Morgunblaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Birgir DavíðKornelíusson
fæddist í Reykjavík
18. desember 1947.
Hann lést á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 10. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
hjónin Sigríður Pét-
ursdóttir, f. 10. nóv-
ember 1929, og
Kornelíus Jónsson,
f. 8. apríl 1915.
Systkini Birgis eru:
1) Haraldur, f. 25.
ágúst 1950, maki Íris Ægisdóttir,
f. 21. nóvember 1953. Börn þeirra
eru: a) Sirrý Hrönn, f. 1971, og b)
Birgir Grétar, f. 1972. 2) Korn-
elía, f. 14. janúar 1952, maki Gísli
Árni Atlason, f. 7. febrúar 1950.
Börn þeirra eru: a)
Jón Kornelíus, f.
1975, b) Kolbrún Ýr,
f. 1977, c) Eygló
Rós, f. 1978, og d)
Óskar Sindri, f.
1984. 3) Pétur, f. 29.
mars 1953, maki
Gunnhildur Sigurð-
ardóttir, f. 21. októ-
ber 1956. Synir
þeirra eru: a) Sig-
urður Rúnar, f.
1977, og b) Harald-
ur, f. 1979.
Birgir hóf ungur
störf hjá Reykjavíkurborg en
starfaði síðustu áratugi hjá Múla-
lundi.
Birgir Davíð verður jarðsung-
inn frá Hvítasunnukirkjunni í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Kæri bróðir, þá er komið að
kveðjustund sem kemur reyndar
alltof fljótt. Við ólumst upp saman í
foreldrahúsum, fyrst í Mávahlíðinni,
síðan á Kleifarveginum. Eftir að við
systkinin fluttum að heiman og hóf-
um búskap hefur Biggi búið hjá for-
eldrum okkar og notið ástar og um-
hyggju alla tíð. Biggi var trúaður
maður þó hann væri ekki að bera trú
sína á torg, en hann sótti samkomur
bæði hjá Hvítasunnusöfnuðinum og
Hjálpræðishernum, einnig var hann í
Kristniboðsfélagi karla. Biggi var
sérstaklega félagslyndur og hafði
mjög gaman af að ferðast, Flækjufót-
ur er félagsskapur sem hann ferðað-
ist mikið með bæði innanlands og ut-
an og hafði mikla ánægju af. Hann
lifði hröðu og skemmtilegu lífi, var
mikið á ferðinni á Toyotunni sinni
(vildi ekki aðra bíltegund), heimsótti
marga, stoppaði kannski ekki lengi á
sama stað nema hjá löggunni og
strætóbílstjórunum en þeir voru
meðal bestu vina hans, enda einstak-
lega góðir við hann
Ekki var lífið hjá Bigga alltaf dans
á rósum en hann fæddist með hjarta-
galla sem háði honum alla tíð, það var
ekki sjaldan sem hann var fluttur í
skyndi á sjúkrahús í hjartakasti, svo
var það um miðjan júní sl. sem hann
greindist með krabbamein sem sigr-
aði hann að lokum eftir tiltölulega
stutta legu. Biggi var ótrúlega dug-
legur í veikindum sínum, aldrei
kvartaði hann. Þó að við vissum að
honum liði illa þá hafði hann það allt-
af ágætt þegar hann var spurður.
Mig langar að þakka öllum hans vin-
um sérstakan hlýhug í hans garð,
einnig þessu yndislega fólki á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi sem ann-
aðist hann í gegnum tíðina og síðustu
sólarhringana starfsfólkinu á Líkn-
ardeildinni í Kópavogi.
Að lokum, Biggi minn, megi Guð
blessa sálu þína í Himnaríki þar sem
ég veit að Gunna, Eggi, og Stína
frænka sem þótti svo vænt um þig og
þú dáðir svo mjög tóku vel á móti þér.
Haraldur bróðir og fjölskylda.
Nú höfum við misst okkar kæra
ástvin, Bigga frænda. Það er sárt til
þess að hugsa að fá ekki að hitta hann
aftur, hlæja með honum og spjalla
saman. Biggi var svo yndislegur
maður, jákvæður og góður við alla.
Hann var alltaf tilbúinn að hjálpa öll-
um sem á þurftu að halda og var allt-
af með í öllu. Hann var okkur systk-
inunum líka einstaklega góður enda
vorum við í rauninni líka börnin hans.
