Morgunblaðið - 17.11.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2005 47
Fundarboð
Aðalfundur FISK-Seafood hf., vegna rekstrar-
ársins 1. september 2004 til 31. ágúst 2005,
verður haldinn fimmtudaginn 24. nóvember
2005 kl. 17.00.
Fundarstaður: Eyrarvegur 18, Sauðárkróki.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Ársreikningur, ásamt skýrslu stjórnar, liggur
frammi, hluthöfum til sýnis, á skrifstofum
félagsins í Grundarfirði, á Skagaströnd
og Sauðárkróki.
Stjórn FISK Seafood hf.
Félagsfundur/
Faggreinafundur
Félagsfundur/Faggreinafundur verður haldinn
í Félagi iðn- og tæknigreina í Borgartúni 30 í
dag, fimmtudaginn 17. nóvember, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Staða kjarasamninganna (Ólafur Darri
Andrason, hagfræðingur ASÍ).
2. Nýjustu tölur Kjararannsóknanefndar
(Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ).
3. Faggreinafundur.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðiskvennafélagið
Edda
Aðalfundur
Sjálfstæðiskvennafélagsins Eddu verður hald-
inn fimmtudaginn 24. nóvember nk. kl. 19.30
í sal sjálfstæðisfélaganna í Hlíðasmára 19.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Að loknum aðalfundarstörfum kl. 20.30 verður
félagsfundur með jólaívafi. Fjölmennum
Stjórnin.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Í FRAMHALDI af neyðarkalli frá
heimshreyfingu kvenskáta,
WAGGGS, þar sem segir að kven-
skátar í Pakistan kalli eftir liðsinni
skáta í heiminum og þá sérstaklega
eftir tjöldum fyrir fólk til að búa í,
ákvað stjórn Bandalags íslenskra
skáta að gefa andvirði 15 tjalda til
hjálparstarfsins. Vegna erfiðleika
með flutning og verðs á tjöldum
hérlendis var ákveðið að senda and-
virði 15 tjalda, um 10.000 kr. á
tjald. Þar með var ákveðið að
styrkja söfnunina um 1.400 pund
eða um 150.000 kr. Styrkurinn var
sendur heimshreyfingu kvenskáta
og þaðan er hann sendur beint til
landshreyfingar pakistönsku kven-
skátanna sem ráðstafa fénu þar
sem það kemur að mestum notum.
Skátahreyfingin hvetur skáta sem
og aðra landsmenn að styðja safn-
anir Rauða krossins og Hjálp-
arstarf kirkjunnar til að mæta
brýnni neyð í Pakistan.
Skátar svara
hjálparkalli
frá Pakistan
TEKNIR hafa verið í notkun þrír
sérstakir birtulampar til notkunar
gegn skammdegisóyndi fyrir gesti í
Vesturbæjarlauginni. Rannsóknir
hafa leitt í ljós að skammdegisóyndi
hrjáir um 10,5% Íslendinga, sem
lýsir sér sem geðlægð sem kemur
ávallt fram á sama tíma ár hvert og
stendur yfir vetrarmánuðina.
Einkenni skammdegisóyndis eru
þunglyndi, depurð, skert virkni eða
athafnaleysi, kvíði, bráðlyndi,
þreyta að degi til, aukin svefnþörf
og kyndeyfð. Erlendar rannsóknir
sýna að birtumeðferð dregur veru-
lega úr þessum einkennum. Birtu-
meðferð gengur út á að viðkomandi
situr fyrir framan sérstakt ljós í
ákveðinn tíma.
Birtumeðferð í
Vesturbæjarlaug
RÁÐSTEFNA um forvarnir verður
haldin laugardaginn 19. nóvember
kl. 13–17 Í Háskóla Íslands, Lög-
bergi, stofu 101. Að henni standa
FSS (félag samkynhneigðra- og tví-
kynhneigðra stúdenta) og AIESEC
(alþjóðlegt félag háskólanema).
Markmiðið með ráðstefnunni er að
efla grasrótarstarf í forvörnum.
Meðal fyrirlesara verða Jakobína
H. Árnadóttir frá Lýðheilsustöð og
Wilhelm Norðfjörð frá Þjóð gegn
þunglyndi. Ástráður, forvarnafélag
læknanema, mun segja frá starfi
sínu. Pallborðsumræður verða
haldnar kl. 16.30.
Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Hvað virkar
í forvörnum?