Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 6
ATVINNUMÁL Verktakafyrirtækið
Kraftvaki var á fimmtudag úr-
skurðað gjaldþrota fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Fyrirtækið hlaut
á sínum tíma það verkefni að annast
breytingar á Þjóðminjasafninu en í
haust gafst fyrirtækið upp og sagði
upp smiðum og verkamönnum.
Skuldahali var á eftir fyrirtækinu
eftir að það annaðist breytingar og
viðbyggingu við endurhæfingar-
stofnuna Reykjalund.
Í september hætti Kraftvaki að
greiða starfsmönnum sínum í Þjóð-
minjasafninu laun. Í framhaldi þess
lögðu smiðir og verkamenn niður
vinnu. Einar Bragason trésmiður
var trúnaðarmaður mannskapsins.
„Ég hafði sem trúnaðarmaður
reynt að fá svör um það hvort menn
fengju launin sín sem voru í van-
skilum. Eigandinn bað um frest.
Mannskapurinn lagði niður vinnu á
föstudegi en þegar ég kom til vinnu
eftir helgina var ég rekinn og mér
meinaður aðgangur að húsinu. Ég
krafðist þess að fá eigur mínar. Þeir
létu loks undan en mér var bannað
að tala við mannskapinn. Brott-
reksturinn spurðist þó strax út og
allir félagar mínir hættu. Þeim var
svo öllum sagt upp,“ segir Einar.
Alls misstu 15 smiðir og verka-
menn misstu vinnuna. Portúgalskur
verkamaður var einn þeirra. Einar
segir að erfitt hafi verið hjá mörg-
um að búa við tekjuleysi mánuðum
saman.
„Það er búið að vera mjög erfitt
fjárhagslega hjá mörgum og menn
hafa þurft að lifa á lánum. Portú-
galskur verkamaður sem var í okk-
ar hópi var í afar erfiðri aðstöðu
enda með konu og ungt barn á fram-
færi. Hann þurfti að leita á náðir
kirkjunnar fyrir jólin til að fá mat,“
segir Einar. Hann segir að gjald-
þrotaúrskurðurinn í gær feli í sér
ákveðinn létti fyrir starfsmennina
fyrrverandi. „Nú fáum við atvinnu-
leysisbætur sem við áttum ekki rétt
til í því óvissuástandi sem ríkti,“
segir Einar.
Síðastliðið vor reyndu eigendur
Kraftvaka að framselja sjálfum sér
verkefnið við Þjóðminjasafnið með
því að fela Kvarða Vélsmiðju að
annast verkið. Framkvæmdasýsla
ríkisins rak þá til baka með kenni-
tölubreytinguna. Þá gripu eigend-
urnir fyrirtækjanna tveggja til þess
ráðs að gera samning milli Kvarða
og Kraftvaka um að fyrrnefnda fyr-
irtækið yrði undirverktaki hjá hinu
síðara. Framkvæmdasýsla ríkisins
tók samninginn athugasemdalaust
yfir og hefur nú ásamt Trygginga-
miðstöðinni sömu aðila og áður önn-
uðust framkvæmdirnar í vinnu á
annarri kennitölu sem undirverk-
taka.
rt@frettabladid.is
6 11. janúar 2003 LAUGARDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 46
1.
2.
3.
Sjóvá - Almennar hafa keypt
25% hlutafjár í Eignarhaldsfé-
laginu Stofni ehf. sem er móð-
urfélag P. Samúelssonar hf.
sem m.a. flytur inn þekkta bíla-
tegund. Hvaða?
Innbrotsþjófar notuðu heldur
óvenjulega aðferð til að brjót-
ast inn í verslun Hans Petersen
á Laugavegi. Hvaða?
Ein af okkar ástsælustu söng-
konum hefur söðlað um og
helgað sig myndlist. Hver er
það?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 80.62 -0.26%
Sterlingspund 129.63 -0.42%
Dönsk króna 11.41 -0.21%
Evra 84.79 -0.22%
Gengisvístala krónu 124,09 -0,84%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 391
Velta 6.135 m
ICEX-15 1.334 0,05%
Mestu viðskipti
Kaupþing banki hf. 282.518.260
Grandi hf. 156.838.000
Pharmaco hf. 94.697.295
Mesta hækkun
Kaupþing banki hf. 1,9%
Grandi hf. 1,71%
Íslenskir aðalverktakar hf. 1,47%
Mesta lækkun
Hampiðjan hf. -16,49%
SÍF hf. -0,97%
Baugur Group hf. -0,93%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8778,7 0,0%
Nasdaq*: 1447,6 0,6%
FTSE: 3974,1 1,0%
DAX: 3060,6 0,8%
Nikkei: 8470,5 -0,3%
S&P*: 928,8 0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
SEOUL, SUÐUR-KÓREU, AP Norður-
kóresk stjórnvöld skella skuldinni
af uppsögn sinni á sáttmálanum
gegn frekari útbreiðslu kjarn-
orkuvopna á Bandaríkjamenn.
