Fréttablaðið - 23.08.2003, Síða 8
8 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Skapa reykingafólki að-
stöðu
„Ég hef nú alla tíð verið þeirrar
skoðunar að það eigi að reyna
að skapa reykingafólki viðun-
andi aðstöðu innanhúss, jafnt á
vinnustöðum og ekki síður á
veitingastöðum.“
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Samfylkingarinnar.
DV, 22. ágúst.
Kröfur gætu
beinst að Þórólfi
„Þórólfur segir að hann hafi
bara fengið tölur og ekki vitað
hvað hann var að skrifa undir.
Ég tel ekki hægt að túlka svar
borgarlögmanns með öðrum
hætti en að hugsanlegar kröfur
borgarinnar geti beinst að
Þórólfi Árnasyni.
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Fréttablaðið, 22. ágúst.
Orðrétt
LUNDÚNIR, AP Breski vopnasérfræð-
ingurinn David Kelly sagðist óttast
um líf sitt ef Bandaríkjamenn og
Bretar réðust á Írak, að sögn sam-
starfsmanns hans, Davids
Brouchers, sem bar vitni í tengsl-
um við rannsókn á dauða Kellys.
Broucher hitti Kelly í Sviss 27.
febrúar síðastliðinn. Vopnasér-
fræðingurinn sagðist þá hafa
hvatt Íraka til að vinna með
vopnaeftirlitsmönnum til að koma
í veg fyrir innrás í landið.
Broucher segist hafa skynjað það
að Kelly ætti í mikilli innri bar-
áttu þar sem hann óttaðist að grip-
ið yrði til hernaðaraðgerða, þrátt
fyrir að Írakar sýndu sam-
starfsvilja. „Ég mun að líkindum
finnast dauður úti í skógi,“ sagði
Kelly þegar Broucher spurði hann
að því hvers hann vænti ef innrás
yrði gerð í Írak. Broucher segist
ekki hafa tekið orð Kellys alvar-
lega en skilið þau á þá leið að hann
óttaðist reiði Íraka.
Hutton lávarður, sem stjórnar
rannsókninni, hefur tilkynnt að
Tony Blair forsætisráðherra muni
bera vitni næstkomandi fimmtu-
dag og Geoff Hoon, varnarmála-
ráðherra, á miðvikudaginn. Fjöl-
skylda Kellys verður kölluð fyrir
rannsóknarnefndina 1. september
næstkomandi. ■
Tilboði í sölu-
fyrirtæki hafnað
VIÐSKIPTI Ólafur Ólafsson, for-
stjóri Samskipa og einn aðaleig-
andi olíufélagsins Kers, gerði
ásamt hópi fjárfesta tilboð í hlut
Íslandsbanka í Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Sölusamband ís-
lenskra fiskframleiðenda. Ís-
landsbanki hafnaði tilboðinu. Til-
boðið var upp á tæpa tvo milljarða
fyrir hlutinn. Að sögn Bjarna Ár-
mannssonar, forstjóra Íslands-
banka, telur bankinn meiri verð-
mæti felast í eignarhluta bankans
í fyrirtækjunum, en tilboðið hljóð-
aði upp á. Tilboðinu hafi þess
vegna verið hafnað.
Íslandsbanki og Landsbanki
eiga stóran hlut í SH og íslands-
banki á auk þess ríflega 7% hlut í
SÍF. Áhugi er hjá bönkunum að
sameina fyrirtækin.
S-hópurinn, undir forystu
Ólafs, óttast að bankarnir vilji
ganga til sameiningar eða sam-
vinnu við kanadísku sjávarút-
vegsfyrirtækin Clearwater og
Fishery Products International.
Íslandsbanki hefur verið að beina
kröftum sínum í sjávarútvegi á al-
þjóðavettvangi.
Ólafur Ólafsson segist ekki
vera mótfallinn sameiningu í
sjálfu sér, en segir ástæðurnar
þurfa að vera réttar. „Sölu- og
markaðsfyrirtæki ganga ekki að
viðskiptavinum sínum vísum, eins
og útgerðarfélag gengur að sínum
kvóta. Þess vegna verða menn að
fara mjög gætilega,“ segir Ólafur.
Bankarnir vilja stíga fastar til
jarðar í málinu. Þar eru menn
einnig á þeirri skoðun að samein-
ing verði ekki gerð með neinu of-
forsi og menn séu sér vel meðvit-
aðir um mikilvæga viðskipta-
hagsmuni fyrirtækjanna. Bank-
arnir telja hins vegar að samein-
ing gefi fyrirtækjunum mikla
möguleika á því að ná meiru út úr
rekstrinum.
