Fréttablaðið - 23.08.2003, Síða 30

Fréttablaðið - 23.08.2003, Síða 30
■ Teiknimyndasögur ■ Nafnið mitt ■ Plötukassinn minn 30 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Lesendahópurinn er alltaf aðstækka og breytast og það er mest áberandi hversu stelpum sem lesa myndasögur hefur fjölg- að mikið,“ segir Pétur Yamagata, umsjónarmaður myndasögudeild- ar Nexus. „Stelpurnar eru flestar á aldrinum 12 til 22 ára og sækja langmest í japanskar teikni- myndasögur og þá aðallega svo- kallaðar shoujo-sögur. Þetta er japanskt slangur yfiir stelpu- myndasögur en strákar lesa þetta auðvitað líka. Þetta eru súrreal- ískar sápuóperur með mjög sér- stakan húmor og litla sem enga pólitíska rétthugsun.“ Ekki bara fyrir nörda Pétur nefnir til dæmis bækurn- ar GTO sem segja frá „mótor- hjólatöffara sem gerist mennta- skólakennari til þess að komast yfir kvenfólk með skrautlegum afleiðingum“ og Fake sem fjalla um ævintýra tveggja samkyn- hneigðra löggufélaga. „Þessar bækur rokseljast og eru mjög vin- sælar hjá stelpunum.“ Nexus hefur algera sérstöðu hvað varðar innflutning á teikni- myndasögum og hefur frá upp- hafi verið höfuðvígi „nörda“ sem lifa og hrærast í teiknimyndasög- um, hlutverkaspilum, vísinda- skáldskap og bíómyndum. Pétur segir þó að það hafi bara verið rétt í upphafi sem hægt sé að tala um að myndasögurnar hafi verið bundnar við dæmigerða „nörda“. „Þetta breyttist mjög fljótt,“ segir hann. „Það er auðvitað alltaf ákveðinn kjarni sem sækir í ofur- hetju, spandexgalladæmið, en þróunin hefur verið svo ör og fjöl- breytnin mikil í myndasögunum að það er úr nógu að velja. Þetta eru orðnar miklu harðari bók- menntir með tilkomu breskra höf- unda á borð við Warren Ellis með Transmetropolitan. Það má helst líkja þessu við þá breytingu sem varð á glæpamyndum þegar Quentin Tarantino kom fram á sjónarsviðið með Reservoir Dogs og Pulp Fiction.“ Ofurhetjur í stöðugri þróun Þessar teiknuðu glæpabók- menntir höfða, líkt og kvikmyndir Tarantinos, sérstaklega til karla á þrítugsaldri en Pétur segir að karlkynskaupendur teiknimynda- sagna séu á öllum aldri. „Karlarn- ir fara talsvert hærra í aldri en konurnar,“ segir hann. „Ætli Meg- as sé ekki aldursforsetinn hjá okkur en það eru svona 10-12 fastakúnnar á hans reiki hjá okk- ur. Þegar menn eru komnir á þennan aldur eru þeir oft að kaupa í nostalgíu, eldgamlar Bat- man-sögur og fleira. Þetta eru líka sjóaðir menn sem hafa lesið flest og hafa því áhuga á nýjum straumum og tilraunum. Það er alltaf einhver tilrauna- starfsemi í gangi, ekki síst í kring- um ofurhetjurnar þar sem eitt- hvað þarf að gera til að halda þeim á lífi. Blöðin 1602 eru til dæmis mjög vinsæl núna en þar hefur Neil Gaiman, sem gerði Sandman, tekið klassískar Marvel-ofurhetjur og sett þær í miðaldabúning. Þar koma þekktir gaurar eins og Spiderman, Dr. Strange, Hulk og fleiri við sögu og þarna er spænski rannsóknarrétturinn ekki að eltast við trúvillinga heldur svokallað „witchbreed“ sem eru ofurhetj- urnar. Þetta er svipuð pæling og hefur sést í X-Men.