Morgunblaðið - 17.11.2005, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Krónan
Gildir 16. nóv.–22. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
SS Grand Orange lambalæri ................. 1.259 1.798 1.259 kr. kg
Kalkúnn frosinn ................................... 598 798 598 kr. kg
Goða hamborgarhryggur ....................... 899 1.498 899 kr. kg
Móðir Náttúra tortillur m/fyllingu ........... 498 669 996 kr. kg
Móðir Náttúra sólskinssósa................... 198 295 900 kr. ltr
Naggalínan kjötbollur ........................... 359 513 798 kr. kg
Stjörnu hrásalat................................... 244 375 305 kr. kg
Krónubrauð stórt og gróft 770 g ............ 99 129 129 kr. kg
Myllu sjónvarpskaka............................. 221 276 514 kr. kg
Harboe cider epla/peru........................ 199 249 99 kr. ltr
Bónus
Gildir 17. nóv.–20. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Bónus malt 500 ml.............................. 69 0 138 kr. ltr
Bónus appelsín 2 l............................... 98 129 49 kr. ltr
Bónus ferskur trönuberjasafi ................. 259 0 259 kr. ltr
Bónus hveiti 2 kg ................................. 39 59 20 kr. kg
Bónus kaffi 500 g ................................ 199 229 398 kr. kg
Bónus lambalæri kryddað ..................... 899 0 899 kr. kg
Kjúklingalæri úrbeinuð ......................... 598 898 598 kr. kg
Suðrænir ávextir í dós 850 g ................. 59 99 69 kr. kg
KF hrásalat 350 g ................................ 98 159 280 kr. kg
KF kartöflusalat 350 g.......................... 98 159 280 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 17. nóv.–19. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Kalkúnn frosinn ................................... 598 868 598 kr. kg
Fyllt svínasteik frá Kjarnafæði................ 795 1256 795 kr. kg
London lamb frá Kjarnafæði ................. 985 1539 985 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.................... 1.858 1.115 1.858 kr. kg
SS rauðvíns helgarsteik ........................ 1.358 1.668 1.358 kr. kg
Merló rækja 1kg .................................. 595 0 595 kr. kg
Vínber rauð/vínber græn ...................... 339 398 339 kr. kg
Blómkál .............................................. 99 239 99 kr. kg
Hagkaup
Gildir 17. nóv.–20. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Pekingönd 1/1 .................................... 999 1.499 999 kr. kg
Holta kjúklingalæri fersk ....................... 360 599 360 kr. kg
Holta kjúklingaleggir ferskir ................... 360 599 360 kr. kg
Holta kjúklingavængir ferskir ................. 360 599 360 kr. kg
Ömmubak. tilboðspizzur ferskar 3 teg. ... 298 398 298 kr. stk.
Nautalundir KJÖTBORÐ ........................ 2.998 3.998 2.998 kr. kg
Svínalundir KJÖTBORÐ ......................... 1.498 2.298 1.498 kr. kg
Nóatún
Gildir 17. nóv.–23. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Nóatúns þurrkryddað lambalæri ............ 1.039 1.598 1.039 kr. kg
Nóatúns þurrkrydduð lambasteik........... 998 1.398 998 kr. kg
Móa kjúklingabringur magnpk. .............. 1.996 2.495 1.996 kr. kg
Nóatúns bayonneskinka ....................... 979 1.398 979 kr. kg
Goða baconhleifur ............................... 370 740 370 kr. kg
Goða áleggsskinka............................... 219 339 219 kr. kg
Stjörnu ferskt salat............................... 135 225 450 kr. kg
Eðalf. salöt túnfisk/rækju/skinku .......... 154 256 770 kr. kg
Nýbakað snittubrauð baquette.............. 119 215 119 kr. stk.
Pepsi/Pepsi Max 4x2 l.......................... 499 698 125 kr. stk.
