Fréttablaðið - 25.01.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 25.01.2003, Síða 6
6 25. janúar 2003 LAUGARDAGUR LÖGREGLUFRÉTTIR VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 46 1. 2. 3. Helgi Jóhannsson er um þessar mundir í samningaumleitunum við breskt lággjaldaflugfélag. Hvað heitir það? Íslendingar unnu Portúgala á fimmtudag í handboltalandsleik í Portúgal. Hver var staðan í leikslok? Listamaðurinn Christo hefur unnið sér til frægðar að pakka inn frægum stöðum. Nýlega fékkst leyfi til að pakka inn almenningsgarði í New York. Hvað heitir garðurinn? GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 78.73 -0.24% Sterlingspund 128.38 0.30% Dönsk króna 11.4 -0.01% Evra 84.84 0.02% Gengisvístala krónu 123,76 -0,19% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 388 Velta 7.159 milljónir ICEX-15 1.345 0,16% Mestu viðskipti Vinnslustöðin hf. 884.225.000 Fjárf.félagið Atorka hf. 116.321.400 Flugleiðir hf. 78.572.901 Mesta hækkun Opin kerfi hf. 7,14% Nýherji hf. 5,59% Þormóður rammi-Sæberg hf. 4,44% Mesta lækkun Skýrr hf. -8,11% Líf hf. -4,55% Grandi hf. -1,61% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8205,3 -2,0% Nasdaq*: 1353,8 -2,5% FTSE: 3613,8 -0,2% DAX: 2742,5 -2,4% Nikkei: 8731,7 -0,7% S&P*: 868,8 -2,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráð- herra hefur ákveðið að auka afla- heimildir á fjórum fisktegundum á yfirstandandi fiskveiðiári. Ufsa- kvótinn verður aukinn um átta þúsund tonn, sandkolakvótinn um þrjú þúsund tonn, kolmunnakvót- inn um 36 þúsund tonn og út- hafskarfakvótinn um tíu þúsund tonn. Aukningin jafngildir tólf þúsund þorskígildistonnum. Ákvörðun um að auka afla- heimildir í ufsa eru í raun gegn ráðleggingum Hafrannsókna- stofnunar. En staðan núna er betri en áætlað hafði verið og ástæðulaust að fara hraðar í upp- byggingu ufsastofnsins, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra. Hann segist enn frem- ur hafa ákveðið að hafa hliðsjón af fiskifræði sjómanna sem hafi sagt frá aukinni ufsagengd. Hækkunin í úthafskarfa er hlutfallslega jafn mikil og Norð- austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd- in ákvað í vetur. Þá er aukning kolmunnakvótans í samræmi við aukningu Evrópusambandsins á eigin kvóta. Gert er ráð fyrir að kvótaukn- ingin auki útflutningsverðmæti útfluttra sjávarafurða um 2,5 til 2,8 milljarða króna á árinu. Það verður því rúmlega 130 milljarðar í stað 128 milljarða eða rúmlega 2% umfram það sem áætlað hafði verið. Ekki þótti fært að auka afla- heimildir í skarkola eða keilu og kvótaaukning í skötusel og ýsu kom ekki til skoðunar. ■ Kvóti aukinn um 12.000 þorskígildi í fjórum tegundum: Útflutningsverðmæti eykst um 2,5 milljarða HÆKKUN Á LEYFILEGUM HEILDARAFLA Í TONNUM Var Verður Aukning Ufsi 37.000 45.000 8.000 Kolmunni 282.000 318.000 36.000 Sandkoli 4.000 7.000 3.000 Úthafskarfi 45.000 55.000 10.000 ÁRNI M. MATHIESEN Hafði fiskifræði sjómanna til hliðsjónar og jók ufsakvótann þvert á ráðleggingar fiskifræðinga. FRAMKVÆMDIR Ef borgaryfir- völd vilja byggja hábrú yfir sund- in, líkt og þau hafa lýst yfir, hyggst Vegagerðin beita sérstöku ákvæði í vegalögum til að firra sig auknum kostnaði. Það mun kosta borgina þrjá milljarða króna að fara sínu fram. Þetta er á