Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 11. janúar 2003
EMINEM
Fleiri stjörnur hafa framleitt föt, svo sem P.
Diddy, Jennifer Lopez og Atomic Kitten svo
einhverjir séu nefndir.
Eminem:
Fram-
leiðir eigin
fatalínu
FÖT Eminem hefur skrifað undir
tveggja milljóna punda samning
um að framleiða sína eigin fata-
línu. Fötin sem Eminem ætlar að
hanna koma út í sumar undir
vörumerkinu „Shady“.
Talsmaður Nesi Apparel, sem
framleiðir fötin, segir að þau
muni endurspegla stíl Eminem.
Velgengni Eminem virðist eng-
an endi ætla að taka. Hann hefur
hlotið lofsverða dóma fyrir leik
sinn í myndinni „8 mm“ og sömu
sögu er að segja af nýjustu breið-
skífu kappans. Eminem er þó far-
inn að taka lífinu með ró með
fyrrverandi konu sinni Kim.
Sögusagnir hafa verið á kreiki
um að kappinn hafi átt í róman-
tísku sambandi við fertuga klám-
myndastjörnu. ■
Lögreglan finnur
stolnar spólur:
Innihalda
óútgefin
Bítlalög
TÓNLIST Um 500 kassettur með
upphaflegum útgáfum af Bítlalög-
um sem stolið var á áttunda ára-
tugnum eru komnar í leitirnar.
Lögreglan í Bretlandi og Hollandi
komst yfir spólurnar þegar hún
gerði þýfi sjóræningjahrings upp-
tækt. Talsmaður lögreglunnar
segir að spólurnar séu ómetanleg-
ar en á þeim eru meðal annars
áður óútgefin lög.
Sex hafa verið handteknir í
vesturhluta Lundúna og í Hollandi
í tengslum við rannsóknina.
Sjóræningjahringir sem þessi
hafa ógnað tónlistariðnaðinum um
árabil. Þeir gefa meðal annars út
ólöglegar upptökur af tónleikum,
sem og ólögleg afrit af geisladisk-
um. ■
Sýning
Bauhaus ljósmyndasýning
opnuð laugardaginn
11. janúar kl. 15.00.
Szymon Kuran leikur af fingrum
fram milli kl. 15.00 og 16.00.
Allir velkomnir.
Sýninging stendur til 23. febrúar.
Ókeypis aðgangur.
TÖKUR Á TOMB RAIDER 2
Fallhífastökkvari stekkur ofan af háhýsi í
Hong Kong. Stökkið var liður í atriði sem
verið var að taka upp fyrir framhaldsmynd-
ina „Tomb Raider 2“ sem væntanleg er í
kvikmyndahús í sumar. Angelina Jolie fer
með aðalhlutverkið eins og í fyrri mynd-
inni.
Sveitarfélög-verktakar- fyrirtæki
Ýmsir möguleikar við rýmis - og
lagerlausnir. Kynntu þér möguleikana.
Getum með stuttum fyrirvara afgreitt
gámahús eftir þínum óskum.
Sýningarhús
á staðnum
Sími 562-6470 & 892-1474