“ Draga karla á bókasafnið Borgarbókasafnið heldur úti ágætri myndasögudeild þar sem hægt er að komast í kynni við flestar tegundir myndasagna, jap- anskar, ofurhetjur og harðsoðna reyfara svo eitthvað sé nefnt. Pét- ur segir bókasafnið nú þegar eiga gríðarlegan fjölda titla. „Við höf- um verið í ráðgjafarhlutverki þarna en Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur hefur séð um þessa deild með miklum glæsibrag.“ Erla Kristín Jónasdóttir hjá Borgarbókasafninu segir mynda- sögurnar njóta mikilla vinsælda bæði hjá ungum sem öldnum. „Þær eru lánaðar mikið út og án þess að við getum fullyrt það grunar okkur að myndasögurnar hafi átt sinn þátt í að draga karl- menn inn á safnið. Myndasögurn- ar virðast njóta mikilla vinsælda hjá þeim og svona almennt eru konur um 60% gesta bókasafna í heiminum en hér hjá okkur skipt- ist þetta alveg til helminga. Úrval- ið af tímaritum og tónlist hefur að vísu stóraukist á liðnum árum en teiknimyndasögurnar hafa áreið- anlega haft sitt að segja.“ Kvikmyndaframleiðendur í Hollywood hafa sótt stíft í teikni- myndasögurnar undanfarið og þannig hafa gömlu jaxlarnir Hulk, Spiderman og X-Men slegið hressilega í gegn á hvíta tjaldinu. Pétur segir bíómyndirnar vissu- lega hafa komið myndasögunum í sviðsljósið en áhrifin á myndasög- urnar sjálfar hafi aðallega verið þau að höfundar þeirra reyni jafnharðan að toppa það sem þeir sjá í bíó á pappírnum „og það hef- ur ekki reynst þeim sérstaklega erfitt.“ Myndasögurnar þykja því ferskari miðill en kvikmyndin og miðað við gerjunina sem er í gangi í myndasöguheiminum má slá því föstu að stórsókn þessarar bókmenntagreinar sé síst í rén- um. thorarinn@frettabladid.is Ég átti nú að heita Elvar enpresturinn neitaði að skíra mig því nafni þar sem hann vildi meina að það væri ættarnafn,“ segir Valgarður Þór Guðjónsson, tölvugúrú og söngvari pönk- hljómsveitarinnar Fræbbblanna. „Það var því ákveðið í skyndi að skíra mig í höfuðið á Valgerði Þórunni, ömmu minni.“ Valgarður segir að foreldrar sínir hafi ekki vitað að amma hans bæri millinafnið Þórunn. „Þau komust að því seinna þannig að þau gerðu sér ekki grein fyrir því að millinöfn okkar voru líka nánast þau sömu.“ Valgarður segist ekki sakna þess neitt sérstaklega að hafa misst af Elvarsnafninu á elleftu stundu og kann vel við það að heita í höfuðið á ömmu sinni. ■ Fyrsta platan sem ég keyptivar niðri í Fálka á Laugaveg- inum. Hún var 78 snúninga og var með Baldri og Konna,“ segir Hörður Torfason, sem var um 12 ára gamall á þeim tíma. „Þeir voru aðalnúmerið þá. Alfreð Clausen söng með honum líka. Baldur var sá sem stjórnaði brúðunni Konna.“ Hörður smitaðist auðvitað af rokkinu á unglingsárunum og sagði skilið við barnaplöturnar. Hann segist hafa keypt fyrstu „al- vöru“ plötuna tveimur árum seinna. Það var „Oh, Diana“ með Paul Anka. „Ég átti þá plötu langt fram eftir árum. Svo settist yngsti bróðir minn ofan á hana.“ Safn Harðar er fremur fjöl- breytt. Allt frá vínarvölsum yfir í sálma, rokk, djass og þjóðlaga- söngva. „Ef ég heyri einhvern áhugaverðan tón einhvers staðar þá ber ég mig eftir plötunum. Þetta er eins og gott vínglas, mað- ur þarf ekki að drekka alla upp- skeruna.