Morgunblaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
Séra Bolli Gústavs-
son vígslubiskup er
sjötugur í dag, 17.
nóvember. Ég vil í
nafni þjóðkirkjunnar
árna honum og ást-
vinum hans heilla í
tilefni dagsins og
þakka trúmennsku
hans í þjónustu við
kirkju og þjóð.
Hann vígðist sókn-
arprestur til Hríseyj-
ar 1963, tveim árum
síðar var hann skip-
aður sóknarprestur í
Laufásprestakalli og gegndi því
kalli allt til þess að hann varð
vígslubiskup á Hólum árið 1991.
Gegndi hann því embætti í ellefu
ár, uns hann varð að láta af störf-
um vegna heilsubrests.
Meðan heilsa og kraftar leyfðu
lét hann víða til sín taka í fé-
lagsstörfum, og í lista- og menn-
ingarlífi. Ritfær maður með af-
brigðum, sem margvísleg ritstörf
hans bera vitni um. Margir minn-
ast með ánægju reglulegra pistla
hans í Morgunblaðinu, sem hann
skrifaði um langt árabil. Þar kom
hann jafnan víða við og fagurker-
inn og unnandi orðsins lista, ljóðs
og sagna fór gjarna á kostum. Svo
átti hann svo auðvelt með að draga
upp leiftrandi skemmtilegar svip-
myndir samferðamanna af hlýju og
næmi mannvinarins. Hann átti þar
líka afar auðvelt með að varpa
birtu fagnaðarerindisins yfir mál-
efni líðandi stundar.
Óhætt er að segja að séra Bolli
Gústavsson hefur verið prýði og
sómi sinnar stéttar og kirkju.
Hann var orðlagður prédikari, mál-
snjall og orðhagur með afbrigðum
og framganga hans í helgri þjón-
ustu var jafnan borin uppi af
BOLLI
GÚSTAVSSON
smekkvísi og virð-
ingu.
Þó að hauströkkur
heilsuleysis hjúpi
hann nú þá er ávallt
bjart yfir séra Bolla.
Og þannig hugsum
við til hans þakklát á
heiðursdegi og þökk-
um árin liðnu. Það er
jafnan bjart yfir
mynd hans, heiðríkja
í svip og fasi hins
hreinlynda, hógværa
og hjartahlýja og
hláturmilda húmor-
ista og öðlings. Hann er umvafinn
hlýju og góðvild sóknarbarna og
samferðafólks síns og samverka-
manna.
Eftir að hann tók við embætti
vígslubiskups beitti hann sér fyrir
byggingu Auðunarstofu á Hólum
en það er endurgerð stokkahúss
sem Auðun biskup rauði reisti á 14.
öld og var rifið illu heilli í byrjun
hinnar nítjándu. Ekki leist öllum
vel á þá hugmynd hans en séra
Bolli fékk góða menn til liðs við sig
og norska vini sína til að gefa trjá-
við til stofunnar og loks tók rík-
isstjórn Íslands verkefnið mynd-
arlega upp á arma sína. Nú prýðir
Auðunarstofa Hólastað og vitnar
um forna dýrð og verkmenningu,
og nýtist sem glæsileg fundaað-
staða og skrifstofa vígslubiskups.
Séra Bolli dvelur nú á sjúkra-
stofnun. Við Kristín sendum hon-
um okkar hlýjustu hamingjuóskir
og biðjum honum og eiginkonu
hans, Matthildi Jónsdóttur, og
börnum þeirra blessunar.
Því að Drottinn er góður, miskunn hans
varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni
til kyns. (Sálm. 100.5)
Karl Sigurbjörnsson.