Þau segja að árásargjörn stefna
Bandaríkjanna gegn þessu ein-
angraða kommúnistaríki hafi orð-
ið til þess að það hafi neyðst til að
segja samningnum upp.
John Bolton, sem fer með
vopnaeftirlits- og öryggismál í
bandarísku stjórnsýslunni, segir
uppsögnina ekki koma á óvart.
„Norður-Kóreumenn virtu sátt-
málann að vettugi þegar þeir voru
aðilar að honum.“
Stjórnvöld í Norður-Kóreu
segjast ekki ætla að koma sér upp
kjarnorkuvopnum en önnur ríki
eru vantrúuð á þá yfirlýsingu.
Bandaríkjamenn telja að Norður-
Kórea sé þegar búin að koma sér
upp einni eða tveimur kjarnorku-
sprengjum.
Japanir hvöttu Norður-Kóreu-
menn til að snúa ákvörðun sinni
við og Suður-Kóreumenn sögðu
lífsspursmál að leysa deiluna um
kjarnorkuvopnaáætlun Norður-
Kóreumanna. ■
Kjarnorkuvopnasáttmála sagt upp:
Spennan magnast í Kóreu
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Ætlar að ræða virkjunarmálið í borgar-
stjórn.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir:
Rætt í
flokknum
STJÓRNMÁL „Ég vil ræða þetta mál í
borgarstjórnarflokknum fyrst,“
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri um afstöðu sína til
þess hvort Reykjavíkurborg sam-
þykki að veita ábyrgð vegna fyrir-
hugaðra virkjunarframkvæmda
við Kárahnjúka.
Eigendanefnd hefur skilað áliti
á arðsemismati Landsvirkjunar
vegna Kárahnjúkavirkjunar þar
sem fram kemur að miklar líkur
séu á hagnaði vegna virkjunarinn-
ar. Innan Reykjavíkurlistans eru
skiptar skoðanir um hvort réttar
forsendur séu að baki arðsemis-
matinu.
Afstöðu borgarstjóra í málinu
hefur verið beðið með nokkurri
eftirvæntingu.
„Það skiptir öllu að fá í hendur
skýrslu um þetta frá hlutlausum
aðilum sem komast að þeirri nið-
urstöðu að aðferðafræðin við arð-
semismatið hafi verið rétt,“ segir
Ingibjörg Sólrún. ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Telur rétt að skoða á ný grundvöll fyrir
rekstri hönnunarmiðstöðvar.
Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra:
Kannar
kostina
IÐNAÐUR Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, vill
endurvekja hugmynd um hönnun-
armiðstöð, líkt og haldið var úti
fyrir nokkrum árum. Ráðherra
hefur skipað nefnd sem ætlað er
að meta ávinning af rekstri slíkr-
ar miðstöðvar fyrir íslenskt at-
vinnu- og efnahagslíf og koma
með tillögur í því sambandi.
Nefndin á meðal annars að leggja
mat á hugsanlegar áherslur í
starfi hönnunarmiðstöðvar, kostn-
að og fjármögnun í slíkri starf-
semi og önnur atriði sem henni
tengjast. Höfð verði hliðsjón af
fyrra starfi hönnunarmiðstöðvar
hér á landi sem og sambærilegu
starfi erlendis á þessu sviði.
Nefndarmönnum er ætlað að skila
tillögum fyrir 6. mars næstkom-
andi. ■
UMSÁTRI LOKIÐ
Vopnaðir lögreglumenn notuðu brunastiga
til þess að kanna aðstæður í íbúð manns-
ins eftir að eldur hafði kviknað í bygging-
unni.
Umsátri lokið:
Lík fannst í
byggingunni
LONDON, AP Lögreglan í Lundúnum
hefur staðfest að tveggja vikna
umsátri við íbúð í austurhluta
borgarinnar sé nú lokið. Eftir að
hafa skipst á byssuskotum við
vopnaðan mann sem hafðist fyrir
í íbúðinni kastaði lögreglan hand-
sprengjum og sprautaði táragasi
inn í íbúðina. Stuttu síðar braust
út eldur, líklega af völdum manns-
ins. Kalla þurfti til slökkviliðs-
menn til að ráða bug á eldinum og
í kjölfarið fóru vopnaðir lögreglu-
menn að byggingunni til að kanna
aðstæður. Komu þeir þá auga á
líkamsleifar sem talið er að til-
heyri byssumanninum, Ely Hall.
