi er ómetanlegt. Í fréttinni í gær segir að nú sé unnið að því að stofna styrktarfélag Ljóssins til að styðja rekstur stöðvar- innar og veitir Margrét Frímannsdóttir alþingismaður því forustu. Það er von- andi að Ljósið fái sem víðtækastan stuðning.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.