FRÉTTIR
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Fimmtudaginn 10. nóv. var haldið
áfram keppni í Málarabutlernum
Þessi pör skoruðu mest síðasta
spilakvöld:
Runólfur Þ. Jónsson – Stefán Short 64
Gunnar B. Helgason – Össur Friðgeirsson33
Grímur Magnússon – Gísli Þórarinsson 26
Þröstur Árnason – Helgi Grétar Helgason15
Staða efstu para að 2 kvöldum
loknum er þá þessi:
Runólfur Þ. Jónsson
– Stefán Short/Ari Einars-Knútur Jóh. 47
Grímur Magnússon
– Gísli Þórarinsson/Sigurður Vilhj. 38
Kristján M. Gunnarss. – Björn Snorras. 31
Helgi Hermannss. – Vilhjál. Þ. Pálss. 31
Mótinu lýkur fimmtudagskvöldið
17. nóv. kl. 19.30 í Tryggvaskála.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 15. nóvember var
spilað á 11 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S:
Katarínus Jónss. – Sigurður Hallgrímss. 270
Bragi Björnsson – Auðunn Guðmss. 245
Eysteinn Einarss. – Ragnar Björnsson 237
A/V
Gísli Kristinsson – Helgi Sigurðss. 269
Hera Guðjónsd. – Jón Pálmason 267
Þorvarður Guðmss. – Jón Sævaldsson 245
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði, Stangarhyl, mánud. 14.11.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Jón Hallgrímsson – Helgi Hallgrímss. 261
Ragnar Björnss. – Guðjón Kristjánss. 251
Bragi Björnsson – Albert Þorsteinsson 232
Árangur A-V
Hannes Ingibergss. – Viggó Nordqvist 270
Björn Björnsson – Heiðar Þórðarson 262
Soffía Theodórsd. – Elín Jónsdóttir 240
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 14. nóvember hófst
hraðsveitakeppni með þátttöku 10
sveita.
Staðan eftir fyrsta kvöldið af
fimm: Sv. Hrundar Einarsdóttur 41
Sv.. Dalabúa 40
Sv. Erlu Sigurjónsdóttur 33
Sv. Guðlaugs Bessasonar 31
Sv. Jóns formanns 31
Íslandsmót í parasveitakeppni
26.–27. nóvember
Íslandsmótið í parasveitakeppni
verður haldið helgina 26.–27. nóvem-
ber að Síðumúla 37, í húsnæði
Bridgesambandsins.
Spiluð verður sveitakeppni, raðað
eftir Monradkerfi, sjö umferðir og 16
spila leikir. Gullstig eru veitt fyrir
hvern leik, 0,5 stig á mann fyrir unn-
inn leik og 0,25 fyrir jafntefli. Einnig
uppbótarstig fyrir fjögur efstu sæt-
in. Keppnisstjóri verður Aron Þor-
finnsson.
Spilaðar eru 4 umferðir á laugar-
deginum og 3 umferðir á sunnudeg-
inum. Keppnisgjald er 12.000 kr. á
sveit.
FEBK Gjábakka
Það var spilað á 8 borðum sl. föstu-
dag og urðu úrslitin þessi í N/S:
Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 198
Magnús Halldórss. - Rafn Kristjánss. 189
Lárus hermannss. - Ólafur Lárusson 183
A/V:
Júlíus Guðmss. - Óskar Karlsson 192
Eysteinn Einarss. - Ragnar Björnsson 181
Aðalheiður Torfsd. - Ragnar Ásmunds. 179
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, sendi í
gær flokkssystur sinni og verðandi
starfssystur Ritt Bjerregaard
heillaóskaskeyti í tilefni úrslita
borgarstjórnarkosninganna sem
fram fóru í Kaupmannahöfn.
Bjerregaard og Jafnaðarmanna-
flokkur hennar vann stórsigur í
kosningunum og verður hún fyrsta
konan til að gegna embætti yf-
irborgarstjóra í Kaupmannahöfn.
Þær Bjerregaard og Steinunn Val-
dís áttu fund fyrir mánuði þegar
borgarstjóri var staddur á menn-
ingarnótt í Kaupmannahöfn í boði
fráfarandi yfirborgarstjóra. Við
það tækifæri var þessi mynd tekin.
Borgarstjóra-
kveðjur
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
KOMIN er út hjá Námsmats-
stofnun íslensk þýðing á bandarísku
greindarprófi Wechslers fyrir full-
orðna (WAIS-III). Greindarpróf
Wechslers eru þrjú talsins og eru til
útgáfur fyrir leikskólabörn, börn og
unglinga og fyrir fullorðna. Það er
hópur sálfræðinga sem kallar sig
WAIS-hópinn sem hefur þýtt prófið,
en það var síðast þýtt af Kristni
Björnssyni sálfræðingi fyrir all-
mörgum árum. Hópurinn hefur
einnig fengið stuðning frá starfs-
fólki Námsmatsstofnunar og ýms-
um sálfræðingum sem leitað var til.