Samkaup/Úrval
Gildir 17. nóv.–20. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Folalda snitsel ..................................... 989 1.499 989 kr. kg
Folalda gúllas...................................... 895 1.399 895 kr. kg
Filaldafille ........................................... 1.199 1.599 1.199 kr. kg
Folalda hakk, kjötborð.......................... 169 399 169 kr. kg
Hangiframpartur úrb. Borgarnes ............ 1.191 1.726 1.191 kr. kg
Náttúru safar 1l ................................... 89 137 89 kr. ltr
Ora tómatsósa 680 g ........................... 99 149 146 kr. kg
Kíví..................................................... 99 228 99 kr. kg
Gulrófur .............................................. 99 199 99 kr. kg
Þín verslun
Gildir 17. nóv.–23. nóv. verð nú verð áður mælie. verð
Kjúklingalæri/leggir magnpakkning ....... 472 629 472 kr. kg
Dönsk grísabógssteik ........................... 703 879 703 kr. kg
Borgarnesbjúgu ................................... 458 573 458 kr. kg
Borgarnes skólaskinka 165 g................ 159 199 960 kr. kg
F&F gordon bleu í bk............................ 335 419 335 kr. kg
SS hangiálegg 2*8 sneiðar lt ................ 2.582 3.228 2.582 kr. kg
Mills kavíarmix 175 g ........................... 139 184 794 kr. kg
Mills kavíar 190 g ................................ 179 269 942 kr. kg
Hatting hvítlauks snittubrauð 2 stk. ....... 189 198 540 kr. kg
Hatting ostabrauð 2 stk. ....................... 189 198 540 kr. kg
Nautalundir og rækjur
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
H
ún minnir helst á Jam-
ie Oliver á reiðhjólinu
nema hann er nátt-
úrlega á vespu. Sig-
rún hefur einmitt
þýtt matreiðslubækurnar hans og
sjálf hefur hún skrifað þrjár mat-
reiðslubækur. Sigrún starfar sem
blaðamaður og m.a. sem fréttaritari
RÚV í London.
Sigrún kaupir mestmegnis í mat-
inn á matarmörkuðum og fer á
hverjum laugardegi á Borough
markaðinn hjá London Bridge.
„Borough-markaðurinn er oft dýrari
en annars staðar en gæðin eru eins
og best verður á kosið. Maður veit
hvaðan maturinn kemur og það
skiptir miklu segir hún þegar komið
er á markaðinn sem er troðinn af
básum með alls konar grænmeti,
ávöxtum, ostum, fiski og kjöti. „Ég
kaupi uppistöðuna í mat vikunnar
hér, sérstaklega grænmetið, og
þetta endist fram yfir miðja viku.
Annað kaupi ég svo í kjörbúðum og
hverfisbúðum eftir því sem þarf.
Brauðið baka ég sjálf.“
Kaupir alltaf tofu hjá sama manni
Hún byrjar á því að koma við hjá
einum fuglakjötssala og skoðar
vandlega úrvalið en kaupir ekkert.
„Ég skoða mig alltaf um og athuga
svo hvað mig langar að kaupa – fer
eftir framboði og árstíma.“ Hún
heldur lengra inn markaðinn og
stoppar ekki fyrr en hún kemur að
manni sem er með ostabakka til að
smakka. Hún fær sér einn bita og
kaupir svo stóra sneið af „compté“
osti. „Það er hægt að kaupa franska,
ítalska, enska og fleiri osta hér. Út-
lendingar halda oft að enskir ostar
séu óætir en það er alls ekki rétt.“
Því næst er það tofu. „Mér finnst
tofu gott – ég kem alltaf hingað og
kaupi tofu hjá þessum,“ segir Sigrún
þegar hún stoppar hjá tofuborðinu.
Hún biður um eitt stykki án vatns og
er stykkið fiskað upp úr plastkistu
og sett í bakka. Hún spjallar við af-
greiðslumanninn og annan við-
skiptavin sem hefur tekið sinn eigin
bakka með til þess að vera umhverf-
isvænn í stað þess að henda alltaf
tofubökkunum og eru þau sammála
um að það sé svakalega sniðugt og
hagkvæmt.
Hún fer svo á básinn við hliðina og
kaupir trönuber og hindber. „Ég
ætla að nota trönuberin í mauk og
hindberin ætla ég að nota með
pannacotta.“ Pannacotta býr hún til
með því að hita rjóma með vanillu-
sykri og matarlími, lætur þetta
kólna eins og búðing og hefur svo
hindberin með.
Eldað og grillað á markaðnum
Á markaðnum er ekki bara hægt
að kaupa ferskar matvörur heldur er
verið að elda og grilla á mörgum
básum. En Sigrún stoppar ekki þar
núna heldur kaupir einungis ferskar
vörur. „Þegar ég er með strákunum
mínum fáum við okkur eitthvað gott
að borða,“ segir hún með móðurlegu
brosi og fer að skima eftir kaup-
manni með svissneska osta. Eftir
nokkra leit finnur hún básinn með
svissnesku ostunum og kaupir vænt
stykki af emmentaler-osti eftir að
vera búin að smakka hann. Því næst
fer hún að fuglakjötsborðinu aftur
og skoðar úrvalið þar sem meðal
annars er hægt að fá kornhænur,
fasana og skoskar rjúpur sem Sig-
rún segir að séu mjög svipaðaðar ís-
lenskum rjúpum. Hún ákveður hins
vegar að kaupa tvo pakka af anda-
bringum.
