Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 42
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 5532075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
■ ■ TÓNLIST
12.00 Mark Anderson, orgel í Hall-
grímskirkju í hádeginu.
16.00 Sunna Gunnlaugsdóttir
jazzpíanisti spilar ásamt Jóel Pálssyni á
saxófón, Róbert Þórhallssyni á bassa
og Helga S. Helgasyni á trommur á
sumartónleikum í Jómfrúnni við Lækjar-
götu.
19.00 Smekkleysa gengst fyrir
spunatónleikum í Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsi, undir yfirskriftinni Sirkus
Halldórs Laxness í tilefni af nýútgefn-
um hljómdiski hljómsveitarinnar Mínus
sem ber heitið Halldór Laxness. Mínus
flytur tónlist sína ásamt Curver, Einari
Erni, The Hafler Trio, Einari Melax, Jó-
hamri og fleirum.
20.00 Sumaróperan sýnir Krýn-
ingu Poppeu á nýja sviði Borgarleik-
hússins. Í aðalhlutverkum eru Val-
gerður Guðnadóttir og Hrólfur Sæ-
mundsson, Nanna Hovmand frá
Danmörku og breski kontratenórinn
Owen Willetts.
Alþjóðlegur laugardagur í miðborg
Reykjavíkur með útisamkomu á Lækjar-
torgi og alþjóðlegum skemmtiatriðum.
Stuttmyndir frá öllum heimshornum
verða sýndar í Alþjóðahúsinu. Lifandi
tónlist hjá Skífunni og Gospelkór Reykja-
víkur syngur á Laugavegi.
■ ■ OPNANIR
15.00 Sýning á skartgripum
norsku listakonunnar Liv Blåvarp verður
opnuð í sýningarsal Norræna hússins.
Liv Blåvarp gegnir lykilhlutverki í norsk-
um og norrænum listiðnaði. Allt frá árs-
byrjun 1984 hafa skartgripir hennar vak-
ið athygli bæði á innlendum og erlend-
um vettvangi.
Sólrún Björk og Betty d’Is opna
sýningu í Árskógum 4. Þær sýna blóma-
og dýralífsmyndir.
Erla Þórarinsdóttir opnar sýninguna
Tímarými á Kaffi Sólon kl. 17. Erla valdi
3 stór verk á sýninguna, sem öll tákna á
einhvern hátt tíma. Verkin eru unnin í
olíu og silfri á striga.
■ ■ SÝNINGAR
14.00 Charon Kransen, umboðs-
maður norsku listakonunnar Liv
Blåvarp í New York, heldur fyrirlestur
um verk hennar og feril í ráðstefnusal
Norræna hússins.
17.00 Klæðasýning fatahönnuða í
Ketilhúsinu á Akureyri. Tónlist og vídeó
í takt við fötin. Þátttakendur eru: Þuríður
Helga Kristjánsdóttir, Móheiður Hlíf Geir-
laugsdóttir, Guðjón Sigurður Tryggvason,
Dagmar Atladóttir, Hrafnhildur Ósk Mar-
inósdóttir og Tinna Kvaran. Þau eru öll í
eða hafa lokið myndlistarnámi.
Sýning Arkitektafélag Íslands, Auð-
legð í norrænni byggingarlist, er opin í
dag á milli 14 og 22 að Skólavörðustíg
14. Sýningin er samsýning allra norrænu
arkitektafélaganna. Öll verkin byggja á
vistvænni og sjálfbærri hugmyndafræði
með mismunandi aðferðum og áhersl-
um.
Sýning Fríðu Rögnvaldsdóttur verð-
ur opin í Hitaveitu Suðurnesja í Hafna-
firði. Þar sýnir hún lágmyndir unnar úr
steypu.
Tvíburarnir 11-02 (Ármann) og 11-
02 (Óli Harðar) eru með ljósmyndasýn-
inguna „Demantar í Suðvestur-Afríku og
Fegurð í fókus“ á Vínbarnum að Kirkju-
torgi 4.
