Morgunblaðið - 17.11.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 312. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Að fanga
augnablikið
Jóhanna Vigdís segir frá Mann-
söngvum sínum Menning
Viðskipti | Slegist á lágfargjaldaflugmarkaði Veldi Murdochs
Málið | Töfrandi tilgangsleysi Hátíð hönnunar Íþróttir | Óvænt
úrslit í umspili fyrir HM Hrafnhildur með kvennalandsliðinu
FORSÍÐA ehf., félag í eigu Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, rithöfundar og aðstoðarfor-
stjóra Time-Warner-fjölmiðlasamsteyp-
unnar, hefur keypt 16,7% hlut í Árvakri,
útgáfufélagi Morgunblaðsins. Félagið
kaupir hlutinn af Valtý ehf., sem er enn
stærsti hluthafinn í félaginu. Þá hefur
MGM ehf. aukið hlut sinn í 16,7% en félag-
ið er nú í eigu Straums-Burðaráss.
Árvakur hefur komist að samkomulagi
við Straum-Burðarás um að bankinn verði
ráðgefandi og hafi umsjón með frekari
uppbyggingu félagsins á grunni nýrrar
stefnumótunar, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Árvakri.
Þar kemur einnig fram að stefnt sé að
því að auka verulega umsvif útgáfufélags-
ins og að meðal helstu stefnumiða sé að
efla útgáfu Morgunblaðsins og annarra
prentmiðla félagsins samhliða útgáfu á
nýjum vettvangi.
Kristinn Björnsson, varaformaður
stjórnar Árvakurs, segir að með kaupun-
um sé að hefjast ákveðið breytingaskeið
hjá Árvakri. | 4
Nýir hlut-
hafar að
Árvakri
„ÞAÐ ríkir hrein og tær gleði,“ segir Hrafn-
hildur Gunnarsdóttir, formaður Samtakanna
’78, um nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um
réttindi samkynhneigðra sem kynnt var í
gær. Forsætisráðuneytið hefur haft forgöngu
um samningu frumvarpsins en þar kemur
m.a. fram að skilyrði fyrir stofnun staðfestrar
samvistar verða rýmkuð þannig að ekki verði
lengur krafist fastrar búsetu á Íslandi þegar
íslenskir ríkisborgarar eiga í hlut. Þá geta
samkynhneigð pör fengið óvígða sambúð
skráða í þjóðskrá.
Lagaákvæðum breytt
á fjölmörgum sviðum
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra
kynnti frumvarpið á blaðamannafundi í gær.
Fram kom í máli hans að frumvarpinu er ætl-
að að jafna réttindi samkynhneigðra og gagn-
kynhneigðra. Þannig verði lagaákvæðum á
fjölmörgum sviðum breytt til þess að ljóst sé
að óvígð sambúð samkynhneigðra sé lögð að
jöfnu við óvígða sambúð gagnkynhneigðra.
með frumvarpið: „Það er þakkarvert að málið
skuli vera komið á þetta stig.“ Hún kveðst
telja að verði frumvarpið samþykkt hafi Ís-
lendingar gengið lengst þjóða í að koma á
réttindum til handa samkynhneigðum.
Hrafnhildur bendir á að réttur samkyn-
hneigðra til jafns við gagnkynhneigða sé þó
enn ekki að fullu leyti tryggður. „Það sem við
viljum er að þeim trúfélögum sem þess óska
verði leyft að staðfesta samvist samkyn-
hneigðra,“ segir hún og kveðst vonast til þess
að eftir fyrstu umræðu frumvarpsins á þingi
og meðferð í allsherjarnefnd verði þetta leið-
rétt.
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri
Hinsegin daga, segir það mjög virðingarvert
af ríkisstjórninni að leggja þetta frumvarp
fram. Hann tekur undir orð Hrafnhildar um
heimild trúfélaga til að staðfesta samvist
samkynhneigðra. Bendir Heimir Már á að
bæði Ásatrúarsöfnuðurinn og Fríkirkjan hafi
lýst vilja sínum til þess og fjölmargir prestar
innan Þjóðkirkjunnar hafi einnig gert það.
Verði þetta heimilað verði Ísland „vissulega
orðið frjálslyndasta ríki í heimi í þessum efn-
um, lagalega séð“.
Þar með eru, að sögn Halldórs, skapaðar for-
sendur fyrir því að samkynhneigðir og gagn-
kynhneigðir njóti sömu réttinda varðandi al-
mannatryggingar, lífeyrisréttindi, skattalega
meðferð tekna og eigna og skipti dánarbúa.
Tekin af tvímæli um
fæðingar- og foreldraorlof
Þá verður heimild samkynhneigðra para til
að ættleiða börn sú sama og gagnkyn-
hneigðra para. Áfram verður þó metið hverju
sinni út frá hagsmunum barnsins hvort leyfi
er veitt til ættleiðingar. Í frumvarpinu verða
einnig tekin af tvímæli um að það falli undir
markmið laga um töku fæðingar- og for-
eldraorlofs að auðvelda báðum samkyn-
hneigðum foreldrum að vera samvistum við
barn sitt.
