Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 63
MENNING
Ítarlegri leit | Panta auglýsingu | Vinsælustu leitirnar | Spurt og svarað
Ný íslensk leitarvél
Á mbl.is hefur verið opnaður nýr íslenskur leitarvefur sem markar tímamót í sögu gagnasöfnunar á Íslandi. Vefurinn, sem ber
nafnið Embla, er umfangsmesta íslenska leitarvélin og jafnast í leitargetu á við það sem best þekkist hjá erlendum leitarvélum.
Embla kann skil á beygingum íslenskra orða. Sé slegið inn orðið „hestur“ skilar hún einnig niðurstöðum úr texta sem inniheldur
beygingarmyndirnar „hest“, „hesti“ og „hests“. Embla leiðréttir einnig innsláttarvillur í íslenskum orðum sem slegin eru inn
þegar leit er framkvæmd og býður upp á ítarlegri leit til að ná fram enn betri niðurstöðum.
Emblaðu á nýju íslensku leitarvélinni á mbl.is.
H
ví
ta
h
ús
ið
S
ÍA
/
45
52
AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir
hefur opnað sýningu á verkum sín-
um á Café Karólínu á Akureyri. Á
sýningunni eru splunkuný verk, lág-
myndir úr tré.
Aðalheiður segir um verkin sín:
„Frá upphafi ferils míns hef ég leit-
ast við að endurgera eftirminnileg
augnablik úr eigin lífi, persónur eða
bæjarbrag. Sett upp mynd af sam-
félagi manna og dýra í tilraun til að
minna okkur á hvaðan við komum og
hver við erum. Einskonar brú milli
veruleika og ímyndunar í samfélagi
sem er of upptekið til að staldra við
og njóta.
Þannig varð til ættbálkur blökku-
fólks sem allt bar liti íslenska fán-
ans. Flokkur manna sem allir versl-
uðu í sömu herrafataverslun í
Reykjavík, og annarskonar flokkur
álfta sem höfðu aðsetur í tjarnar-
hólmanum á Vetrarhátíð.
Hrafnar sem námu land í Amster-
dam og ferðafélagarnir Ísbjörn,
Hreindýr og Sauður fóru til Lapp-
lands með viðkomu í Reykjavík.
Siglfirðingar sem slógu hring um
torgið og fluttu það til Seyðisfjarðar,
síðan aftur heim og þá á bryggjuna í
Bátahúsinu við Síldarminjasafnið.
Kettir reigðu sig og teygðu á Safna-
safninu eitt sumar en viku fyrir
dvergunum sem áðu þar á sérsmíð-
uðum palli. Gestir kaffis Karólínu
horfðust í augu við sjálfa gesti kaffis
Karólínu og listamenn Listasumars
9́5 gengu framhjá sjálfum sér í
Glugganum í göngugötunni þar sem
brúðarfylkingin stormaði í rigningu
á vinnustofuna til móts við stöllur
sínar. Í BOXI horfði lítil stúlka á sig
fullorðna dansa og fullorðin dansaði
ég við sýningargesti á afmælisdag-
inn minn. Mér finnst gaman að eiga
afmæli og hélt veglega upp á það
fertugasta með 40 sýningum víða um
heim. Ein opnun á dag í 40 daga, allt
ólíkar sýningar sem á einn eða ann-
an hátt tengdust daglegu lífi við-
komandi staðar.“ Aðalheiður S. Ey-
steinsdóttir fæddist á Siglufirði 23.
júní 1963 og bjó þar til 1986, er hún
fluttist til Akureyrar. Hún stundaði
nám við Myndlistaskólann á Akur-
eyri 1989-93 og hefur síðan unnið
ýmis störf á sviði myndlistar ásamt
því að vera athafnasamur mynd-
listamaður.
Árið 2000 hóf Aðalheiður þátttöku
í Dieter Roth akademíunni og mun
halda þeirri samvinnu áfram.
Sýningunni lýkur 2. desember.
Timburkonur og timburmenn
Morgunblaðið/Kristján
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir við eitt þeirra verka sem hún sýnir á Café Karólínu, á vinnustofu sinni í Freyjulundi.
Myndlist | Aðalheiður Eysteinsdóttir sýnir á Café Karólínu
Á TÓNLISTARDÖGUM Dómkirkj-
unnar árið 1985 var orgel Dómkirkj-
unnar vígt við hátíðleg athöfn og á
því 20 ára afmæli um þessar mundir.
Í því tilefni munu orgelleikarar
fagna 20 ára afmæli orgelsins með
sérstökum afmælistónleikum sunnu-
daginn 6. nóvember. Orgelið var
smíðað af orgelverksmiðjunni
Schuke í Berlin og er með þrjú
hljómborð og fótspil og er fjórða og
jafnframt stærsta orgel Dómkirkj-
unnar í rúmlega 200 ára sögu henn-
ar. Hljóðfærið var um árabil eitt
fárra konserthljóðfæra í Reykjavík
og hafa margir innlendir og erlendir
orgelleikarar leikið á það og hefur
það ávallt fengið lofsamlega umfjöll-
un. Orgelið þykir henta sérstaklega
vel við flutning á barokktónlist og
nýlegri tónlist og ekki síður við dag-
legar athafnir í kirkjunni, hvort sem
er við guðsþjónustur, giftingar eða
jarðarfarir.
Á tónleikunum á sunnudaginn
munu þeir Friðrik V. Stefánsson
organisti Grundarfirði, Douglas
Brotchie organisti Háteigskirkju,
Guðmundur Sigurðsson organisti
Bústaðakirkju, Jörg Sondermann
organisti Hveragerðiskirkju, Kjart-
an Sigurjónsson organisti Digra-
neskirkju, Marteinn H. Friðriksson
organisti Dómkirkjunnar, Stein-
grímur Þórhallsson organisti Nes-
kirkju og Tómas Eggertsson sem er
í orgelnámi, leika á glæsilega og fjöl-
breytta tónlist samda fyrir orgel, en
það er oft nefnt drottning hljóðfær-
anna.
Tónleikarnir hefjast kl.17 og er
aðgangur ókeypis.
Orgel Dómkirkjunnar í Reykjavík á tuttugu ára afmæli um þessar mundir.
Átta organistar
í Dómkirkjunni