Fréttablaðið - 11.01.2003, Síða 16
16 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
LAUGARDAGUR
14.20 Stöð 2
Alltaf í boltanum
14.45 Stöð 2
Enski boltinn
14.50 RÚV
Stjörnuleikur KKÍ
15.00 Ásvellir
Stjörnuleikur KKÍ
15.00 Sýn
Football Week UK
16.00 KA-heimilið
Handbolti kvenna (KA/Þór -
ÍBV)
17.00 Keflavík
Bikark. kvenna karfa (Keflavík
B - Keflavík)
17.00 Sýn
Toppleikir (Arsenal - Chelsea)
17.15 Helsinge Höllin
Landsleikur í handbolta (Dan-
mörk - Ísland)
17.15 RÚV
Meistari Ólafur
22.30 Sýn
Hnefaleikar - David Tua (David
Tua - Michael Moorer)
SUNNUDAGUR
13.45 Sýn
Enski boltinn (Tottenham - Ev-
erton)
16.00 Sýn
Enski boltinn (Birmingham -
Arsenal)
18.00 Sýn
NFL (Ameríski fótboltinn)
19.00 Egilshöll
Reykjavíkurmót í fótbolta
(Fjölnir - Fylkir)
19.15 Grindavík
Karfa kvenna (UMFG - KR)
19.15 Ásvellir
Karfa kvenna (Haukar - UMFN)
21.00 Egilshöll
Reykjarvíkurmót í fótbolta
(Leiknir R. - Valur)
21.30 Sýn
NFL (Ameríski fótboltinn)
PAT RAFTER
Vann Opna bandaríska tennismótið tvisvar.
Breytingar í tennis-
heiminum:
Rafter legg-
ur spaðann
á hilluna
TENNIS Ástralski tennisleikarinn
Pat Rafter hefur lagt spaðann á
hilluna. Rafter, sem er þrítugur
að aldri, var eitt sinn efstur á
stigalista Alþjóða tennissam-
bandsins og hefur meðal annars
unnið Opna bandaríska mótið
tvisvar.
Rafter hefur ekki spilað leik
síðan í úrslitum Davis Cup-móts-
ins árið 2001 þegar Ástralar
lögðu Frakka að velli. Hann var
búinn að gefa til kynna að hann
myndi taka þátt í móti á þessu ári
eftir að hafa jafnað sig af meiðsl-
um. Hann lét þó ekki verða af
því. ■
OLIVIER DACOURT
Franski leikmaðurinn er á leið til Roma frá
Leeds.
Olivier Dacourt:
Leigður
til Roma
FÓTBOLTI Olivier Dacourt, leik-
maður Leeds United, hefur ver-
ið lánaður til ítalska knatt-
spyrnufélagsins Roma. Hann
mun leika með liðinu út þetta
tímabil en þá gefst Roma tæki-
færi á að kaupa leikmanninn.
Dacourt gekk til liðs við
Leeds frá Lens í maí árið 2000
fyrir 7 milljónir punda. Hann
hefur átt erfitt uppdráttar undir
stjórn Terry Venables, knatt-
spyrnustjóra Leeds. Hann lék
síðast með liðinu í október síð-
astliðnum gegn Hapoel Tel Aviv.
Talið er að Dacourt verði í byrj-
unarliðinu hjá Roma þegar liðið
mætir Chievo á sunnudaginn
kemur.
„Mér hefur alltaf líkað vel
við leikstíl hans og hann verður
fljótur að aðlagast ítölsku knatt-
spyrnunni,“ sagði Fabio Capello,
knattspyrnustjóri Roma, sem
hefur verið á höttunum eftir
Dacourt í lengri tíma. ■
HNEFALEIKAR George Foreman,
fyrrverandi heimsmeistari í
þungavigt, verður vígður inn í
hóp hinna bestu, Hall of Fame, á
þessu ári. Foreman er einn 16
hnefaleikakappa sem verða
vígðir inn í höllina þann 8. júní
næstkomandi.
„Þetta er mikil gleðistund
fyrir mig,“ sagði Foreman þegar
hann frétti af vígslunni. „Þegar
ég heimsótti höllina í fyrsta
skipti fyrir nokkrum árum sá ég
handavafning Joe Louis. Það var
þá sem ég gerði mér vonir um að
fá nafn mitt skráð þar.“
Foreman vann til gullverð-
launa á Ólympíuleikunum 1968.
Hann vann fyrstu 37 bardagana
sem atvinnuboxari þar til hann
tapaði fyrir Muhammad Ali árið
1974, í stærsta bardaga sögunn-
ar. Hann stundaði hnefaleika til
ársins 1977, þegar hann hætti til
að gerast predikari. Hann snéri
þó aftur í hringinn tíu árum síð-
ar.
Þegar hann var 45 ára rotaði
hann Michael Moorer, sem þá
var 26 ára, og vann bæði WBA-
og IBF-titlana. Hann varð þar
með elsti heimsmeistarinn í
hnefaleikum.
Foreman lagði hanskana á
hilluna árið 1997 og hafði þá sett
nýtt met, unnið 76 bardaga en
aðeins tapað fimm. ■
Predikarinn
fær nafn sitt skráð
MEÐ BIBLÍUNA Í HENDI
George Foreman er þekktur undir nafninu
predikarinn. Hér sést hann glaðbeittur
með Biblíuna í hendi.
