Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 43
kvöld með Megasi, Súkkat og Mike
Pollock ásamt óvæntum gestum.
Bogomil Font & Endurskoðendurn-
ir munu standa fyrir dreifbýlisstuði í
Hreðavatnsskála í Borgarfirði í kvöld í
tilefni 70 ára afmælis skálans.
Brimkló gerir allt vitlaust í Sjallan-
um á Akureyri í kvöld.
Poppsveitin Í svörtum fötum leikur
á Breiðinni á Akranesi í kvöld. Sumar-
stúlkan 2003 verður svo valin.
Eyjólfur Kristjánsson og hljómsveit-
in Pass leika á dansleik í Íþróttahúsinu í
Hveragerði í kvöld. Frítt er á dansleikinn,
aldurstakmark 18 ár.
Þórhallur á miðhæðinni á Lauga-
vegi 22.
Geðveikt partídjamm með Gullfossi
& Geysi í Leikhúskjallaranum.
Hinn eini sanni Rúnar Júlíusson
skemmtir ásamt hljómsveit gestum
Kringlukráarinnar.
Gunnar Óla og Einar Ágúst úr
Skítamóral trúbadúrast á HM Kaffi á
Selfossi.
Dúettinn Mæsý, þau Guðmundur
Pétursson og Gunnlaug Þorvaldsdóttir,
skemmta á Ara í Ögri.
Útgáfupartý Mínus á Laugavegi 11
til klukkan tvö. Eingöngu boðsmiðar
gilda inn.
Rokkararnir í Kung fú sjá um að
halda uppi stuðinu á Gauknum.
Hermann Ingi jr skemmtir gestum á
Búálfinum í Hólagarði.
Kvennahljómsveitirnar Dúkkulísur
og Rokkslæðan hafa sameinað krafta
sína og munu standa fyrir tónleikum á
Sjávarperlunni í Grindavík.
Á móti sól spilar í Húnaveri á styrkt-
arballi fyrir Rúnar Björn Þorkelsson, sem
varð fyrir því óláni að detta úr ljósastaur
á Sauðárkróki um síðustu áramót og
lamaðist fyrir neðan háls.
Karma spilar á Players í Kópavogi.
Dansveitin SÍN leikur á Útlaganum,
Flúðum.
María Guðmundsdóttir sýnir muni
og myndir úr flóka í Listmunahorni Ár-
bæjarsafns.
Djassdúettinn Augnablik leikur á
Café Central, Pósthússtræti 17 í kvöld.
Hljómsveitin Underwater spilar spil-
ar á Café Amsterdam í kvöld.
Trúbadúrinn Halli Reynis leikur fyrir
gesti Catalínu í kvöld.
DJ Valdi Kaldi spilar á Felix í kvöld.
Hljómsveitin Spark leikur fyrir dansi í
kvöld á Græna hattinum, Akureyri.
Stórsveit Ásgeirs Páls skemmtir á
Gullöldinni til kl. 03.00 í nótt.
Njalli í Holti leikur létta tónlist á
Kaffi-Læk í kvöld.
Íris Jóns syngur á Kaffi Strætó í
kvöld.
Garðar trúbadúr leikur á Kránni,
Laugavegi 73, í kvöld.
Hljómsveitin Gilitrutt heldur upp
tröllslegu stuði á Kristjáni X, Hellu, í
kvöld.
Mínus heldur útgáfupartí á Lauga-
vegi 11 í kvöld til kl. 02.00. Aðeins
boðsmiðar gilda inn.
Þórhallur leikur á miðhæð Lauga-
vegar 22 í kvöld.
LAUGARDAGUR 23. ágúst 2003 43
RÚNAR SIGURKARLSSON
OG HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
Markaður með lífrænum vörum verður fyr-
ir utan verslun þeirra, Yggdrasil, í dag.