Fylkingar málsins telja hins
vegar hvor um sig hina vera að
verja aðra hagsmuni. S-hópurinn
telur að Íslandsbanki sé að verja
hagsmuni sína í Kanada. Sjónar-
mið Ólafs og S-hópsins eru að vert
sé að verja íslenskt eignarhald á
félögunum. Innan bankanna segja
menn hins vegar að S-hópurinn sé
að reyna að selja fjallkonuna með
þessum málflutningi og aðrir
hagsmuni vegi þyngra, svo sem
hagsmunir fyrirtækja innan eig-
endahópsins.
haflidi@frettabladid.is
Landsbjörg:
Endurskins-
merki í
bókabúðum
UMFERÐ Slysavarnarfélagið Lands-
björg er með átak í notkun endur-
skinsmerkja. 5.000 merki verða
seld í bókabúðum á höfuðborgar-
svæðinu og á Akureyri næstu
daga.
Markmiðið með þessu er að
vekja athygli foreldra á að kaupa
endurskinsmerki fyrir börn sín
og flestir foreldrar koma í bóka-
búðir í upphafi skólaárs og er von-
ast til að það auki söluna.
Endurskinsmerki fimmfalda
sýn á gangandi vegfarendur.
Ólafur Ólafsson gerði tilboð í hlut Íslandsbanka í SÍF og SH. Íslands-
banki hafnaði tilboðinu og telur að meiri verðmæti felist í fyrirtækjun-
um og hagræðingar- og sameiningarmöguleikum þeirra.
SÖLUMIÐSTÖÐ
HRAÐFRYSTHÚSANNA
Tíu stærstu eigendur:
Burðarás ehf. 16,14%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 13,22%
Ker hf. 7,95%
Íslandsbanki hf. 7,11%
Framleiðendur ehf. 6,59%
Skeljungur hf. 6,40%
Vátryggingafélag Íslands hf. 6,24%
Mundill ehf. 5,75%
Mastur ehf. 4,02%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,93%
SÖLUSAMBAND ÍSLENSKRA
FISKFRAMLEIÐENDA
Tíu stærstu eigendur:
Landsbanki Íslands hf. 25,9%
Burðarás ehf. 19,6%
Íslandsbanki hf. 17,2%
Fjárfestingarfélagið Straumur hf. 10,3%
Sigurður Ágústsson hf. 8,1%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 7,2%
Framtak fjárfestingarbanki hf. 2,3%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,1%
Lífeyrissjóðurinn Framsýn 1,3%
VVÍB hf. 0,9%
VILDI KAUPA
Ólafur Ólafsson gerði tilboð í eignarhlut Ís-
landsbanka í veltumestu fyrirtækjum
landsins, sölufyrirtækjunum SH og SÍF. Ís-
landsbanki vildi ekki selja.
SKÓLASÓKN Um 91% sextán ára Ís-
lendinga stundaði nám haustið
2002 og er það rúmlega prósents
aukning frá
fyrra ári sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá Hag-
stofu Íslands.
Skólasóknin hef-
ur aldrei áður
mælst meiri en 90%. Mikið brott-
fall nemenda verður á næstu
tveimur árum framhaldsskólans,
en 81% sautján ára ungmenna
stundar nám og 72% átján ára
ungmenna. Skólasókn hefur þó
aukist í öllum aldurshópum frá ár-
inu 2001.
Skólasókn sextán ára ung-
menna er mest á Vestfjörðum og
hefur hún aukist mikið frá fyrra
ári. Minnst er skólasóknin á Suð-
urnesjum sem fyrr, en þrátt fyrir
það hefur skólasóknin þar aukist
um 2 prósentustig frá fyrra ári.
Sérstaklega hafa piltar þar sótt í
sig veðrið.
Fleiri stúlkur en piltar sækja
skóla. Skólasókn sextán ára pilta á
landsvísu er 88%, stúlkna 93%.
Munur á skólasókn kynjanna er
mestur við 19 ára aldur, 9 pró-
sentustig, en eftir tvítugt dregur
saman með kynjunum. Munurinn
er minnstur hjá tuttugu og eins
árs ungmennum, 2 prósentustig. ■
Skólasókn ungmenna eykst:
Nemum fækkar
með hærri aldri
SKÓLASTARF
Skólasókn hefur aukist í öllum aldurshóp-
um síðan árið 2001. Mest var skólasóknin
á Vestfjörðum árið 2002.
FJÖLDI Í NÁMI
16 ára 91%
17 ára 81%
18 ára 72%
Samstarfsmaður vopnasérfræðings ber vitni:
Kelly sagðist
óttast um líf sitt
DAVID BROUCHER
Broucher hitti David Kelly á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um eyðingu gereyð-
ingarvopna sem haldin var í Genf í Sviss í
febrúar á þessu ári.