Hann lét okkur sig varða og fylgdi
okkur alla tíð. Okkur þykir svo óend-
anlega vænt um hann Bigga okkar og
söknum hans sárt en það hjálpar
okkur að vita að nú líður honum bet-
ur og er vonandi að takast á við ný
ævintýr á öðrum, æðri stað. Biggi
mun fylgja okkur í hjörtum okkar
alla tíð. Megi himinsins englar vaka
með þér, kæri frændi.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer,
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Systurbörnin,
Jón Kornelíus, Kolbrún Ýr,
Eygló Rós og Óskar Sindri.
Minningarnar streyma fram.
Minningar um góðan dreng, sérstak-
an karakter. Dreng sem var alltaf
tilbúinn að gera öðrum greiða, snúast
og snatta og svaraði oft: „Þetta er
ekkert mál, ég var hvort sem er á
ferðinni.“ Hann var sannur vinur
vina sinna og þeir voru margir. Það
var ekki hægt annað en að þykja
vænt um hann. Við bjuggum í sama
húsi þegar við vorum krakkar og vor-
um nánast eins og systkini enda mik-
ið skyld í báðar ættir og mikill sam-
gangur á milli heimilanna. Biggi
frændi var hvunndagshetja. Hann
var aldrei heilsuhraustur en ótrúlega
harður af sér, kvartaði nánast aldrei
þótt oft væri hann þjáður. Ef það
kom fyrir þá vissi ég að rík ástæða
var fyrir því og ég reyndi að aðstoða
hann eftir bestu getu. Hann kallaði
mig oft einkahjúkkuna sína. Biggi
hafði mikið skopskyn og næmt auga
fyrir því sem var spaugilegt í lífinu
en var aldrei særandi eða niðrandi.
Hann átti einlæga trú á frelsarann
Jesú Krist og bænin var honum
öruggt haldreipi. Um árabil vorum
við saman í kirkjulegu starfi í Hvíta-
sunnukirkjunni þar sem hann tók að
sér akstur eldri borgara á samveru-
stundir sem ég hafði umsjón með.
Það var alltaf hægt að treysta á hann
og vil ég þakka honum fyrir það.
Margar ferðirnar fórum við saman á
Kotmót um verslunarmannahelgi, þá
var ýmislegt spjallað og hlegið en oft
voru líka langar þagnir en aldrei
óþægilegar. Biggi var nefnilega
þannig að það var ekkert aðalatriði
að halda uppi samræðum, það nægði
að vera til staðar.
Nú þegar komið er að leiðarlokum
er eitthvað svo sárt að kveðja, samt
veit ég að nú er hann laus við allar
þjáningar og situr í betri stofunni hjá
Jesú. Það er huggun mín. Ég bið góð-
an Guð að hugga og styrkja foreldra
og systkini og aðra ástvini sem eiga
um sárt að binda. Með innilegri sam-
úðarkveðju frá Kaupmannahöfn.
Elín Pétursdóttir (Ella P.).
Þegar mamma hringdi í mig í vinn-
una sl. fimmtudag heyrði ég strax á
henni að hún var ekki að færa mér
nein gleðitíðindi. Því miður reyndist
það rétt vera því hann Biggi frændi
minn var dáinn, hafði dáið þá um
morguninn á afmælisdegi móður
sinnar. Við vorum systrabörn, hann
var 13 árum eldri en ég þannig að
hann hefur verið samferða mér í
gegnum lífið. Það er nú einhvern
veginn þannig að maður er aldrei
undirbúinn fyrir svona fréttir og þótt
ég hafi vitað um nokkurn tíma að
hann væri veikur, með krabbamein,
þá datt mér ekki í hug að hann myndi
kveðja svona fljótt.
Ég man fyrst eftir honum á jóla-
dag, þegar við vorum börn, en það
var ein af jólahefðunum að stórfjöl-
skyldan hittist heima hjá Siggu og
Kornelíusi, foreldrum Bigga. Hann
var unglingur og fannst við örugg-
lega óttaleg smábörn, hoppandi upp
og niður flotta stigann í húsinu
þeirra. Löngu seinna þegar ég var að
vinna á skrifstofu Hvítasunnukirkj-
unnar hafði ég oft samskipti við hann
því hann kom gjarnan við hjá okkur
og það var alltaf gaman að hitta
hann. Hann var líka fastur punktur í
öllum ferðalögum á vegum kirkjunn-
ar og kom á flest mót sem voru hald-
in og fór þá gjarnan með mömmu
minni á milli staða.
