Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 55
Nauðungarsala
Tilboð/Útboð
Tilkynningar
Mosfellsbær
Breyting á svæðisskipu-
lagi höfuðborgarsvæðis-
ins vegna Leirvogstungu
í Mosfellsbæ
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á
fundi sínum þ. 2. nóvember sl. tillögu að
breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgar-
svæðisins vegna Leirvogstungu í Mos-
fellsbæ í samræmi við 2. mgr. 14. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Um er
að ræða minniháttar breytingu á skipulag-
inu.
Breytingin fellst í því, að landnotkun á landi
Leirvogstungu vestan Vesturlandsvegar,
sem er 52 ha, er breytt úr landbúnaðar-
svæði í svæði fyrir blandaða byggð. Jafn-
framt fjölgar íbúðum í Mosfellsbæ á skipu-
lagstímanum úr 3.300 í 3.700.
Sveitarstjórn bætir það tjón, sem einstakir
aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna.
Tillagan hefur verið send sveitarstjórnum,
sem aðild eiga að svæðisskipulagi höfuð-
borgarsvæðins.
Tillagan verður send Skipulagsstofnun, sem
gerir tillögu til umhverfisráðherra um lok-
aafgreiðslu.
Þeir, sem óska nánari upplýsinga um tillög-
una, geta snúið sér til tækni- og umhverfis-
sviðs Mosfellsbæjar.
Bæjarverkfræðingur.
Auglýsing
um starfsleyfistillögu fyrir
olíubirgðastöðvar Skeljungs hf.
Í samræmi við 6. gr. í 1. kafla laga nr. 7/1998
um hollustuhætti og mengunarvarnir, auglýsir
Umhverfisstofnun starfsleyfistillögu fyrir olíu-
birgðastöð Skeljungs hf. í Örfirisey. Tillagan
liggur frammi til kynningar á afgreiðslutíma
í Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík, á tímabil-
inu frá 4. nóvember til 30. desember 2005.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistil-
löguna skulu hafa borist Umhverfisstofnun
fyrir 30. desember 2005. Einnig má nálgast
starfsleyfistillöguna á heimasíðu Umhverfis-
stofnunar, http://www.ust.is .
Umhverfisstofnun,
Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík.
Auglýsing
um starfsleyfistillögu fyrir
kyndistöð Orkuveitu Reykjavíkur
Í samræmi við 6. gr. í 1. kafla laga nr. 7/1998
um hollustuhætti og mengunarvarnir, auglýsir
Umhverfisstofnun starfsleyfistillögu fyrir
kyndistöð Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1.
Tillagan liggur frammi til kynningar á afgreiðslu-
tíma í Ráðhúsi Reykjavíkur á tímabilinu frá
4. nóvember til 30. desember 2005.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillög-
una skulu hafa borist Umhverfisstofnun fyrir
30. desember 2005. Einnig má nálgast starfsleyf-
istillöguna á heimasíðu Umhverfisstofnunar,
http://www.ust.is .
Umhverfisstofnun,
Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík.
Auglýsing
um starfsleyfistillögu fyrir
olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf.
Í samræmi við 6. gr. í 1. kafla laga nr. 7/1998
um hollustuhætti og mengunarvarnir, auglýsir
Umhverfisstofnun starfsleyfistillögu fyrir olíu-
birgðastöð Olíudreifingar ehf. í Örfirisey.
Tillagan liggur frammi til kynningar á afgreiðslu-
tíma í Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík, á tíma-
bilinu frá 4. nóvember til 30. desember 2005.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillög-
una skulu hafa borist Umhverfisstofnun fyrir
30. desember 2005. Einnig má nálgast starfs-
leyfistillöguna á heimasíðu Umhverfisstofn-
unar, http://www.ust.is .
Umhverfisstofnun,
Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík.
