Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.08.2003, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 23.08.2003, Qupperneq 40
Flestir bjuggust við því að EinarÁgúst Víðisson, slagverksleik- ari og söngvari í Skítamóral, myndi hefja sólóferil þegar Sel- fosssveitin tilkynnti um tímabund- ið andlát sitt. Ekkert hefur orðið úr ennþá. Nú er Einar kominn aftur á svið með Skítamóral en hefur ekki gef- ið drauma sína um sólóferil upp á bátinn. Áherslurnar virðast vera að breytast með aldrinum. Einhverjir muna þó líklegast eftir því að Einar var byrjaður að vinna að sólóplötu fyrir tveimur árum síðan. Færri vita hvað varð um hana. „Ég hafði nú bara eytt nokkrum árum í fyllirí og vissi voðalega lít- ið hvað ég var að fara út í. Svo var það röð atvika sem gerði það að verkum að ekkert varð úr,“ segir Einar og hefur greinilega skilið það svekkelsi eftir á leið sinni upp veginn. „Ég treysti röngu fólki sem hafði þekkingu. Ég lagði þetta í hendurnar á því. Þá kom bara í ljós eins og vanalega að ef maður gerir hlutina ekki sjálfur, þá ganga þeir ekki upp.“ Í dag segist Einar vera búinn að semja nóg af lögum á heila plötu og vonast eftir því að geta hafið vinnu við hana einhvern tímann eftir áramót. Í vor var lagður grunnurinn að 13 laga barnaplötu sem átti að vera í svipað þægilegum stíl og tónlist Noruh Jones. Það ævintýri var sett á ís vegna óviðráðanlegra ástæðna en Einar stefnir á að finna útgefanda fyrir það og klára það einn daginn. „Ég áttaði mig á því í þessu tveggja ára fríi Skítamórals hversu yfirborðskenndur þessi poppbransi er. Ég vaknaði frá nokkrum martröðum og vissi þá að ég þyrfti að taka mig á í nokkrum hlutum. Ég hef ekkert verið barn- anna bestur í mannlegum sam- skiptum. Maður var orðinn svolítill plebbi. Það skiptir mig ekki lengur máli að eiga lag í toppsæti á vin- sældalistum. Þá er maður bara að eltast, eins og asni eftir gulrót. Ég lærði að tónlistin skiptir fyrst og fremst máli, ekki allt þetta brölt sem er í kringum,“ segir Einar að lokum. Skítamórall stefnir á aðra tón- leikaferð um landið í haust. Fyrir jól kemur svo safnplata sem mun innihalda tvö ný lög. biggi@frettabladid.is 40 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR ■ Bækur Er hægt að barna ís með dýfu? Pondus eftir Frode Øverli Með súrmjólkinni Poppari EINAR ÁGÚST ■ er einn af strákunum í Skítamóral og var fulltrúi þjóðarinnar í Evróvisjon á sín- um tíma. Einar ræðir um horfna tíma og framtíðina. Dagana 7-13. september verðurhér alþjóðleg bókmenntahá- tíð. Stjörnur á borð við Nóbelshöf- undin José Saramago og Booker- verðlaunahafann Hanif Kureishi mæta ásamt reyfaragoðinu sænska Henning Mankell. Auk þess verða þarna minni spámenn utan úr heimi og nokkrir íslenskir höfundar kynntir fyrir stjörnun- um þremur og almenningi öllum. Þar ber hæst Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Arnald Ind- riðason, Guð- mund Andra T h o r s s o n , Huldar Breið- fjörð, Guðrúnu Evu Mínervu- dóttur, Sigur- björgu Þrastardóttur, Sigurð Páls- son, Árna Þórarinsson, Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, Steinunni Sig- urðardóttur, Stefán Mána, Vigdísi Grímsdóttur og Andra Snæ Magnason. ■ Bíddu... ég þarf að reima... Nú mun þér blæða! Foringi! Ó, vei þér fylgismaður! Sorglegt að sjá hvað teikni- myndasögur geta gert fólki! Stundum hef ég það á tilfinning- unni að ég búi í teiknimynda- sögu! EINAR ÁGÚST „Ég fór út í þennan bransa og ætlaði að gera mitt besta svo kemur einhver og telur manni trú um það að maður þurfi að gera hitt og þetta,“ segir Einar Ágúst. Poppbransinn er yfirborðskenndur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.