Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 16
16 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
■ Andlát
Ég ætla að standa hérna meðfullri reisn á mínu safni og
taka á móti gestum. Annað stend-
ur ekki til,“ segir Sigurður Hjart-
arson aðspurður um afmælisdag-
inn sinn.
„Ég er löngu hættur að halda
upp á afmælin mín, nema kannski
stórafmæli. En maður nýtur þess
að vera til á hverjum degi, alveg
eins á afmælisdögum og öðrum.“
Sextugsafmælið er Sigurði
minnisstætt: „Ég hélt það heima
og það var fjögurra ára afmæli
safnsins í leiðinni. Það komu tugir
gesta og það var mikið talað,
drukkið og borðað. Það eru nú
helstu nautnirnar í lífinu. Annars
eru afmæli óttalegt prump. Þau
eru meira fyrir yngri kynslóðina.“
Eiginkona Sigurðar heitir Jóna
Sigurðardóttir og er hún leik-
skólastarfsmaður. Eiga þau fjögur
börn og sjö barnabörn. „Þau
hringja nú oft í okkur. Við höfum
gott samband við börnin á öllum
tímum ársins.“
Að sögn Sigurðar er mest að
gera á reðursafninu í júlí og
ágúst. „Útlendingar eru um 80%
þeirra sem koma hingað. Ég er bú-
inn að fá um 4.000 útlendinga það
sem af er árinu. Ég kann vel við
þá. Það er gaman að fá fólk úr öll-
um áttum og spjalla við það.“
Sigurður segist sífellt vera að
fá inn nýja limi á safnið. „Ég fékk
sel fyrir norðan í sumar og svo á
ég von á hval innan tíðar. Safnið
stækkar alltaf smám saman hjá
mér. Úr því að það er búið að
drepa þessi grey er alveg eins
gott að nýta þetta í mig,“ segir
Sigurður. „En það hefur ekkert
dýr verið drepið fyrir mig. Ég er
persónulega á móti öllum veiðum.
Hins vegar er ég ekki á móti hval-
veiðunum. Mér finnst þær sjálf-
sagðar í hófi og kjötið er gott, svo
mikið er víst.“ ■
SIGURÐUR HJARTARSON
Hefur fengið um 4.000 útlendinga í heimsókn á reðursafnið það sem af er árinu.
Með fullri reisn
á reðursafninu
1904 Hard D. Weed frá New York fær
einkaleyfi fyrir hönnun sína á
keðjum fyrir bíldekk.
1913 Stytta af Litlu hafmeyjunni úr æv-
intýri H.C. Andersen er afhjúpuð í
Kaupmannahöfn.
1965 Kvikmynd Bítlanna, Help!, er
frumsýnd í Bandaríkjunum. Þetta
var fyrsta mynd Bítlanna í lit.
1984 Southfork Ranch, heimili Ewing-
fjölskyldunnar úr þáttunum
Dallas, er selt. Nýir eigendur
breyta húsinu í hótel en það
hafði áður dregið að sér fjölda
ferðamanna.
■ 23. ágúst
Ég ætlaði mér nú alltaf að flytjahéðan úr sveitinni en nú er ég
komin aftur,“ segir Elísabet Dögg
Sveinsdóttir, en hún og maðurinn
hennar, Þorsteinn Magnússon,
keyptu Hreðavatnsskála fyrir
einu og hálfu ári síðan. Í ár er
skálinn 70 ára og í kvöld verður
afmælisdansleikur með Bogomil
Font og hljómsveit hans.
„Ég er 25 ára og Hreðavatns-
skáli 70 ára. Man einmitt að sum-
arið sem hann varð 60 ára fór ég á
14 böll hérna og á meira að segja
alla miðana. Var svolítil gelgja þá
og fannst algjört æði þegar ég
fékk leyfi til að fá að fara á ball,“
segir Elísabet en það sumarið spil-
aði Bogomil Font einmitt 6 sinnum.
„Það var brjálað sumar,“ segir
Sigtryggur Baldursson, sérlegur
talsmaður Bogomils. „Það þykir
líka öllum svo vænt um Skálann .
Á ballinu í kvöld verður reynt að
endurskoða tónlistarsögu Hreða-
vatnsskála og um að gera fyrir
fólk að bruna upp eftir. Nota
þessa jeppa, því það tekur ekki
nema klukkutíma að keyra þang-
að núna eftir að göngin komu.“
„Nú er sumarið að verða búið
hjá okkur en Bifröst er að byrja
og þá erum við með fimmtudags-
djamm. Reynum kannski að fá
hljómsveit einu sinni í mánuði og
svona,“ segir Elísabet að lokum og
er ánægð með að vera aftur flutt
heim í sveitina. ■
Afmæli
HREÐAVATNSSKÁLI
■ er 70 ára og því verður mikið húllum-
hæ þar í dag. Bogomil Font mætir og
verður með ball í kvöld.
ELÍSABET DÖGG SVEINSDÓTTIR
Er rétt orðin 25 ára en Hreðavatnsskáli er
sjötugur og ól ballstúlkuna upp í Elísabetu.
14 böll eitt sumarið
SHELLEY LONG
Heldur upp á 54 ára afmælið sitt í dag.
Þessi glaðlynda leikkona sló í gegn í
þáttunum Staupasteini. Hún hefur einnig
farið með hlutverk í myndum á borð við
The Money Pit og The Brady Bunch
Movie. Söngvarinn Rick Springfield er 54
ára í dag, Gene Kelly fæddist á þessum
degi árið 1912 og Keith Moon, trommu-
leikari í The Who, fæddist árið 1946.
Hann lést 1978.
23.ágúst
Guðrún Þorsteinsdóttir, Kjartansgötu 8,
lést miðvikudaginn 20. ágúst.
Gísli Þorvaldsson, Jörfabakka 14,
Reykjavík, lést þriðjudaginn 19. ágúst.
Margrét Ingibjörg Sigurgeirsdóttir Mið-
túni 1, Seyðisfirði, lést mánudaginn 18.
ágúst.
14.00 Guðmundur Ólafur Bærings-
son, Höfðagötu 17, Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkis-
hólmskirkju.
14.00 Ólafur Kristinn Sveinsson, Sel-
látranesi, verður jarðsunginn frá
Sauðlauksdalskirkju.
14.00 Vilhjálmur Emilsson, Laufási 7,
Egilsstöðum, verður jarðsunginn
frá Egilsstaðakirkju.
14.00 Yngvi Guðmundsson, fyrrver-
andi rafmagnseftirlitsmaður, Hlíf
II, Ísafirði, verður jarðsunginn frá
Ísafjarðarkirkju.
14.00 Ólafur Óskar Jónsson, frá Eyja-
landi, verður jarðsunginn frá Ak-
ureyjarkirkju, Vestur-Landeyjum.
14.00 Erla O. Guðjónsdóttir verður
jarðsungin frá Seyðisfjarðar-
kirkju.
Stefán Jónsson leikari er 39 ára.
Úlfar Eysteinsson matreiðslumaður er
56 ára.
Magnús Leópoldsson fasteignasali er
57 ára.
■ Jarðarfarir
■ Afmæli
??? Hver?
„Ég er framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar.“
??? Hvar?
„Ég er stödd á skrifstofunni. Hér er mik-
ið að gera og í mörg horn að líta í ís-
lenskri ferðaþjónustu. Við erum að
vinna að hagsmunamálum ferðaþjón-
ustunnar á mjög breiðum grundvelli. Eitt
stærsta málið sem við erum að fást við í
dag eru þau skaðlegu áhrif sem hval-
veiðar hafa á ferðaþjónustuna. Við von-
umst til að allir leggist á eitt til að lág-
marka þann skaða.“
??? Hvaðan?
„Ég er fædd og uppalin í Reykjavík en á
ættir að rekja til Ísafjarðar annars vegar
og Hafnarfjarðar hins vegar.“
??? Hvað?
„Ég er á kafi í vinnu en ætla samt að
skreppa upp í Borgarfjörð um helgina.
Þetta er fjölskylduferð þar sem ég von-
ast til að geta farið í góðar gönguferðir
og jafnvel á hestbak og fengið mér gott
að borða með fjölskyldunni.“
??? Hvernig?
„Það er ekki nema ein leið, bara keyr-
andi. Ég fer oft í Borgarfjörðinn og fagna
því að geta keyrt þangað á klukkutíma.
Hérna áður fyrr tók það býsna langan
tíma.“
??? Hvers vegna?
„Það er gott eftir stranga vinnuviku að
fara út fyrir bæinn og njóta náttúrunnar.“
ERNA HAUKSDÓTTIR
Hefur staðið í ströngu vegna hrefnuveið-
anna sem eru nýhafnar við Íslandsstrendur.
■ Persónan
■ Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum að senda
inn tilkynningar um dánarfregnir, jarðar-
farir, afmæli eða aðra stórviðburði. Tekið
er á móti tilkynningum á tölvupóstfang-
ið: tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að vera
ítarlegar og helst tæmandi.
Droplaug Ólafsdóttir hefur haftí nógu að snúast undanfarið í
tengslum við hrefnuveiðar í rann-
sóknarskyni sem eru nýhafnar við
Íslandsstrendur.
Droplaug, sem er sérfræðing-
ur á nytjastofnasviði Hafrann-
sóknastofnunar, er leiðangurs-
stjóri á bátnum Nirði KÓ. Hún er
einn af þremur starfsmönnum
stofnunarinnar sem eru leiðang-
ursstjórar vegna hrefnuveiðanna.
Hún segir að verkinu sé hvergi
nærri lokið: „Við komum bara inn
út af brælu og förum síðan út aft-
ur. Þetta mun standa yfir fram í
september.“
Droplaug er fædd í Reykjavík
árið 1960. Faðir hennar, sem er
látinn, hét Ólafur Þorsteinsson og
starfaði sem verkstjóri. Móðir
hennar heitir Hólmfríður Björns-
dóttir og er skrifstofukona. Sjálf
er Droplaug einstæð móðir 13 ára
gamals drengs sem heitir Ólafur.
Eftir að Droplaug lauk námi
frá Menntaskólanum í Hamrahlíð
fór hún í líffræði í Háskóla Ís-
lands. Að því námi loknu lagði hún
land undir fót og tók masters-
gráðu í líffræði frá Kaupmanna-
hafnarháskóla. Hún segir að dvöl-
in úti hafi verið skemmtileg. „Ég
held að það sé nauðsynlegt fyrir
alla að fara út og prófa nýja
hluti,“ segir Droplaug.
Droplaug hóf störf hjá Haf-
rannsóknastofnun árið 1996 og
líkar þar mjög vel. Nóg hefur hins
vegar verið að gera í sumar og því
hefur lítill tími gefist fyrir sumar-
frí. Það mun bíða betri tíma. ■
Tímamót
DROPLAUG ÓLAFSDÓTTIR
■ er sérfræðingur á nytjastofnasviði
Hafrannsóknastofnunar. Hún hefur staðið
í ströngu við rannsóknir á hrefnum við
Íslandsstrendur.
DROPLAUG ÓLAFSDÓTTIR
Hóf störf hjá Hafrannsóknastofnun fyrir sjö
árum.
Sumarfríið bíður betri tíma
Afmæli
SIGURÐUR HJARTARSON
■ sagnfræðingur og forstöðumaður
Hins íslenska reðursafns heldur upp á 62
ára afmælið sitt í dag. Hann á von á
hvalreði innan tíðar.
Skorradal / Sími 822 0055 / www.safaris.is
Opið til kl. 18.