Ferskir ætiþistlar
Svo fer hún að einni lítilli búð sem
er með ítalska osta, ólífur og þess
háttar og byrjar að spjalla á ítölsku
við afgreiðslumanninn og kaupir svo
pecorino-sauðaost sem inniheldur
pistasíuhnetur, klettasalat og rauð-
laufssalat. Ástæðan fyrir að Sigrún
talar ítölsku er að hún hefur verið
mikið á Ítalíu. „Ég á eiginlega svona
ítalska fjölskyldu og það er ekkert
sumar hjá mér ef ég kemst ekki
þangað. Ég var einmitt þar núna í
september.“
Eftir að Sigrún er búin að spjalla
á ítölsku heldur hún til grænmetis-
salans og nær sér þar í trébakka og
byrjar að raða ýmsu grænmeti á.
Hún kaupir einn haus af rauðlaufs-
salati, tvö búnt af fersku spínati,
einn bakka af kirsuberjatómötum og
litla ætiþistla sem hún eldar á þann
hátt að hún sker efsta partinn af og
setur hvítlauk og mintu ofan í og
bakar svo í ofni í lokuðu fati með olíu
og hvítlauk. Því næst kaupir hún
lambasalat, vatnakarsa, ferska fenn-
iku, búnt af ferskri mintu, og grípur
svo dill og loks steinselju. Svo nær
hún í blá vínber og horfir með
hneykslun á spergilinn sem er þar
við hliðina. „Nú er hægt að kaupa
spergil hérna frá Perú. Ég kaupi
heldur eftir árstíðunum og spergil-
tíminn hér er á vorin. Ég vil elda eft-
ir árstíðunum hér og sjáðu bara
hvað það er hægt að fá mikið af alls
konar grænmeti núna sem er héðan
og því vil ég ekkert fá eitthvað sem
er annars staðar frá,“ segir hún um
leið og hún bendir yfir úrvalið og þar
eru m.a. grasker, spínat og rabarb-
ari.
Þegar kaupmaðurinn byrjar svo
að vigta grænmetið man Sigrún allt í
einu eftir að hún gleymdi kartöflum
og hleypur til og kaupir fjórar mjög
stórar kartöflur. Og þá er það kom-
ið.
Hlaðin pokum fer hún að hjólinu
sínu, setur pokana á stýrið og heldur
af stað heim á leið.
HVAÐ ER Í MATINN? | Sigrún Davíðsdóttir fer alla laugardaga á matarmarkaðinn í Borough í London
Sauðaostar og kornhænur
Sigrún Davíðsdóttir
brunar á reiðhjóli á
matarmarkaðina í stór-
borginni London. Laila
Sæunn Pétursdóttir
slóst í för með henni.
Sigrún Davíðsdóttir kaupir grænmeti og ávexti á markaðnum.
Laila Sæunn Pétursdóttir
er búsett í London.
Andabringur
að hætti Sigrúnar
Hitið pönnuna vel og leggið
bringurnar á heita þurra pönn-
una með pöruhliðina niður. Fit-
an sem bráðnar úr pörunni
nægir til að steikja bringurnar.
Steikingartíminn fer eftir
stærð en 3–4 mínútur á hvorri
hlið er nærri lagi. Takið af hit-
anum, breiðið álpappír yfir og
látið standa í um 10 mínútur
áður en bringurnar eru skorn-
ar í þunnar sneiðar og bornar
fram.
Gratíneraðar
kartöflur og sellerí
Kartöflur og sellerí skorið í
sneiðar og sett á fat með grófu
salti og pipar og vel af múskati
og rjóma dreypt yfir.
Látið bakast í ofni við 200° C í
um 40 mínútur.
Trönuberjamauk
250 g trönuber
1 grænt epli
1 pera (afhýdd)
um 1–1½ dökkur hrásykur
3 negulnaglar
1 tsk. kanill
nokkrar sneiðar af engiferrót.
Trönuber sett í pott án
vökva og suðan látin koma upp.
Þá springa trönuberin og saf-
inn fer úr. Trönuberin eru svo
fiskuð upp með spaða. Epli og
pera skorin í litla bita og sett út
í trönuberjasafann. Soðið þar
til eplið og peran eru orðin
mjúk. Undir lokin er trönu-
berjunum bætt út í. Jafnvel
gott að láta standa yfir nótt.
Borið fram volgt eða við stofu-
hita.