Fréttablaðið - 11.01.2003, Side 4

Fréttablaðið - 11.01.2003, Side 4
4 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR AFRÍKA KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Ætlar þú að versla á vetrarútsölunum? Spurning dagsins í dag: Ertu hlynnt(ur) aðskilnaði ríkis og kirkju? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 33,5% 31,0%Kannski 35,5% ÚTSÖLUR Ríflega þriðjung- ur ætlar að versla eitthvað á vetrarútsölunum sem nú eru í fullum gangi. Nei Já AFSÖGN Vilhjálmur Egilsson al- þingismaður hefur sagt af sér þingmennsku frá og með 16. jan- úar. Vilhjálmur fer til Wash- ington á morgun ásamt eiginkonu og tveimur börnum. „Þetta er spennandi verkefni,“ segir Vil- hjálmur, sem hefur störf hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum þegar í næstu viku. Aðpurður segir Vil- hjálmur að með brotthvarfi sínu af vettvangi stjórnmálanna hefði átt að vera auðveldara fyrir flokkinn að endurtaka prófkjörið í Norðvesturkjördæmi. Adolf H. Berndsen, fram- kvæmdastjóri á Skagaströnd, tekur sæti á Alþingi í hans stað. Hann hefur tvívegis tekið sæti á Alþingi sem varamaður, fyrst vorið 2001 og svo í fyrrahaust. Adolf tekur jafnframt sæti í efnahags- og viðskiptanefnd og sjávarútvegsnefnd í stað Vil- hjálms. Einar K. Guðfinnsson lætur af formennsku í sjávarútvegsnefnd og tekur við formennsku í efna- hags- og viðskiptanefnd. Árni R. Árnason tekur við formennsku í sjávarútvegsnefnd. Gunnar I. Birgisson verður varamaður í utanríkismálanefnd og tekur sæti í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA í stað Vilhjálms Egilssonar. Varamað- ur í Íslandsdeild þingmanna- nefndar EFTA verður Adolf H. Berndsen. ■ MANNRÉTTINDABROT Í KONGÓ Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hafa yfirheyrt á þriðja hundrað flóttamanna í lýðveldinu Kongó. Komið hafa fram ásakanir á hendur uppreisnarhermönnum um stórfelld mannréttindabrot, þar á meðal nauðganir, tilefnis- lausar aftökur og mannát. Þó bundinn hafi verið endi á átökin í landinu þorir fólkið ekki að snúa heim til sín. YFIRFULL FANGELSI Í RÚANDA Til stendur að láta allt að því 40.000 menn sem grunaðir eru um þjóð- armorð í Rúanda lausa gegn tryggingu. Ástæðan er sú að fangelsi landsins eru yfirfull. Yf- irvöld fullyrða að hinir grunuðu muni engu að síður verða færðir fyrir rétt en fólk sem lifði af hörmungarnar óttast að þeir muni ráðast gegn vitnum. Morð í Danmörku: Mislíkaði dóttirin DANMÖRK Faðir unglingsstúlku frá Írak sem fannst látin í höfninni í Præstø á Suður-Sjálandi í febrúar á síðasta ári hefur verið ákærður fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana. Maðurinn var yfirheyrður þegar lík stúlkunnar fannst en var handtekinn í júní og hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. Faðirinn hefur áður verið ákærður fyrir ofbeldi gegn dótt- urinni, sem að hans mati hegðaði sér um of eins og danskar stúlkur í stað þess að fylgja íslömskum hefðum. Fyrir tveimur árum síð- an reyndi hann að kyrkja hana með rafmagnssnúru eftir að móð- irinn hafði fundið mynd af dönsk- um kærasta stúlkunnar í veski hennar. Í kjölfarið var hún tekin af foreldrunum og komið í fóstur. Nokkru síðar rýmkuðu dómstólar umgengnisrétt foreldranna við dótturina og síðustu mánuðina fyrir lát hennar hafði hún að eigin ósk dvalið langdvölum á heimili þeirra. ■ Tippkeppni Fjölnis: Skiptir um nafn AUGLÝSINGAR Nafn á tippkeppni Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi hefur verið breytt. Heitir keppnin nú Tippkeppni Fjölnis og Kók í stað Carlsberg og Fjölnis. Mistök réðu því að bjórauglýsingar birtust í bæk- lingnum sem dreift var í Grafar- vogi til kynningar á leiknum. Hef- ur formaður Fjölnis, Snorri Hjaltason, látið hafa eftir sér að mistökin lægju alfarið hjá Vífil- felli, umboðsaðila Carlsberg. Vert er að geta þess að rangt var farið með í blaðinu í gær að Snorri Hjaltason hefði hótað aðal- stjórn félagsins afsögn yrði ekki gengið að kröfum hans að engar bjórauglýsingar yrðu notaðar í tengslum við starfsemi Fjölnis. Reyndust heimildir Fréttablaðs- ins ekki eins traustar og blaðið hélt. ■ ATVINNUMÁL Fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn gera ráð fyrir að atvinnuleysi á þessu ári verði 2,8 til 3,25%. Það yrði mesta atvinnu- leysi síðan árið 1997. Samkvæmt könnun Samtaka atvinnulífsins hyggjast fyrirtæki fækka starfs- fólki um að meðaltali 1,55% á næstu tveimur til þremur mánuð- um. Fimmtungur stærri fyrir- tækjanna boðar hópuppsagnir eða uppsagnir tíu starfsmanna eða fleiri. Könnun SA var gerð í desem- ber og náði til um 1.250 fyrirtækja og bárust svör frá um 600 þeirra. Í sambærilegri könnun í júní hugð- ust fyrirtæki að meðaltali fækka fólki um 0,8%. Að meðaltali hyggj- ast fyrirtæki með starfssvæði á landsbyggðinni fækka fólki um 1,9%, en fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu um 0,6%. Fyrirtæki með starfssvæði á landinu öllu hyggj- ast fækka fólki um 1,8%. Áform eru uppi um fækkun fólks í flestum greinum fyrir utan ferðaþjónustu, þar sem fyrirtæki hyggjast fjölga fólki um 0,3%. Fyrirtæki í fiskvinnslu hyggjast fækka starfsfólki mest eða um 4,2% og fyrirtæki í útgerð hyggj- ast fækka um 3,9%. Fyrirhuguð fækkun fólks í sjávarútvegi getur meðal annars átt rætur að rekja til niðurskurðar aflaheimilda, einkum í þorski, og til sameininga í greininni og hagræðingar þeim samfara. Í könnun SA kemur fram að fyrirtæki í iðnaði og í verslun og þjónustu stefna að því að fækka starfsfólki um 2%. Fjármálafyrir- tæki hyggjast fækka um hálft prósent og rafverktakar um 0,3%. Eins og áður virðast fyrirtæki sem eru með yfir 40 starfsmenn ætla að fækka starfsfólki öðrum fremur. Samtök atvinnulífsins hafa áhyggjur af þessu því stóru fyrirtækin eru alla jafna leiðandi í aðlögun að sveiflum í efnahagslíf- inu og því má búast við því að smærri fyrirtækin eigi eftir að ganga í gegnum þessa kreppu. trausti@frettabladid.is JAPÖNSK TÚNFISKVEIÐISKIP Í REYKJAVÍKURHÖFN Japanir hafa í samráði við Hafrannsókna- stofnun og íslenskar útgerðir reynt túnfisk- veiðar djúpt suður af landinu. Íslensk skip hafa verið útbúin til túnfiskveiða. Túnfiskkvóti: 30 tonn til skiptanna TÚNFISKKVÓTI Sjávarútvegsráðu- neytið hefur auglýst lausan til umsóknar túnfiskkvóta sem Ís- land fékk úthlutað. Í framhaldi af inngöngu Ís- lands í Atlantshafstúnfiskveiði- ráðið í fyrra kom 30 tonna kvóti bláuggatúnfisks í hlut Íslands. Um er að ræða veiðiheimildir úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks en útbreiðslu- svæði hans er talið ná frá Græn- höfðaeyjum til Noregs. Útgerðir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessum veiðum skulu sækja um veiðiheimildir til sjáv- arútvegsráðuneytisins fyrir 24. janúar 2003. Við úthlutun verður sérstaklega litið til fyrri veiða skips úr viðkomandi stofni, stærð- ar þess og gerðar. Einnig verður tekið mið af búnaði skips. ■ Samfylkingin í Norðaust- urkjördæmi: Sigurður Þór kosningastjóri KOSNINGAR Samfylkingin í Norð- austurkjördæmi hefur ráðið Sig- urð Þór Salvarsson, fjölmiðla- fræðing á Akureyri og fyrrver- andi deildarstjóra Ríkisútvarps- ins á Akureyri, í stöðu kosninga- stjóra flokksins fyrir alþingis- kosningarnar í vor. Sigurður Þór tekur til starfa um miðjan janúar, en aðalkosningaskrifstofa Sam- fylkingarinnar í Norðausturkjör- dæmi verður á Akureyri. ■ FRANKFURT, AP Samningamenn þýskra stjórnvalda og verkalýðs- félaga náðu í gær samkomulagi í launadeilu sem óttast var að gæti leitt til allsherjarverkfalls starfs- manna í þjónustugeiranum. Sam- komulag náðist um 4,4% launa- hækkanir á 27 mánuðum en verkalýðsfélögin höfðu farið fram á þriggja prósenta hækkun um áramót. Sá árangur náðist í lok 31 klukkustundar samningafundar. Verkalýðsfélögin náðu fram einu helsta baráttumáli sínu um að launamenn í gamla Austur- Þýskalandi skyldu fá greidd jafn há laun og launamenn í því sem hét Vestur-Þýskaland. Talsverður launamunur hefur verið á milli landshlutanna tveggja og efna- hagsástand mun verra í austur- hlutanum en vesturhlutanum. Lutz Trümper, borgarstjóri í Mag- deburg í austurhluta Þýskalands, sagði þetta leiða til þess að borgin þyrfti að segja upp nokkur hund- ruð starfsmönnum til að geta greitt hærri laun. Forystumenn verkalýðsfélaga höfðu hótað verkfalli eftir tvær vikur ef samkomulag næðist ekki. ■ ADOLF H. BERNDSEN Tekur við þing- mennsku og nefndarstörfum af Vilhjálmi Eg- ilssyni sem hverfur til Was- hington. Adolf Berndsen á Alþingi: Vilhjálmur til Washington á morgun SETIÐ UM RÁÐHERRANN Mikil spenna ríkti um niðurstöður síðasta samningafundar stjórnvalda og verkalýðsfélaga. Allsherjarverkfalli afstýrt: Sömu laun í austri og vestri Fimmtungur fyrirtækja boðar hópuppsagnir Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi á þessu ári verði 2,8 til 3,25%. Fjölmörg fyrirtæki hyggjast fækka starfsfólki á næstu tveimur til þremur mánuð- um. Fyrirtæki í sjávarútvegi stefna að um 4% fækkun starfsfólks. ÍSLENSK ERFÐAGREINING Fjöldauppsagnir fyrirtækisins í haust er þær mestu sem um getur. Fjölmörg fyrirtæki boða uppsagnir á næstunni. FJÖLDI ATVINNULAUSRA AÐ MEÐALTALI FRÁ 1980 TIL 2003 Fjöldi Hlutfall af vinnumarkaði 2003* 5.529 2002 3.483 2,4% 2001 2.009 1,4% 2000 1.865 1,3% 1999 2.602 1,9% 1998 3.788 2,8% 1997 5.230 3,9% 1996 5.791 4,4% 1995 6.538 5,0% 1994 6.209 4,8% 1993 5.601 4,4% 1992 3.868 3,0% 1991 1.901 1,5% 1990 2.255 1,8% 1989 2.125 1,7% 1988 820 0,6 % 1987 584 0,4% 1986 823 0,7% 1985 1.105 0,9% 1984 1.481 1,3% 1983 1.187 1,0% 1982 769 0,7% 1981 407 0,4% 1980 331 0,3% *Atvinnulausir 10. janúar EFTIRSPURN Á VINNUMARKAÐI Í KÖNNUN SA 2000-2002 Hyggjast fyrirtæki fjölga eða fækka fólki? (%) Des. 2000 0,3 Júní 2001 0,1 Des. 2001 -0,44 Júní 2002 -0,8 Des. 2002 -1,55

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.