Við Biggi áttum ferðaáhugann
sameiginlegan og það var gaman að
hitta hann þegar hann var kominn úr
einhverri ferðinni og kom til að segja
okkur ferðasöguna. Hann var glað-
lyndur og sjaldan sá ég hann reiðan
við nokkurn mann. Hann lét samt al-
veg vita af því ef honum mislíkaði
eitthvað en það var fljótt úr honum.
Biggi vann á Múlalundi og ef okk-
ur vantaði eitthvað þaðan á skrifstof-
una þá var bara að hringja í hann og
innan skamms var hann kominn með
það sem okkur vanhagaði um og ef
ég sagði við hann að ég hefði getað
sótt þetta þá fannst honum það nú
óþarfi, hann væri hvort sem er á
ferðinni. Stundum kom ég við hjá
honum í vinnunni og verð að viður-
kenna að mér fannst gaman að vera
frænka hans, hann var vel liðinn og
augljóst að starfsfólkinu þótti vænt
um hann. Það er á engan hallað þótt
ég segi að bónbetri mann var ekki að
finna til að keyra eldri borgarana
okkar á samverur fyrir þá sem kirkj-
an stóð fyrir.
Biggi frændi átti marga vini og
þeir eru margir sem sakna hans en
mestur er þó söknuður foreldra hans
sem svo sannarlega voru eins og
klettar í hafinu í veikindum hans svo
og systkina hans. Um leið og ég og
fjölskylda mín vottum minningu
Bigga frænda virðingu okkar send-
um við Siggu, Kornelíusi og fjöl-
skyldunni allri okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur
og styrki á allan hátt.
Erla Birgisdóttir.
Síminn hringdi til mín frá Reykja-
vík og mér var sagt að Guð hefði kall-
að kæran vin minn, Birgi, heim til
sín. Það eru mörg ár síðan ég kynnt-
ist Birgi, hann fór víða á samkomur
og kom oft á samkomur hjá okkur á
hernum og þar gerðist hann sam-
herji.
Minningar eru margar, hann var
alltaf svo hlýr, hann átti lifandi trú á
Frelsarann.
Birgir gekk ekki heill til skógar en
hann treysti á Jesú. Ég man eftir
honum á mótum sem við héldum, það
voru góðar og skemmtilegar stundir
og við Birgir náðum svo vel saman.
Oft vorum við snemma á fótum þegar
ég bar ábyrgðina á matseldinni og þá
rétti hann mér hjálparhönd, og þá
var oft glatt á hjalla.
Ég talaði við Birgi þegar hann var
veikur heima, hann vissi hvert
stefndi og var öruggur í Jesú. Ég
kvaddi hann og sagði: „Við mætumst
á ný, Birgir minn.“
Ég votta foreldrum hans og fjöl-
skyldu samúð með ósk um blessun og
styrk Guðs.
Nú ertu horfin í himinsins borg
og hlýðir á englanna tal.
Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg,
í sólbjörtum himnanna sal.
Þeim öllum sem trúa og treysta á Krist,
þar tilbúið heimili er.
Þar ástvinir mætast í unaðarvist, um eilífð,
ó, Jesú, hjá þér.
Guð blessi minningu þína.
Ingibjörg Jónsdóttir (Imma).
Í dag kveðjum við ljúflinginn og
sómadrenginn Birgi Davíð Korn-
elíusson. Birgir var starfsmaður
Múlalundar, vinnustofu SÍBS, um
langt árabil, aðallega við léttar sendi-
ferðir í banka og aðrar stofnanir sem
Múlalundur átti samskipti við.
Birgir var einstakur drengur,
traustur og áreiðanlegur, sem ávallt
var tilbúinn að aðstoða samstarfs-
menn sína við ýmsa snúninga, enda
var Birgir sérlega vinamargur og átti
vini og félaga í öllum starfsstéttum
þjóðfélagsins.
Guð blessi minningu Birgis Dav-
íðs.
Aðstandendum sendum við okkar
innilegustu samúðarkveður.
Steinar og Margrét.
