Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 46
Vikan hófst á laxveiði við Laugáá Mýrum,“ segir Eiríkur Tóm-
asson prófessor en hann upplifði
furðulega viku. „Þetta var hjá
honum Ingva Hrafni og ég var
þarna með honum og öðru góðu
fólki.“
Eiríkur fer ekki mjög oft í lax-
veiði, enda dýrt sport. Hann er
framkvæmdastjóri Stefs og pró-
fessor í lögum við Háskóla Ís-
lands.
„Ég er forseti lagadeildar og í
upphafi viku var ég vinna á skrif-
stofu skólans. Það eru 24 nýnemar
að hefja nám núna 1. september
en í heildina eru 450 laganemar í
námi við Háskóla Íslands svo það
er margt sem þarf að huga að í
kringum skólasetningu.“
Svo tók Eiríkur til við að undir-
búa fyrirlestur sem hann hélt á
fimmtudag á Selfossi en þar hitt-
ust norrænir embættismenn á
ráðstefnu:
„Ég flutti þennan fyrirlestur á
dönsku og þurfti því að rifja upp
dönskuna mína,“ segir Eiríkur en
hann lærði dönsku í skóla eins og
Íslendingar flestir.
„En það sem hefur snert mig
mest í liðinni viku eru tíðindin
sem ég fékk á þriðjudag. Ég hef
sjaldan orðið jafn undrandi á æv-
inni. Þetta kom mjög á óvart. Að
þessi tiltekni umsækjandi skyldi
fá starfið,“ segir Eiríkur og á við
þá staðreynd að Björn Bjarnason
hefur gert Ólaf Börk Þorvaldsson,
frænda Davíðs Oddsonar, að
hæstaréttardómara. „Þessar
fréttir settu mikinn svip á liðna
viku og síminn hefur ekki stoppað
hjá mér. Sjálfur tala ég ekki mikið
í síma en ég hef aldrei heyrt í jafn
mörgum lögfræðingum á einni
viku, auk þess sem alls konar fólk
hefur verið að hringja í mig og
lýsa undrun sinni á þessum ráða-
hag.“
Eiríkur lætur þetta samt ekk-
ert á sig fá og sinnir sínum störf-
um. Hann og konan hans, Þórhild-
ur Líndal, umboðsmaður barna,
ætla annars að ljúka vikunni á
golfvellinum og skreppa kannski í
dag á fjölskyldumót en verða svo
með boð fyrir elsta soninn á
sunnudag. Hann kemur frá
Englandi en þar var hann að ljúka
mastersprófi í Evrópurétti. Það er
því nóg að gera. ■
Í kvöld spilum við á Egilsstöð-um,“ segir Guðmundur Jónsson,
gítarleikari Sálarinnar, en í dag
spilar hann í brúðkaupi Ívars Guð-
mundssonar á Bylgjunni. „Þetta
misserið einkennast laugardags-
kvöldin af spilamennsku og í raun
hefur það verið þannig síðan ég
var 16 ára. Ég hef sem dæmi bara
verið heima hjá mér eitt gamlárs-
kvöld síðan þá.“
Guðmundur bjó samt í London í
þrjú ár, ‘96-’98, og eitt af þeim
árum var hann algerlega fjarri
spilamennsku og fékkst varla út á
djammið um helgar enda fer það
svolítið eftir fjölskylduaðstæðum
hverju sinni.
„Annars er þessi sveitaballa-
rúntur hrein fíkn hvað flesta varð-
ar. Það er svo rosalega gaman að
spila með góðri hljómsveit að
maður vill helst ekki gera annað á
laugardagskvöldi. Og þannig hef-
ur það verið í sumar hjá mér. Ég
er ekkert búinn að vera í bænum
og veit ekki alveg hvaða stað ég
myndi fara á færi ég út. Enda er
það oftast þannig með mig að eftir
djamm í Reykjavík rifja ég
gærkveldið upp á sunnudegi og
uppgötva að ég fór á næstum alla
barina í bænum.“
Guðmundur endar því alltaf á
pöbbarölti þegar hann er í bæn-
um en vill helst komast á góða
tónleika. Það er bara of lítið um
það í Reykjavík og hann Gummi,
eins og hann er kallaður, er ekki
beint partímaður. Ekki nema þá
rétt sem upphitun.
