Fréttablaðið - 11.01.2003, Page 27

Fréttablaðið - 11.01.2003, Page 27
FÁTÆKT Sigurbjörn Sveinsson, for- maður Félags íslenskra heimilis- lækna, segir að heimilislæknar verði varir við fátækt í þjóðfélag- inu. „Við höfum svolítið yfirlit yfir þetta því það er alls konar fólk sem kemur til okkar,“ segir Sigurbjörn. „Ég er búinn að starfa sem læknir í Reykjavík í 13 ár. Þegar ég byrj- aði hér árið 1989 vorum við að fara inn í mjög erfitt tímabil atvinnu- leysis og efnahagsþrengingar. Ég get alveg sagt það að ég sé ekki meiri fátækt núna heldur en þá. Ég sé minni vandamál vegna atvinnu- leysis og betri stöðu þeirra hópa sem þá stóðu illa, eins og til dæmis einstæðra mæðra, þannig að ef ég ber þessa tíma saman erum við miklu betur stödd núna. Það kann að vera að þeir sem búa við sára fátækt nú séu mjög afmarkaður hópur.“ Sigurbjörn segist ekki telja að fátækir í dag geti ekki sótt lækn- isþjónustu vegna peningaleysis. Ef fólk forgangsraði rétt eigi það að hafa efni á henni þótt í sumum tilfellum sé þjónustan hlutfalls- lega dýrari fyrir þá sem hafi það hvað verst. Hann bendir á að ör- yrkjar þurfi til dæmis að greiða 250 krónur fyrir læknisþjónust- una. Aðspurður um það hvernig heimilislæknar verði var- ir við fátækt segir Sigur- björn að andlegir erfið- leikar og áhyggjur dragi úr þrótti líkamans til að fást við líkamlega sjúk- dóma. „Það er eldgamalt skammaryrði að segja sig til sveitar. Flest fólk hefur einhverja þá sjálfsvirð- ingu sem gerir því erfitt að bera þetta fram fyrir lækni sínum og öðrum. Það ber harm sinn í hljóði. Það er ekki her manna á Íslandi að reyna að komast á sósí- alinn. Það er sem betur fer goð- sögn.“ Sú óreiða sem oft leiðir til fá- tæktarinnar er alvarlegri heilsu manna heldur en fátæktin sjálf, að mati Sigurbjörns. Hann segir að það sem helst hrjái fólk sem eigi um sárt að binda vegna fjárhagsá- hyggna sé geðlægð, kvíði og þung- lyndi. Hann segir að það sem helst þurfi að gera hérlendis sé að skil- greina fátækt. „Menn verða að reyna að skilgreina vandamálið og takast síðan pólitískt á um lausnirnar. Það á að geta orðið til þverpólitísk samstaða um að búa til ákveðinn kvarða til að mæla fá- tækt. Í framhaldinu er hægt að greina hverjir það eru sem búa við fátækt og taka síðan á vanda- málinu. Ef þetta er ekki gert verð- ur umræðan um fátækt algjörlega ómarkviss sem leiðir til þess að þeir sem helst eiga að njóta ávaxt- anna af umræðunni fá ekki neitt út úr henni. Ég hef þá kenningu að alveg sama hvað þjóðfélagið verður ríkt þá verður alltaf til fátækt. Það er innbyggt í þjóðfélagið að það er alltaf einhver sjötti partur sem stendur illa og þetta er afleiðing hins vestræna efnahagskerfis. Fá- tækt mun ekki hverfa og það munu alltaf verða einhverjir skil- greindir fátækir í þjóðfélagi breytinganna.“ ■ 27LAUGARDAGUR 11. janúar 2003 1. Fátækt er það þegar einstak- lingar eða fjölskyldur eiga ekki fyrir brýnustu nauðþurftum að því er varðar klæði, mat og húsa- skjól. Því hefur verið haldið fram af félagsfræðingi sem hefur skoðað þessi mál að til dæmis vanti 40 þúsund krónur upp á líf- eyrisgreiðslur úr almannatrygg- ingakerfinu til þess að þær sam- svari því sem hefur verið skil- greint sem lágmarksframfærslu- þörf af félagsmálaráðuneytinu og sveitarfélögum. 2. Það eru margir á Íslandi hnepptir í fjötra fátæktar. Ég býst við að það séu á milli 10 og 15 þúsund manns sem hreinlega líða skort og stór hluti þessa hóps leitar til Mæðrastyrksnefndar. Við sjáum að fátækin er að verða sýnilegri í þjóðfélaginu. Þeir sem eru fátækir eru ekki síst einstæð- ir foreldrar og forsjárlausir feð- ur, ásamt lífeyrisþegum og at- vinnulausum. 