Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 28

Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 28
■ Útgáfa 28 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Ég les mjög mikið og uppá-haldsbækurnar eru nokkrar,“ segir Linda Pétursdóttir, „en fyrst og fremst er það Siddartha eftir Hermann Hesse sem fjallar um Búdda og er alveg frábær bók. Ég las hana fyrir mörgum árum og er búin að lána mörgum hana. Þegar ég var að ganga í gegnum mikla erfiðleika í einkalífinu fékk ég senda bók frá presti norðan af Akureyri. Sú bók heitir Veronica Decides to Die eftir Paulo Coelho, sem skrifaði Alkemistann. Þetta er einstök bók um stúlku í Austur- Evrópu sem reynir að fyrirfara sér og vaknar á geðveikrahæli. Algjörlega frábær saga sem ég held mikið upp á, eins og aðrar bækur þessa höfundar. Nýlega las ég bók sem heitir Lovely Bones eftir Alice Sebold og var ein vinsælasta bókin í Bandaríkjunum í fyrrasumar. Nú er ég að lesa bók sem heitir Call me Crazy og er eftir leikkonuna Anne Heche. Þetta er áhrifamikil bók um líf hennar en faðir hennar misnotaði hana frá því hún var ungbarn. Þessi bók snertir mig mjög djúpt.“ Þegar Linda er beðin um að nefna íslenskar bækur segist hún verða að nefna bækur Þorvalds Þorsteinssonar um Blíðfinn, „af því að ég er mamma Blíðfinns“. Þau orð munu vafalaust vera út- skýrð nánar í ævisögu Lindu sem væntanleg er í haust. „Svo finnst mér Hallgrímur Helgason skemmtilegur höfundur,“ bætir hún við, „en annars hef ég fremur breiðan bókmenntasmekk.“ ■ METSÖLULISTI EYMUNDSSONAR Allar bækur 1. Ekið um óbyggðir. Jón G. Snæland 2. Röddin. Arnaldur Indriðason 3. Kortabók Máls og menningar. Örn Sigurðsson ritstjóri 4. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 5. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason 6. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason 7. Ensk-íslensk/íslensk-ensk vasa- orðabók. Orðabókaútgáfan 8. Ferðakortabók. Landmælingar Íslands 9. Hálendishandbókin. Páll Ásgeir Ásgeirsson 10. Íslenska vegahandbókin. Steindór Steindórsson frá Hlöðum Skáldverk 1. Röddin. Arnaldur Indriðason 2. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 3. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason 4. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason 5. Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Steinunn Jóhannesdóttir 6. Óvinafagnaður. Einar Kárason 7. Sagan um Pi. Yann Martel 8. Að moldu skaltu aftur verða. Patricia Cornwell 9. Krýningarhátíðin. Boris Akúnín 10. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason METSÖLULISTI BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR 6. - 12. ÁGÚST The Da Vinci Code eftir Dan Brown Metsölubók sem hefur fengið frábæra dóma, sem er engin furða því hér er á ferð ein hug- myndaríkasta og skemmtileg- asta sakamálasaga seinni ára, en þó ekki sú best skrifaða. Les- andinn sér Biblíuna, Krist og verk Leonardos da Vincis í nýju ljósi eftir lesturinn. Gagnrýn- andi New York Times sagði um þessa bók: „Vá!