Fréttablaðið - 25.01.2003, Blaðsíða 36
36 25. janúar 2003 LAUGARDAGUR
BANGER SISTERS kl. 5.45 og 8 TRANSPORTER b.i. 14 ára 3, 8 og 10
JAMES BOND b.i. 12 ára 2, 5 og 10.15
LIKE MIKE kl. 1.50
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 - bi 16 ára
Kl. 2, 4 og 8 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 2, 5.30 og 9.30
kl. 2 og 8HAFIÐ
kl. 2 og 3.55GULLPLÁNETAN m/ísl.tali
kl. 4.10HLEMMUR
kl. 2HARRY POTTER
kl. 5.55 og 10.05GRILL POINT
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.05
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 2, 4 VIT498
LILO OG STITCH kl. 2 VIT HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 2 og 5
VIT
493
HARRY POTTER kl. 8 VIT468
THE HOT CHICK 2, 4, 6, 8 og 10 VITJUWANNA MANN 2, 4, 6, 8 og 10 VIT
kl. 2, 4, 6, 8, 10 STELLA Í FRAMBOÐI
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i.14.ára
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i.16.ára
Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÓNLIST Í gær tók Arnar Guðjóns-
son, söngvari Leaves, við ógrynni
af símtölum frá frændum, frænk-
um og vinafólki sem vildi óska
honum til hamingju með verð-
launin sem hann vann á Íslensku
tónlistarverðlaunahátíðinni á
fimmtudagskvöld. Eins og feg-
urðardrottning segir Arnar sigur-
inn hafa komið sér á óvart.
„Ég er bara svo ánægður með
það sem við erum búnir að gera
og var því mjög sáttur við þetta,“
segir hann en viðurkennir þó fús-
lega að hann hefði að sjálfsögðu
viljað sjá sveit sína fá öll þau
fjögur verðlaun er hún var til-
nefnd til. „Mér fannst verðlaunin
dreifast mjög vel á milli lista-
manna. Það var enginn sem var að
sópa til sín verðlaunum. Þetta var
bara mjög flott.“
Arnar vann í flokknum
„Söngvari ársins“ en þar keppti
hann á móti Jónsa úr Sigur Rós,
Bubba, Agli Ólafssyni, Páli Rósin-
kranz og Birni Jörundi Frið-
björnssyni. Ólíkt flestum öðrum
íslenskum rokksöngvurum er
Arnar þaullærður sem söngvari.
„Ég ákvað að fara til söngkenn-
ara þegar ég var 18 ára af því að
mig langaði svo að prófa eitthvað
nýtt. Ég hafði þá reyndar aðeins
sungið með sveit sem hét
Moondogs. Ég prófaði bara að
fara í einkatíma og varð strax
heillaður af rússneskum ljóða-
söng. Þá er ég að tala um
Rakhmaninov og Tsjaíkovskí.“
Arnar lærði í um fjögur ár og
kláraði 7. stigið í klassískum söng.
Arnar hóf tónlistarferil sinn í
dauðarokkinu og lék meðal ann-
ars með Sororicide í tvö ár. „Ég
fór úr dauðarokkinu í Moondogs.
Gítarleikarinn okkar, Arnar, var á
bassa. Hann byrjaði ekki að spila
á gítar fyrr en hann fór í Leaves.
Hann kom svo líka í Vínyl eftir að
Goggi úr Sigur Rós hætti. Bjarni
trommari spilaði líka eitthvað
smá með Moondogs. Sú sveit var í
rauninni eins og Leaves, æsku-
vinahópur sem stofnaði hljóm-
sveit.“
Moondogs var þó fremur ólík
Leaves hvað tónlistarstefnu varð-
ar og lék rokk í anda Bítlanna og
The Rolling Stones.
Leaves undirbýr núna útgáfu
plötu sinnar „Breathe“ fyrir
Bandaríkjamarkað og er stefnan
sett á útgáfu í mars en ekkert hef-
ur þó verið staðfest. Sveitin hefur
fengið góða umfjöllun í blöðum
þar í landi og tónlistartímaritið
Rolling Stone meðal annars sýnt
sveitinni mikinn áhuga. „Við
æfum nánast á hverjum degi og
erum búnir að eyða tímanum okk-
ar í það að semja. Við erum komn-
ir með efni á nýja plötu,“ segir
Arnar að lokum. Framtíðin er
björt.
biggi@frettabladid.is
Lærður nýliði
felldi þá eldri
Íslensku tónlistarverðlaunin fóru fram með glæsibrag í Borgarleikhúsinu
á fimmtudagskvöld. Bæði poppsöngvaraverðlaunin fóru til nýliða.
Arnar Guðjónsson úr Leaves og Hera þóttu skara fram úr á síðasta ári.
Gamanleikarinn John Cleesehefur krafist skaðabóta fyrir
blaðagrein er birtist í breska dag-
blaðinu The Evening Standard sem
gefið er út í London. Greinin birt-
ist í blaðinu í apríl síðastliðnum og
segir leikarinn hana hafa verið
beina árás á sig. Þar sagði blaða-
maðurinn að Cleese hefði flust til
Bandaríkjanna þar sem hann væri
nú aumkunarverð persóna. Tals-
menn blaðsins segjast hafa boðið
leikaranum 10 þúsund pund í ágúst
í skaðabætur og segjast ekki vilja
hafa borgað meira. Málið er því að
fara fyrir dómsstóla.
Nauðgunarkæra á hendur eigin-manni Celine Dion, Rene Ang-
elil, hefur verið felld niður. Hjónin
hafa nú kært kon-
una, sem hélt því
fram að Rene
hefði nauðgað sér
á hótelherbergi í
Las Vegas árið
2000, fyrir að
reyna fjárkúgun.
Rene, sem einnig
er umboðsmaður
Celine, hefur alla tíð haldið fram
sakleysi sínu. Lögreglan lét málið
niður falla vegna skorts á sönnun-
argögnum. Konan sem kærði var
hins vegar handtekin fyrir að
borga einstaklingi fyrir að bera
ljúgvitni.
Robin Gibb úr The Bee Gees,tvíburabróðir Maurice sem
lést nýverið, segir að tónlist sé
það eina sem veiti honum hug-
arró í sorginni. Hann segir hana
virka sem sáluhjálp á sig. Hann
hefur þess vegna ákveðið að
sökkva sér í vinnu til þess að
leiða hugann frá dauða bróður
síns. Hann hefur einnig sagt að
róðri The Bee Gees um tónlistar-
söguna sé lokið.
Söngkonan Christina Aguilerahefur greint frá því að hún hafi
verið fórnarlamb heimilisofbeldis.
Faðir hennar á að
hafa lagt hendur á
stúlkuna þegar
hún var barn. Hún
segist enn fá
kvíðaköst vegna
þessa. Hún segir
að pabbi hennar
hafi dregið alla
fjölskylduna í
gegnum helju á æskuárum hennar.
Mamma hennar á að hafa sofið
með piparúða undir koddanum af
ótta við bræði eiginmanns síns.
Pabbi Christinu barði hana víst
fyrst þegar hún var aðeins fjög-
urra ára gömul.
Leikkonan Winona Ryder ætlarsér að eiga fötin er hún var
fundin sek um að hafa stolið úr
fatabúð í Beverly Hills. Hún held-
ur því fram að þau séu nú rétti-
lega hennar eftir sektina sem hún
þurfti að greiða eftir að dómurinn
féll. Ástæðan fyrir því að hún vill
eiga fötin er þó ekki sú að hana
langi til þess að ganga í þeim.
Hún ætlar að selja þau á söfnun-
aruppboði fyrir góðgerðarmál og
brenna þannig þá neikvæðu þýð-
ingu sem þau hafa fyrir hana.
ELOGE DE L´AMOUR kl. 4
HARRY - UN AMI... kl. 8
BEAU TRAVAIL kl. 2
UME HIRONDELLE A FAIT... kl. 6
LA VILLE ES TRANQUILLE kl. 10.15
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
LEAVES
Hefur á einu ári náð lengra en flestir íslenskir tónlistarmenn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SPICE GIRLS
Er einhver furðulegasta hljómsveit heims.
Náði gríðarlegum vinsældum fyrir
nokkrum árum.
Mel C:
Vill ekki
endurnýja
kryddið
TÓNLIST Mel C, eða íþróttakryddið
eins og hún hefur stundum verið
nefnd, segist ekki mundu syngja aft-
ur með Spice Girls nema hún væri á
barmi gjaldþrots.
Þó eru ekki taldar miklar líkur á
að hún lendi í fjárhagsvandræðum
því Mel C er talin eiga um 18 milljón-
ir punda, sem samsvarar tæpum 2,5
milljörðum íslenskra króna. Þar að
auki sagðist hún ekki vilja gefa út lag
undir merkjum sveitarinnar nema
allar fimm kæmu aftur saman.
Kryddstelpurnar hafa ekki sent
frá sér breiðskífu síðan „Forever“
kom út árið 2000. Þær slógu í gegn
árið 1996 en náðu aðeins að senda frá
sér þrjár skífur og eina kvikmynd. ■
SÍGILD TÓNLIST
Tónlistarflytjandi ársins:
Hamrahlíðarkórinn og Þorgerður Ing-
ólfsdóttir
Hljómplata ársins:
„Baldr“ - Jón Leifs
Tónverk ársins:
„Barn er oss fætt“ - John Speight
DJASSTÓNLIST
Tónverk ársins:
„Weeping Rock“ - Skúli Sverrisson
og Eyvind Kang
Tónlistarflytjandi ársins:
Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson
Hljómplata ársins:
„Septett“ - Jóel Pálsson
ÝMIS TÓNLIST
Hljómplata ársins:
„Eftir þögn“ - Óskar Guðjónsson
og Skúli Sverrisson
POPP
Lag ársins:
„Julietta 2“ - SKE
Söngkona ársins:
Hera Hjartardóttir
Söngvari ársins:
Arnar Guðjónsson
Tónlistarflytjandi ársins:
Sigur Rós
Hljómplata ársins:
„( )“ - Sigur Rós
Myndband ársins:
„Listen“ - Singapore Sling
Bjartasta vonin:
Búdrýgindi
Poppstjarna
ársins:
Birgitta
Haukdal
HEIÐURSVERÐLAUN
Ingibjörg Þorbergs
HVATNINGARVERÐLAUN
Hr. Örlygur
Úrslit Íslensku tónlistarverðlaunanna 2002