HANDBOLTI Sigfús Sigurðsson, leik-
maður þýska liðsins Magdeburg
og íslenska landsliðsins í hand-
bolta, undirbýr sig nú af fullum
krafti fyrir heimsmeistaramótið
sem hefst í Portúgal í lok mánað-
arins.
Vegna meiðsla í nára missti
Sigfús af tveimur fyrstu leikjum
Íslands gegn Slóveníu sem háðir
voru fyrir skömmu. Hann segist
vera orðinn góður af meiðslunum
og til í slaginn fyrir HM.
Að sögn Sigfúsar hefur verið
leikið stíft í Magdeburg undanfar-
ið og hefur hann ekki fengið neina
hvíld að ráði síðan í september.
„Við erum búnir að spila mikið og
eiginlega búnir að spila fast
tvisvar í viku. Síðustu vikuna í
desember spiluðum við þrjá leiki,
síðan var meistarakeppni hjá okk-
ur og þá spiluðum við tvo leiki
sömu helgina. Síðan eru öll þessi
ferðalög sem ég er ekki vanur
hérna heima,“ sagði Sigfús þegar
Fréttablaðið náði tali af honum.
Líður vel í Þýskalandi
Aðspurður segir Sigfús að sér
líði afar vel úti í Þýskalandi. „Fé-
lagskapurinn í liðinu er góður og
fólkið í borginni er mjög
skemmtilegt og gott. Það gengur
bara allt mjög vel.“ Hann segist
hafa fundið sig vel í liði Magde-
burg síðan hann gekk til liðs við
það fyrir þessa leiktíð. „Mér hef-
ur gengið alveg ótrúlega vel að
komast inn í þetta hjá þeim. Þegar
ég fór á Selfoss á sínum tíma tók
það tvo til þrjá mánuði að komast
inn í spilamennskuna hjá liðinu en
þetta kom bara strax í fyrsta leik
hérna.“
Að sögn Sigfúsar er handbolt-
inn í Þýskalandi í háum gæða-
flokki. „Þetta er mjög sterk deild
og ég held að það séu bara eitt eða
tvö lið hérna heima sem hefðu
eitthvað að gera í Bundesliguna
og þá væru þau líklegast stödd frá
tíunda sæti og niður úr.“
Þegar Sigfús er ekki að æfa
stundar hann þýskunámið stíft og
segir það ganga alveg ágætlega.
Þar fyrir utan eyðir hann tölu-
verðum tíma í sjúkraþjálfun og
nudd til að halda sér gangandi.
Íslenska liðið
gæti náð langt
Sigfús hefur sjálfur ekki sett
sér markmið fyrir HM en telur að
íslenska liðið gæti náð langt. „Mér
finnst við alveg eiga að geta farið
alla leið ef við höldum rétt á spöð-
unum. Menn þurfa að spila saman
sem lið en ekki sem einstakling-
ar.“
Sigfús segist ekki eiga sér
neinn leikmann sem hann líti upp
til umfram annan. Hann segir
hins vegar að Ólafur Stefánsson,
samherji sinn hjá Magdeburg og
landsliðinu og nýkjörinn íþrótta-
maður ársins, hafi stutt vel við
bakið á sér síðan hann kom til
Þýskalands. „Við höfum talað
mikið saman og rætt ýmsa hluti
og það skilar sér með betri sam-
skiptum og betri vináttu. Síðan ég
kom út er hann búinn að vera mín
stoð og stytta og hefur eiginlega
bjargað mér.“ Þess má geta að Al-
freð Gíslason, fyrrverandi lands-
liðsmaður í handbolta, er þjálfari
Magdeburg og fékk hann Sigfús
til félagsins á sínum tíma.
Sigfús, sem er 27 ára gamall,
gerði tveggja ára samning við
Magdeburg fyrir þessa leiktíð og
segist stefna að því að halda
áfram í atvinnumennskunni
næstu árinu. Aðspurður hvort at-
vinnumennskan sé ekki erfitt
starf segir hann tvær hliðar vera
á því. Það auðvelda sé að hann
þurfi ekki að vinna með handbolt-
anum en ýmislegt annað geri
starfið erfitt. „Álagið og pressan
eru miklu meiri en þetta lærist.
Þetta kemst upp í vana eins og allt
annað sem maður gerir.“
freyr@frettabladid.is
Sigfús Sigurðsson handboltakappi undirbýr sig af fullum
krafti fyrir HM í Portúgal í lok mánaðarins. Honum líkar
lífið vel sem atvinnumaður hjá þýska liðinu Magdeburg og
leggur stund á þýskunám í frítíma sínum.
SIGFÚS
Sigfús Sigurðsson hefur staðið í ströngu með Magdeburg undanfarið.
Í LANDSLEIK
Línumaðurinn knái Sigfús Sigurðsson í
leik íslenska landsliðsins gegn Slóveníu
á þriðjudaginn. Hann segist hlakka
rosalega mikið til að komast í átökin
á HM í Portúgal.
Iðkar þýsku-
nám af kappi
George Foreman í Hall of Fame: