Fréttablaðið - 11.01.2003, Blaðsíða 45
45LAUGARDAGUR 11. janúar 2003
Léttu þér lífið
– með gómsætum léttum ostum
LEYNIBÍLL
Aston Martin bílaframleiðandinn stóð fyrir sýningu fyrir skömmu. Þar mátti meðal annars
sjá bílinn sem James Bond notaði í myndinni „Die Another Day.“ Bíllinn er að sjálfsögðu
stútfullur af alls kyns tækjum og tólum.
It’s all about
love frumsýnd:
Það er líf
eftir Festen
KVIKMYNDIR Kvikmyndin It’s all
about love var frumsýnd í Dan-
mörku í gær. Myndin er fyrsta
mynd leikstjórans Thomasar
Vinterbergs eftir Festen, sem
sýnd var hér á landi og hann
hlaut heimsfrægð fyrir. Í dómi
Politiken fær myndin fjögur
hjörtu af sex og lýkur dómnum á
þeim orðum að það sé líf eftir
Festen. Myndarinnar hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu
enda líta Danir á Vinterberg sem
einn af sínum helstu vonarpen-
ingum í kvikmyndaiðnaðinum.
Eins og nafnið gefur til kynna er
ástarmynd á ferð. Hún er á ensku
og skartar þeim Claire Danes og
Joaquin Phoenix í aðalhlutverk-
um. ■
SKEMTUN Vefsvæðið hugi.is er vin-
sælasti afþreyingarvefur lands-
ins. Sé farið inn á teljari.is og les-
ið úr tölum þar má sjá að sam-
kvæmt flettingum er Hugi yfir-
leitt í öðru sæti á eftir mbl.is.
Notkunin er gríðarleg.
„Við erum að jafnaði með 25
þúsund notendur á viku og not-
endur eru að meðaltali inni í 20
mínútur,“ segir vefstjórinn, Unn-
ar S. Bjarnason, en stofnað var til
huga í júní árið 2000. Hugi er í
eigu Símans og var upphaflega
stofnað í kringum spjallrásir um
tölvuleikina HalfLife og Quake.
„Síðan hefur þetta undið upp á sig
og við erum með vefsvæði helguð
ýmsum áhugamálum fólks. Vin-
sælasta svæðið er hl en þar ræða
menn einkum um leikinn Counter-
Strike frá ýmsum hliðum,“ segir
Unnar.
Meðfylgjandi tafla sýnir vin-
sældir í prósentum talið og er hl
(Counter-Strike) vinsælasta
áhugamálið en forsida, ego og
kasmir eru þjónustusíður við ein-
staklinga og tengjast öllum
áhugamálum. ■
Netið:
25 þúsund
notendur
í viku
COUNTER-
STRIKE
Áhugamenn um
tölvuleik þennan
ræða um hann
sín á milli, fram
og til baka, á
hugi.is.
VINSÆLUSTU SVÆÐI HUGA
001.forsida 551158 15.8%
002.ego 308904 8.88%
003.hl 292206 8.40%
004.kasmir 269375 7.74%
005.hahradi 168520 4.84%
006.kynlif 154850 4.45%
007.bilar 90605 2.60%
008.hiphop 81015 2.32%
009.leikjatolvur 77247 2.22%
010.bf 73841 2.12%
011.static 67591 1.94%
012.rokk 49904 1.43%
013.brandarar 45421 1.30%
014.velbunadur 39979 1.14%
015.tolkien 37152 1.06%
016.cm 33732 0.96%
017.enskadeildin 32450 0.93%
018.kvikmyndir 32376 0.93%
019.jolin 31882 0.91%
020.hundar 30946 0.88%
021.romantik 29202 0.83%
022.quake 28842 0.82%
KVIKMYNDIR Hollywood-leikararnir
Penelope Cruz, Al Pacino, Juli-
anne Moore og Arnold Schwarz-
enegger eru á meðal þeirra sem
ætla að taka þátt í söfnun til góð-
gerðarmála sem úraframleiðand-
inn „Audemars Piguet“ mun sjá
um fyrir hönd Afganistan World
Foundation stofnunarinnar.
Stjörnurnar munu setja undir-
skriftir sínar á fjölda úra sem síð-
an verða boðin upp þann 7. febrú-
ar í Beverly Hills.
Körfuboltakappinn Shaquille
O’Neal, leikarinn Benicio Del
Toro og boxarinn fyrrverandi
Muhammad Ali munu einnig legg-
ja sitt af mörkum í söfnuninni. ■
Söfnun til góðgerðarmála:
Úr með undirskrift stjarnanna boðin upp