Morgunblaðið - 04.11.2005, Síða 67
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
Africa United
Adams Æbler • Sýnd kl. 6 Danskt tal/Ótextuð
Lords of dogtown • Sýnd kl. 6 Enskt tal/ísl texti
Me you and everyone i know • Sýnd kl. 8 enskt tal
The Aristocrats • Sýnd kl. 8 Enskt tal/Ótextuð
Crónicas • Sýnd kl. 10 Spænskt tal/Ens. texti
Rock school • Sýnd kl. 10 Enskt tal/ótextuð
OKTÓBERBÍÓFEST | 26. október - 14. nóvember
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fíflið, XFM
Frá leikstjóranum David Cronenberg
kemur ein athyglisverðasta mynd ársins.
(Besti leik-
stjóri, Besta
heimildarmynd,
Besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Bráðfyndin og kolsvort kómedía sem
virðir pólítíska réttsýni að vettugi.
Á dönsku. Engin texti. Crónicas
Magnaður þriller með John
Leguizamo. Spænskt tal.
Enskur texti.
Upplifðu upphafið af
töffaraskap hjólabrettana.
"FLOTTASTA HROLLVEKJA ÁRSINS"
KÓNGURINN OG FÍFLIÐ / X-FM
"“hörku spennandi barátta upp
á líf og dauða þar sem öll tiltæk
meðöl eru notuð...”"
S.V. MBL
EMPIRE MAGAZINE. UK
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
H.J. Mbl.
ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Mada-
gascar Mörgæsirnar halda í jólaleiðagur sýnd.
Sýnd kl. 4 Ísl. tal
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
553 2075Bara lúxus ☎
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Hún er besti vinur þinn og versti óvinur þinn Hún er eina persónan sem þú getur ekki verið án
Frá leikstjóra 8 Mile & LA Confidential og handritshöfundi Erin Brockovich
Sími 551 9000
Miðasala opnar kl. 17.30
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Sýnd kl. 6
S.V. Mbl.
TOPP5.is
Ó.H.T. Rás 2
Nánari upplýsingar um myndir og dagskrá á www.icelandfilmfestival.is
Skóli í Philadelphiu kennir 9-17 ára
krökkum að verða að rokkstjörnur!
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furious
og boyz´n the hood
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 6 og 8 B.i. 16 ára
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
TOPP myndin á Íslandi dag
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 67
REIÐUSTU og ruddalegustu skáld Íslands
lesa upp á Grandrokki í kvöld. „Þau skáld
sem stíga á stokk eru m.a. Erpur Eyvind-
arson og massaðasti höfundur landsins,
Stefán Máni, sem mætir ásamt Dóra DNA.
Kristjón Kormákur les úr Frægasta manni í
heimi og einn allra besti vinur ljóðsins, Ei-
ríkur Örn Norðdahl, kemur alla leið frá Ísa-
firði en fjölmargt prútt og settlegt fólk grun-
ar hann um græsku og telur hann versta vin
sem ljóðið hefur nokkurn tímann eignast.
Skáldkonan Birgitta Jónsdóttir les svo úr
skáldsögu sem kemur út eftir örfáa daga.
Óttar Proppé og Þorgeir, meðlimir hljóm-
sveitarinnar Rass, stíga á svið undir nafninu
Rasskinnar og hvílir nokkur leynd yfir atrið-
inu en hljómsveit þeirra félaga hefur vakið
mikla athygli fyrir frumlega, skemmtilega
og um leið grófa textagerð,“ segir í tilkynn-
ingu. Efri hæðin á Grandrokki verður
skreytt með myndum Örvars Árdal.
Skipuleggjendur hátíðarinnar vilja beina
þeim tilmælum til fólks að fjölmenna á
Grandrokk og hafa sem mestan hávaða og
frammíköll á meðan á upplestri stendur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stefán Máni verður í hópi „reiðustu og
ruddalegustu skálda landsins“ á Grand-
rokki í kvöld.
Reiðu skáldin
á Grandrokki
Aðgangur er ókeypis og hefst dagskráin
klukkan 22.
Í KVÖLD frumsýnir Listafélag Versl-
unarskólans leikritið Guð og Tarantino í
Bláa sal skólans í Ofanleiti 1. Leikritið
sem er skrifað og leikstýrt af Ólafi S.K.