“ Hann segist svo eiga plötur víðs vegar að úr heiminum. Nefn- ir sem dæmi plötur frá Svíþjóð, Færeyjum, Finnlandi, Mexíkó og Hollandi. Hann langar svo að fara að kaupa meira af óperum. Þó svo að Hörður safni tónlist segist hann vera mjög lítið fyrir það að safna plötum með einstaka tónlistarmönnum. „Ég reyni yfir- leitt frekar að leita mér að ein- hverju nýju. Maður verður að kíkja á hvað menn eru að gera. Í gær fór ég t.d. út í búð til þess að kynna mér plötu eftir íslenskan strák sem kallar sig Mugison.“ Hann viðurkennir þó að hafa safn- að plötum með Elton John í kring- um 1970. Hann segist fylgjast ágætlega með og að það sé engin stefna sem honum líki sérstaklega illa við. „Ég sá Eminem-myndina um síð- ustu helgi. Var svo að lesa textana hans og stúdera hann.“ Rapparinn með glókollinn hefur verið þekkt- ur fyrir beitt hommagrín sitt, hvað finnst svo Herði um það? „Er ekki leyfilegt að segja allt? Mér finnst það bara af hinu besta,“ segir hann og hlær léttilega. „Þeg- ar maður skoðar hann í heild sinni þá tek ég þetta ekki alvarlega. Eins lengi og þetta er ekki undir einhverjum fasistamerkjum. Þá færi maður að breyta um tón.“ biggi@frettabladid.is CINDERELLA Junko Mizuno tekur sígild ævintýri og gerir „klassískar splatterútgáfur af þeim“, eins og Pétur orðar það. Svona lítur Öskubuska út hjá Mizuno en hún hefur einnig tekið snúning á Hans og Grétu og fleiri góð- kunningjum úr gömlum ævintýrum. Bækur hennar njóta mikilla vinsælda, ekki síst hjá kvenþjóðinni. Ekki bara fyrir nörda Vinsældir teiknimyndasagna hafa stóraukist undanfarið og fáum blandast lengur hugur um að um alvöru bókmenntir sé að ræða. Gróskan er mikil í myndasögugerðinni og þar ægir saman ofurhetjum, japönskum furðufígúrum og harðsoðnum glæpamönnum. Það vekur sérstaka athygli að stúlkum sem lesa myndasögur fer stöðugt fjölgandi. Þetta eru orðnar miklu harðari bók- menntir með tilkomu breskra höfunda á borð við Warren Ellis með Trans- metropolitan. Það má helst líkja þessu við þá breytingu sem varð á glæpamyndum þegar Quentin Tarantino kom fram á sjónarsviðið með Reservoir Dogs og Pulp Fiction. ,, INU-YASHA Japönsku ævintýrin sem kennd eru við hetjuna sem er hálfur maður og hálfur púki njóta mikilla vinsælda og staldra jafnan stutt við í hillum Borgarbókasafns- ins. Bækurnar fjalla um ævintýri nútímastúlku frá Tókíó sem sogast inn í japanskan miðaldaævin- týraheim þar sem mikil skálmöld ríkir og ýmsar for- ynjur skjóta upp kollinum. VALGARÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON Átti að heita Elvar en þegar presturinn neitaði var gripið til þess í snatri að skíra hann í höfuðið á ömmu sinni. Átti að heita Elvar FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM HÖRÐUR TORFASON Hörður segist aðeins eiga geislaspilara í dag. Hann dauðsér eftir gamla plötuspilar- anum. „Hljómurinn í vínylplötunni er svo vinalegur. Í dag er hljómurinn orðinn svo sótthreinsaður.“ Óþarfi að drekka alla uppskeruna

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.