meðal þess sem kom fram í svari Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra við fyrirspurn Bryndísar Hlöðversdóttur, þing- manns Samfylkingarinnar, á Al- þingi. Vegagerðin og Borgarverk- fræðingur eru framkvæmdaraðil- ar Sundabrautar, en Vegagerðin hefur forræði í málinu þar sem um þjóðveg er að ræða. Skiptar skoðanir hafa verið um það milli ríkis og borgar hvaða leið yfir Kleppsvík sé fýsilegust. Valið stendur á milli tveggja leiða. Borgaryfirvöld vilja byggja há- brú yfir sundin, sem kostar 9,9 milljarða króna, en ríkið vill fara svokallaða landmótunarleið- , sem kostar 6,9 milljarða. Sam- kvæmt henni verður byggð brú að stórum hluta á landfyllingu innst inni í Elliðavogi. Ráðherra sagði að ef borgin vildi byggja hábrú myndi Vega- gerðin beita ákvæðinu, en það kveður á um að ef sveitarstjórn velji annan stað en Vegagerðin telji æskilegt og það leiði til auk- ins kostnaðar sé heimilt að krefja viðkomandi sveitarfélag um kostnaðarmuninn. Rísi ágreining- ur um réttmæti slíkrar kröfu eða um fjárhæð ber að skjóta málinu til ráðherra til úrskurðar. Hábrú- in er þremur milljörðum króna dýrari kostur en landmótunar- leiðin og því ljóst að sá kostnaður myndi leggjast á borgaryfirvöld. Ákvæðið mun einu sinni beinlín- is hafa ráðið vali á veglínu. Það var í Stykkishólmi, en þá vildi sveitar- stjórnin nýja legu fyrir innkeyrslu í bæinn, en féll frá ósk sinni þegar henni var gerð grein fyrir að heim- ildarákvæðinu yrði beitt. Í svari ráðherra kom einnig fram að búið væri að gera arð- semismat vegna Sundabrautar. Arðsemin er frá 7 til 14% á ári eft- ir því hvaða leið verður valin. Landmótunarleiðin skilar mestu arðseminni eða 14% á ári, en há- brúin 10%. Botngöng milli Gufu- ness og Vogahverfis skila minnstu arðseminni eða 7%, en þau eru líka dýrasti kosturinn. trausti@frettabladid.is Borgin greiði mismuninn Borgaryfirvöld vilja byggja hábrú yfir sundin en ríkið vill fara svokallaða landmótunarleið. Hábrúin er 3 milljörðum króna dýrari. Vegagerðin vill að borgin greiði muninn. Landmótunarleiðin skilar mestu arðseminni. HÁBRÚ YFIR SUNDIN Borgaryfirvöld telja að með hábrúnni náist betri tenging við miðborgina. Hún yrði norð- vestan við Sundahöfn og myndi tengjast Sæbrautinni og beina umferðinni um hana og niður í miðbæ. ARÐSEMISMAT 5 VALKOSTA UM LEGU OG ÚTFÆRSLU SUNDABRAUTAR Kostnaður, milljarðar króna Arðsemi Leið I, ytri leið, há bitabrú 9,9 10% Leið I, ytri leið, botngöng 13,8 7% Leið III, innri leið, grunnlausn 8,7 11% Leið III, innri leið, landmótunarleið 6,9 14% Leið V, jarðgöng 12,0 8% TE IK N IN G /S IG U RÐ U R VA LU R SI G U RÐ SS O N Fangi sneri aftur: Myrti stjórnendur MOSKVA, AP Fyrrum vistmaður í fangelsi í þorpinu Kharyuzovka í Síberíu sneri aftur til þess að drepa þrjá af yfirstjórnendum fangelsisins. Fanginn fyrrverandi réðst inn í fangelsið og skaut mennina þrjá með afsagaðri haglabyssu. Maður sem reyndi að yfirbuga morðingjann varð einnig fyrir skoti en lifði af. Þegar byssumaðurinn yfirgaf fangelsið hélt hann til næsta bæj- ar og drap þar konu á sextugsald- ur. Að lokum hafði lögreglan hendur í hári mannsins og skaut hann til bana. ■ LÍK FÉLL AF HIMNUM Fólk safnast saman við hús þar sem annar mannanna kom niður með þeim afleiðing- um að þakið brotnaði. Tveir