Hrafnhildur segir að gríðarleg ánægja ríki
Nýtt frumvarp um réttarstöðu samkynhneigðra kynnt
„Hrein og tær gleði“
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
og Silju Björk Huldudóttur Heimild samkynhneigðra
para til að ættleiða
börn sú sama og gagn-
kynhneigðra para
KASMÍRBÚAR bera hjálpargögn út úr þyrlu á
vegum Sameinuðu þjóðanna í pakistanska hluta
Kasmír þar sem óttast er að tugir þúsunda manna
deyi úr kulda og vosbúð í vetur verði þeim ekki
komið til hjálpar. Pervez Musharraf, forseti Pak-
istans, skoraði í gær á þjóðir heims að láta fé af
hendi rakna til hjálpar- og endurreisnarstarfsins
vegna jarðskjálftans 8. október. Hann sagði að
heildaraðstoðin þyrfti að nema 5,2 milljörðum
dollara, um 320 milljörðum króna, en féð sem bor-
ist hefði til þessa væri „óverulegt“.
„Úr því að hægt var að hjálpa fórnarlömbum
flóðbylgjunnar eða fellibylsins Katrínar ætti að
vera hægt að hjálpa Pakistönum – land okkar og
fólkið á hamfarasvæðunum er fátækara,“ sagði
Musharraf.
Yfir 73.000 manns létu lífið í jarðskjálftanum
og um þrjár milljónir manna misstu heimili sín.
Reuters
Ákall um meiri aðstoð
vegna landskjálftans
Peking. AFP. | Heilbrigðisyfir-
völd í Kína staðfestu í fyrsta
skipti í gær að fuglaflensa
hefði borist í menn þar í landi.
Vitað er að kínversk kona dó
af völdum fuglaflensuveirunn-
ar H5N1 og líklegt þykir að
veiran hafi einnig orðið stúlku
að aldurtila. Bróðir stúlkunnar
sýktist af fuglaflensu en náði
sér.
Kínverska heilbrigðisráðu-
neytið sagði að 24 ára kona í
Anhui-héraði í austanverðu
landinu hefði dáið úr fugla-
flensu á fimmtudaginn var.
Fuglaflensuveiran hefur
greinst í alifuglum í héraðinu
á síðustu vikum.
„Einni eða tveimur vikum
áður en hún dó drápust kjúk-
lingar og endur í búi fjöl-
skyldu hennar og konan hafði
verið í snertingu við dauðu
fuglana,“ hafði fréttastofan
Xinhua eftir heilbrigðisráðu-
neytinu.
Alifuglar bólusettir
Talið er að tólf ára stúlka,
sem dó 17. október í grann-
héraðinu Hunan, hafi smitast
af fuglaflensuveirunni, en ekki
er hægt að staðfesta það
vegna þess að engin sýni voru
tekin úr henni til rannsóknar
áður en líkið var brennt. Bróð-
ir hennar sýktist af fugla-
flensu en náði sér og var út-
skrifaður af sjúkrahúsi í
vikunni sem leið.
Í Kína eru um fjórtán millj-
arðar alifugla og stjórn lands-
ins tilkynnti í fyrradag að
reynt yrði að bólusetja þá alla.
Fuglaflensa
berst í
menn í Kína
Túnisborg. AFP, AP. | Samkomulag hefur náðst
um að Bandaríkin haldi áfram að fara með
stjórn og skipulag netsins þrátt fyrir and-
stöðu margra ríkja.
Samkomulagið náðist á síðustu stundu fyrir
leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna um netið
sem hófst í Túnis í gær. Á fundinum er eink-
um fjallað um ráðstafanir til að gera íbúum
fátækra landa kleift að hagnýta upplýsinga-
tæknina en óttast var að deilan um yfirráðin
yfir netinu myndi varpa skugga á fundinn.
Michael D. Gallagher, aðstoðarvið-
skiptaráðherra Bandaríkjanna, sagði að dag-
leg stjórnun vistfangakerfis netsins yrði
áfram í höndum hálfsjálfstæðrar stofnunar,
ICANN, sem heyrir undir Bandaríkjastjórn.
Ríki á borð við Íran og Kína höfðu beitt sér
fyrir því að stofnun á vegum Sameinuðu þjóð-
anna hefði yfirumsjón með netinu og Evrópu-
sambandið vildi að völd Bandaríkjanna í þess-
um efnum yrðu minnkuð.
Bandaríkjastjórn hafnaði því að Sameinuðu
þjóðirnar fengju yfirráð yfir netinu, sagði að
það myndi hindra tækniframfarir og auka
áhrif ríkja sem vilja koma á ritskoðun á net-
inu.
Í samkomulaginu felst einnig að komið
verður á laggirnar alþjóðlegum umræðuvett-
vangi þar sem fjallað verður um ýmis vanda-
mál, svo sem ruslpóst, glæpastarfsemi á net-
inu og tölvuveirur, án þess að teknar verði
bindandi ákvarðanir.
Halda yfir-
ráðum
yfir netinu
Kofi Annan setur fund um netið í Túnis.
Viðskipti, Íþróttir og Málið