Fréttablaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 2
2 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Já, vonandi bræðum við það líka.
Eyjólfur Sverrisson lék lengi knattspyrnu í Þýska-
landi. Þá er hann fyrrum fyrirliði íslenska lands-
liðsins, sem mætir þýska landsliðinu á Laugar-
dalsvelli 6. september.
Spurningdagsins
Eyjólfur, pressum við þýska stálið?
Ákært vegna stór-
fellds kvótasvindls
Viðamesta kvótasvindlmál Íslandssögunnar hefur verið þingfest í Hér-
aðsdómi Vesturlands. Flókið mál þar sem fjöldi manna og útgerða
tengist broti á fiskveiðilögum. Einnig ákært fyrir umboðs- og skattsvik.
DÓMSMÁL Ríkislögreglustjóri hef-
ur ákært sex menn og sex útgerð-
arfyrirtæki í Ólafsvík fyrir stór-
fellt kvótasvindl. Málið hefur ver-
ið þingfest í Héraðsdómi Vestur-
lands og má búast við því að dóm-
ur verði kveðinn upp eftir tvo til
þrjá mánuði.
Í ákærunni kemur fram að skip
útgerðarinnar hafi m.a. veitt rúm-
lega 400 tonn af þorski og tæplega
100 tonn af ýsu utan kvóta. Einnig
kemur fram að skipin hafi veitt
nokkuð magn af kola, steinbít,
skötusel, þykkvalúru, ufsa og
karfa án þess að hafa aflaheimild-
ir. Aflaverðmætið er talið nema
a.m.k. tugum milljóna króna og í
ákærunni er farið fram á að
mennirnir endurgreiði ríkinu and-
virði hins ólöglega afla.
Útgerðirnar sem um er að
ræða eru: Bervík ehf., Snoppa
ehf., Blíða ehf., Dritvík ehf., Feng-
sæll ehf. og Kristján ehf. Skipin
sem stunduðu hinar ólöglegu veið-
ar eru: Bervík SH, Aðalvík SH,
Stormur SH, Klettsvík SH, Feng-
sæll ÍS og Sandafell ÍS og Grótta
RE.
Hin meintu brot áttu sér stað á
árunum 2001 og 2002. Þegar upp
komst um málið kærði Fiskistofa
útgerðirnar og svipti sex báta
veiðileyfi. Gísli Rúnar Gíslason,
deildarstjóri lögfræðisviðs Fiski-
stofu, segir að aldrei hafi jafn-
viðamikið mál komið upp áður.
Fiskistofa líti á þetta mál sem
bæði stórfellt auðgunarbrot og
skýrt brot á lögum um stjórn fisk-
veiða.
„Að okkar mati eru þarna sömu
aðilarnir en í aðskildum einka-
hlutafélögum,“ segir Gísli Rúnar.
„Það er mat okkar að þarna hafi
verið um skipulagða brotastarf-
semi að ræða. Ekki bara fiskveiði-
lagabrot heldur auðgunarbrot
líka. Í okkar kæru fórum við fram
á að ágóðinn yrði gerður upptæk-
ur og við erum mjög sáttir við að
það sé komið inn í ákæruna.“
Gísli Rúnar segir að í fyrstu
hafi fyrirtækin átt smá kvóta, en
að strax í fyrstu veiðiferðinni hafi
skipin veitt umfram þann kvóta.
Síðan hafi þau farið í fleiri veiði-
ferðir og veitt meira án aflaheim-
ilda. M.a. hafi eitt skipanna farið
út um páska til þess að Fiskistofa
myndi ekki komast að veiðunum.
Hins vegar hafi allt komist upp
fljótlega eftir páska, en þá hafi
skipið verið búið að veiða í 9 daga.
Af þessu sé ljóst að um skýr
ásetningsbrot hafi verið að ræða.
Auk þess að vera ákærðir fyrir
ólöglegar veiðar hafa tveir mann-
anna verið ákærðir fyrir umboðs-
svik og skattsvik. Þeir stóðu ekki
skil á virðisaukaskatti. Þá hefur
Landsbankinn krafið höfuðpaur-
inn um tæpar 16 milljónir í skaða-
bætur vegna gjaldþrots Bervíkur.
trausti@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Samtök ferðaþjón-
ustunnar hafa verulegar áhyggjur
af því að ímynd Íslands skaðist
vegna umfjöllunar um hvalveiðar
í fjölmiðlum um víða veröld. Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
samtakanna, segir versta dæmið
mynd af hvalveiðimanni sem
heldur sigri hrósandi á hjarta úr
hval.