Ekki allt
lífrænt á
Íslandi
Það er goðsögn að allt íslensktsé í raun lífrænt,“ segir Rún-
ar Sigurkarlsson, annar eigandi
verslunarinnar Yggdrasils. „Hér
á landi eru ýmis eitur notuð en
kannski ekki jafn mikið og sums
staðar erlendis. En hér eru notuð
fullt af efnum sem eru ekki notuð
þegar um lífræna vöru er að
ræða.“
Rúnar og Hildur Guðmunds-
dóttir reka Yggdrasil saman og á
Menningarnótt sló rækilega í
gegn markaður sem þau voru
með á torginu fyrir utan verslun
sína að Kárastíg 1. Þar komu
saman lífrænir bændur frá Bisk-
upstungum og Grímsnesi. Þeir
eru af Engjum, Akri, Hæðarenda
og úr Sólheimum. Þeir mæta með
grænmeti og ýmislegt góðgæti
en Brauðhús sjá um lífræna
brauðið og Grænn kostur um
heita rétti auk þess sem Yggdras-
ill býður upp á lífræna ávexti og
Biobú hrærir í lífrænni jógúrt.
„Markaðurinn byrjar kl. 12 og
stendur til 17 og það verður mjög
gaman hjá okkur. Um að gera
fyrir fólk að renna við og skoða,“
segir Rúnar en hann telur
Íslendinga vera að vakna al-
mennilega til meðvitundar um
lífræna matvöru. ■
■ MARKAÐUR
Gott að byrja á Íslandi
Þetta er svolítið erfið vinna, ein-hvern veginn mjög heitt og
gamalt handverk. Það þarf að hita
málminn upp í sextán hundruð
gráður og til þess þurfa menn
mjög góða aðstöðu,“ segir Dóra
Rögnvaldsdóttir myndlistarmað-
ur, sem steypir sjálf verkin sín í
brons.
„Það eru afskaplega fáir sem
stunda þetta hér á landi. Ég veit
um einn mann sem steypir í
brons, annars sendir fólk verkin
til Svíþjóðar og lætur steypa þau
fyrir sig þar. En þetta er listgrein
sem fer mjög dvínandi í dag um
allan heim.“
Dóra opnar í dag sýningu á
bronsskúlptúrum í galleríinu
Smíðar og skart á Skólavörðustíg
16a. Hún er búsett í Ástralíu, þar
sem hún steypir verkin sjálf í
brons. Síðan kom hún með
bronsskúlptúrana hingað til Ís-
lands og leggur hér lokahönd á
verkin með því að vinna þau í ís-
lenskan stein.
„Þetta er svolítill viðburður hjá
mér að koma loksins til Íslands að
sýna. Mér finnst gaman að vinna
þetta í íslenskan stein.“
Hún segist aldrei hafa ætlað
sér að búa í Ástralíu. Upphafið má
rekja til þess að hún hélt til Fær-
eyja, þar sem auðvelt var að fá
vinnu í fiski á sínum tíma. Þar
kynntist hún manni sem hafði
ferðast mikið um Asíu. Hana lang-
aði til að gera slíkt hið sama og
hélt í Asíuferð.
„Svo leiddi eitt af öðru og það
er löng og flókin saga. Ég giftist
og átti tvö börn og fór í skóla úti í
Ástralíu.“
Hún fór í myndlistarnám, bæði
í myndlistarskóla og síðan í há-
skóla. Þetta nám tók sjö ár og hún
hefur síðan starfað við kennslu í
Ástralíu.
„Maður hefur ekki haft mikinn
tíma með kennslunni til að sinna
myndlistinni, en núna langar mig
til að setja alla mína orku í þetta.
Og það er gaman að byrja hér
heima með sýningu.“
Dóra hefur rætt við bæði Gall-
erí List í Skipholti og Smíðar og
Skart á Skólavörðustígnum um að
koma árlega með sýningar hing-
að. ■
DÓRA VIÐ VINNU SÍNA
Dóra Rögnvaldsdóttir sýnir bronsskúlptúra í galleríinu Smíðar og Skart við Skólavörðustíg.
■ MYNDLIST
Það hefur ríkt skortur á góðumhryllingsmyndum á undan-
förnum árum og kvikmyndagerð-
armenn hafa, að því er virðist,
ekki áhuga á að sinna þessari
ágætu kvikmyndagrein með öðru
en innantómum unglingahroll-
vekjum. 28 Days Later er því vel-
komin tilbreyting en hér er á ferð-
inni einn sá allra besti hryllingur
sem sést hefur í bíó síðustu miss-
erin.
Myndin var sýnd í nokkra
daga á kvikmyndahátíð í vor og
þeir sem misstu af henni þá ættu
ekki að klikka á því aftur þar sem
hún er sælgæti fyrir þá sem
kunna að meta mátulega subbu-
legan hroll enda vísar hún mark-
visst í klassískar dómsdagsmynd-
ir á borð við The Night of the Liv-
ing Dead, Mad Max og The
Omega Man.
Banvænn og bráðsmitandi vír-
us sleppur laus í Bretlandi en
hann hefur þau hvimleiðu áhrif á
fólk að það umbreytist á nokkrum
sekúndum í morðóðar og heila-
dauðar skepnur sem eru
skemmtilega náskyldar gömlu
uppvakningunum hans George A.
Romeros. Þeir örfáu sem sleppa
við sýkingu berjast vonlítilli bar-
áttu fyrir lífi sínu. Þrátt fyrir
áhersluna á blóðsúthellingar og
líkamlegan viðbjóð finnur Boyle,
rétt eins og Romero í uppvakn-
ingamyndunum, samt pláss fyrir
tilfinningar persónanna og vanga-
veltur um eðli mannsins sem þarf
auðvitað, frekar en fyrri daginn,
ekkert endilega á veirusýkingu að
halda til þess að breytast í skepn-
ur og brytja náungann í spað.
Þórarinn Þórarinsson
Umfjölluntónlist
28 DAYS LATER
Leikstjóri: Danny Boyle
Aðalhlutverk: Cillian Murphy, Naomie
Harris, Megan Burns, Christopher
Eccleston
28 dagar hinna
lifandi dauðu
Sköpunargleðin er mikil hjábresku ungliðasveitinni The
Coral. Sveitin gaf út fyrstu plötu
sína seint árið 2001 og er þegar
byrjuð að vinna að sinni þriðju
plötu, þrátt fyrir að þessi hér,
„Magic and Medicine“, sé nýkom-
in í búðir.
Þeir mega eiga það að þeir eru
gjörsamlega sér á báti miðað við
allt sem er í gangi í dag. Það er
einhver undarlegur sjóarakeimur
yfir léttrokki þeirra. Áhrifin eru
mest frá rokki sjöunda áratugar-
ins þó erfitt sé að beina fingri að
einni sérstakri hljómsveit til sam-
líkingar. Kannski örlítið af Roll-
ing Stones, örlítið af Simon & Gar-
funkel, örlítið af The Byrds og ör-
lítið af Echo and the Bunnymen. Á
fyrri plötunni var meiri ævintýra-
keimur og sú minnti jafnvel á
köflum á Disneylegar sjóræn-
ingjavísur. Þessi nýja plata er
meira blátt áfram í rokkinu, en þó
má enn heyra kráarlegt daður við
polka og aðrar „út á skjön“ tónlist-
arstefnur. Ef The Coral héldi tón-
leika hér á landi myndu Geirfugl-
arnir smellpassa sem upphitunar-
sveit.
Söngvarinn James Skelly er
með meðaldjúpa rödd, og samein-
ar allt það besta sem Van Morri-
son og Liam Gallagher hafa upp á
að bjóða, og heldur þannig plöt-
unni algerlega uppi.
Með þessu áframhaldi gæti
The Coral vel skipað sér á meðal
athyglisverðari og a.m.k.
skemmtilegri rokksveita fyrrum
heimsveldisins.
Önnur frábær plata frá The
Coral. Mjög lifandi, gruggug og
eitursvöl á köflum.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
THE CORAL:
Magic and Medicine
Annar sigur
✓