Danski myndlistarmaðurinn Claus
Hugo Nielsen sýnir nú verk sín í Gallerí
Dvergi við Grundarstíg 21 í Þingholtun-
um. Sýningin er opin klukkan 17-19 út
ágúst.
María Guðmundsdóttir sýnir muni
og myndir úr flóka í Listmunahorni Ár-
bæjarsafns.
■ ■ FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIR
10.00 25 ára afmælishátíð Leik-
skóla Reykjavíkur í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum. Öllum leikskólabörnum
og fjölskyldum þeirra er boðið til hátíð-
arinnar. Garðurinn opnar kl. 10.00 en
formlega dagskrá hefst kl. 12.00.
Birgitta Haukdal mun m.a. syngja.
13.00 Kynning á trjásýnilundi Skóg-
ræktarfélags Hafnarfjarðar í Höfðaskógi.
Steinar Björgvinsson, ræktunarstjóri fé-
lagsins, stýrir göngu um trjásafnið og
segir frá því markverðasta sem fyrir
augu ber. Lagt verður af stað frá gróðrar-
stöð félagsins við Kaldárselsveg.
14.00 Blómstrandi dagar í Hvera-
gerði verða settir á miðbæjartorgi. Lif-
andi tónlist, trúðar koma í heimsókn og
skátar sjá um tívolí, svo nokkuð sé
nefnt.
18.00 Skógræktarfélag Íslands og
landssamband skógræktarfélaganna
efna til athafnar í Hrútey í Blöndu við
Blönduóskaupstað. Tilefnið er það að í
Hrútey er nú „Opinn skógur“.
Opið hús verður í Alþjóðahúsinu við
Hverfisgötu í dag í tilefni Alþjóðlegs
laugardags. Þetta er liður í Magnaðri
miðborg. Starfsemi hússins verður kynnt
og félög útlendinga munu kynna starf-
semi sína. Alþjóðleg stuttmyndasýning
stendur yfir allan daginn og fram á
kvöld. Grænmetismarkaður og flóamark-
aður eru meðal þess sem mun setja
svip sinn á miðborgina, auk þess sem
alþjóðlegt þema mun einkenna verslun
og veitingar.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Varðeldur og brekkusöngur
sem Eyjólfur Kristjánsson stjórnar verð-
ur á Fossflöt á Blómstrandi dögum í
Hveragerði. Eftir brekkusönginn sér
Hjálparsveit skáta um flugeldasýningu.
Seinna um kvöldið er dansleikur í
íþróttahúsinu þar sem hljómsveitin Pass
og Eyjólfur Kristjánsson leika fyrir dansi.
22.00 Hljómsveitin Anonymous
verður með tónleika á Vídalín ásamt
Sunboy, dj Richard, The LBH KREW,
EXOS, dj Reyni og dj Bjarka.
23.00 Megasukk á Grand Rokk í
42 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Rokkhljómsveitin Mínus held-ur síðbúna útgáfutónleika
sína í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, í dag undir yfir-
skriftinni Sirkus Halldórs Lax-
ness. Þriðja breiðskífa sveitar-
innar, sem heitir í höfuðið á
nóbelsskáldinu, kom út í júní en
vegna tónleikaferða sveitarinnar
erlendis gafst ekki tími til þess að
fagna útgáfunni með tónleikum
fyrr en nú.
„Við ákváðum að fara ekki
þessa hefðbundnu leið og spila
plötuna í heild í sömu röð,“ segir
Frosti Logason gítarleikari. „Við
ætlum að hafa formið allt öðru-
vísi og byrja með smá spuna
ásamt þeim listamönnum sem
koma fram með okkur. Þetta stig-
magnast svo upp í það að við spil-
um vel valda slagara af plötunni.“
Tónleikarnir skiptast þannig
í tvennt. Fyrri hlutinn verður
spunaölæði þar sem Mínus sem-
ur tónlist á staðnum ásamt
Curver, Einari Erni, The Hafler
Trio, Einari Melax, Jóhamri og
fleirum. Á seinni hlutanum leik-
ur sveitin lög af Halldóri Lax-
ness í hefðbundnu formi.
Þetta er í annað sinn sem
Mínus heldur slíka tónleika en í
fyrra spann sveitin í þrjá tíma í
Nýlistasafninu ásamt Bibba
Curver. Síðan þá hefur það verið
á dagskránni hjá sveitinni að
endurtaka leikinn. Margar góð-
ar hugmyndir fengu líf síðast,
t.d. segir Frosti grunnhugmynd-
ina að laginu vinsæla „Romantic
Exorcism“ hafa fæðst þar.
Engar beinagrindur verða
gerðar áður en talið er í, allt
samið á staðnum. „Við erum líka
að fara að spila þarna með mis-
munandi listamönnum og suma
höfum við varla hitt. Við höfum
ekkert komið saman og æft,“
segir Frosti að lokum.
Tónleikarnir hefjast stund-
víslega klukkan 19.00 og ætlar
sveitin að leika stanslaust til kl.
22. Eftir það standa Mínusmenn
að einkasamkvæmi á Laugavegi
11.
Á meðan á sirkusnum stend-
ur gefst gestum kostur á að
skoða sýningu Smekkleysu,
Humar eða frægð, í A-sal Hafn-
arhússins. Aðgangseyrir er
1.000 kr.
biggi@frettabladid.is
PÁLL RAGNAR PÁLSSON
Ég mæli hiklaust með því að fólkkíki í margmiðlunartjaldið
niðri við Tjörn þar sem sýndar
eru róttækar heimildarmyndir
sem ekki hafa áður komið fyrir
sjónir almennings. Mjög áhuga-
vert,“ segir Páll Ragnar Pálsson,
gítarleikari Maus. „Alþjóðlegur
laugardagur hljómar líka vel þar
sem sýndar verða stuttmyndir og
fleira spennandi. Svo held ég að
útgáfutónleikar Mínus, Sirkus
Halldórs Laxness, hljóti að vera
hápunktur helgarinnar og ég ætla
ekki að missa af þeim. Þá er mjög
viðeigandi að nefna útgáfupartí
Mínus á 11, eina barnum í bæn-
um, sem tekur við af tónleikun-
um. Og þegar ég er búinn að vera
svona menningarlegur hugsa ég
að ég geti hugsað mér að fara og
hlusta á Gullfoss & Geysi.“
Val Páls
Þetta lístmér á!
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
ÁGÚST
Laugardagur
Í Hafnarfirði hafa risið glæsilegar þjónustuíbúðir fyrir 60 ára og eldri. Um er
að ræða tvö fjölbýlishús með 64 íbúðum sem eru sérhannaðar með þarfir
eldri borgara í huga. Húsin standa við Hrafnistu og njóta íbúarnir öryggis frá
heimilinu, auk þess sem hægt er að fá keypta þaðan ýmis konar þjónustu.
Íbúðirnar eru leiguíbúðir með 30% afnotarétti og er það nýr valkostur í
húsnæðismálum eldri borgara. Leigendur geta fengið húsaleigubætur samkvæmt
gildandi reglum. Enn er nokkrum íbúðum óráðstafað.
Hægt er að fá að skoða íbúðirnar og fá frekari upplýsingar með því að hafa
samband við Sjómannadagsráð í síma 585-9301.
Sjómannadagsráð
Þjónustuíbúðir fyrir 60 ára og eldri
glæsilegar leiguíbúðir
Íbúðirnar eru fyrir 60 ára og eldri og íbúarnir njóta
öryggis og þjónustu frá Hrafnistu í Hafnarfirði
✓
MÍNUS
Þriðja breiðskífa sveitarinnar, Halldór Laxness, hefur fengið frábæra dóma alls staðar.
Sirkus Halldórs
Laxness
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
✓
✓
■ TÓNLEIKAR