„Ímynd Íslands hefur verið
mjög góð, en þessar hvalveiðar
skaða ímyndina með þeim afleið-
ingum að sá markhópur sem við
höfum til þess að selja okkar
ferðaþjónustu minnkar,“ segir
Erna. „Við erum þegar farin að
verða vör við afbókanir á ferðum
vegna þessa.“
Að sögn Ernu hafa samtökin
sérstakar áhyggjur af ráðstefnu-
hópum, sem séu mjög mikilvægir.
„Það eru mörg fyrirtæki sem hafa
áhyggjur af því að ef ímynd er
orðin sködduð eru minni líkur á að
við fáum ákveðnar ráðstefnur, þar
sem það eru auðvitað fleiri lönd
sem eru að reyna að fá ráðstefnur
til sín.
Við höfum lagt á það áherslu að
reynt verði með öllum leiðum að
skaðinn verði lágmarkaður eins
og hægt er en á meðan hvalveiði-
menn láta taka myndir af sér með
hjörtun úr hvalnum brosandi út að
eyrum eykur það skaðann en
dregur ekki úr honum,“ segir
Erna. ■
Barnaklámsmálið:
Börn notuð
í myndbönd
BARNAKLÁM Ungmenni hafa gefið
skýrslur í héraðsdómi Reykjavík-
ur síðustu daga vegna umfangs-
mesta barnaklámsmáls sem upp
hefur komið hér á landi.
Ríkisútvarpið greindi frá því
að ungmennin hefðu verið notuð
við gerð heimabíómynda og þau
hafi verið á aldrinum 13 til 15 ára
þegar brotin voru framin en þau
spanna fjögurra til fimm ára
tímabil.
Í vor þegar lögreglan gerði leit
á heimili manns á fertugsaldri
fundust tugir þúsunda barna-
klámsmynda á ljósmyndum,
geisladiskum og myndböndum. ■
Vélstjórafélagið:
Krefst
afsagnar
DEILA Stjórn Vélstjórafélags Ís-
lands krefst þess að Hermann
Guðjónsson, for-
stjóri Siglinga-
stofnunar Íslands,
segi af sér eða
verði vikið úr
embætti í kjölfar
þess að hann veitti
rétt indalausum
vélstjóra undan-
þágu. Hermann
sagði undanþág-
una veitta í kjölfar
óskar samgöngu-
r á ð u n e y t i s i n s ,
sem vísaði því á
bug að hafa haft
bein afskipti af
málinu.
Auk þess for-
dæmir stjórn Vél-
stjórafélagsins vinnubrögð Sigl-
ingastofnunarinnar í eftirliti og
skráningu á afla íslenskra skipa.
Stjórnin segir stofnunina ganga
erinda Landssambands íslenskra
útvegsmanna. ■
Borgir heims:
Osló dýrust
GENF, AP Osló, höfuðborg Noregs,
hefur tekið sæti Tókíó í Japan
sem dýrasta borg í heimi, sam-
kvæmt nýrri rannsókn svissneska
bankans UBS.
Í öðru sæti er Hong Kong og
Tókíó í því þriðja. Buenos Aires,
höfuðborg Argentínu, er aftur á
móti ódýrasta borg heims.
Í rannsókninni var tekið mið af
tekjum og framfærslukostnaði í
70 borgum um heim allan. Í niður-
stöðunum kemur fram að í Los
Angeles og Chicago þarf fólk að-
eins að vinna í tíu mínútur til að
geta keypt sér Big Mac hamborg-
ara á móti 185 mínútum í Nairobí
í Kenýa. ■
Könnun ASÍ á verði
skólabóka gagnrýnd:
Allt að 96%
munur
SKÓLABÆKUR Samkvæmt úttekt
verðlagseftirlits Alþýðusambands
Íslands er töluverður verðmunur á
skólabókum á milli bókabúða.
Kannað var verð á níu stöðum og
reyndist verðmunur töluverður,
allt upp í 96%.
Griffill reyndist oftast vera
með lægsta verðið í könnun ASÍ en
Bókabúðin Hamraborg oftast með
hæsta verðið. Ekki var lagt mat á
gæði eða þjónustu verslana í þess-
ari könnun.
Forsvarsmenn Office 1 hafa
sent frá sér fréttatilkynningu þar
sem þeir gagnrýna harðlega
vinnubrögð ASÍ. Í tilkynningunni
kemur fram Office 1 hafi ekki ver-
ið haft með í könnuninni og að það
sé óskiljanlegt. Telja þeir einnig að
ýmislegt hafi verið ábótavant við
framkvæmd könnunarinnar. ■
sérverslun með utanhússklæðningar
VELJIÐ VARANLEGT Á HÚSIÐ
Húsaklæðningar úr stáli, kopar og múrsteini
Þakefni úr áli, kopar og stáli
Opið á laugardag og sunnudag frá 13 til 17
Komið og kynnið ykkur úrvalið
KÚRANT
Suðurlandsbraut 14,
108 Reykjavík
Sími 553 1111
kurant@kurant.is
www.kurant.is
KJARAMÁL Stéttarfélög við sunnan-
verðan Faxaflóa hafa ákveðið að
kljúfa sig frá Starfsgreinasam-
bandinu á ný í komandi kjara-
samningum og semja sér við at-
vinnurekendur. Sigurður Bessa-
son tilkynnti endurnýjun Flóa-
bandalagsins, með Eflingu í
Reykjavík, Hlíf í Hafnarfirði og
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur innanborðs, á fram-
kvæmdafundi Starfsgreinasam-
bandsins á miðvikudag. Fjöldi fé-
lagsmanna innan Flóabandalags-
ins myndar meirihluta Starfs-
greinasambandsins.
Með ákvörðun verkalýðsfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu og
Keflavík eru stéttarfélög á land-
inu klofin í tvær fylkingar. For-
ystumenn á landsbyggðinni hafa
lýst yfir vonbrigðum sínum með
ákvörðun Flóabandalagsins og
telja hana veikja stöðu verka-
lýðsfélaganna í samningum við
atvinnurekendur, sem verða laus-
ir um áramótin.
Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, var
höfundurinn að Flóabandalaginu
árið 2000. „Ég hef miklar áhyggj-
ur af því að þetta gæti riðið
Starfsgreinasambandinu að
fullu. Flóabandalagið telur sig
hafa betri stöðu til að endurnýja
samninginn sem gerður var árið
2000. Hann er reyndar að veru-
legu leyti alveg eins og samning-
ur Starfsgreinasambandsins,“
segir hann. ■
Japanir vígbúast:
Kaupa
bandarísk
flugskeyti
TÓKÍÓ, AP Japanir íhuga að kaupa
bandarísk flugskeyti fyrir sem
svarar hátt í 100 milljörðum ís-
lenskra króna vegna þeirrar ógnar
sem þeir telja að stafi af vígbúnaði
Norður-Kóreu.
Japanskir ráðamenn og sér-
fræðingar hafa bent á að landið sé
illa í stakk búið til að verjast hugs-
anlegri árás Norður-Kóreumanna,
sem grunaðir eru um að vera að
þróa kjarnorkuvopn. Heimildir
herma að yfirmenn varnarmála í
Japan hafi farið fram á sem nemur
rúmum 90 milljörðum íslenskra
króna úr ríkissjóði til að þróa bún-
að til að verjast flugskeytaárásum.
Meðal annars á að kaupa banda-
rísk flugskeyti sem kosta tæplega
1,4 milljarða króna stykkið. ■
HALLDÓR BJÖRNSSON
Formaður Starfsgreinasam-
bandsins telur að ákvörðun
Flóabandalagsins um að
semja sér við atvinnurekend-
ur geti riðið sambandinu að
fullu.
Starfsgreinasambandið klofið í kjarasamningum:
Flóabandalagið endurnýjað
HELGI LAXDAL
Formaður vél-
stjórafélagsins
segir Siglinga-
stofnun hafa farið
út fyrir valdsvið
sitt með því að
veita réttindalaus-
um vélstjóra und-
anþágu.
Hvalveiðar skaða ímynd Íslands að mati Samtaka ferðaþjónustunnar:
Þegar vör við afbókanir
ERNA
HAUKSDÓTTIR
Framkvæmda-
stjóri Samtaka
ferðaþjónustunn-
ar telur ímynd Ís-
lands skaðast
verulega af völd-
um hvalveiða.
BERVÍK SH
Bervík SH-143 hefur legið í Hafnarfjarðarhöfn frá því á síðasta ári. Skipið var svipt veiði-
leyfi vegna meints brots á fiskveiðilögum.