“ Það er full ástæða til að taka undir þá upp- hrópun. Bókin er væntanleg í ís- lenskri þýðingu í haust en þeir sem vilja ekki bíða geta nálgast hana í Eymundsson. ■ Bók vikunnar Geoffrey Chaucer, höfundurKantaraborgarsagnanna, var hugsanlega myrtur í grimmilegri valdabaráttu. Þessu er haldið fram í nýrri bók eftir Terry Jo- nes, sem þekktur er sem einn af Monty Python hópnum. Jones hefur unnið að rannsóknum á ævi Chaucers ásamt hópi fræði- manna og þeir segja að Chaucer hafi orðið æ einangraðri eftir að Hinrik IV komst til valda árið 1399. Hann hafi verið óttasleginn maður enda hafi hann verið tal- inn á rangri línu í pólitík og í trú- arlífi og það kunni að hafa leitt til þess að hann var myrtur. Alan Fletcher, kennari í mið- aldafræðum við háskólann í Dyflinni, er meðhöfundur Jones að bókinni Hver myrti Chaucer? Hann segir að eftir dularfullt lát Ríkharðs II hafi Chaucer lent í ónáð hjá Hinrik IV vegna þjónus- tu sinnar við Ríkharð. Chaucer hlyti einnig að hafa vakið áhuga hins nýja erkibiskups af Kantara- borg, Thomas Arundel, sem lét brenna óvini sína á báli. Ekki sé ólíklegt að Arundel hafi stórlega mislíkað Kantaraborgarsögur Chaucers þar sem gert er grín að kirkjunnar mönnum. Fletcher segir að Kantaraborgarsögurnar hafi verið eldfimari en nútíma- menn geri sér grein fyrir og Chaucer hafi verið ærulaus mað- ur síðustu árin sem hann lifði. Á sínum tíma var ekki tilkynnt opinberlega um dauða Chaucers og engar heimildir eru til um erfðaskrá eða opinbera jarðarför. Legsteinn hans þykir afar lát- laus, sem félagarnir segja enn styðja þá kenningu að dauðdagi hans hafi verið sviplegur. Undir það síðasta bjó Chaucer á sér- stökum griðastað í Westminster Abbey þar sem fólki var boðin friðhelgi. Terry Jones hefur enn ekkert látið eftir sér hafa um bókina. Felicity Riddy, prófessor í mið- aldafræðum við háskólann í York, segir að bók þeirra félaga virðist eiga eftir að verða mjög umdeild en segir enga ástæðu til að gera grín að Terry Jones. ■ LINDA PÉTURSDÓTTIR Skáldsaga Hermanns Hesse Siddartha er í miklu uppáhaldi og sömuleiðis bækur Paulos Coelhos. Á árinu eru þegar komnar útnokkrar bækur á vegum For- lagsins, aðallega þó ljósmynda- bækur Sigurgeirs Sigurjónssonar, sem hafa selst gríðarvel. Nýlega kom út bókin Láttu ekki smámálin ergja þig í ástinni eftir Richard og Kristine Carlson, bók sem er í serí- unni Láttu ekki smámálin ergja þig. Önnur handbók sem er væntan- leg á árinu er Áfangar í kvik- myndafræðum, sem Guðni Elísson ritstýrir og er systurbók Heims kvikmyndanna sem kom út fyrir nokkrum árum hjá Forlaginu. Í henni eru öll meginskrif leikstjóra og kvikmyndaspekúlanta um form kvikmyndanna, þýdd úr frummál- um. Útgáfan er hugsuð sem kröft- ugt innlegg í hugmyndabanka hér- lendrar kvikmyndaumræðu og all- margir aðilar í kvikmyndageiran- um styrkja útgáfu hennar. Einnig kemur út bókin Hvað er fíkn? eftir Craig Nakken, sem er ein af klassíkerum fíknarbók- menntanna. Höfundur skoðar fíkn í víðara ljósi en vant er, til dæmis leggur hann spila- og eyðslufíkn til jafns við áfengisfíkn. Þótt samfé- lagið sé upptekið af ákveðnum fíknum og telji þær stærra vanda- mál en aðrar er öll fíkn kvöl fyrir fíkilinn. Stælalaus ritstíll og óvæginn gagnrýnandi Íslensk skáldverk Forlagsins þetta árið eru tvö. Guðmundur Steingrímsson, poppari, pistlahöf- undur og blaðamaður, knýr nú dyra með sinni fyrstu skáldsögu, sem ber stórt og mikið nafn: Áhrif mín á mannkynssöguna. Þegar Kristján B. Jónasson, útgáfustjóri Forlags- ins, er beðinn um að segja hvað ein- kenni söguna segir hann: „Afslapp- aður, stælalaus og húmorískur rit- stíll, geðþekkur sögumaður sem er hvorki alvarlegur lúser eða róman- tískur sveimhugi, heldur fyrst og fremst fínn gaur, miklir atburðir um miðjan vetur og hugsanleg kvikmynd um Jesú eru þau ele- ment sem hér eru tilreidd saman. Eigum við ekki að segja að þessi bók sé fantagóð og frumleg lýsing á sambandi einstaklings og valds og möguleikum hins smáa til að breyta gangi veraldarsögunnar, svona í framhjáhlaupi á meðan hann glímir við hin stærri vanda- mál, eins og hver stal ferðatösk- unni hans og hvaða kvenmaður þetta er sem allt í einu heilsar upp á hann.