Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2003, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 11.01.2003, Qupperneq 20
20 11. janúar 2003 LAUGARDAGUR Það var bara kominn tími til aðhætta. Þetta hefur verið óhemju mikil fjarvera svo nú tekur við að eyða tíma með kon- unni og börnunum,“ segir Brynjólfur, sem á þrjú uppkomin börn og sex barnabörn og segist vissulega hafa misst af mörgum stórviðburðum í fjölskyldunni. „Ég var nú til dæmis aldrei í landi þegar börnin fæddust og 15 sinnum á sjó yfir jól og áramót. Þegar veitt var fyrir erlendan markað var keppst um að halda skipunum úti um jólin og selja í byrjun janúar. Þá voru engir aðr- ir á sjó svo við áttum markaðinn og verðið gat farið upp úr öllu valdi. En það var líka þannig að þegar ég var heima á annað borð þá áttu börnin mig með húð og hári og þýddi nú lítið að ætla að vera stikkfrí.“ Brynjólfur viðurkennir að erfitt sé að mynda tengsl við fjöl- skylduna á einum sólarhring á hálfsmánaðar fresti, en seinni árin hafi hann tekið mun lengri frí. „Ég tók mér frí svona þriðja hvern túr. En ég get sagt þér að konan mín er búin að byggja þrisvar. Þær verða svo sjálfstæð- ar, sjómannskonurnar, og þýddi lítið fyrir mig að ætla að fara að stjórna þegar ég kom í land. En maður aðlagar sig,“ segir Brynjólfur brosandi. Þá var maður frjáls Brynjólfur er ekki uggandi um framtíð sjávarútvegsins þrátt fyrir að menn sæki nú mun minna í nám tengt sjósókn. „Það er í sjálfu sér eðlilegt að menn langi ekki á sjó. Þegar ungt fólk er að spá í að stofna heimili finnst því að sjálfsögðu ekki eft- irsóknarvert að annar aðilinn sé meira og minna að heiman. Ungu mennirnir sem koma á skipin í dag sjá það yfirleitt ekki fyrir sér sem ævistarf og eru alltaf á leiðinni eitthvert annað. En ef ég persónulega gæti byrjað upp á nýtt myndi ég gera nákvæmlega það sama.“ Brynjólfur man tímana tvenna í sjósókninni og segir að spennan hafi verið miklu meiri hér áður fyrr. „Þegar ég var að byrja þá sigldi maður út á sundin og hugs- aði með sér: Ætti ég að fara á Austur-Grænland eða eitthvert annað. Maður hleraði eftir frétt- um hjá loftskeytamönnum og ef lítið var að hafa á heimamiðum þá skellti maður sér yfir. Þá var mað- ur frjáls,“ segir Brynjólfur með glampa í augunum. „Það er ekki hægt að líkja þessu saman, núna fær maður að vita hvað má veiða áður en maður fer og verður að taka þetta af þessari tegundinni og hitt af hinni. Það er auðvitað ekki nærri því jafn spennandi að vera bundinn af kvóta og reglu- gerðum.“ Brynjólfur segist alltaf hafa verið heppinn með áhöfn og fátt leiðinlegt eða slæmt gerst um borð í hans skipi. „Það kom auð- vitað fyrir að menn veiktust eða fengu slæmar fréttir að heiman, og þá er ekki auðvelt að vera á sjó. En yfirleitt reyndi maður að koma þessum mönnum heim með ein- hverju móti, ef við vorum staddir í úthafi komum við viðkomandi á skip sem var á heimleið. En það hefur verið furðu rólegt yfir minni áhöfn alla tíð. Ég lenti einu sinni í því að maður varð bráð- kvaddur við vinnu sína um borð og það var að sjálfsögðu erfitt. Ég hef þó aldrei þurft að vera beint í sálusorgarahlutverki, menn standa bara saman þegar eitthvað bjátar á og ég er óskaplega þakk- látur fyrir hversu vel hefur geng- ið.“ Sjóveikur í tíu ár Brynjólfur jánkar því hlæjandi að hann hafi einhvern tíma verið hræddur til sjós. „Ég var hræddur við hvert einasta híf. Ég var alltaf öskrandi og æpandi í brúnni og skíthræddur um mennina á dekk- inu. Skíthræddur,“ endurtekur Brynjólfur. „En maður á að vera hræddur. Ég er líka einn af fáum skipstjórum sem hafa verið með heyrnleysingja um borð, það hef- ur einhvern veginn fylgt mér. En það var merkilegt með þá að þeg- ar önnur hreyfing kom á skipið skynjuðu þeir það á sérstakan hátt og svo heyrðu þeir ískrið þeg- ar ég flautaði skipsflautunni.“ Brynjólfur horfir hugsandi fram fyrir sig og segir svo: „Ég var líka sjóveikur. Í tíu ár var ég bullandi sjóveikur. Þá bráði yfir- leitt af mér á þriðja degi, en svo lagaðist þetta með árunum.“ Sjávarháski við Nýfundnaland Brynjólfur komst í hann krapp- an við Nýfundnaland árið 1959 þegar hann var skipstjóri á Mars. „Við vorum nýkomnir á miðin þegar gerði norðanveður með miklu frosti. Við börðum ís í tvo sólarhringa, en sem dæmi um ís- inguna varð vír sem er eins og litli putti á þykkt eins og tunnubotn á sex klukkutímum. Þorkell Máni og Júlí voru þarna að veiðum og við heyrðum í Júlí um kvöldið. Um morguninn heyrðist ekkert í honum, hann var farinn niður með allri áhöfninni.“ Brynjólfur verð- ur alvarlegur á svip. „Við gerðum okkur samt enga grein fyrir því fyrr en eftir á hversu hætt við vorum komnir. Þorkell Máni lenti í hörmulegum vandræðum og þegar við komum að honum var áhöfnin hangandi í böndum fram á hvalbak berjandi ís. Þeir björg- uðu sér svo með því að brenna björgunarbátana utan af skipinu með logsuðutæki. Annars hefðu þeir farið á hliðina og horfið líka. Þetta var mikið slysaár,“ segir Brynjólfur. „Hálfum mánuði seinna fórst Hermóður í aftaka- veðri undan Stafnesi.“ Ferskur fiskur á 18. degi Tækjabúnaður og aðbúnaður hafa að sjálfsögðu tekið stökk- breytingum á ferli Brynjólfs. „Þetta breyttist náttúrlega svo mikið þegar horfið var frá því að gera að í það að fullvinna aflann. Menn eru eiginlega allir komnir undir þilfar.“ Hann vill þó ekki viðurkenna að fiskurinn hafi verið orðinn óætur hér áður fyrr þegar komið var með hann til hafnar eftir langt volk á sjó. „Þetta var allt sett í ís eða salt og ekkert orðið lélegt. Við vorum kannski að selja á 18. degi í Þýskalandi, al- veg öndvegis fisk. Einu sinni gáf- um við umboðsmanni í soðið, sem bauð vinkonu sinni í þorskveislu. Hún kvartaði sáran yfir því að það vantaði fisklyktina. Svona var nú fiskurinn ferskur,“ segir Brynjólfur. Kvótinn nauðsynlegur Hvað kvótamálin varðar er Brynjólfur á því að kvótinn sé nauðsynlegur. „Maður gerir sér grein fyrir því að það verður að vera kvóti. Það er sama hvert litið er, fiskurinn er alls staðar að minnka, nema hugsanlega ýsan, það veit ég fyrir víst. En framsal- ið var kannski della. Þegar kvót- inn var settur á hefði átt að setja hann á allt strax í byrjun. Vanda- málið með kvótakerfið er að ríkis- stjórnin á hverjum tíma verður að geta ráðið skipafjöldanum sem á að ná í þennan kvóta. Það er út í hött að hægt sé að koma með göm- ul skip sem aðrir eru hættir að nota og ætla sér að kaupa kvóta, enda fer það að líða undir lok. En það þarf að vera hægt að hagræða milli útgerða, að ég tali nú ekki um innan útgerðar.“ Davíð og Jóhannes bíða En nú er Brynjólfur sem sagt sestur í helgan stein. „Ég hefði getað verið lengur, en ég er orðinn lúinn. Fæturnir eru ekki í sem bestu lagi, það er algengt hjá sjó- mönnum. En ég kvíði ekki fram- tíðinni. Ég fer í sund á hverjum degi og dunda svo með konunni og börnunum.“ Brynjólfur segist gera sér grein fyrir því að það séu ekki síð- ur viðbrigði fyrir eiginkonuna að hafa hann nú heima öllum stund- um. „Ég hef samt engar áhyggjur af því að hún fái nóg af mér,“ seg- ir hann glaðhlakkalegur. „Við dúll- um okkur eitthvað saman. Hún hefur alltaf verið ofboðslega hrædd í bíl með mér þegar ég kem af sjónum og segir að ég sé alveg „úti að aka“, sem er hárrétt hjá henni. En þetta jafnar sig alltaf allt með tímanum. Nú nota ég líka tímann til að lesa góðar bækur og slaka á. Davíð og Jóhannes úr Kötlum eru til dæmis aldrei langt undan,“ segir Brynjólfur, „og ekki amalegt að geta endurnýjað kynn- in við þá.“ ■ Hetjur hafsins láta ekki alltaf mikið yfir sér og óhætt að segja að Brynjólfur Halldórsson, skipstjóri og aflakló í hálfa öld, taki lífinu af æðruleysi og stóískri ró. Hann fór fyrst til sjós í mars árið 1953, þá ungur maður, og hefur starfað við sjósókn óslitið síðan. Brynjólfur tók við skipstjórn á gufutogaranum Geir árið 1965 og síðan hefur hann staðið í brúnni og borið ábyrgð á lífi og limum sinna manna, og því hvort vel gengur í túrnum. Hann var síðast skipstjóri á Frera, en hefur stýrt fjölmörgum togurum farsællega í gegnum tíðina. Nú er Brynjólfur kominn í land. Maður á að vera hræddur KEMPA Í 50 ÁR Brynjólfur Halldórsson skipstjóri steig af skipsfjöl í síðasta sinn nú rétt fyrir jólin eftir 50 ára farsælt starf á sjónum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.