„Ég man líka eftir laugardags-
kvöldunum í gamla daga. Ég flutti
í bæinn frá Skagaströnd 17 ára og
þá var Hallærisplanið enn við lýði.
Það var svolítið fyndið að vera þar.
Fólk gekk hring eftir hring og
drakk vodka eða íslenskt brenni-
vín,“ segir Gummi en þá var bjór
auðvitað ólögleg lúxusvara.
„Þetta var samt mjög sérstakt
að verða fullorðinn svona fljótt.
Ég var í FB og sumrin fóru öll í að
vinna sér fyrir leigu og mat um
veturinn því maður var algerlega
sjálfstæður. Svo þegar ég var 20
ára byrjaði ég að spila í hljóm-
sveitum af fullri alvöru og 25 ára
var ég kominn í Sálina.“
Gummi flýgur sem fyrr segir
til Egilsstaða seinnipartinn en í
haust mun Sálin senda frá sér
plötu ásamt Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. ■
46 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
■ Áhugamálið
... fær Sigurður G. Guðjónsson,
forstjóri Norðurljósa, fyrir að
gefast ekki upp.
Fréttiraf fólki
Hrósið
Laugardagskvöld
GUÐMUNDUR JÓNSSON
■ gítarleikari Sálarinnar náði í rassgatið á
gamla Hallærisplaninu og fannst fyndið
að ganga þar hring eftir hring. Í dag
finnst honum best að vera uppi á sviði
og spila með góðri hljómsveit á laugar-
dagskvöldi.
Vikan sem var
EIRÍKUR TÓMASSON
■ prófessor upplifði furðulega viku.
Hann fékk ekki starf hæstaréttardómara
og hefur fengið ótrúlega mörg símtöl frá
bæði lögfræðingum og öðrum sem lýsa
furðu sinni vegna ráðningar Ólafs Barkar
Þorvaldssonar.
Íslandsvinurinn Brian Tracy varsíðast hér á landi í vor þegar
hann hélt námstefnu í Háskóla-
bíói og snæddi kvöldverð á
Bessastöðum með Ólafi Ragnari
Grímssyni og Jack Welch, fyrr-
um forstjóra General Electric.
En nú hefur kauði ákveðið að
bjóða sig fram gegn sjálfum
Arnold Schwarzenegger. Og það
sem meira er, hann telur sig sig-
urstranglegan. Á íslensku hefur
komið út fjöldi bóka um stjórnun
og árangur eftir Brian Tracy.
Eyðsla er mitt áhugamál, aðborða vel og vera við skál,“
segir Ólafur Egill Egilsson lista-
maður. „Matur er mannsins meg-
in.“
Lárétt: 1 fornt lastabæli, 7 tilbúinn, 8 í
spilum, 9 missa skinn, 11 skammstöfun,
12 valdir, 15 tvíhljóði, 16 kyrrð, 17 fregna.
Lóðrétt: 1 dúsk, 2 belti, 3 lofa, 4
óhrædd, 5 afl, 6 sjá um, 10 ámóta, 13
blóm, 14 brunaleifar, 15 frá.
■ Leiðrétting
Þótt Egill Helgason sé staddur í Berlín var
hann ekki rekinn í útlegð, bara af Skjá Einum.
1
7
8
9 10
12 13
15 16
14
17
2 3 4 5
11
6
Lausn: Lárétt: 1sódóma,7kláran,8sögn,9
flagna,11ím,12kaust,15au,16 ró,17
frétta.
Lóðrétt: 1skúf, 2ól,3dásama,4órög,5
magn,6annast,10líkur, 13urt, 14sót,15af.
Imbakassinn
Vonandi líkar
þér þetta!
Ó, Róbert!
Þú ert geðveikur!
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Verður á Egilsstöðum í kvöld en þegar hann er í bænum og ætlar að djamma endar hann oftast á pöbbarölti þótt hann kjósi helst af öllu
að fara á tónleika.
Endar á pöbbarölti
Sjaldan orðið jafn undrandi
EIRÍKUR TÓMASSON
Það kom honum mjög á óvart að þessi til-
tekni umsækjandi skyldi fá starf hæstarétt-
ardómara í liðinni viku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI