Fréttablaðið - 23.08.2003, Síða 24
24 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Stundum er kvartað yfir því aðnútímaleikarar hafi ekki til að
bera sömu persónutöfra og glæsi-
leika og gömlu stjörnurnar. Þessi
fullyrðing á vel við þegar Carole
Lombard á í hlut en hún var
stjarna af gamla skólanum, leiftr-
andi persónuleiki, fögur, fyndin
og greind.
Hún fæddist árið 1908 og hét
réttu nafni Jane Peters. Hún var
tólf ára þegar hún lék í fyrstu
kvikmynd sinni og sautján ára
gömul breytti hún nafni sínu í
Carole Lombard. Sagt er að hún
hafi meðal annars átt ástarævin-
týri með Howard Hughes, Charlie
Chaplin og Joseph Kennedy.
Tuttugu og þriggja ára gömul gift-
ist hún leikaranum William
Powell sem var fágaður heims-
maður og afbragðs gamanleikari.
Hjónabandið átti ekki framtíðina
fyrir sér og þau skildu en héldu
vináttu á meðan Carole lifði.
Félagslynd
samkvæmisdama
Árið 1932 lék Carole Lombard
í mynd með Clark Gable. Þau
veittu hvort öðru litla athygli en
fjórum árum síðar hittust þau á
dansleik og heilluðust hvort af
öðru. Þau hófu sambúð en sið-
ferði þeirra tíma var á þann hátt
að þau urðu að haga opinberu lífi
sínu eins og þau byggju ekki
saman. Clark var kvæntur og
hafði beðið eiginkonu sína um
skilnað en hún vildi ekki missa
hann og gerði kröfu um svimandi
háan lífeyri. Clark hafði ekki efni
á skilnaði. Kvikmyndafélag hans
greip loks í taumana og tók veru-
legan þátt í kostnaðinum við
skilnaðinn.
Að mörgu leyti voru Clark og
Carole Lombard gjörólík. Carole
var glaðlynd, óhemju félagslynd
og ákaflega örlát. Hún var ótam-
in, einstaklega fyndin, orðheppin
og uppátækjasöm og blótaði eins
og togarasjómaður. Hún kunni
best við sig í samkvæmissölum
þar sem hún var hrókur alls fagn-
aðar. Hann var einrænn, átti
vanda til þunglyndiskasta, kunni
hvergi betur við sig en á veiðum
og kvöldunum vildi hann eyða
heima. Samband þeirra hefði
sennilega ekki enst nema vegna
þess að Carole lagaði líf sitt að
lífi hans. Vinir hennar vissu ekki
hvaðan á sig stóð veðrið þegar
vinsælasta konan í Hollywood
sást ekki lengur á næturklúbb-
um, heldur var heima og las sér
til um veiðar og skotfæri svo hún
gæti fylgt sínum heittelskaða á
veiðiferðum hans.
Stóra ástin
Clark og Lombard giftu sig
með leynd árið 1939 þegar Clark
átti tveggja daga frí frá upptökum
á frægustu mynd sinni, Á hverf-
anda hveli. Þau bjuggu á búgarði
nokkuð fjarri Hollywood og gerð-
ust bændur. Þau voru bæði í hópi
vinsælustu leikara Hollywood og
hún þótti afburða gamanleikkona,
ein sú besta sem Hollywood hefur
nokkru sinni átt.
Clark og Carole höfðu verið
gift í þrjú ár þegar Carole, sem
var ákafur föðurlandsvinur, hélt í
ferðalag til að selja stríðsskulda-
bréf. Með í för var móðir hennar
og blaðafulltrúi Clark. Hjónin
lentu í heiftarlegu rifrildi fyrir
brottför Carole. Clark hafði ekk-
ert mótstöðuafl þegar konur voru
annars vegar og hafði verið
Carole ótrúr. Hann leit svo á að
þessi ævintýri skiptu engu máli,
enda hafði hann engar tilfinning-
ar til þessara kvenna. Carole var
hins vegar ekki sátt. Rifrildinu
lauk með því að Clark þaut út úr
húsinu í bræði. Þau sáust ekki
framar en Carole hringdi í mann
sinn daginn eftir og sættist við
hann.
Örlagarík flugferð
Á ferðalagi sínu, um nokkur
ríki Bandaríkjanna, seldi
Carole stríðsskuldabréf fyr-
ir tvær milljónir dollara.
Þegar kom að heimferð
vildi móðir Carole fara
með lest en Carole
vildi fljúga.
Carole stakk
upp á því að
þau köstuðu
upp á hvor
f e r ð a m á t -
inn yrði fyr-
ir valinu.
Carole vann.
Þegar komið
var að flugvél-
inni rak móðir
Carole, sem var
afar hjátrúarfull,
upp hræðsluóp.
Flugnúmerið var
3, flugvélin var
DC 3, þau voru
þrjú saman og
Carole var 33
ára. Móðirin
■ Kvikmyndastjarna
Sagt hefur verið að mesti missir í sögu Hollywood hafi verið þegar Carole Lombard lést í flugslysi 33 ára gömul
Blótaði eins og
togarasjómaður
CAROLE
LOMBARD
Hún var á sínum
tíma vinsælasta
konan í Hollywood,
örlát og fyndin og
afar hæfileikarík
gamanleikkona.