Biggi minn, ég veit að þú kannast
við þetta orðalag. Það var oft sagt,
Biggi minn, í Múlalundi og var það
sérstaklega þegar það þurfti á þinni
aðstoð að halda. Þú varst okkar
sendiherra og stóðst þig með prýði.
Alltaf varst þú til í að skutlast og var
þá sama hvort það var að fara með
einhvern af okkar einstaklingum sem
starfa hérna einhverra erinda, fara í
pósthús eða bankann.
Nú er komið að kveðjustund en
það fara allir sinn veg að lokum og ég
veit að þinn vegur er ljósum prýddur.
Ekki var búist við því að þú myndir
kveðja okkur svona fljótt þar sem
ekki er langt síðan þú sagðir að þú
kæmir aftur til vinnu hjá okkur. Við
biðum eftir því að þú kæmir aftur en
ekki kom Biggi. Hér var á ferðinni
maður sem fylgdist með hlutunum.
Birgir var glaðvær og er það ómet-
anlegt að hafa starfsmann sem er já-
kvæður og alltaf tók hann gríni vel.
Hann var einn af þeim sem gaf lífinu
ljós og mun það ljós loga áfram í
huga okkar hér í Múlalundi. Um leið
og við í Múlalundi fréttum af því að
þú værir farinn var sett upp mynd af
þér og kveikt á kerti. Við munum
alltaf minnast þín með þakklæti og
gleði í hjarta Samviskusemin sem þú
sýndir Múlalundi var einstök og vild-
um við félagarnir þakka kærlega fyr-
ir margar góðar stundir.
Þitt ljós mun lifa og við vitum að
það er tekið vel á móti þér þar sem þú
ert núna en þar loga ávallt kerti frið-
ar og gleði í kringum þig.
Við hjá Múlalundi sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur til for-
eldra, systkina og annarra vanda-
manna. Við viljum þakka kærlega
fyrir að hafa fengið að njóta krafta
þinna því þú sinntir Múlalundi vinnu-
stofu SÍBS heils hugar.
Hvíl í friði, kæri vinur.
F.h. vinnufélaga í Múlalundi.
Helgi Kristófersson.
Elskulegur vinur, félagi og sam-
starfsmaður Birgir Davíð Kornelíus-
son lést á líknardeild Landspítalans í
Fossvogi fimmtudaginn 10. nóv. sl.
Hann var fæddur 18. des. 1947 og því
á 58. aldursári þegar hann lést.
Kynni okkar Birgis hófust fyrir
meira en 40 árum, þegar ég gerðist
félagi í Kristniboðsfélagi karla 1961.
Hann var einlægur og góður kristni-
boðsvinur, sem lagði sitt af mörkum
til að boða fjarlægum þjóðum kristna
trú. Birgir var einnig félagi í Fíladel-
fíusöfnuðinum í Reykjavík og sótti að
jafnaði samkomur á Hjálpræðishern-
um. Í þessu samfélagi öllu þroskaði
hann sína kristnu trú.
Birgir var sonur hjónanna Sigríð-
ar Pétursdóttur og Kornelíusar
Jónssonar. Hann naut mikils ástríkis
foreldra sinna og á heimilum systk-
ina sinna var hann aufúsugestur.
Raunar veit ég að Birgir var aufúsu-
gestur hvar sem hann kom, sem seg-
BIRGIR DAVÍÐ
KORNELÍUSSON
Útför systranna,
JÓNU GUÐMUNDU JAKOBSDÓTTUR
og
INGIBJARGAR ÞÓRÓLFSDÓTTUR,
fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. nóvember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
María Rögnvaldsdóttir, Halldór Þórðarson,
Elínbet Rögnvaldsdóttir, Guðmundur Halldórsson,
Þórólfur Halldórsson,
Ágústa Halldórsdóttir,
Auðbjörg Halldórsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
BJÖRN VIGNIR SÆMUNDSSON,
Ránarbraut 9,
Vík í Mýrdal,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánu-
daginn 14. nóvember.
Kolbrún Matthíasdóttir,
Matthías Jón Björnsson, Hafdís Þorvaldsdóttir,
Ingi Már Björnsson, Hjördís Rut Jónsdóttir,
Kristín G. Ólafsdóttir
og barnabörn. Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl-
ast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Minningar-
greinar