3. Fátækt er að aukast verulega á Íslandi og ég tel að öryggisnet velferðarkerfisins sé brostið. Við sjáum það á tölum frá þeim sem sækja sér aðstoð til Mæðra- styrksnefndar og annarra hjálp- arstofnanna. Við sjáum það í fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, sem hefur aukist um 40 til 50% á síðastliðnu ári. Stjórnvaldsað- gerðir hafa átt veigamikinn þátt í þessari breytingu sem við sjáum núna, meðal annars með frystingu skattleysismarka og skerðingu á barnabótum, lífeyr- isgreiðslum og atvinnuleysisbót- um. Ríkisvaldið hefur í raun ver- ið að velta vandanum yfir á sveitarfélögin. Meðal annars vegna skerðingar ríkisvaldsins á kjörum þeirra tekjulægstu hefur fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna blásið út, einkum í Reykjavík. 4. Treysta þarf öryggisnet vel- ferðarkerfisins. Til að ná því markmiði þarf að skilgreina lág- marksframfærslukostnað fjöl- skyldna og gera tillögur til úr- bóta sem miða við að enginn hafi sér til framfærslu tekjur undir skilgreindum framfærslukostn- aði. Það sem brýnast er að gera er að afnema skatta af lágtekju- fólki og lífeyrisþegum sem hafa sér til framfærslu tekjur undir lágmarkslaunum. Setja það í lög að hækkun hjá lífeyrisþegum og atvinnulausum verði aldrei lægri en launavísitala. Það þarf að taka húsnæðiskerfið fyrir láglauna- hópa til heildarendurskoðunar og endurreisa félagslegt húsnæðis- kerfi á Íslandi. Þá þarf að ráðast í það að breyta barnabótakerfinu, sem er ekki orðið annað en bóta- kerfi fyrir þá sem hafa allra lægstu launin. Síðan þarf að fara nákvæmlega í saumana á því hvað hægt er að gera til þess að lækka matvælaverð. ■ 1. Það er til stærðfræðileg skil- greining sem segir að þeir séu fá- tækir sem hafi minna en helming- inn af meðalframfærslulífeyri. Þessi skilgreining er mjög gölluð. Þetta er spurningin um hlutfalls- lega neyslugetu, hvað hefurðu mikla neyslugetu í samanburði við aðra í þjóðfélaginu. Maður getur verið fátækur á Íslandi þótt hann teldist vellauðugur einhvers staðar annars staðar í heiminum. Þessi skilgreining hefur líka það í för með sér að fólk sem á miklar eignir en engar tekjur er fátækt. Hún hefur líka þann galla að ef öll laun og allar bætur eru tvöfaldað- ar eru alveg jafnmargir fátækir og nákvæmlega sama fólkið. Þessi skilgreining hefur þessa ann- marka en við verðum að hafa eitt- hvað til að mæla við. Ég myndi helst vilja hafa eitthvert annað orð yfir þetta eins og til dæmis hlutfallsleg neyslugeta, því við notum svo oft hugtakið fátækt jafnframt yfir fólk sem er að deyja úr hungri, sem er þá vænt- anlega raunverulega fátækt og í allt annarri stöðu. 2. Það er vissulega til fátækt á Ís- landi miðað við það að sumir hafa mjög lítið til framfærslu. Ég vil benda á það að fíkn ýmiss konar hefur aukist, eins og áfengisfíkn, eiturlyfjafíkn og spilafíkn. Þessari fíknir hafa það í för með sér að fjölskyldur fíkla búa oft á tíðum við afskaplega sára fátækt og það er eiginlega óháð tekjum heimilis- ins. Ég held að menn verði að bregðast við þessu, þetta er nýr vandi sérstaklega eiturlyfja- og spilafíknin. 