Að sögn meðlima hópsins hefur
það sýnt sig að Íslendingar séu
nægilega líkir því úrtaki Banda-
ríkjamanna sem mið var tekið af við
upphaflega stöðlun prófsins svo
nota megi prófið lítið breytt hér á
landi. Þetta er þó háð því að vel sé
vandað til þýðingarinnar. Þjóðir
eins og Englendingar, Danir, Norð-
menn og Svíar hafa haft sama hátt-
inn á – og því er íslenska þjóðin vel
samanburðarhæf hvað gott aðgengi
að greindarprófum varðar.
Már Viðar Másson, sálfræðingur
og meðlimur í WAIS-hópnum, segir
að enn betra væri að staðla allt próf-
ið upp á nýtt fyrir nýja þjóð, en slík
vinna kosti ekki undir 20 milljónum
króna og taki langan tíma. „Náms-
matsstofnun vinnur barna- og ung-
lingaprófið (WISC-IV) þó á þann
veg núna,“ segir Már, en von er á
því prófi á markað að ári. „Stefnt er
að því að staðla fullorðinsprófið eftir
að ný útgáfa þess (WAIS-IV) kemur
út í Bandaríkjunum eftir nokkur ár.
Að baki greindarprófa sem þessara
liggur mikil vinna og háar fjár-
hæðir. Próf eins og það sem nú
verður tekið í notkun kostar millj-
ónir dollara í framleiðslu. Það telst
því vera heppni lítilli þjóð að hún
skuli fá leyfi eiganda til þýðingar.“
Greiningartæki
fyrir sálfræðinga
Greindarpróf er eitt af þeim tækj-
um sem sálfræðingar nota til að
greina einkenni og starfsemi hug-
rænna kerfa fólks, t.d. þegar það
leitar til sálfræðinga vegna ýmiss
konar erfiðleika. Það hjálpar til við
greiningu á greindarfari fólks, en
einnig því hvernig mismunandi und-
irþættir greindar reynast vera hjá
viðkomandi. Prófið segir jafnt til um
styrkleika sem og veikleika þess
sem því svarar. Már segir vitað að
ýmsir hæfileikar eða eiginleikar
hafa að jafnaði mikla fylgni við
greind. Þar má nefna félagsþroska,
siðferðisþroska og tilfinninga-
þroska. „Út frá greindarprófi
Wechslers fyrir fullorðna má reikna
heildargreind sem síðan skiptist í
mállega (verbal) og verklega (per-
formance) greind,“ segir Már.
„Hvor hluti um sig hefur undirþætti
sem meta ólíka hluta vitsmuna-
þroskans s.s. almenna stað-
reyndaþekkingu, skilning og dóm-
greind, leikni í hugarreikningi,
rökhugsun, minni, orðskilning, sjón-
ræna úrvinnslu, samhæfingu sjónar
og hreyfinga, sjónhreyfihraða, rú-
máttun, sjónræna rökhugsun og
skilning á atburðarás.“
Greindarpróf eru notuð í marg-
víslegum tilgangi – eins og til dæmis
til þess að skera úr um fötlun,
námsörðugleika eða athyglisbrest.
Þá má nefna notkun prófsins við
taugasálfræðilegt mat eftir færn-
isskerðingu vegna veikinda eða
slyss. Við þær aðstæður hjálpa nið-
urstöður til við að setja raunhæf
markmið endurhæfingar.
Mikilvægt hjálpartæki sál-
fræðinga fáanlegt á íslensku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sálfræðingarnir Eiríkur Líndal, Inga Hrefna Jónsdóttir, Már Viðar Másson
og Rúnar Helgi Andrason skipa WAIS-hópinn, en með þeim stendur Sig-
urgrímur Skúlason frá Námsmatsstofnun.