Auglýsing um
skipulag í Kjósarhreppi
Með vísan til 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 og samþykktar sveitarstjórnar
Kjósarhrepps er hér með auglýst eftirfarandi
tillaga að deiliskipulagi í Kjósarhreppi.
Tillaga að deiliskipulagi að lóð undir veiðihús
við Laxá í Kjós í landi Valdastaða.
Lóðin undir veiðihúsið verði norðan við Laxá
og vestan við Ásgarð. Lóðin heiti Kampamýri
og verði rúmur 1,9 hektari á stærð. Aðkoma
frá Kjósarskarðsvegi (48) verði sameiginleg
með Ásgarði. Á lóðinni verði veiðihús á einni
hæð sem verður allt að 600 fermetrar að stærð.
Fyrir á fyrirhugaðri lóð eru tvö hús, aðgerðar-
hús og starfsmannahús.
Tillögurnar eru til sýnis á skrifstofu Kjósar-
hrepps, Félagsgarði, frá 7. nóv. til og með
5. des. 2005
Athugasemdum við ofangreindar tillögur skal
skila á skrifstofu Kjósarhrepps fyrir 19. des.
2005 og skulu þær vera skriflegar og undir-
ritaðar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests teljast vera samþykktir tillögunum.
Skipulags- og byggingafulltrúi
Kjósarhrepps,
Ólafur I. Halldórsson.
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í
Reykjavík.
Reitur 1.254 – Melar.
Tillaga að deiliskipulagi reits 1.254 Melar sem
afmarkast af Hofsvallagötu, Hagamel 42 til og
með 52 og Reynimel 57 til og með 68. Innan
reits eru einnig hús við Grenimel 39 til og með 49.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a að byggja megi við
Grenimel 46 og Reynimel 66 innan bygginga-
reits eða ný hús byggð innan byggingareits
verði gömlu húsin rifin, gæta skal vel að
samræmi og er mikilvægt að nýbyggingar falli
vel að umhverfinu og þeirri byggð sem fyrir er.
Á öðrum lóðum þar sem nýtingarhlutfall er
innan við 0,75 er heimilt að byggja litlar við-
byggingar í samræmi við byggingarstíl hús-
anna og loka svölum með gleri. Á lóðinni að
Hagamel 42 er ekki bílgeymsla og verður gert
ráð fyrir byggingareit fyrir bílgeymslu. Einnig
má byggja litlar geymslur á baklóðum allt að
5m2 og 2,50m á hæð. Um nánari útfærslur er
vísað til greinargerðar og lýsingar á uppdrætti.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 4. nóvember til og með 16.
desember 2005. Einnig má sjá tillöguna á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til
að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við tillöguna skal skila skrif-
lega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipu-
lags- og byggingarsviðs (merkt skipulags-
fulltrúa) eigi síðar en 16. desember 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 4. nóvember 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Raðauglýsingar 569 1100
allt í matinn á einum stað
www.netto.is • Verð birt með fyrirvara um prentvillur
Tilboðin gildameðan birgðir endast
Akranes • Akureyri • Grindavík • Mjódd Reykjavík • Salahverfi Kópavogi
afgreiðslustörf
Nettó í Mjódd óskar eftir að ráða
starfsfólk í 100% afgreiðslustörf.
Leitað er að samviskusömum einstaklingum
sem eru fljótir að læra og kurteisir í viðmóti.
Verslunin er opin alla virka daga
frá kl. 10 - 19.
Allan nánari upplýsingar gefur verslunarstjóri
á staðnum, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík
Starfsfólk óskast
Nettó er reyklaus vinnustaður
Atvinnuauglýsingar
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hafnar-
braut 25, Hólmavík, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Hafnarhólmur 2, Kaldrananeshreppi. þingl. eig. Gunnar I. Ingimund-
arson, eftir kröfu Húsasmiðjunar hf., föstudaginn 9. nóvember 2005
kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
2. nóvember 2005.
Áslaug Þórarinsdóttir, sýslumaður.