Talsmaður lögreglunnar sagð-
ist harma að umsátrinu skyldi
ljúka með þessum hætti en viður-
kenndi að mikill léttir væri að
fleiri líf skyldu ekki hafa glatast.
Maðurinn hafði að sögn tals-
mannsins gefið í skyn að hann
ætlaði sér ekki að nást lifandi og
hótað því að verða lögreglumanni
að bana í skotbardaganum.
Af öryggisástæðum urðu lög-
reglumenn að bíða úrskurðar
verkfræðings áður en þeir fengu
að fara inn í húsið til þess að
sækja líkið og framkvæma vett-
vangsrannsókn. Dánarorsök
mannsins er því enn ókunn en bú-
ist er við að krufning muni varpa
frekara ljósi á málið. ■
Verkamaður Kraftvaka
leitaði til kirkjunnar
Kraftvaki úrskurðaður gjaldþrota. Forsvarsmenn ráku í haust trúnaðar-
mann sinn í Þjóðminjasafninu og sögðu upp fimmtán starfsmönnum.
Frosthörkur í Rússlandi:
Heimilislausir frjósa í hel
MOSKVA, AP Ekkert lát virðist
vera á gífurlegum frosthörkum
sem herjað hafa í Rússlandi und-
anfarna daga og vikur. Veturinn
er einn sá versti í manna minn-
um og nú þegar hafa 270 manns
látið lífið af völdum kuldans auk
þess sem á þriðja þúsund manns
hafa leitað til læknis vegna kals
og ofkælingar.
Flestir hinna látnu eru heimil-
islaust eða drukkið fólk sem
finnur ekki húsaskjól og sofnar
á víðavangi. Þessu fólki er iðu-
lega hent út af lestarstöðvum og
öðrum opinberum stöðum af lög-
reglunni. Í Moskvu rekur hið op-
inbera aðeins átta athvörf fyrir
heimilislausa borgarbúa, sem
eru u.þ.b. 100.000 talsins. Engu
að síður eru þau sjaldnast
fullsetin jafnvel þó frostið fari
niður fyrir -30˚C. Fólkið ber því
við að því sé vísað á brott frá at-
hvörfunum vegna þess að það
hefur engin persónuskilríki.
Yfirvöld í Rússlandi hafa ver-
ið harðlega gagnrýnd fyrir að-
gerðaleysi í málum þessa ólán-
sama fólks og talsmaður Lækna
án landamæra líkir ástandinu
við hernaðarátök. Samtökin, sem
eru með hjálparstarf í landinu,
hafa þrýst á stjórnvöld að fjölga
athvörfum á köldustu dögunum
og hætta að krefjast skilríkja. ■
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ
Aðalverktaki við yfirstandandi breytingar hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Eigendurnir
eru enn í vinnu í safninu en nú sem undirverktakar.
EINAR BRAGASON
Trúnaðarmaður Kraftvaka var rekinn eftir
að starfsmennirnir í Þjóðminjasafninu
lögðu niður störf.
KIM JONG-IL
Norður-Kóreumenn vara Bandaríkjamenn við því að bregðast of harkalega við og segja
stríð á Kóreuskaga upphafið að þriðju heimsstyrjöldinni.
52 féllu í bardögum:
Börðust
um naut
KAMPALA, ÚGANDA, AP Átök tveggja
úganskra ættbálka um nautgripi
enduðu með því að 52 menn lágu í
valnum eftir tveggja daga bar-
daga.
Upphafið að bardögunum var
að menn af Pokot-ættbálknum fóru
yfir landamæri Kenýa og Úganda
til að stela nautgripum frá mönn-
um af Karamojong-ættbálknum.
Ættbálkarnir tókust á í tvo daga
áður en úganski herinn tók í taum-
ana og stöðvaði bardaga þeirra. Þá
höfðu 35 Pokotar og 17 Kara-
mojongar fallið í bardögunum en
eftirlifandi Pokotum tókst að flýja
með nokkra tugi nautgripa. ■
HEIMILISLAUS
Þessi gamli maður yljaði sér og kettinum
sínum í neðanjarðarlestakerfi Moskvuborg-
ar meðan frostið úti fyrir fór niður í -31˚C.