menn: Féllu freðnir til jarðar PEKING, AP Tveir menn féllu til jarðar úr farþegaþotu sem var að koma til lendingar í Shanghai. Af ummerkjum á líkum þeirra var helst að sjá að þeir hefðu frosið til bana og verið látnir þegar þeir lentu. Lítið er vitað um mennina tvo annað en að þeir eru af evrópsk- um uppruna og um þrítugt. Kín- verskir fjölmiðlar höfðu eftir sjónarvottum að af klæðnaði mannanna að dæma gætu þeir hafa verið flugvallarstarfsmenn. Einnig voru taldar líkur á að þetta gætu verið laumufarþegar. ■ Boðflenna: Skar fjóra DÓMSMÁL Maður um þrítugt sem særði fjóra menn með hnífi hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundins fangelsis. Atvikið átti sér stað í Kópavogi fyrir ári. Fjórmenningarnir hugð- ust henda hnífamanninnum út úr samkvæmi sem hann hafði komið óboðinn í. Héraðsdómur Reykjaness segir manninn eiga sér þær málsbætur að hann hafði sætt barsmíðum og staðið höllum fæti áður en hann beitti hnífnum. Sár mannanna voru ýmist stungusár eða skurðir. Þau voru öll á útlimum. Skaðabótakröfum þeir- ra var hafnað. Hnífurinn var gerður upptækur. ■ ATVINNULEYSI Lyf og Heilsa aug- lýsti á dögunum eftir afgreiðslu- fólki í verslanir sínar í Glæsibæ og á Akranesi. Þegar hafa 110 um- sóknir borist og má búast við fleirum því umsóknarfrestur er ekki enn útrunninn: „Ég hef aldrei séð annað eins eftir að ég byrjaði í þessu starfi. Og ekki síður hitt að nú er há- skólamenntað fólk að sækja um afgreiðslustörf hjá okkur, bæði líffræðingar og meinatæknar,“ segir Elín Hlíf Helgadóttir, starfsmannastjóri hjá Lyfjum og heilsu. Fyrirtækið auglýsti einnig eft- ir lyfjafræðingi og fékk þar tíu umsóknir: „Þetta segir okkur mikla sögu um atvinnuástandið í landinu. Fólk dauðvantar vinnu og mér finnst í raun sorglegt að horfa upp á þetta,“ segir Elín Hlíf. ■ 110 sóttu um starf hjá Lyfjum og heilsu: Háskólafólk vill afgreiðslustörf LYF OG HEILSA Líffræðingar og meinatæknar eru tilbúnir til að afgreiða í verslunum fyrirtækisins. PARDUS FANN HASS Fíkniefna- hundurinn Pardus þefaði uppi pakka á Akureyrarflugvelli og vaknaði strax grunur um að fíkniefni væru í honum. Síðdegis á þriðjudag kom síðan maður á flugvöllinn til að vitja pakkans. Var hann handtekinn við komuna. Í ljós kom að í pakkanum voru 6,3 grömm af hassi sem maður- inn viðurkenndi að eiga. Í MIÐRI EYÐILEGGINGUNNI Þrátt fyrir að búa fjarri átakasvæðum hefur um ein milljón fátæklinga orðið harkalega fyrir barðinu á borgarastríðinu. Stjórnarher- inn hefur rifið hverfi þeirra vegna ótta við að uppreisnarmenn haldi sig þar. Fílabeinsströndin: Samið um frið PARÍS, AP Samningamenn stríðandi fylkinga í borgarastríðinu á Fíla- beinsströndinni hafa komist að samkomulagi um drög að friðar- sáttmála sem bindur endi á fjög- urra mánaða langt borgarastríð ef samkomulagið nær fram að ganga. Samkomulagið gerir ráð fyrir að ný stjórn taki við völdum til að koma á friði. Aðild að henni munu eiga allir stjórnmálaflokkar og uppreisnarhreyfingar sem hafa barist gegn stjórnvöldum. „Þetta er skref í átt að friði á Fílabeinsströndinni sagði tals- maður forsetans en lagði áherslu á að það myndi ráðast af viðbrögð- um forsetans og þjóðarinnar hvort friðarsáttmáli tæki gildi. ■ AP/M YN D

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.