Þorvaldz er sett upp í tengslum við heil-
mikla listaviku sem nú er að ljúka í skól-
anum þar sem boðið er upp á alls kyns
listauppákomur og aðra viðburði henni
tengda.
Leikstjórinn og handritshöfundurinn
Ólafur S.K. Þorvaldz er ekki ókunnur
leiksýningum Verslunarskólans. Hann
leikstýrði sýningu Listafélagsins fyrir
tveimur árum þegar það setti upp
Sódómu Reykjavík en hann var einnig á
sínum tíma nemandi við Verslunarskól-
ann og á lokaári sínu þar, lék hann sjálfur
í leiksýningu Listafélagsins. Undanfarið
ár hefur hann látið að sér kveða í sýn-
ingum á borð við American Diplomacy og
Riðið inn í sólarlagið en þar áður hafði
hann unnið við leik og leikstjórn, bæði í
Edinborg og í Lundúnum þar sem hann
útskrifaðist úr Arts Educational-
listaháskólanum árið 2003.
Um verkið sem nú er sett upp segir
Ólafur að eins og nafnið gefi til kynna sé
það lauslega unnið út frá kvikmynd
Quentins Tarantino, Pulp Fiction.
„Ég tók þrjú atriði úr þeirri mynd og
endurskrifaði þau þannig að söguþráð-
urinn breytist lítillega. Sýningin er þá far-
in að fjalla um fjölskyldu sem fær heim-
sókn frá trúboða sem hafði, áður en hann
snerist til trúar, stundað sjoppurán í
mörg ár og á þeim tíma rænt sjoppu fjölskylduföð-
urins. Það má því segja að uppgjörið verði þegar þeir
mætast aftur á nokkuð öðruvísi forsendum en í fyrra
skiptið.“
Ólafur segir að þrátt fyrir að sagan hafi bæði upp-
haf og endi, standi atriðin ein og sér og því sé sýn-
ingin að miklu leyti óhlutbundin og fjarstæðukennd.
„Það sem gerði þetta hins vegarmögulegt var leik-
hópurinn sjálfur sem þorði að fylgja mér þangað sem
ég vildi fara og lét bara vaða þegar þess þurfti. Það
er í raun mjög sjaldgæft með fólk á þessum aldri
sem er yfirleitt svo vant um virðingu sína að nánast
ekkert má gera. Þau hvöttu mig mikið áfram hvað
þetta varðar og ferlið allt var mjög skemmtilegt.“
Eins og áður sagði verður verkið frumsýnt í kvöld
en alls verða sýningarnar fjórar talsins. Að sögn
Lönu Írisar Guðmundsdóttur Listafélagskonu eru
sýningarnar öllum opnar en hægt er að panta miða
með því að hafa samband við Listafélag Versl-
unarskólans. Næstu sýningar eru þriðjudaginn 8.
nóv. kl.20, miðvikudaginn 9. nóv. kl. 18 og fimmtu-
daginn 10. nóv. kl. 20.
Leiklist | Leikritið Guð og Tarantino frumsýnt
Hugrakkur leikhópur
Fjarstæðuna er víða að finna.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
MIÐASALA á tónleika The
White Stripes í Laugardalshöll
hefst í dag. Miðaverð er 4.500
krónur í stæði og 5.500 krónur
í stúku, auk miðagjalds, og fer
miðasala fram í verslunum
Skífunnar og á Midi.is. Tón-
leikarnir verða haldnir sunnu-
dagskvöldið 20. nóvember.
Það er Hr. Örlygur sem stend-
ur að komu The White Stripes
til Íslands.
The White Stripes þykir
skemmtileg tónleikasveit.
Koma hennar til Íslands er lið-
ur í tónleikaferð sveitarinnar
um heiminn sem farin er í
kringum útgáfu á fimmtu
breiðskífu hennar, Get Behind
Me Satan, sem fengið hefur
einróma lof gagnrýnenda.
Fyrstu tvö smáskífulög plöt-
unnar – „Blue Orchild“ og
„My Doorbell“ – hafa notið
vinsælda á Íslandi og nýtt
smáskífulag „The Denial
Twist“ kemur út viku fyrir
tónleikana hér.
Tónlist | Tónleikar
The White Stripes
í Laugardalshöll
Miðasala
hefst í dag
The White Stripes
samanstendur af
Jack og Meg White.