Morgunblaðið - 04.11.2005, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Páll Þorvarðs-son fæddist á
Dalshöfða í Fljóts-
hverfi í V-Skafta-
fellssýslu 16. maí
1918. Hann lést á
Garðvangi í Garði
miðvikudaginn 26.
október síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Pálína Stef-
ánsdóttir, frá
Hörgslandi á Síðu,
f. 6. október 1887,
d. 12. febrúar 1984,
og Þorvarður
Kristófersson frá Breiðabólsstað
á Síðu, f. 17. janúar 1881, d. 18.
mars 1958. Systkini Páls voru
Stefán, f. 1911, d. 1991, maki
Ragna Skúladóttir, d. 1999, Jak-
ob Kristinn, f. 1913, d. 1995,
maki, Þórey Magnúsdóttir, d.
1995, Rannveig
Kristjana, f. 1916,
maki Haukur Hall-
dórsson, Ragnhild-
ur, f. 1923, Krist-
ófer, f. 1926, d.
1993, kona Sigrún
Halla Eiríksdóttir,
s. kona Sigrún Sig-
urðardóttir.
Páll ólst upp á
Dalshöfða og tók
þar við búi af for-
eldrum sínum. Páll
bjó alla tíð með
systur sinni Ragn-
hildi. Þau bjuggu og störfuðu á
Dalshöfða til ársins 1989 að þau
fluttu til Njarðvíkur og bjó Páll
þar til dauðadags.
Útför Páls verður gerð frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Elsku Palli minn, nú eftir erfiðan
tíma hefur þú öðlast hvíld. Þegar ég
sat hjá þér þessu síðustu daga gat ég
notað tímann til að minnast hinna
mörgu yndislegu stunda sem þú gafst
mér frá unga aldri og fram til dagsins
í dag, allt frá því sem ég man eftir
mér hefur þú haft mikil áhrif á líf
mitt.
Ég fór að koma í heimsókn til þín
og frænku sem lítið barn með
mömmu og pabba og fór síðan að vera
hjá ykkur á sumrin, sem ég og gerði
fram yfir 17 ára aldur. Í þessi ár lærði
ég að með æðruleysi og iðjusemi er
ekkert sem ekki er hægt að yfirstíga,
þessi dýrmæta reynsla hefur komið
mér í gegnum margt og mun án efa
hjálpa mér í framtíðinni, Palli, þú átt
stóran þátt í því að gera mig að þeim
manni sem ég er í dag.
Einnig má ekki gleyma hversu
mikið af góðmennsku og gleði þú
gafst af þér. Þú hafðir alltaf einhverja
góða sögu að segja, skemmtilega vísu
að syngja eða annað, til dæmis léttur
hlátur þinn sem létti lund allra er
voru nálægt þér. Ég á svo margar
góðar minningar úr sveitinni með þér
að of langt væri að telja þær upp. Enn
ég verð líka að minnast þeirra ára síð-
an þú fluttir til Njarðvíkur eftir að þú
hættir búskap. Að koma í heimsókn
til þín og frænku var alltaf svo gef-
andi, það var eins og að fá frí frá hrað-
anum í þjóðfélaginu. Að setjast hjá
þér inni í stofu var eins og að vera
kominn aftur upp í sveit, þú sást alltaf
gamansömu hlutina í lífinu og ég er
heppin að hafa kynnst sýn þinni á til-
veruna.
Síðan ég eignaðist fjölskyldu varst
þú alltaf svo indæll við þau, og allt frá
því að börnin voru kríli varstu svo
góður við þau. Börnin mín, eins og öll
börn sem kynntust þér, hændust að
þér. Hvernig þú talaðir við þau, og
náðir inn til þeirra allra, það var unun
að sjá blikið í augum þínum þegar við
komum með börnin, hvað þú hafðir
gaman af börnunum og leik þeirra.
Þau eiga eftir að sakna þín og ég er
svo ánægður að þau náðu að kynnast
þér, því það mun gera þau að betri
einstaklingum.
Elsku Palli minn, ég og fjölskylda
mín munum ávallt sakna þín, en einn-
ig vera þakklát fyrir að hafa fengið
tíma með þér. Þú munt ávallt eiga
stóran part af hjarta okkar og hug.
Nú kveðjum við þig og ég veit að við
hittumst aftur á þeim góða stað er þú
ert nú á.
Vér vitum, að þótt vor jarðneska tjaldbúð
verði rifin niður, þá höfum vér hús frá Guði,
eilíft hús á himnum, sem eigi er með hönd-
um gjört.
(Síðara Korintubréf 5:1.)
Haukur, Esther, Kristófer Hauk-
ur, Aníta Lóa og María Tinna.
Þegar ég sest hér niður og byrja að
skrifa nokkur orð til minningar um
hann Palla frænda þá koma óteljandi
minningar upp í hugann. Tíminn sem
ég átti í sveitinni hjá þér og Ragnhildi
er einhver sá dýrmætasti sem ég hef
átt. Ég var ekki nema nokkurra mán-
aða þegar ég kom fyrst á Dalshöfða
með foreldrum mínum. Tíu ára gam-
all var ég í fyrsta skipti eftir hjá ykk-
ur Ragnhildi ásamt Hauki bróður og
eftir það vildi ég helst hvergi annars
staðar vera. Nokkrum árum seinna
fór svo Magnús bróðir að koma líka
og vorum við þá allir bræðurnir hjá
ykkur yfir sumartímann.
Palli var einstakur maður. Hann
kom fram við alla með sinni hlýju og
virðingu. Sama má segja um fram-
komu hans gagnvart bæði skepnum
og landinu, allt byggðist á virðingu.
Ég gleymi aldrei því trausti sem þú
alltaf sýndir mér. Ég var ekki mjög
gamall þegar ég fór að keyra drátt-
arvélarnar og fljótlega var ég farinn
að vinna á þeim um öll tún. Eftir að þú
hafðir kennt mér á helstu öryggisat-
riði vélanna sagðirðu mér bara að ég
yrði að fara varlega og það þurftirðu
bara að segja mér einu sinni því þann-
ig varst þú, þú þurftir bara að segja
hlutina einu sinni og það dugði og enn
er ég að reyna að fara varlega í öllu
sem ég geri.
Ekki gekk nú alltaf allt eftir bók-
inni í sveitinni en það var sama hvort
það rigndi í þurran flekkinn eða að
einhver vélin bilaði, alltaf tókst þú
þessu á þinn einstaka rólega hátt. Ef
eitthvert tæki eða vél bilaði var það
lagað og ef það rigndi var bara hætt
að vinna í heyskap á meðan og hest-
arnir jafnvel sóttir og farið á útreiðar
eða tíminn notaður til að fara í kaup-
staðinn eins og við kölluðum það að
fara út að Klaustri.
Eftir að þú hættir búskap og fluttir
til Njarðvíkur vorum við hjónin oft öf-
unduð af vinum okkar því það var
sama hvað þurfti að gera heima við,
hvort það var að mála gluggana eða
að slá blettinn, alltaf varst þú kominn,
Palli, og byrjaður að hjálpa til og oft-
ar en ekki varst það þú sem kláraðir
verkið. Þannig var það með litla garð-
húsið sem ég byrjaði að smíða fyrir
börnin í baklóðinni og gekk ansi hægt
að klára en þú mættir og kláraðir það
og smíðaðir í það borð og stóla sem
börnin leika sér mikið með.
Að lokum vil ég þakka þér fyrir allt
sem þú gafst mér og minni fjölskyldu,
elsku Palli minn, þú varst mér svo
miklu meira en frændi og í huga
barna minni ert þú alltaf afi Palli.
Alexander Ragnarsson.
Elsku Palli, nú ert þú farinn frá
okkur, en við huggum okkur við það
að við vitum að þér líður betur núna.