3. Ég hugsa að eftir að laun hækk- uðu þetta mikið á síðustu sjö árum hafi þessi hlutfallslega fátækt ör- ugglega aukist. Það hafa ekki allir haldið takti við launahækkanirnar, til dæmis hefur lífeyrir frá lífeyr- issjóðunum hækkað eins og verð- lag en ekki eins og laun. Nú er gerð almenn krafa um að menn eigi bíl og fari í utanlandsferðir en það eru einhverjir sem geta þetta ekki. Þó að þetta hefði ekki verið talin fátækt fyrir fáeinum áratug- um þá þykir það fátækt í dag. Þetta sýnir hvað þetta hugtak er breytilegt. 4. Fyrst og fremst þarf að halda uppi atvinnu, þannig að allar vinnufúsar hendur geti unnið. Þá hafa aðrir en fíklar oft á tíðum getað unnið sig út úr fjárhags- vandræðum sínum. Það er kannski einkenni á Íslandi að menn hafa getað unnið sig upp úr fátækt og eru ekki ævilangt brenndir fá- tækt. Fátækt er ekki persónuein- kenni. Menn geta breytt fátækt- inni með því að fá sér betur laun- aða vinnu, menntað sig betur og lært ný störf. Þannig geta menn komið sér upp í stöðu þeirra sem hafa sæmilega neyslugetu. ■ Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar: Tíu til fimmtán þús- und manns líða skort Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins: Fíkn hefur aukist JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR „Ríkisvaldið hefur í raun verið að velta vandanum yfir á sveitarfélögin.“ PÉTUR BLÖNDAL „Nú er gerð almenn krafa um að menn eigi bíl og fari í utanlandsferðir en það eru einhverjir sem geta þetta ekki.“ Þingmennirnir Jóhanna Sigurðardóttir og Pétur Blöndal voru spurð eftirfarandi spurninga: 1. Hvað er fátækt? 2. Er fátækt á Íslandi? 3. Hefur fátækt verið að aukast á Íslandi og hvers vegna? 4. Hvað er hægt að gera til að sporna gegn aukinni fátækt? ÁTANDIÐ VAR VERRA FYRIR RÚMUM ÁRATUG Sigurbjörn Sveinsson, formaður Félags heimilislækna, segir að árið 1989 hafi þjóðfélagið gengið í gegnum mjög erfitt tímabil atvinnuleysis og efnahagsþrenginga. Ástandið í dag sé ekki jafn slæmt og þá. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Félags heimilislækna: Hefur séð það svartara Könnun Fréttablaðs- ins á fátækt á Íslandi: Um 6,6% segjast fátækir FÁTÆKT Um 6,6% Íslendinga búa við fátækt samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Þetta jafngildir því að tæplega 19 þúsund manns telji sig búa við fátækt. Talsvert fleiri konur en karlar segjast búa við fátækt, eða 8,1% kvenna og 5,1% karla. Samkvæmt könnuninni virðist fátækt vera lítið eitt algengari á landsbyggðinni en í þéttbýli. Um 6,8% íbúa á landsbyggðinni segjast búa við fátækt, en 6,4% íbúa í þéttbýli. Fátækt meðal kven- na er algengari í þéttbýli en úti á landsbyggðinni. Um 8,4% kvenna í þéttbýli segjast búa við fátækt en 7,6% á landsbyggðinni. Þessu er öf- ugt farið hjá körlum. Um 6% karla á landsbyggðinni segj- ast búa við fátækt, en 4,4% karla í þéttbýli. Samfylkingin virðist njóta stuðnings langflestra þeirra sem búa við fátækt, en tæp- lega helmingur hyggst kjósa flokkinn í kosningunum í vor. Um 64% fátækra eru á and- vígir ríkistjórninni en 28% hlynntir. Þegar skoðað er til hvaða stjórnmálamanns fá- tækir bera mest traust, sker Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sig úr. Davíð Oddsson forsæt- isráðherra nýtur minnst trausts á meðal fátækra sam- kvæmt könnunni. Í könnuninni var leitað svara hjá 600 manns úr síma- skrá og var hlutfall þeirra jafnt á milli kynja og skiptist hlutfallslega milli lands- byggðar- og þéttbýlis. Eitt prósent aðspurða voru óá- kveðnir eða svöruðu ekki. Spurningin sem lögð var fyrir þátttakendur í könnunni var svohljóðandi: Vegna umræðu um fátækt í samfélaginu vilj- um við spyrja þig eftirfarandi spurningar: Býrð þú við fá- tækt? ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.