Fréttablaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 41
41LAUGARDAGUR 23. ágúst 2003
Fréttiraf fólki
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Á Hólmsheiði.
18 mánuðir.
Íslandsflug.
Það er mikill hiti á Reyðarfirðivegna byggingar BMVallár á
tveimur sementssílóum sem
skyggja víst ekki bara á smábáta-
höfnina heldur
alla fjallasýn.
Að sögn endar
þetta með því
að líta út eins
og tveir Hall-
grímskirkju-
turnar. Á besta
stað í bænum,
nota bene. Íbúar ættu að geta
huggað sig við að þetta eigi að
vera tímabundið og talsmenn BM
Vallár segja turnana fara fyrr
eða síðar. Fólk er bara hrætt um
að þegar búið sé að reisa svona
flykki fari þau aldrei.
■ Breyttir tímar
Hilmir lík-
lega ekki í
stórmynd
STÓRMYND „Ég hugsa að þetta sé
bara dottið upp fyrir,“ segir Hilmir
Snær Guðnason
leikari. „Það merkir
það oft þegar maður
heyrir ekki neitt frá
svona köllum í dáld-
in tíma.“
Hilmir fór í
prufu fyrir skömmu
og kom þá til greina
í aðalhlutverkið í
næstu stórmynd
Milos Formans sem
gerði Man on the
Moon með Jim
Carrey, en Hilmir
átti að leika á móti
Winonu Ryder.
„Svo nú fer ég bara að æfa Rík-
harð þriðja í Þjóðleikhúsinu,“ segir
Hilmir Snær. ■
Áhorfendur 70 mínútna á Popp-Tíví hafa tekið eftir því að það
vantar Sveppa, Sverri Sverrisson,
þann mikla snill-
ing. Margir eru ef-
laust súrir því
Sveppi er mjög
vinsæll og gerir
þáttinn frekar
geggjaðan. En mál-
ið er að hann er
kominn í fæðingar-
orlof. Ætlar að sinna konu sinni og
litla barninu sem er væntanlegt.
Hans verður sárt saknað en hann
kemur eflaust endurnærður á
skjáinn fyrr en síðar.
Fréttiraf fólki
Svala Björgvinsdóttir söngkona vinnur nú í róleg-
heitunum að annarri sólóplötu sinni.
Í FYRRA...
... átti ég engan kött.
NÚNA...
... á ég hreinræktaða golden persalæðu sem
heitir Susie.
HILMIR SNÆR
GUÐNASON
Milos Forman
hefur ekki haft
samband við
hann svo nú fer
Hilmir bara að
æfa Ríkharð
þriðja.