“ Linda Vilhjálmsdóttir sendir frá sér sína fyrstu prósabók, og ber hún heitið Lygasaga. „Þetta er feikilega vel skrifuð bók sem tekur á erfiðum málum og á eftir að vekja mikla at- hygli,“ segir Kristján. „Ég er viss um að margir eiga eftir að verða forviða á þessari bók því hér kemur Linda fram sem í senn óvæginn gagnrýnandi mannlegs eðlis og bráðfyndinn sagnahöfundur.“ Dramatísk saga barnastjörnu Víða um heim er ekkert lát á vinsældum bókar Michaels Moores, Heimskir hvítir karlar. Í Þýskalandi er bókin í efsta sæti metsölulista yfir rit almenns eðlis og í Bretlandi er hún í öðru sæti. Forlagið gefur bókina út í haust og þýðandi er Eiríkur Örn Norðdahl. Ármann Jakobsson sendir frá sér bókina Tolkien og Hringurinn sem fjallar um Tolkien og verk hans. Til dæmis eru raktar þar ætt- ir álfa og dverga, en sú ættfræði hefur ekki áður sést á bók. Ekkert lát virðist vera á Tolkien-æðinu og lokakvikmyndin um Hringadrótt- inssögu verður frumsýnd um jólin. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir skráir ævisögu Ruth Reginalds, sem er sögð vera dramatísk saga barnastjörnunnar og söngkonunn- ar. Sagt er frá ævintýralegum ferli hennar þegar hvert barn á Íslandi átti með henni plötu, niðurlæging- arárum í kjölfar þess að þeim ferli lauk og ótrúlegu lífshlaupi sem fær venjulegt fólk til að finnast það hafa setið auðum höndum. Ruth hefur staðið af sér ágjöfina og náð góðu sambandi við sína stóru fjöl- skyldu sem teygir sig frá Taílandi til Bandaríkjanna, einkum hina glæsilegu grísku föðurfjölskyldu sem býr á sveitasetri í Suður- Englandi. Að lokum skal nefna stórvirkið Íslenska bílaöldin eftir Örn Sig- urðsson og Ingiberg Bjarnason. Þetta er glæsileg menningarsaga íslenskra bílamanna með um 1.000 ljósmyndir af öllu sem tengist bíla- menningu og bílum frá 1904. kolla@frettabladid.is GEOFFREY CHAUCER Terry Jones, einn Monty Python félaganna, hefur skrifað bók þar sem hann heldur því fram í fullri alvöru að Chaucer hafi verið myrtur. Í nýrri bók er að finna djarfa kenningu um dauða eins þekktasta skálds Breta: Var Chaucer myrtur? LINDA VILHJÁLMSDÓTTIR Eftir hana kemur út bókin Lygasaga, sem er fyrsta prósabók hennar. Ekki er ýkja langt þar til bókaflóðið skellur á og þar mun Forlagið eiga forvitnilegar bækur: Forlagið undirbýr bókajólin GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON Sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu sem ber hið mikla nafn Áhrif mín á mannkynssöguna. SIGURGEIR HEILLAR FERÐAMENN Á metsölulista ferðamannabóka á erlendum málum í verslunum Pennans fyrstu tvær vikurnar í ágúst á Sigurgeir Sigurjónsson fimm bækur á topp tíu listanum. Þetta eru Lost in Iceland, á ensku, frönsku og þýsku, Amazing Iceland og Iceland: The Warm Country in the North. Þetta er sambærilegur árangur og hjá Arnaldi Indriðasyni í skáldsagna- deildinni. Þegar ég var að ganga í gegnum mikla erfiðleika í einkalífi fékk ég senda bók frá presti norðan af Akureyri. Sú bók heitir Veronica Decides to Die eftir Paulo Coelho, sem skrifaði Alkemistann. Þetta er einstök bók um stúlku í Austur-Evrópu sem reynir að fyrirfara sér og vaknar á geðveikrahæli. Algjörlega frábær saga sem ég held mikið upp á. ,,Einstakar bækur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ■ Bókatíðindi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.