En það sem þú skildir eftir hjá okkur
er svo dýrmætt að það eigum við öll
eftir að geyma í hjörtum okkar. Ég
gleymi aldrei fyrsta skiptinu sem ég
hitti þig. Þá kom ég til ykkar Ragn-
hildar á Dal, og við heilsuðumst með
handabandi og hendurnar þínar voru
sko ekkert venjulegar því þær voru
svo þykkar og kröftugar enda var
dugaðurinn og vinnusemin hjá þér al-
veg með eindæmum, ég er svo þakk-
lát fyrir að hafa fengið að kynnast
þér, fengið að kynnast sveitastörfun-
um, þú gast nú stundum hlegið að
borgarbarninu í mér. Man ég eftir
einu skipti þar sem ég þóttist nú geta
hjálpað til við að draga lambhrútana
úr fénu. Þá kom ég með einn og sagði:
„Hér kem ég með einn hrút.“ Þá
sagðir þú: „Ert þú viss um það?“ Ég
hélt það nú, ég sagðist hafa fundið
fyrir stykkinu undir honum þannig að
ég var nú alveg viss en það reyndist
nú vera veturgömul ær, en þessu
hafðir þú gaman af.
En elsku Palli minn, þú varst svo
góður maður og alveg sama þótt við
kæmum öll fjölskyldan til þín og
Ragnhildar á Holtsgötuna, sama þótt
við foreldrarnir værum að gefast upp
á hávaðanum í börnunum sagðir þú
alltaf að þetta væru engin læti, sagðir
bara að þetta væru lífleg börn.
Ég get haldið endalaust áfram að
rifja upp en, afi Palli, eins og börnin
kölluðu þig stundum, við erum með
mynd af þér uppi við og við munum
kveikja kertaljós og rifja upp allar
góðu minningarnar um þig.
Ég veit að þú verður ekki aðgerð-
arlaus þar sem þú ert núna, því það
var ekkert sem þú gast ekki gert, en
þú vildir aldrei gera mikið úr allri
hjálpinni sem þú veittir okkur, alltaf
fannst þér þetta vera svo lítið að þú
hefðir ekkert gert.
Og þegar við skírðum í höfuðið á
þér sagðir þú þegar verið var að óska
þér til hamingju með nafnann að
þetta gæti nú alveg eins verið í höf-
uðið á Páli postula.
Elsku Palli, takk fyrir alla hjálpina,
góðsemina og hlýjuna sem þú sýndir
okkur öllum. Við eigum öll stórt pláss
í hjörtum okkar fyrir þig.
Takk fyrir að sýna Óla Ragnari
Eygló og Veigari Páli svona mikla ást
og umhyggju, þau eiga eftir að minn-
ast þín um ókomna tíð.
Við munum hugsa áfram um Ragn-
hildi og heimsækja hana og ég veit þú
verður með okkur.
Guð geymi þig.
Bylgja.
Elsku frændi. Margs er að minnast
frá þeim góða tíma sem við áttum
saman í sveitinni á Dalshöfða, þú sem
bóndinn og ég sem sumarstrákur –
litli vinnumaðurinn. Dalshöfði, þar
sem að þú undir þér vel og áttir sann-
arlega myndarlegt bú ásamt Ragn-
hildi systur þinni eða frænku eins og
hún var ávallt kölluð. Ég var svo
heppinn að fá að kynnast ykkur og
búskapnum þegar ég sem ungur
drengur var „sendur í sveit“ eins og
stundum er sagt, en þeim sex sumr-
um sem ég fékk að vera hjá ykkur
mun ég búa að til æviloka. Það varst
þú sem kenndir mér að vinna og
hugsa um náungann eins og ég vil að
hugsað sé um mig sjálfan. Það var al-
veg ótrúlegt að fylgjast með þér, allt-
af hress og kátur, mjög ósérhlífinn,
mikill vinnuþjarkur, barngóður,
tryggur frændi, einstaklega þolin-
móður, lúmskur húmoristi, mikill bú-
maður, fróður frændi, vissir samt
ekki mikið um íþróttir en hélst samt
alltaf með! Svo voru það fréttirnar, ég
held að þú hafir hlustað á þær allar!
Ófáar stundirnar spjölluðum við
frændurnir um allt og ekkert, þú
sýndir mér alltaf virðingu og leyfðir
mér líka að ráða – stundum. Dals-
höfði var þitt heimili og þar var alltaf
gott að vera, allt svo fallegt, og virki-
lega vel hlúð að öllu, skepnum, gróðri,
húsnæði og jörðinni sjálfri. Það sem
ég mun ávallt minnast er það sjálf-
stæði sem þú stóðst fyrir – að gera
hlutina – og ekki bara gera, heldur að
það sem maður gerir maður vel.
Ég og fjölskylda mín vottum Ragn-
hildi frænku,Veigu og öðrum að-
standendum okkar dýpstu samúð.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Palli, það hefur gert mig að
betri manni að kynnast þér og vil ég
fyrir það þakka.
Kristinn Jakobsson.
Elsku Palli frændi minn. Nú ertu
búinn að fá hvíldina sem þú ert búinn
að bíða eftir síðustu vikurnar. Ég á
ekki til nógu stór orð til að þakka þér
fyrir allar stundirnar sem ég átti með
þér á stað sem okkur mörgum er svo
kær, á Dalshöfða. Það eru forréttindi
að hafa fengið að upplifa lífið í sveit-
inni og kynnast öllu sem því fylgir
undir svo frábærri leiðsögn sem við
fengum sem vorum þess heiðurs að-
njótandi að fá að dvelja hjá ykkur
frænku.
Að flytjast burtu frá Dalshöfða og
til Njarðvíkur var erfitt skref en það
er óhætt að segja að það verkefni
leystir þú af kostgæfni eins og öll
önnur. Það var frábært að sjá hvað þú
og frænka náðuð að gera margt á
þessum árum eftir að búskap lauk,
sem þú hefðir annars ekki náð að
gera ef ekki hefði komið til þeirrar
djörfu ákvörðunar að hætta búskap.
Ekki skemmdi fyrir að geta haft þig
nær sér þessi síðustu ár.
Það væri langur listi að telja allt
upp sem þú hefur kennt mér en virð-
ing fyrir umhverfinu og iðjusemi eru
þeir hlutir sem reynst hafa mér hvað
dýrmætastir. Ég kveð þig með sárum
söknuði, elsku Palli, en þú munt lifa
með mér áfram í hjarta mínu.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar sofna fer,
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Hinsta kveðja.
Magnús Friðjón Ragnarsson.
PÁLL
ÞORVARÐSSON
Þökkum ómetanlega vinsemd og hlýju vegna and-
láts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS ERLENDSSONAR,
Ketilsbraut 17,
Húsavík.
Guð blessi ykkur.
Helen Hannesdóttir,
Stefanía Ólafsdóttir, Bjarni Andrésson,
Hildigunnur Ólafsdóttir, Auðunn Þorsteinsson,
Elín Ólafsdóttir, Hjálmar Skarphéðinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð og vináttu vegna andláts og útfarar elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
HALLDÓRS JÓNSSONAR
frá Mannskaðahóli.
Þakkir sendum við starfsfólki Heilbrigðisstofnun-
arinnar Sauðárkróki.
Guð blessi ykkur öll.
Lilja Egilsdóttir,
Egill Hermannsson, Juthama Baopila,
Einar Halldórsson, María Jóhannsdóttir,
Jón Halldórsson, Erla Eyjólfsdóttir,
Sigríður Halldórsdóttir, Óskar Stefánsson,
Björn Gísli Halldórsson, Svandís Jónsdóttir,
Ingibjörg Sólveig Halldórsdóttir, Bjarni Þórisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÁRNI SIGHVATSSON,
Dyngjuvegi 17,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu-
daginn 31. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
10. nóvember kl. 13.00.
Guðrún Jónsdóttir,
Sighvatur Sævar Árnason, Þórhalla Arnljótsdóttir,
Ásta Árnadóttir, Gunnar Árni Ólason,
Kristín Árnadóttir, Hlynur Reimarsson,
afabörn og langafabarn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð, vinarhug og hlýju við andlát og útför
systur okkar,
INGVELDAR JÓNATANSDÓTTUR,
Laufvangi 8,
Hafnarfirði.
Sigríður Jónatansdóttir,
Ingibjörg Jónatansdóttir.
Elskuleg móðir mín,
SESSELJA BENEDIKTSDÓTTIR,
sem lést á heimili sínu, Dalbæ, fimmtudaginn 20. október, verður jarð-
sungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 5. nóvember kl. 13.30.
Ólafur Níelsson.